Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981
Stykkishólmi. 9. júni.
EINS OG vlða annars staAar var
ntikil umferð hér um Snmfellsnes
um hvitasunnuna, HApferAir bæAi
frá Útivist og FerAafélaKÍnu enda
urAin hefA aA Kanxa á Snæfellsjök-
ul um þessa helfrf.
Þá var einnig aukning á farþeg-
um með Baldri og er hann nú senn
að hefja sumarferðirnar en þær
verða frá 1. júní þrjár í viku, eða
mánudaga, þriðjudaga og föstu-
daga, en 2. júlí bætast við tvær
ferðir, þ.e. fimmtudaga og laugar-
daga, en á laugardögum verður
siglt um sundin við suðureyjar og
þykir það mikil viðbót við ferðina
enda margt að sjá á leiðinni.
Ferðafólk kvartaði mjög yfir
slæmum vegum, bæði hörðum og
Hluthafar
Flugleiða
fá fargjalda-
afslátt
STJÓRN Flugleiða hf. hefur
ákveðið aA veita hluthöfum fé-
lagsins ákveðinn afslátt af far-
miðaverði í hlutfalli við eign
þeirra. Gefinn verður afsláttur,
sem nemur allt að 10% af hluta-
fjáreign viðkomandi. Afsláttur-
inn verður þó aldrei meiri en 50%
af miðaverði.
Sigurður Helgason, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl.,
að þessi nýbreytni væri fyrst og
fremst tekin upp til að auka
viðskipti hluthafa við félagið.
Þetta afsláttarfyrirkomulag hefur
verið ákveðið í eitt ár til reynzlu.
í sambandi við afslátt sem
þennan, þá á hann sér fordæmi,
t.d. hjá Loftleiðum, Svissair og
Eastern.
holóttum, en engin óhöpp eru mér
kunn eða árekstrar bifreiða hér um
þessa helgi.
Þurrviðri hefir nú verið hér um
slóðir um langan tíma og fer að
nálgast mánuð og má þaö sjá á
öllum gróðri hversu hörmulega
lítið honum fer fram. Kuldi hefir
fylgt þessum þurrki og bætir það
ekki úr skák. Menn huga nú að
varpinu og þegar hefir verið leitað
mikið að dún og virðist varp ekki
lakara en í fyrra ef ekki betra. í vor
náðist mikið af mink, sem gerir
Ijótan usla í varpinu og eins hefir
hrafninn verið skotinn talsvert, en
hann er skaðvaldur hvað varpið
áhrærir og sækir mikið í eggin og
ef sá gállinn er á munar hann ekki
mikið um að gera usla í nokkrum
hreiðrum. Ég er ekki viss nema að
svartbakur hafi verið eitthvað
minni en undanfarin ár og er það
bót ef svo væri því þeir eru ekki
fáir æðarungarnir sem hann sporð-
rennir um leið og þeir komast á
sjóinn og gengur æðarkollunni oft
ekki vel að verja ungviði sitt og oft
hefir maður séð kellu með 4—5
unga leggja út í lífið og eftir
nokkra daga hefir svartbakurinn
hirt þá alla og er það sorglegt
mjög. Almennt virðist nú vera að
vakna áhugi fyrir útrýmingu vargs,
enda dúnn í mjög háu verði um
þessar mundir. Fréttaritari
Félag kaþólskra leikmanna skoðar kirkjuna og bæinn að Keldum.
Kaþólskir messa í Odda
FÉLAG kaþólskra leikmanna
fór í hópferð á söguslóðir Njálu
um helgina, skoðaði Papahella
á Ægissiðu og þaðan var haldið
að Ödda á Rangárvölium, þar
sem séra Ágúst K. Eyjólfsson
las messu. Þetta er i fyrsta
skipti sem kaþólsk messa er
lesin i Odda eftir siðaskiptin.
Félag kaþólskra fer í sumar-
ferðalög á hverju sumri, aðal-
lega á staði sem komið hafa við
sögu kirkjunnar á íslandi. Áður
hafa kaþólskir farið í sumar-
ferðalög að Hólum í Hjaltadal og
Kirkjubæjarklaustri og lesið þar
messur, ávallt með vinsamlegu
ieyfi viðkomandi presta.
Að lokinni messu í Odda var
farið að Bergþórshvoli, þar sem
séra Páll Pálsson tók á móti
ferðalöngum og sagði þeim frá
staðnum og sögu hans. Síðan var
haldið í Fljótshlíð og stansað um
stund við helstu sögustaði þar. Á.
Keldum var skoðuð kirkjan og
bærinn og ýmsir svöluðu þorsta
sínum í Maríubrunni. Veður var
heldur óhagstætt í ferðinni sem
þótti þó hin ánægjulegasta, bæði
fróðleg og skemmtileg.
usvs
Sólstöðuhátíð 1981 á
Kirkjubæjarklaustri
LAUGARDAGINN 20. júní nk.
verður haldin stórhátíð á veg-
um Ungmennasambands Vest-
ur-Skaftafellssýslu. Hátið þessi
hefur hlotið nafnið Sóistöðuhá-
tíð USVS 1981. Megintilgangur
Sólstöðuhátíðar 1981 er að afla
fjár vegna undirbúnings og
þátttöku USVS á 17. landsmóti
UMFÍ á Akureyri dagana 10.—
12. júli nk.
Sólstöðuhátíð USVS 1981
Miðhús:
Enginn f járhagsávinningur að
vera í Kaupfélagi Króksf jarðar
Miöhúsum. 15. júni.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Króksfjarðar var haldinn í Voga-
landi 13. júní sl. — Tekjuafgang-
ur varA hjá Kaupfélaginu upp á
tæplega eina milljón gkróna og sú
upphæð rann i stofnsjóð félagsins.
Enginn arður var greiddur fé-
lagsmönnum og virðist það vera
orðið að fastri venju. Stofnsjóður
félagsmanna er óverðtryggður og
ekki er sjáanleg breyting þar á.
Félagið virðist vera að breytast í
sjálfseignarstofnun með takmark-
aðan áhuga fyrir félagsmönnum.
Enginn fjárhagsávinningur er af
því að vera í kaupfélaginu og
grunnvara, sem lækkar útsöluverð,
nær í mjög litlum mæli hingað,
vegna þess, að pakkningar eru það
stórar, að litlu kaupfélögin ráða
ekki við þær.
Grímur Arnórsson, formaður
kaupfélagsstjórnar, gekk úr stjórn,
en í lögum félagsins er ákvæði um
það, að menn megi ekki sitja í
stjórn lengur en níu ár í senn.
Menn verða að bíða í eitt ár og ná
þá kjöri aftur. Þessi breyting var
gerð í fyrra, en þá voru lög
félagsins færð nær nútímanum.
Grímur var framsögumaður fyrir
öllum lagabreytingunum.
Framsóknarmenn hafa jafnan
haft tögl og hagidir í stjórn
félagsins, og hefði því mátt búast
við, að þeir fyndu sér hæfan
framsóknarmann til forystu, en
kosningalið þeirra er samstillt og
skipuiagt, og að þessu sinni komu
þeir sér saman um, að kjósa
gamlan stalínista í formannsstöð-
una, sem merkir í augum venjulegs
félagsmanns, að umburðar- og
slökunarstefnu skuli hætt.
Að þessu sinni voru gestir fund-
arins Gunnlaugur Björnsson frá
Búvörudeild SIS og Ólafur E.
Ólafsson, fyrrverandi kaupfélags-
stjóri og var þeim vel fagnað.
— Sveinn.
Afmælishóf Helga á Hrafnkelsstöðum
IIRUNAMENN héldu Ilelga Har-
aldssyni frá IIrafnkeIs.stöAum hóf
á Ilótel Sögu á föstudag i tilefni af
niutíu ára afmæli hans. Rúml. 30
manns komu til hófsins, flest
ættingjar og sveitungar Ilelga úr
Hrunamannahreppi ásamt fleiri
g(ÍAum gestum.
Margar ræður voru fluttar við
þetta tækifæri. Þetta er í þriðja
sinn sem Hreppamenn bjóða ald-
urhnignum höfðingja til Reykja-
víkur í afmælishóf en fyrir all-
mörgum árum gerði Búnaðarfélag
Hrunamanna samþykkt þess efnis
að þeim bændum í hreppnum sem
næðu níræðisaldri yrði boðið í
afmælishóf á Hótel Sögu. Á mynd-
inni eru f.v.: Halldór Pálsson og
Sigríður kona hans, Helgi frá
Hrafnkelsstöðum, Karen Gestsson,
Hjalti Gestsson og Gísii á Hálsi.
hefst kl. 8.00 að morgni laugar-
dags með því að félagar úr Umf.
Dyrhólaey leggja af stað frá
Jökulsá á Sólheimasandi á 4
hjólum af Superia-gerð frá
fyrirtækinu Hjól og vagnar. Síð-
an munu hjólin 4 renna sem leið
liggur gegnum Vestur-Skafta-
fellssýslu allt austur á Kirkju-
bæjarklaustur þar sem hjólin
munu verða komin um kl. 18.00.
Forráðamenn USVS vonast
eftir almennri þátttöku fólks í
Vestur-Skaftafellssýslu í hjóla-
trimminu, sérstaklega í kringum
Vík í Mýrdal og Kirkjubæjar-
klaustur.
Ungmennafélögin innan USVS
munu sjá um að hjólin renni
greiðlega gegnum sitt félags-
svæði. Að kvöldi laugardags
hefst síðan aðalhátíðin í Félags-
heimilinu Kirkjuhvoli með svo-
nefndri Sumarvöku sem sam-
anstendur af skemmtiatriðum úr
ýmsum áttum. Að lokinni
Sumarvöku hefst síðan stór-
dansleikur þar sem hljómsveitin
Sólstöðubandið mun skemmta
hátíðargestum. Einnig munu
tvær hljómsveitir er eitt sinn
gerðu garðinn frægan á Suðuf-
landi troða upp og rifja upp
gömul kynni. Þetta eru hljóm-
sveitirnar Tópaz og Hálf sex.
(Úr fréttatilkynningu).
*
Blað um Island
gefið út í
Bretlandi
NÝVERIÐ kom út út i Bretlandi
blað helgað tslandi og ber það
heitið Áfangastaður tsland, Desti-
nation Iceland. Það er breskt
fyrirtæki á sviði ferðamála og
ráðstefnuhalds, ICIS, sem stendur
að útgáfunni. i nokkuri samvinnu
við hérlenda aðila, m.a. Flugleiðir
og Ferðamálaráð.
Ritstjóri er Caroline Cooke. Blað-
ið er mjög veglega úr garði gert, 56
síður að stærð, prýtt fjölda lit-
mynda. Aðaltilgangurinn með út-
gáfu blaðsins er að kynna ísland
sem ráðstefnuland en auk þess eru í
því greinar um hin ýmsu málefni.
Magnús Magnússon skrifar um ts-
land, Friðrik Ólafsson um skák á
íslandi, Aðalsteinn Ingólfsson um
menningu og Kjartan Lárusson um
náttúru landsins. Auk þess er í
blaðinu sagt frá forseta Islands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur, handritun-
um, og gefnar almennar upplýs-
ingar um sögufræga staði, lifnaðar-
hætti og náttúru landsins.
Patreksfjörður:
Kvikmyndahúsið end-
urbætt,af stað að nýju
Patreksfirði, 15. júní.
KVIKMYNDAIIÚSIÐ hér á staðn:
um var formlega tekið í notkun á
nýjan leik eftir miklar endurbæt-
ur. Scgja má, að skipt hafi vcrið
um nánast allt i gömlu Skjaldborg.
Keyptir voru nýir stólar frá
Bandaríkjunum eins og þeir sem
Regnboginn í Reykjavík er með, en
Finnur Fróðason arkitekt, sem
hannaði breytinguna.
Verktakar voru þeir Einar og Óli,
Vélsmiðjan Logi og Jón Arason.
Er það mál manna, að breytingin
hafi tekizt mjög vel og eigi viðkom-
andi aðilar þakkir skildar. Fram-
kvæmdastjóri kvikmyndahússins er
Brynjar Jakobsson.
Stykkishólmur:
Baldur byr jar
sumarferðirnar
270 sæti eru í húsinu. Það var
- Páll