Morgunblaðið - 12.06.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1981
31
Sjötugur:
Arni Ogmunds-
son skipasmiður
í dag er sjötugur Árni Ög-
mundsson, skipasmiður, Berg-
staðastræti 30, Reykjavík.
Árni er fæddur og uppalinn á
Eyrarbakka, eins og margir aðrir
góðir menn. Hann er sonur Ög-
mundar heitins Þorkelssonar,
fyrrverandi kaupmanns á Eyrar-
bakka og síðar innheimtumanns
hjá Reykjavíkurhöfn og konu hans
Jónínu M. Þórðardóttur, sem einn-
ig er látin.
Strax á unga aldri réðst hann í
skipasmíðar hjá Magnúsi Guð-
mundssyni, skipasmíðameistara,
sem þá hafði með höndum um-
fangsmikla starfsemi í skipa-
nýsmíði og skipaviðgerðum.
Var þetta Árna góður skóli,
enda var Magnús mjög fær í sinni
iðngrein og með afbrigðum dug-
legur.
Árni, sem hafði sjálfur gott
upplag, var fljótur að tileinka sér
þessa góðu kennslu.
Eftir að Magnús hætti starf-
semi sinni, réðst Árni til Slippfé-
lagsins í Reykjavík og starfaði þar
um árabil í skipasmíði við góðan
orðstír.
Hin síðari árin hefur Árni
unnið fyrir ýmsa og nýtur trausts
sem smiður góður.
Árni er af góðu bergi brotinn,
náskyldur skáldunum Tómasi
Guðmundssyni og Páli heitnum
Ólafssyni í föðurætt og Brynjólfi
frá Minna-Núpi í móðurætt.
Hann er líka gæddur góðum
gáfum eins og hann á kyn til. Er
hann óvenjulega orðheppinn og
kann þá list að svara vel fyrir sig.
Árni er myndarlegur að vallar-
sýn, hávaxinn og samsvarar sér
vel á vöxt og því höfðinglegur
ásýndum.
Skapríkur er hann að eðlisfari,
en kann þó vel að stilla skap sitt.
U ííl.YSIM. \
SIMINN KK:
Sá, sem þessi fátækiegu orð
skrifar er albróðir Árna og hefur
ávallt verið góður þokki með
okkur bræðrum. Er því ekki hægt
að segja þar, að frændur séu
frændum verstir.
Þegar við vorum litlir snáðar
leiddumst við oft hönd í hönd eins
og góðum bræðrum sæmir. Þætti
mér ekki ólíklegt, að sá okkar, sem
fyrr kveddi þennan heim, væri
tilbúinn hinumegin grafar að
rétta fram hjálpandi hönd til
styrktar kærum bróður við
bústaðaskipti hans.
Auk mín, sem er eins og áður
segir albróðir Árna, eigum við
eftirtalin hálfsystkini: Matthías
Gíslason, skipstjóra, Vestmanna-
eyjum, látinn, Karl Gíslason, rak-
arameistara, Reykjavík, látinn,
Ingiberg Gislason, skipstjóra,
Vestmannaeyjum, Þórð Gíslason,
netagerðarmeistara frá Vest-
mannaeyjum, nú í Reykjavík, Sig-
urð Gíslason, verkamann, Reykja-
vík, látinn, Júlíu H. Gísladóttur,
húsfrú, Reykjavík, Ágústu M.
Gísladóttur, ekkju, Keflavík.
Foreldrar okkar ólu upp tvo
pilta auk okkar albræðranna, og
eru þeir því uppeldisbræður
okkar:
Óli Sverrir Þorvaldsson, blaða-
sali, Reykjavík, sem er ókvæntur
og barnlaus, en hann missti móður
sína ungur að aldri og tóku þá
foreldrar okkar hann að sér, og
Þórður Vigkonsson, kaupmaður,
Reykjavík, sem er kvæntur og á
þrjú börn. Móðir hans var alsystir
móður okkar. Var hann hjá for-
eldrum okkar frá fæðingu.
Árni er kvæntur Hlíf Hjálmars-
dóttur Þorsteinssonar á Hofi,
Kjalarnesi, þess kunna hagyrð-
ings.
Hún hefur því miður ekki geng-
ið heil til skógar upp á síðkastið.
Ég vil við þetta tækifæri færa
henni mínar innilegustu þakkir
fyrir hversu vel hún reyndist
foreldrum okkar Árna í veikind-
um þeirra síðustu árin, sem þau
lifðu.
Börn Árna og Hlífar eru: Lilja,
bankastarfsmaður, Reykjavík, gift
Erling Kristjánssyni járnsmiði,
þau eiga þrjár dætur, og Ögmund-
ur, bifreiðarstjóri, Reykjavík,
ókvæntur og á hann eitt barn.
Það er að endingu innileg ósk
mín, að framtíðin færi Árna og
Hlíf hamingju og brosi við þeim.
Að lokum hjartanlegar ham-
ingjuóskir frá mér, konu minni og
börnum, í tilefni dagsins.
bormóður Ógmundsson
Boðsbréf
Hinn 30. júní n.k. verður biskup Islands, herra
Sigurbjörn Einarsson, sjötugur. í tilefni þess hefur
Prestafélag íslands haft forgöngu um útgáfu bókar sem
geymir úrval af ræðum hans og ritgeröum.
Áskriftarkjör
Bókin mun aöeins fást í áskrift og verður verð hennar
meö söluskatti kr. 296.40. Meöfylgjandi er áskriftarmiði
sem væntanlegir kaupendur eru beönir aö fylla út og
senda til Prestafélagsins fyrir 1. júlí n.k. í pósthólf nr.
1208, Reykjavík.
TABULA GRATULATORIA
Nöfn áskrifenda veröa skráö fremst í bókina.
Askriftarmiði:
Ég undirrit. . . óska hér meö eftir aö fá senda í póstkröfu, samkvæmt tilboði
Prestafélags islands, bók þá er félagiö hefur forgöngu um aö gefa út í tilefni
sjötugsafmælis herra Sigurbjörns Einarssonar biskups:
(NAFN)
(HEIMILISFANG OG POSTNUMER)
EINTAK/EINTÖK
Ef þér óskiö eftir fleiru en einu eintaki, þá vinsamlegast
setjiö viöeigandi töluofan viö oröin EINTAK/EINTÖK.
F.h. Prestafélags íslands
Guömundur Óskar Ólafsson form.
Sigfinnur Þorleifsson ritari.
úr Tnassívu bevki
runvsr eikog ask
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
Biðjið um mynda/ista ísíma 18430
Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTIG 1 S. 18430
Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins
Dregið annað kvöld
Afgreiöslan í Sjálfstæöishúsinu, Háaleitisbraut 1 er opin í dag til kl. 23.00. Sími
i^HMMMGreiösla sótt heim ef óskað er™