Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981 Útgefandi stMofófe hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Sviptir málfrelsi Frásagnir af ferð nokkurra íslenskra þingmanna til Sovétríkjanna sýna, hve tilgangslítið það er að ætla sér að sækja sovéska valdamenn heim og ræða við þá, án þess að fyrst hafi farið fram langar samningaviðræður um hvað eigi að ræða. Þingmenn í lýðræðislandi eins og íslandi búast að sjálfsögðu við því, að þeir fái að minnast á þau umræðuefni við gestgjafa sína, sem þeim liggur mest á hjarta. Raunar vissu Sovétmenn fyrirfram, að íslensku þingmennirnir hefðu sérstakan áhuga á því að ræða málefni landflótta Sovétmannsins Viktor Kortsnojs, þegar þeir hittu ráðamenn í Moskvu. Opinberar yfirlýsingar lágu fyrir um það, áður en þingmennirnir héldu héðan. Eins og lýst er í frétt Morgunblaðsins af ferð þingmannanna gafst þeim færi á að hitta sjálfan fyrsta varaforseta Sovétríkjanna Kuznetsov. Hins vegar fengu þingmennirnir „ábendingu" um tvennt, áður en þeir fóru til fundar við fyrsta varaforsetann: I fyrsta lagi væri ekki við hæfi, að aðrir töluðu við hinn hágöfuga fulltrúa sovéskrar alþýðu en Jón Helgason, forseti sameinaðs þings. í öðru lagi mátti Jón Helgason ekki minnast á önnur mál við varaforsetann en ferðalag þingmannanna um Sovétríkin. Á fundinum gerðist það svo eftir að Jón Helgason hafði greint frá ferðalagi þingmannanna, að Kuznetsov flutti ádrepu um Atlantshafsbandalagið af alkunnri sovéskri hógværð. Eins og bent var á hér í blaðinu, áður en íslensku þingmennirnir fóru í hina sögufrægu ferð, er hyldýpi á milli Æðsta ráðsins (þings Sovétmanna) og Alþingis íslendinga. Æðsta ráðið er eins og stimpill fyrir valdhafana í Kreml, en í höndum Alþingis er raunverulegt vald. í Æðsta ráðinu mega menn ekki segja annað en það, sem valdhöfunum líkar, en á Alþingi geta menn sagt það, sem þeim býr í brjósti. Sovéskir valdhafar hafa greinilega litið svo á sem íslensku þingmennirnir væru brúður, er þeir gætu leikið sér með í áróðursskyni. Ekki nóg með að þeir bönnuðu þeim að taka til máls heldur vildu þeir einnig fá þá til að undirrita svokallaða „fréttatilkynningu" í lok fararinnar, þar sem þingmennirnir áttu að fara í spor Maríu Þorsteinsdóttur og Hauks Más Haraldssonar, starfsmanna Novosti á íslandi, og hrósa „friðarvilja" Leonid Brezhnevs forseta Sovétríkjanna. Það var ekki fyrr en íslensku þingmennirnir börðu í borðið fyrir framan höfunda „fréttatilkynningar- innar", að þeir drógu í land. Ferðir sem þessar eru hæpnar og meira en það. Áður en þær eru farnar verða menn að vita að hverju þeir ganga og vera búnir undir hið versta. Þingmannaförin ætti að vera öðrum víti til varnaðar. Hún ætti jafnframt að vera Alþingi til leiðbeiningar um það, hvernig taka skal á móti fulltrúum Æðsta ráðsins, þegar þeir koma hingað í boði Alþingis. Að vísu tökum við íslendingar aldrei þannig á móti gestum okkar, að við sviptum þá málfrelsi eða reynum að troða upp á þá skoðunum, sem þeir hafa ekki. Hitt ætti þó að vera unnt að koma fulltrúum Æðsta ráðsins í skilning um, að komi þeir hingað, verði þeir að láta sér lynda að hlusta á gagnrýni vegna síendurtekinna mannréttindabrota sovéskra stjórn- valda. Svo mætti líka spyrja þá, hvers vegna Sovétstjórnin hafi ákveðið að byrja að hóta íslendingum með kjarnorkusprengjum sínum. AÖ standa við loforðin Svavar Gestsson ritaði oft um nauðsyn þess, þegar hann var ritstjóri Þjóðviljans, að jafnt í einkafyrirtækjum sem hjá opinberúm aðilum yrðu áhrif starfsmanna aukin. Gott ef Alþýðubandalagsmenn hafa ekki einmitt talið þetta atriði eitt af sjálfsögðum stefnumálum sínum. Svo virðist sem flokkurinn og ritstjórinn hafi aðeins haldið þessum sjónarmiðum á loft í þeirri trú, að þau yrðu til fylgisaukningar. í ráðherraembætti hefur Svavar Gestsson öll slík loforð að engu, þegar flokksgæðingar eru annars vegar. Ingi R. Helgason, sem kallaður hefur verið gullkistuvörður Alþýðubandalagsins vegna fjármálasviptinga fyrir flokk sinn, hefur verið skipaður forstjóri Brunabótafélags íslands. Við þá embættaveitingu gekk Svavar Gestsson fram hjá þaulreyndum starfsmönnum fyrirtækisins og öðrum, sem hafa víðtækari starfs- reynslu en Ingi R. Helgason. Ekki er langt um liðið síðan Alþýðubandalagið stóð einarðlega að því, að Björgvin Guðmundsson borgarfulltrúi Alþýðuflokksins yrði skipaður framkvæmdastjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur, þótt þorri starfsfólks- ins hjá fyrirtækinu væri á móti þeirri skipan. Þannig má nefna tvö opinber fyrirtæki, þar sem á skömmum tíma hefur verið gengið á hlut þeirra, sem þar starfa. í Brunabótafélaginu er ekki aðeins gengið á hlut starfsmanna heldur eru sjónarmið eigenda félagsins höfð að engu, félagsmálaráðherra skipar nýjan forstjóra án samráðs við stjórn fyrirtækisins. Þegar Svavar Gestsson er spurður að þvi, hvort hann hafi ekki svikið loforð með því að skipa Inga R. Helgason, eins og forráðamenn Brunabótafé- lagsins hafa gefið til kynna, svarar hinn hógværi „fulltrúi alþýðunnar" „Eg stend vill öll þau fyrirheit sem ég hef gefið... ég er nú staddur í Sviss og hef ekki rætt við þá hábornu menn (stjórn Brunabótafélagsins innsk.) síðustu sólarhringa ... ég er mjög ánægður með að hafa fengið tækifæri til þess að veita Inga R. Helgasyni þetta starf...“ THE OBSERVER Kosningasigur Mitterrands veldur óvissu innan EBE • SIGUR Francois Mitterrands i forsetakosningunum í Frakklandi hefur heldur hresst upp á ástandið í Efnahagsbandalagi Evrópu, sem orðið var heldur bágborið og ekki upp á marga fiska meðan á kosningabaráttunni stóð. Ráðherrafundum bandalagslandanna í Brtissel hafði orðið að fresta vegna kosningaatsins í Frakklandi og hvortveggja, ráðherranefndin og framkvæmda- nefndin, héldu að sér höndum og höfðust ekki að. Þó að ekki sé búist við neinum róttækum breytingum áður en gengið verður til almennra þing- kosninga í Frakklandi nú á næstunni eru menn ekki á einu máli um það í Brússel hverjar fyrirætlanir nýju frönsku ríkis- stjórnarinnar eru í málefnum Evrópu. Afstaðan til Efnahagsbanda- lags Evrópu var ekkert kosn- ingamál í Frakklandi og Mitt- errand hefur ekki verið talinn neinn sérstakur Evrópusinni (hann var kosinn á Evrópuþingið en tók þar aldrei sæti) og það orð hefur heldur ekki flust af for- sætisráðherranum, Pierre Mauroy, og Michel Rocard, byggðamálaráðherra. Líklegt er því, að samevrópsk málefni verði látin liggja í láginni næsta misserið meðan Mitterrand reynir að ná tökum á vandamál- um sinnar eigin þjóðar, sem lotið hefur forræði hægri manna um margra áratuga skeið. Nokkra bjartsýni hefur það vakið á hinn bóginn meðal Evr- ópusinnanna, að fjórir ráðherr- anna í stjórn Mitterrands hafa átt sæti á Evrópuþinginu og má þar t.d .nefna Yvette Roudy, jafnréttismálaráðherra, Maurice Faure, dómsmálaráðherra, og Jacques de Lors, fjármálaráð- herra. Hvað þýðingarmest í aug- um Evrópusinnanna er þó skip- an Edith Cresson í embætti landbúnaðarráðherra, en hún hefur verið kunnur talsmaður evrópskrar samvinnu. Eins og fyrr segir, er ekki búist við miklum breytingum á afstöðu Frakka til þeirra vanda- mála sem Efnahagsbandalagið á jafnan við að glima, en þó hallast menn að því að frönsku sósíalistarnir muni reyna ða rétta hlut smábændanna, sem hafa átt mjög erfitt uppdráttar undir núverandi kerfi. Það gæti svo aftur leitt til þess, að annar háttur yrði hafður á í framtíð- inni við að bæta kjör bænda almennt í aðildarlöndum Efna- hagsbandalagsins en með mikl- um verðhækkunum eins og nú tíðkast. Áhugi ríkisstjórnar Mitterr- ands á að draga úr miðstýringu gæti einnig orðið hvati að frek- ari umbótum í EBE og þá ekki síst betra eftirlit með fjárfram- lögum til landbúnaðarins, sem segja má að séu opin í báða enda og misnotuð á hinn stórkost- legasta hátt. Allmiklu af því fé væri betur varið til hjálpar þeim héruðum, sem aftur úr hafa orðið af ýmsum ástæðum. Ríkisstjórnir aðildarlanda Efnahagsbandalagsins fara sér hægt í sakirnar um þessar mundir meðan þær eru að átta sig á þeim mestu pólitísku um- skiptum, sem orðið hafa í Evr- ópu frá lokum síðari heimsstyrj- aldar. Áfram er búist við að Þjóðverjar og Frakkar hafi með sér náið samstarf innan EBE en þó eru bundnar vonir við, að opnari utanríkisstefna af Frakka hálfu geti stuðlað að róttækum breytingum, sem mörgum finnast löngu tímabær- ar. Ýmislegt bendir t.d. til, að Frakkar ætli að draga mjög úr vopnasölu til Suður-Afríku og gæti sú afstaða þeirra bundið enda á tvískinnung fram- kvæmdanefndar EBE, sem hvort tveggja í senn hefur gert sér dælt við ríkisstjórnir hinnar svörtu Afríku og steinþagað um aðskilnaðarstefnuna. — Sv. Setið fyrir sovéskri her- flutningalest í Af ganistan Eftir hollenska flug- manninn Van Lynden Á fimm minútum var rússn- eskri bilalest, tveimur bilum fullum af vopnuðum hermönn- um og tveimur fullhlöðnum vöruflutningabifreiðum á leið frá Kabúl til Jalalahad. breytt i logandi rústir. Sjötíu meðlimir í frelsissveit- um Afgana höfðu beðið bílalest- arinnar í 12 tima. Nóttina áður höfðum við gengið í tunglskininu eftir veginum eins og ekkert væri. Mennirnir, sem voru á aldrinum 14 ára til 60, voru ánægðir yfir því að vera aftur farnir að berjast við Sovétmennina sem þeir hata. Frelsissveitirnar eru betur vopnum búnar nú en áður í stríði þeirra við Marxistastjórnina í Kabúl. Þær höfðu þarna með sér 6 PRG-7-eldflaugar til að granda skriðdrekum og nokkrar vélbyss- ur og venjulega rússneska riffla. Nú sáust ekki 19. aldar rifflarnir sem notaðir voru á sl. ári. Bílalestin nálgaðist okkur kl. 14.45 21. maí síðastliðinn. Litlu munaði að Sovétmenn kæmust óáreittir í burtu því fyrstu flugskeytin hæfðu ekki bílana. En meðlimir frelsissveitanna áttu eftir að sýna ótrúlega ná- kvæmni. Eftir nokkur augnablik Meðlimir frelsissveita Afgana eru sumir komnir til ára sinna. Hér situr eintt þeirra með RPG-7-flugskeyti í fanginu. hafði lestin stöðvast, vélarrúm og framsæti bifreiðanna stóðu í ljós- um logum. Bílarnir með her- mönnunum ultu og svartur reyk- ur fyllti þröngan dalinn. Tveir særðir sovéskir hermenn reyndu að komast í skjól, annar með því að skríða upp að veginum og hlaupa yfir hann. Það var sérstaklega heimskulegt af hon- um. Áður en hann hafði tekið eitt skref voru fæturnir bókstaflega skotnir undan honum og allur líkami hans tættur sundur. Félaga hans beið enn verri dauðdagi. Fyrirsátin hafði heppnast vel og tveir frelsisher- mannanna fóru úr stöðum sínum í brattri fjallshlíðinni, hentu vopnum sínum og grýttu höfuð hans. Heyra mátti sungið „AUah-o-Akbar (guð er stórkost- legur). Og svo hurfu þeir upp í fjöllin til að komast inn í dalina áður en Sovétmenn gætu gert gagnárás með árásarþyrlum sínum. Nú, þegar frelsissveitirnar hafa feng- ið flugskeyti sem vinna á skrið- drekum, eru árásarþyrlurnar það eina sem meðlimir þeirra óttast. Árás þessi átti sér stað sjöunda daginn sem ég var í Afganistan. Mér til mikillar undrunar sá ég þarna í fyrsta sinn sovéskt herlið eða her leppstjórnar Sovét- manna. Gangan yfir fjöllin var ákaflega þreytandi (Afganir ganga 14—16 klukkustundir á dag). Meðan við fórum um nokkra af þeim þrengstu fjallastigum sem ég hef séð voru frelsissveit- irnar við öllu búnar. Við mættum, að því er virtist, endalausri röð Afgana sem voru að flýja í öryggið í tjaldi Samein- uðu þjóðanna í Pakistan. Það var átakanleg sjón að sjá karlmenn, konur og börn reka á eftir yfirhlöðnum ösnum sínum. Þýð. rmn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.