Morgunblaðið - 12.06.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1981
25
fclk í
fréttum
Vaxmynd-
in er í
smíðum
+ Um svipað leyti og
Karl Bretaprins og
laíði Diana Spencer
halda brúðkaup sitt,
er gert ráð fyrir því
að hún muni halda
„innrtið" sína i hið
heimskunna vax-
myndasafn í London
Madame Tussaud-
safnið. Hér sést mynd-
höggvarinn, sem er
ung kona, Muriel
Pearson, er um þessar
mundir að vinna við
vaxmyndina. — Það
fylgir fréttinni að
þegar búið verður að
gera vaxmyndina af
Diönu. muni hún
sækja i klæðaskápinn
sinn einn kvöldkjóla
sinna, sem vaxmyndin
af henni verður klædd
í og siðan verður
Diönu komið fyrir á
sinum stað í bresku
konungsfjölskyld-
unni, i hinu fræga
Tussaud-safni.
Á fjöldafundi
+ Þeir eru vígalegir að sjá þessir kallar, þar sem þeir taka við
hyllingu mannfjölda á útifundi í Salisbury höfuðborg Zimb-
abwe. — Kapparnir eru kunnir afrikanskir pólitíkusar. Lengst
til vinstri er Robert Mugabe forsætisráðherra í Zimbabwe. Við
hlið hans, einnig með krepptan hnefa á lofti, er skæurliðafor-
inginn Sam Nujoma frá Namibíu. Á þessum fjöldafundi, sem
talið er að um 30.000 manns hafi verið á, sagði Mugabe að
S-Afríkustjórn hygði á innrás í landið vegna stuðnings
Zimbabwe-manna við skæruliðasveitir, sem herjað hafa á
S-Afríkumenn frá stöðvum í þessari fyrrum bresku nýlendu
(Ródesíu).
+ Hér gera menn að gamni
sínu þrátt fyrir alla alvöruna
og erfiðleikana sem steðja að.
Myndin er tekin í „Rósagarði"
Hvíta Hússins í Washington.
Reagan forseti og Edward
Kennedy öldungadeildarþing-
maður gera að gamni sínu. I
garðinu var efnt til mann-
fagnaðar af því tilefni að
ekkja Robert F. Kennedys,
Ethel, var sæmd „Robert F.
Kennedy-medalíunni", fyrir
störf hennar í almennings-
þágu. Það var forsetinn sem
sæmdi frú Ethel þessari orðu.
— Nú eru liðin 13 ár frá því
að Róbert Kennedy var myrt-
ur.
Á Akersjúkrahúsinu
+ Þetta er einn af yfirlæknum skurðdeildarinnar í
Akersjúkrahúsinu í Osló. Það er fyrsta sjúkrahúsið á
Norðurlöndum sem fær laser-geislaskurðlækninga-
tæki til krabbameinsskurðaðgerða. Myndin er tekin
af Sten Sander skurðlækni í skurðstofu spítalans.
Hefur yfirlæknirinn þegar framkvæmt allmargar
skurðaðgerðir, sem eru í því fólgnar að fjarlægja
krabbameinsæxli. — Segir yfirlæknirinn þessa nýju
tækni vera byltingarkennda í meira lagi. Hann hefur
með hinum nýju tækjum getað lokið meiriháttar
skurðaðgerðum á aðeins mjög skömmum tíma,
jafnvel nokkrum mínútum.
Morðinginn stunginn
+ Lífstíðarfanginn, James Earl Ray, sem myrti
blökkumannaforingjann og mannréttindabaráttu-
manninn Martin Luther King árið 1968, varð fyrir
alvarlegri líkamsárás í ríkisfangelsi því sem hann
hefur setið í síðan hann var dæmdur fyrir morðið. —
Er það í bænum Oak Ridge í Tennessee-fylki. Var
James Earl stunginn tveim hnífstungum. — Þessi
mynd var tekin er komið var með fangann í
sjúkrahús. Þegar sagt var hér að framan að hann
væri lífstíðarfangi, þá er um að ræða 99 ára fangelsi.
í texta með myndinni segir að fjórir samfangar
mannsins hafi verið teknir til yfirheyrslu, í sambandi
við þessa líkamsárás.
Skrifstofa Eimskips í Pósthússtræti 2 er nú
opin frá kl. 8.30 -16.30 alla virka daga.
EIMSKIP
SÍMI 27100
Aogjýsinéum
hhitafjárútboð.
Á síðastliðnu ári var hafin sala hlutafjárauka í Iðnaðarbanka
íslands hf. Nam aukningin 2,7 milljónum króna og neyttu
hluthafar forkaupsréttar að 85% aukningarinnar. Nokkurt
hlutafé er því enn óselt og hefur verið ákveðið að bjóða til
sölu á almennum markaði.
Úr reikningum bankans:
Allartölureru í nýkr.
Árin
Tekjur ......
Gjöld .....
Tekjuafgangur
Eignir .
Skuldir
Eigið fé
Hlutafé eftir jöfnun
Varasjóðir.......
Annað eigið fé ...
Eigiðtéalls......
1980 1979
81,1 millj. 36,4 millj.
76,7 - 35,6 -
4,4 0,8
í árslok
1980 1979
286,3 millj. 155,6 millj
263,0 - 144,0 -
23,3 - 11,6 -
16,6 millj. 8,1 millj.
3.3 - 1,5 -
3.4 - 2,0 -
23,3 - 11,6 -
Jöfnunarhlutabréfum hefur undanfarin tvö ár verið úthlut-
að til jafns við verðlagsbreytingar og greiddur 4% arður.
Úthlutunarstefna þessi er til samræmis við þær breytingar
sem orðið hafa á lánsfjármarkaðnum með tilkomu verð-
trýggingar.
Útboðsskilmálar:
Nafnverð skal standa á heilum tug króna. Sölugengi hluta-
fjárins hefur verið ákveðið 160. Selt hlutafé mun veita rétt til
jöfnunarhlutabréfa sem aðalfundur næsta árs úthlutar.
Arður reiknast frá innborgunardegi. Frestur til að skrá sig
fyrir hlutafé er til 15. júní n. k. og gjalddagi er 1. júlí 1981.
Eyðublöð liggja frammi á afgreiðslustöðum bankans.
Iðnaðarbankinn
Lækjargötu 12,101 Reykjavik, Simi 20580