Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981 107 kennarar brautskráðir BrautskráninK 107 kcnnara frá Kennaraháskóla tslands átti sér staó í IláteÍKskirkju laugar- datíinn fi. júní klukkan 1.30. Luku 19 nemendur einnitc sér- kennaraprófi. Alls voru á bilinu frá 600 til 700 nemendur í Kennaraháskól- anum í vetur. Nú í sumar stendur yfir endur- menntunarnámskeið og eru á því milli 800 og 900 nemendur. Auk þessa stendur yfir náms- skeið fyrir kennara sem kenna á grunnskólastigi en eru réttinda- lausir og á þetta námskeið að veita þeim full réttindi. Nálægt 130 nemendur eru á námskeiðinu. Kennarar á framhaldsskólastigi eru í námi í uppeldis- og kennslu- fræðum og eru þeir 115, og skiptist námið í sumarnámskeið og vetr- arnámskeið. Bull eða ásetningsruglandi? Sá sem í upphafi ferðar tekur skakkan pól í hæðina og leggur síðan af stað með áttaskekkjuna, hann getur lent út í móum og jafnvel í keldu á því ferðalagi. Allt kann að virðast standa rétt af sér en leiðir af sjálfu sér að allt er vitlaust ef allar áttir eru rangar. Ekki ætla ég með í þá ferð en vil aðeins ítreka nokkrar staðreyndir vegna greinar Þorsteins Pálssonar framkvæmdastjóra VSÍ í Morgun- blaðinu í morgun. Hún mun vera ætluð sem svar við stuttri athuga- semd minni í blaðinu í gær vegna ákæru- og klögubréfs fram- kvæmdastjórans til útvarpsráðs og birtist í blaðinu sl. laugardag. Þorsteinn Pálsson flöktir víða og æ lengra frá kjarna málsins: 1. Frétt útvarpsins 20.5. um tekjuskatt fyrirtækja (sem birtist orðrétt í Morgunblaðinu í gær). 2. Fréttatilkynning VSÍ tíu dög- um síðar með beiðni um leiðrétt- ingu vegna þess, eins og segir í fréttatilkynningunni, að „Fréttina mátti skilja þannig að upptalin fyrirtæki greiddu enga skatta." 3. Ogerlegt var að skilja fréttina svo nema fyrir þann sem þau orð eiga við að heyrandi heyri hann ekki og sjáandi sjái hann ekki, hvað sem kann að valda slíkri deyfð. Bílslysið á Hólsfjöllum: Konan slasaðist alvarlega á baki LÍÐAN konunnar sem slasaðist í bílslysi á Hólsfjöllum um síðustu helgi er óbreytt, samkvæmt upp- lýsingum sem Morgunblaðið fékk á gjörgæsludeild Borgarspítalans í gær. Konan slasaðist alvarlega á baki, hryggbrotnaði, og eru bata- horfur óljósar. Tíminn yrði að leiða það í ljós. Konan liggur nú á gjörgæsludeildinni og verður þar áfram næstu daga. Stjörnubíó frumsýn- ir „Ást og alvöru“ í GÆR frumsýndi Stjörnubíó kvikmyndina „Ast og alvara" (Sunday Lovers), sem gerð er úr fjórum myndum jafnmargra leik- stjóra, þeirra Bryan Forbes frá Englandi, Edouard Malinaro frá Frakklandi, Gene Wilder frá Bandaríkjunum og Dino Risi frá Ítalíu. í aðalhlutverkum eru Roger Moore, Lino Ventura, Ugo Togn- azzi, Gene Wilder, Catherine Salviat og Lynn Redgrave. Myndirnar fjalla allar um sama söguþráðinn, ástina, hið eilífa yrkisefni, hver með sínu bragði, og eru teknar í fjórum stórborgum. 4. Það var því ekkert að leið- rétta. Þetta stendur allt óhaggað (sbr. Mbl. í gær). Þorsteinn Pálsson vitnar í Þór- berg Þórðarson. Hann tekur orð úr ritgerð Þór- bergs: Einum kennt — öðrum bent, slítur úr samhengi svo að úr verður ruglandi. Þórbergur talar um ásetningsruglandi, það er ruglandi sem framin er af ráðnum hug, og segir: „Ásetningsruglari getur orðið pólitikus. En hann getur aldrei orðið Jón Sigurðsson." Það nýtist illa öðrum, að maður sé snuddgáfaður sem Þórbergur kallar svo, ef hann er haldinn því sem Þórbergur nefnir og skil- greinir sem karakterheimsku. Hér með er útrætt um þetta mál af hálfu FÚ. Framkvæmdastjóri VSÍ getur að sjálfsögðu haldið áfram að æfa sig í starfsíþrótt sinni sem Þórbergur kallar ásetn- ingsruglandi. Með þökk fyrir birtinguna, Margrét Indriðadóttir, fréttastjóri. Safnaðarferð Laugarnes- sóknar NK. SUNNUDAG verður farið í safnaðarferð frá Laugarneskirkju kl. 9.30 árdegis. Farið verður um Borgarfjörð. Fyrsti viðkomustað- ur verður Saurbær á Hvalfjarð- arströnd, en þar mun sóknarprest- urini, sr. Jón Einarsson, ávarpa hópinn og mun hann m.a. sýna hina fögru kirkju sem þar stendur. Næst verður komið i Reykholt. Þar verður helgistund í kirkjunni í umsjá sóknarprestsins sr. Geirs Waage. Úr Reykholti verður ekið sem leið liggur í Bifröst, en þar verður drukkið sameiginlegt síð- degiskaffi áður en lagt verður af stað til höfuðborgarinnar að nýju. Nokkuð er nú liðið síðan farið var í ferð sem þessa á vegum Laugarnessafnaðar, og því von- andi að sem flestir geti verið með. Fólk er beðið að hafa með sér nesti til að snæða í hádeginu, en eins og fyrr seg'r kaupum við sameiginlegt kaffi í Bifröst. Ekki er nauðsynlegt að tilkynna þátt- töku fyrirfram. Þennan dag verður engin messa í Laugarneskirkju. Jón D. Hróbjartsson, sóknarprestur. Fram og Valur fá leyfi til byggingar íþróttahúsa IÞRÓTTARÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt fyrir sitt leyti að heimila Knattspyrnufélaginu Val að byggja iþróttahús á félagssvæðinnu við Illið- arenda og Knattspyrnufélaginu Fram að byggja íþróttahús á félags- svæði sinu. Bæði þessi leyfi eiga eftir að fara fyrir borgarráð til staðfest- ingar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er hér um að ræða íþróttahús með löglegum keppnisvöllum fyrir handknattleik, í báðum tilfellum og einnig mun gert ráð fyrir félagsað- stöðu í húsum þessum. íþróttaráð gerði hinsvegar fyrirvara um áhorfendastæði. Lóð Þeir, sem hafa áhuga á að byggja raðhús í Reykjavík eru beðnir að leggja nafn sitt inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Lóð — 9613“: Lýðháskóli í Skálholti býður almennt framhaldsnám eftir frjálsu vali. Vetrarstarfiö skiptist í tvær sjálfstæðar annir, frá októberbyrjun til jóla og frá áramótum til aprílloka. Nemendur velja aöra önn eða báöar. Innritun stendur yfir. Hringið í síma 99-6870 eða 99-6872. Skálholtsskóli Harðarkappreiðar Kappreiðar Hestamannefél. Haröar veröa á skeiðvelli félagsins viö Arnarhamar laugardaginn 20. júní og hefjast kl. 14. Keppnisgreinar: Gæðingar, A og B flokkur, unglingar yngri og eldri flokkur, unghross í tamningu. 150 m nýliðaskeiö, 150 m. skeiö 250 m skeiö 400 m brokk 250 m stökk unghrossa 300 m stökk 400 m stökk Skráning er í síma 66688 (Ragnheiður) og hjá Pétri Lárussyni Káranesi. Skráningu lýkur á mánudags- kvöld 15. júní kl. 19. Dómar gæöinga hefjast kl. 10 fh. Stjórnin. MORGUNBLAOIOMORGl MORGUNBLAÐIÐMORC ÐlÐMQSj MOf/á MORGUN^ MORGUNBL LÐIÐMORGUNBLAOil) '^^QMORGUNBLAÐIÐ /y/' —^RGUNBLAÐIO LNBLAÐIÐ LAÐIO BLAÐIÐ B,LAÐIO Blað- burðar- fólk óskast Vesturbær Skerjafjörður sunnan flugvallar I Tjarnargata I Tjarnargata II Austurbær Laugavegur frá 101 — 171 Hringið í síma 35408 MORGUNBLAOfc MORGUNBLADIDM&.-- /NBLADIDM' ulaOIO BLADIÐ ^LAÐIÐ 4BLAÐIÐ 0NBLAOIÐ ^ y&UNBLAÐIÐ (GUNBLAÐIÐ GUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.