Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.06.1981, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Sími á rítstjóm og skrifstofu: 10100 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981 Okuþórarnir í American HeJldrivers tóku „létta“ æfingu á Reykjavíkurflugvelli í gærkveldi, en á Mrlavelli munu þeir leika listir sinar fyrir áhorfendur í kvöld k). 20. Þá munu þeir sýna á sama stað á iiiorgun og hefst sýningin kl. 16. Einnig munu þeir sýna á Melavellinum kl. 17 og 20 á sunnudaginn, t n á þriðjudag og miðvikudag verða ökuþórarnir á Akureyri og sýna á Þórsvellinum og hefjast sýningarnar háða dagana kl. 17. Á myndinni má sjá eitt sýningaratriðanna. LjóNm. Mbl. GunniauKur. Samningar íslendinga og Belga undirritaðir í gær: Aflakvóti Belga miimkar mn 10% Afla af íslandsmiðum skal aðeins landað í Belgíu ÍSLENDINGAR og Belgar undirrituðu í gær samkomulag um hreytingar á fiskveiðiheimildum Belga innan fiskveiðilögsögu ís- lands. Ilelztu breytingar eru þær að árskvóti Belga lækkar um 500 lestir á þessu ári, en um 600 á næsta og skal aflanum aðeins landað í Belgíu. Þá féllust Belgar á mun strangari eftirlitsákvæði en voru í samningi þjóðanna frá 1975 og þrengingu veiðisvæða. Jafnframt var samið um að veiðileyfi belgiskra togara, sem afturkölluð voru þann 1. þessa mánaðar. tækju að nýju gildi frá 15. júli næstkomandi. Frá þeim tima og fram að áramótum mega þeir veiða allt að 2.000 lestum, þar af 200 lestir af þorski. Þær breytingar og viðbætur, sem gerðar voru á samningum frá 1975, voru þessar: Bannað verður að landa afla belgískra skipa af tslandsmiðum annars staðar en í Belgiu. Þorski skal haldið aðgreindum frá öðrum afla um borð. Landhelgisgæzlan fær nákvæmar upplýsingar um lestastærð belgísku togaranna og burðarþol til að auðvelda mælingu á aflamagni um borð. Daglega verður tilkynnt til landhelg- isgæzlunnar um afla, annars vegar á þorski og hins vegar heildarafla. Auö- velduð verði störf eftirlitsmanna, sem íslendingar kynnu að vilja senda til Belgíu til að vera viðstaddir löndun úr belgískum skipum, sem koma af Is- landsmiðum. Belgískum togurum verö- ur skylt að koma til næstu hafnar á íslandi, ef Landhelgisgæzlan telur það nauðsynlegt vegna eftirlits. Verði belg- ískur togari uppvís að grófu broti á ákvæðum samkomulagsins er heimilt að svipta hann veiðiheimild tímabund- ið, eða að fullu og öllu ef um itrekun er að ræða. Framvegis verður Belgum bannað að veiða á veiðisvæði IV (Selvogsbanka) í marz, apríl og maí og á veiðisvæði V (suðaustur af Reykjanesi) í apríl. Fram til næstu áramóta íá Belgar að veiða allt að 2.000 lestum. Aldrei má þó þorskafli í neinni veiðiferð á því tímabili fara umfram 10% af heildar- afla skipsins. Belgum er heimilt að hefja veiðar að nýju 15. júlí næstkom- andi. Frá 1. janúar 1982 lækkar árs- kvóti belgískra togara frá gildandi samningi úr 5.000 lestum í 4.400. Leyfilegt aflamagn af þorski er 25% af afla hverrar veiðiferðar. Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri, var spurður að því hvort þetta samsvaraði ekki 1.100 lestum og væri því aukning á þorskafla Belga, sem var fyrir samn- ingana aðeins 750 lestir. Hann sagði að svo væri í raun og veru ekki. I flestum veiðiferðum sínum væru belgísku tog- ararnir ekki í þorski og væri þá allt niður í 5% aflans þorskur. Þegar þeir hins vegar kæmust í þorskinn, yrði aldrei meira en 25% aflans þorskur, þannig að búizt væri við að hlutfalí þorsks af heildarafla yrði áfram um 15%. Utanríkisráðherra, Ólafur Jóhann- esson, undirritaði samningana af hálfu íslands, en Jacques Vermer, sendiherra Belga á íslandi, af hálfu Belga. Versnandi ástand á sjúkrahúsunum: Allt skipulag er gengið úr skorðum ÁSTANDIÐ á sjúkrahúsunum í Reykjavík fer nú sífellt versn- andi vegna uppsagna lækna og má heita að skipulag þeirra sé nú nánast úr skorðum. Ekki er sinnt öðrum en bráðaðkallandi verk- efnum og öðrum skotið á frest. Starf lækna beinist að þvi að firra vandræðum og koma í veg Markaður í Grimsby á uppleið SÍÐUSTU daga hefur fiskmarkaðurinn i Grimsby verið á g<>ðri uppleið. Frá því á miðvikudag í fyrri viku hefur verðið stigið um 1 til l'/z sterlingspund á dag og sam- kvæmt upplýsingum Þórleifs Ólafssonar í Grimsby er verðið nú orðið viðunandi og cr þess vænzt að það haldist. „Þetta er fyrsta vísbendingin um að markaðurinn sé að rétta við eftir um V/i árs lægð,“ sagði Þórleifur. Tvö skip lönduðu í síðustu viku í Grimsby, en það mun hafa verið áður en þessi stíg- andi í fiskverð kom. Fyrir sæmilega góðan þorsk fæst nú á markaði í Grimsby 8,50 til 10,00 krónur fyrir hvert kíló og fyrir góða ýsu fæst nú verð, sem er á bilinu 9,60 til 12,40 krónur. Ástæður þessa kvað Þórleifur m.a. vera, að sumarleyfi eru nú hafin og eykur það mjög við- skipti á veitingastöðum, sem m.a. selja fish & chips-réttinn, sem vinsæll er meðal Breta. Þá hefur lítið sem ekkert framboð verið á fiski frá Evrópulöndum. Sigurður Helgason: fyrir dauða sjúklinga og heilsu- tjón. Jafnvel þótt samningar tak- ist og læknar komi til vinnu á ný fljótlega munu liða nokkrir mán- uðir þar til ástandið kemst i samt lag. Samningaviðræður lækna og fulltrúa ríkisvalds og Reykjavíkur eru nú sagðar á viðkvæmu stigi og talsmenn samninganefnda verjast allra frétta, en nýr fundur hefur verið ákveðinn kl. 14 í dag. Þá vildu forstöðumenn sjúkrahús- anna og yfirlæknar sem minnst segja um ástandið, en samkvæmt heimildum Mbl. hefur samdráttur í starfsemi spítalanna nú æ meiri áhrif. Anna sjúkrahúsin ekki öðru en þeim sjúklingum er inn koma á bráðavöktunum, sem sjúkrahúsin skipta á milli sín og þar sem ekki eru teknir inn sjúklingar af bið- listum lengjast þeir frekar, en þó er það misjafnt eftir deildum. Á Landakoti eru nú engir af 11 aðstoðarlæknum spítalans við störf, en 25 sérfræðingar hans skipta með sér bundnum vöktum og með því tekst þeim að halda í horfinu. Auk aðstoðarlækna á Borgarspítala og Landspítala hafa margir sérfræðingar sagt upp störfum og er aðeins hægt að sinna aðkallandi verkefnum. Yfir- læknar eru á vöktum og auk þeirra er einn sérfræðingur og einn aðstoðarlæknir á vakt, eins og er um helgar, en þó er það nokkuð misjafnt eftir deildum. Margvísleg þjónusta situr á hak- anum og safnast upp og hefur göngudeildum verið lokað eða dregið úr þjónustu þeirra. Nokkur brögð eru að því að læknar hafi leitað starfa erlendis eða úti á landi, en nú fer í hönd sumarleyfistími erlendis og því auðvelt fyrir lækna að fá störf ytra, t.d. í Svíþjóð. Spurning um afstöðu ríkisstjóma landanna „SKÝRSLAN um Norður-Atlantshafsflugið var kynnt og rædd á fundi stjórnar Flugleiða og er hún áfram til umfiöllunar, en þetta er fyrst og fremst spurning um afstöðu ríkisstjórna Islands og Luxemborgar og fundur ráðherra landanna um málið mun ráðgerður á næstunni,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða i samtali við Mbl. í gær að loknum stjórnarfundi Flugleiða. Sigurður sagði að stjórn Flug- að því að taka ákvörðun í málinu leiða gæti ekki sagt svo mikið um fyrir júlílok og taldi hann að það málið á þessu stigi, en stefnt væri ætti að sleppa gagnvart skipulagn- ingu flugs á leiðinni í vetur. Rækjubátur með hátt í fimm tonn í róðri SEX RÆKJUBÁTAR frá Sandgerði komu til hafnar á þriðjudags- kvöld með samtals 20.650 tonn af rækju sem veiddist á Eldeyjarsvæðinu. Aflahæsti báturinn var með hátt i fimm tonn af rækju úr þeirri veiðiferð, samkvæmt upplýsingum sem Morgun- hlaðið fékk hjá vigtinni i Sandgcrði i gær. Bátarnir hafa ekki róið siðan vegna þess að vinnslustöðvar f landi anna ekki meiru. Samkvæmt upplýsingum sem dagsaflinn yfirleitt 1200—1400 Morgunblaðið fékk hjá Jóni Júlí- kg. Rækjuveiðarnar hófust um ussyni, fréttaritara blaðsins i Sandgerði, stunda sjö bátar rækjuveiðar þaðan og sækja þeir á Eideyjarsvæðið. Afli þeirra hefur verið góður, tvær lestir á dag að jafnaði. Það mun vera betri afli en á undanförnum árum, en þá var miðjan maí og hafa þær yfirleitt staðið fram í október eða nóv- ember. Þrír bátar stunda hum- arveiðar frá Sandgerði og hafa þeir aflað þokkalega, samkvæmt upplýsingum Jóns. Sá hæsti þeirra mun vera kominn með tæplega sex lestir af slitnum humri. Ólafur Jóhannesson, utanrikisráðherra, undirritar samkomulagið við Belga. Auk hans sitja við borðið Jacques Vermer, scndiherra Belgiu á íslandi, og Steingrímur Ilermannsson, sjávarútvegsráðherra. Stand- andi eru frá hægri: Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri i sjávarútvegsráöu- neytinu, Hannes Ilafstein, skrifstofustjóri i utanrikisráðuneytinu, og Guðmundur Eiriksson, þjóðréttarfræðingur. Aðrir á myndinni eru úr belgísku samninganefndinni. LFmmynd Mbi. Rax. Bronstein kemur ekki SOVÉSKI skákmeistarinn Bronstein, sem koma átti til íslands í dag á vegum Skák- sambands Islands, kemur ekki, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér. Bronstein átti að vera hér um mánaðarskeið og stunda hér skákþjálfun, en samkvæmt skeyti sem barst frá Sovét- mönnum í #gær, kemur hann ekki í dag og í fyrsta lagi eftir mánaðamót, ef af komu hans verður á annað borð. Ástæðan fyrir þessu er sögð sú að Bronstein muni taka þátt í skákmóti sem haldið er á þessum tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.