Morgunblaðið - 12.06.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981
Grísk tilraun
til byltingar
Aþenu. 11. júni. AP.
GRÍSKI landvarnaráðherrann,
Evanghelos Averoíí, hefur stað-
fest að fámennur hópur fyrrver-
andi foringja i gríska hernum
hafi haft áform á prjónunum um
byltingu 1. júni.
Ráðherrann sagði í svari á þingi
við fyrirspurn þingmanns stjórn-
arandstöðunnar, að „lítill hópur
ófyrirleitinna og samvizkulausra
fyrrverandi liðsforingja hefði
reynt að gera samsæri um að
kollvarpa iýðræðinu".
En hann sagði að mál hefði ekki
verið höfðað gegn liðsforingjun-
um, þótt þeir hefðu verið settir
undir eftirlit.
Averoff neitaði því að heræf-
ingar, sem fóru fram sama kvöld,
hefðu verið fyrirskipaðar til að
koma í veg fyrir byltingu.
Andreas Papandreou, leiðtogi
stærsta stjórnarandstöðuflokks-
ins, Algrísku sósíalistahreyfingar-
innar (Pasok), sakaði Averoff um
að ljúga upp þessari sögu og hafa í
frammi „hræðsluáróður".
Skömmu eftir að orðrómur
komst á kreik um fyrirhugaða
byltingu vísaði Konstantín Mits-
otakis utanríkisráðherra orð-
rómnum á bug og kallaði hann
„kaffihúsaslúður".
Fé úr sjóði barna í
vasa norsks prests
Frá fréttaritara Mbl. í Oslú í ga*r.
UM 18 milljónir norskra króna
sem Norðmenn gáfu i harnahjálp
í leit að
risaeðlum
LOS ANGELES: Tveir vís-
inda- og ævintýramenn segja
að þeir ætli að leita í ókort-
lögðum frumskógum í Afríku í
ár að lifandi risaeðlum eða
skyldri dýrategund sem kunni
einhvern veginn að hafa kom-
izt hjá því að deyja út fyrir 60
milljónum ára. „Við vitum
ekki hvort þetta eru risaeðlur
eða ekki, en ætlum að ganga
úr skugga um það,“ segja þeir.
Dvergvaxnir frumbyggjar
afskekktum héruðum Kongó
sögðu vísindamönnunum
fyrra frá kynnum af furðu
skepnu, sem er helming
stærri en fíll og lifir í vatni
Þetta svæði hefur lítið breytzt
í 70 milljónir ára og er eins og
týnd veröld. (AP)
ERLENT
til þróunarlanda fóru beint i vasa
forstöðumanna Norræna barna-
sjóðsins að sögn lögreglu i dag.
Fyrrverandi baptistaprestur í
Halden stóð fyrir þessum fjársvik-
um sem hafa staðið yfir í þrjú ár.
Norræni barnasjóðurinn hefur
útibú í Svíþjóð og Danmörku og
fjárframlög hafa boðizt þaðan til
Haiden þar sem fénu hefur verið
stungið undan.
Aðeins fimm milljónir norskra
króna, sem safnað var í Noregi, af
23 milljónum alls, bárust þurfandi
börnum í Suður-Kóreu, Indlandi,
Bangladesh, Guatemala og Bóli-
víu.
Sænska deildin safnaði 1,4
milljónum króna og þar af fóru
80.000 krónur til skrifstofunnar.
Tvær milljónir króna söfnuðust
í Danmörku, en 70% upphæðar-
innar fór ekki lengra en til Halden
og í vasa prestsins.
Rúmlega 14.000 Norðmenn hafa
gefið 70 krónur mánaðarlega í
söfnun Norræna barnasjóðsins og
talið sig eins konar afa og ömmur
þurfandi barna í Þriðja heimin-
um.
Starfsemi sjóðsins byggðist á
víðtækri auglýsingastarfsemi í
norskum dagblöðum. Auglýsing
frá sjóðnum sýndi asískt barn
undir fyrirsögninni: „Gefið því
framtíð í þess eigin landi" og bætt
var við: „lítið framlag gerir mikið
gagn.“
Undirskriftin var: „Séra Helge
Nordahl — 25 ár í þjónustu
barnsins."
Miami. 6. júni. Al’.
NÚ GETA hjúkrunarkonur i Miami borið sex börn i svuntum
sínum og tvö i fanginu, ef voða ber að Iiöndum. Þegar svunturnar
voru kynntar, sofnuðu sum barnanna i vösunum, en öðrum þótti
heldur þröngt á þingi.
Matarolía
olli veiki
Spánverja
Madrid. 11. júni. AP.
SPÆNSKA heilbrigðisráðuneyt-
ið sagði i dag að blanda af
ólivuoliu og annarri mataroliu
kynni að hafa valdið óþekkta
faraldrinum á Spáni.
Rannsakað er hvort matarolía,
þar á meðal soyabaunaolía, hafi
valdið veikinni. Ólöglegt er að
selja matarolíu sem er ekki á
flöskum þótt slík olia sé mikið
seld.
Tveir í viðbót létust af veikinni í
Madrid í dag þannig að 27 hafa
látizt alls. Rúmlega 2.100 hafa
verið fluttir í sjúkrahús í Madrid,
3.090 á Spáni öllum.
Reyndu morð á
síamstvíburum
Dansville, Illinois. 11. júní. AP.
LÆKNIR og kona hans voru í
dag ákærð fyrir tilraun til að
myrða syni sína, sem eru síams-
tvíburar, með þvi að gefa þeim
ekki nóg að borða.
Heimilislæknirinn var einnig
ákærður fyrir morðtilraun.
Tviburarnir fæddust 5. maí og
hafa heldur ekki fengið nægt
vatn eða nógu góða læknishjálp.
Starfsmenn sjúkrahúss, þar
sem tviburarnir voru i átta daga,
segjast hafa fengið skipanir frá
foreldrunum um að gefa þeim
ekki mat að borða.
Nýr borgarstjóri
kosinn í V-Berlín
Berlin. 11. júni. AP.
RICHARD von Weizsácker úr
flokki kristilegra demókrata,
sem sigruðu i kosningunum 10.
maí en fengu ekki hreinan meiri-
hluta, var kjörinn borgarstjóri
Vestur-Beriínar í dag og er fyrsti
hægrimaðurinn sem gegnir þvi
embætti.
Fimm frjálsir demókratar lýstu
yfir stuðningi við von Weizsácker
fyrir atkvæðagreiðsluna, þótt
deild flokksins í Vestur-Berlín
hefði ákveðið að berjast gegn
nýrri minnihlutastjórn kristilegra
demókrata.
Afgönsk loftárás á
skotmark í Pakistan
Von Weizsácker hlaut atkvæði
69 borgarfulltrúa af 132, fjórum
fleiri en hann þurfti til að ná
kjöri. Sextíu og einn borgarfull-
trúi greiddi atkvæði gegn von
Weizsácker, en tveir sátu hjá.
Kristilegir demókratar hafa 65
fulltrúa í borgarstjórn, sósíal-
demókratar 51, frjálsir demókrat-
ar sjö og listi vinstrisinnaðra
umhverfisverndarmanna níu.
Von Weizsácker kom til Berlín-
ar frá Bonn 'eftir að fjármála-
hneyksli varð borgarstjóra sósí-
aldemókrata, Dietrich Stobbe, að
falli. Hann tekur við af Hans-
Jochen Vogel, fyrrverandi dóms-
málaráðherra Vestur-Þýzka-
lands.sem var um skeið borgar-
stjóri í Munchen og tók við af
Stobbe.
Byggingahneyksli, sem Stobbe
var viðriðinn, kostaði skattgreið-
endur í Vestur-Berlín nokkrar
milljónir dollara.
Islamahad. 11. júnl. AP.
ÞRJÁR afghanskar herflugvélar
af gerðinni MIG-21 rufu pakist-
anska lofthelgi i dag og skutu
eldflaugum á farþegavagn í suð-
vesturhéraðinu Balúkistan. Öku-
maðurinn særðist í árásinni að
sögn talsmanns Pakistansstjórn-
ar.
Flugvélarnar flugu 11,2 km inn
fyrir landamærin og réðust á
hópferðabíiinn, sem var á leið til
Imam Bostan á landamærunum,
fyrir utan þorpið Umer Shah
Nawar skammt frá Nushki, um
160 km suðvestur af fylkishöfuð-
borginni Quetta.
Að minnsta kosti 15 farþegar
voru í bílnum sem laskaðist af
völdum vélbyssukúlna, þótt aðeins
ökumanninn sakaði.
Tveir pakistanskir hermenn
særðust í fyrrahaust í þyrluárás,
sem var talin liður í þrýstingi á
Pakistana í því skyni að fá þá til
að loka landamærunum. Árásin
nú er gerð rétt fyrir heimsókn
bandaríska aðstoðarutanríkisráð-
herrans James L. Buckely, sem
ræðir við pakistanska ráðamenn
um bandarískar vopnasendingar
til þess að efla varnir landsins á
landamærunum að Afghanistan.
Pakistönsk yfirvöld reyna að
ganga úr skugga um hvort árásin
að þessu sinni hafi verið vísvit-
andi eða hvort flugmennirnir
villtust yfir landamærin. Pakist-
anskir embættismenn telja að
flugmennirnir hafi verið af-
ghanskir.
KonunRurinn vill berjast
Fyrrverandi konungur Afghan-
istan sagði í fyrsta skipti opinber-
lega í Róm í dag að hann væri
reiðubúinn að verða við áskorun
um hjálpa við að sameina and-
spyrnusveitir sem berjast fyrir
því að reka herlið Rússa úr landi.
Ekki er ljóst hvaða hlutverki
konungurinn muni gegna, en
margir afghanskir útlagar í Pak-
istan hafa sagt að hann einn geti
sameinað rúmlega 40 hópa upp-
reisnarmanna.
Ný afstaða kon-
ungs mun tilkomin vegna frétta
um öflugan stuðning bandarísku
stjórnarinnar við uppreisnar-
menn.
EBE leyfir
veiði á síld
Brussel. 11. júni. AP.
STJÓRNARNEFND Efnahags-
bandalagsins aflétti I dag algeru
banni sínu við sildveiði, sem var
sett fyrir þremur árum þegar
sérfrseðingar sögðu að hætta væri
á að sildin dæi út.
Nefndin leyfði veiði á þessu ári
á 55.000 lestum af síld á svæðinu
vestur af Skotlandi og 25.000 lestir
i sunnanverðum Norðursjó að
frátöldu Ermarsundi.
Talsmaður EBE lagði á það
áherzlu að þetta væri mjög lítið
aflamagn miðað við heildarfisk-
afiann sem var leyfður á þessu ári
á miðum bandalagsríkjanna.
Hann nemur 1,1 milljón lesta að
síld frátalinni.
Hann sagði að ákveðið hefði
verið að leyfa á ný síldveiði að
mjög takmörkuðu leyti þar sem
sérfræðingar segðu að hættan á
útrýmingu síldarinnar hefði
minnkað.