Morgunblaðið - 16.06.1981, Page 18

Morgunblaðið - 16.06.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981 Philip C. Habib Habib til Sýrlands Damaskus. Kairó. 15. júní. AP. PHILIP C. Habib, sérstakur sendiboAi Ronalds Reasan Bandaríkjaforseta til Mið- austurlanda. flaug frá Saudi- -Arabíu til Sýrlands á mánu- dag, daginn eftir að Menach- em Begin, forsætisráðherra ísrael, endurtók hótun sína um að eyðileggja sýrlenskar eldflaugar i Líhanon. Habib átti að hitta Hafez Assad Sýrlandsforseta á þriðjudag. Begin sagði á kosningafundi á sunnudag að ísraelsmenn myndu „sjá um að flytja eld- flaugarnar", sem eru sovézkar, ef Bandaríkjamenn sæju ekki um það. Hann sagðist ætla að segja Habib hið sama á fundi þeirra seinna í vikunni. Sýrlensk blöð fullyrtu við komu Habibs að Bandaríkin styddu ísrael „með hljóðlátum samningaviðræðum og mikilli vopnaútbreiðslu". Þetta er önnur ferð Habibs til Miðaust- urlanda en ísraelsmenn gerðu honum samningaviðræðurnar erfiðari með sprengjuárás sinni á kjarnorkuver íraka fyrir viku. Anwar Sadat Egyptalands- forseti og Reagan undirstrik- uðu hug sinn á friðarviðræðum í skeytum hvor til annars um helgina. Reagan sagði í skeyti sínu að deilur ísraelsmanna og Sýrlendinga gætu leitt til frek- ari íhlutunar Sovétríkjanna í Miðausturlöndum. Sadat sagði í svarskeyti að Egyptar reyndu sífellt að sannfæra ísraela um friðarhug sinn á svæðinu. Hann sagðist hafa beðið Begin á fundi þeirra í Sinai á dögun- um að gefa Bandaríkjamönn- um góðan tíma til friðarum- leitana. Eldri sonur Gandhi á þing Nýju Delí, 15. júní. AP. RAJIV Gandhi, sonur Indiru Gandhi forsætisráðherra Ind- lands, vann auðveldlega þingsæti í kosningum sem haldnar voru i Norður-Indlandi á mánudag. Flokkur Gandhi hélt fjórum þingsætum og bætti við sig hinu fimmta í kosningunum. Þetta eru fyrstu stjórnmála- afskipti Rajivs en hann tók við þingsæti yngri bróður síns sem lést í flugslysi fyrir ári. Búist er við að Rajiv, sem er 36 ára, verði hægri hönd móður sinnar. Hann var áður flugmaður. Kosið var í 6 þingsæti og tóku yfir 3 milljónir manna þátt í kosningunum. Óháðir ráða stjórijarmynd- un á Irlandi Dýflinni. 15. júni. AP. AÐ AFLOKNUM kosningum á írlandi er stjórnarmyndun nú komin undir 6 óháðum stjórnmálamönnum og 2 föngum úr írska lýðveldishernum i Norður-írlandi. Búist er við að bæði Charles Haughey forsætisráðherra og Gerald Fitzgerald formaður stærsta stjórnarandstöðuflokksins falist eftir stuðningi stjórnmálamann- anna 6 áður en þing kemur saman eftir tvær vikur. Fangarnir tveir, en annar kosningunum og hlutu samtals þeirra hefur verið í hungurverk- 10% atkvæða. Haughey viður- falli í 26 daga, munu ekki taka sæti á þingi, þannig að stjórnin þarf á stuðningi 83 í stað 84 að halda til að hafa starfhæfan meiri hluta á þingi. Niðurstöður kosninganna á fimmtudag urðu þær að Fianna Fail, flokkur Haugheys, hlaut 78 sæti en Fine Gael, flokkur Fitz- geralds, hlaut 65 sæti. Verka- mannaflokkurinn hlaut 15 sæti, en formaður hans, Frank Cluskey, náði ekki endurkjöri. Fianna Fail- -flokkurinn hefur verið í stjórn í 39 ár síðustu 49 árin. Fyrir kosningarnar hafði flokkurinn 17 sæta meirihluta á þingi. Efna- hagsmál voru helsta baráttumál kosninganna. Þrír óháðu stjórnmálamann- anna eru sagðir hrifnir af hug- mynd um samsteypustjórn Fine Gael og Verkamannaflokksins, en hinir þrír þykja líklegir til að taka höndum saman og styðja Haugh- ey- Fangarnir tveir sem náðu kjöri voru meðal níu hryðjuverka- manna sem buðu sig fram í kenndi eftir kosningaúrslitin að hryðjuverkamenn hefðu hlotið meira fylgi en hann hafði búist við og sagði að hann yrði undir þrýstingi frá írska lýðveldishern- um ef honum tækist að mynda nýja ríkisstjórn. Mikið óveður í Bandaríkjunum New York. HUNDRUÐ manna misstu heimili sin og 14 létust i óveðri sem geisaði i miðríkj- um Bandaríkjanna um helg- ina. Óskaplegar rigningar urðu i Texas og haglél buldi i Nebraska. Lögreglan handtekur mann eftir athurðinn nálægt BuckinghamhöII á sunnudaginn þegar skotið var púðurskotum að Elísabetu drottningu þegar hún fylgdist með hersýningu á hestbaki. í varðhald fyrir að hræða drottningu London. 15. júní. AP. MARCUS SIMON Sarjeant sem skaut púðurskotum að Bretadrottn- ingu á laugardag hefur verið dæmdur i varðhald þangað til dómstólar taka mál hans fyrir 24. júni nk. Sarjeant var ákærður um landráð samkvæmt 2. grein laga frá 1842. Konungsfjölskyldan hélt sínu striki í dag eins og ekkert hefði i skorist. Sarjeant, sem er 17 ára, sagði ekkert fyrir dómnum. Hann er frá þorpinu Kent nærri Folkstone og gekk í flugherskóla. Hann var góð skytta í skóla en fór gjarnan einförum. Hann getur átt yfir höfði sér allt að 7 ára fangelsisvist. Ungur maður og kona voru síðast dæmd samkvæmt annarri grein laga um landráð árið 1966 fyrir að henda múrsteini og flösku í bíl drottn- ingar þegar hún fór um Belfast á Norður-Irlandi. Hitabylgja í Portúgal Mikill kosningasigur franskra sósíalista Kommúnistar eiga á hættu að tapa helmingi þingsæta Lissabon. 15. júní. — AP. IIEITT loft frá Sahara-eyðimörk- inni hefur orsakað mikla hita- bylgju í Portúgal. Sl. sunnudag mældist hitinn i Lissabon 43 gráður á Celcius og hefur ekki mælst þar hærri hiti i 125 ár. í dag var aöeins farið að draga úr hitanum og var 36 gráðu hiti í höfuðborginni. Um landið allt var hitinn 30—40 gráður í gær og fólk þyrptist á baðstrertdur og í sundlaugar lands- ir.s. Um 10 manns drukknuðu er þeir reyndu að flýja hitann. Sovéskir hermenn felldir Nýju Delhí. AFGANSKIR stjórnarand- stæðingar hafa undanfarið fellt um 200 sovéska og afganska hermenn úr launsátrum viða um Afganistan. Stjórnarandstæð- ingarnir létu til skarar skriða þegar ár var liðið frá aftöku uppreisnarleiðtogans Abdul Majid Kalakani, sem var hand- tekinn i Kahúl i febrúar 1980. Paris. 15. júnl. AP. FYRRI UMFERÐ frönsku þingkosninganna fór fram í gær og eru úrslitin mikill sigur fyrir sósíalista, sem fengu 37,51% atkvæða, en samtals fengu vinstrimenn rúm 55%. Hægrimenn fengu atkvæði 42% kjósenda. Þrátt fyrir vinstrisigur eru það kommúnistar, sem sárast eiga um að binda eftir kosningarnar, og svo kann að fara, að sósíalistar verði ekki upp á stuðning þeirra komnir eftir síðari umferðina, sem fram fer nk. sunnudag. Ýmsar tölvuspár gera ráð fyrir því, að eftir síðari umferðina muni Sósíalistaflokkurinn og banda- menn hans í Róttæka flokknum ráða 242—290 sætum á franska þinginu, sem skipað er 491 manni, og þurfi því ekki að leita til ur kommúnista um ráðherraemb- ætti í væntanlegri stjórn. Kosningaþátttakan nú var rúm 70%, sem er sú minnsta síðan 1962, og er helsta von hægrimanna við það bundin, að hún verði meiri í seinni umferðinni, enda telja þeir, að það hafi verið þeirra fólk, sem heima sat. kommúnista um stuðning. Komm- únistar eiga nú á hættu að tapa helmingi þingsæta sinna og hefur þeim ekki vegnað verr í fjörutíu ár. Áætlanir Breta um á Sovétríkin arasir London. 15. júní. AP. BRESKAR áætlanir um sýkla- hcríerð og kjarnorkuárásir á Sovétríkin skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina hafa fundist i gömlum opinherum skjölum samkvæmt frétt í daghlaöinu Times í dag. í tækniskjölum frá því í júlí 1946 er listi yfir rússneskar borgir með yfir 100 þús. ibúum og innan sprengju- færis frá herstöðvum Breta i Englandi, Indlandi og á eyjunni Kýpur. Nefnd sem Sir Henry Tizard, vísindamaður og stjórnar- ráðgjafi, átti forsæti í, útbjó skýrsluna og afhenti yfirher- stjórninni 1946. 58 sovéskar borgir eru nefndar í skýrslunni en 77,5% allra íbúa Sovétríkj- anna í þéttbýli bjuggu í þeim á þessum tíma. I skýrslunni sagði: „Eyðileggingarkraftur vopn- anna, sem geta verið framleidd með tiltölulega lítilli fyrirhöfn, bendir til þess að best verði að beita þeim á þéttbýlissvæðum. Við getum hins vegar ekki úti- lokað þann möguleika að þeim verði beitt gegn herskipum og herstöðvum ef svo ber undir." Gaullistum er spáð 80—90 sæt- um á þingi eftir síðari umferð en höfðu áður 155 og Miðflokkasam- bandinu, flokki Giscard d’Estaing, er spáð 50—60. Það hafði áður 119 þingsæti. Eftir að úrslitin í fyrri umferðinni voru ljós, skoraði Jacques Chirac, leiðtogi gaullista og helsti frammámaður hægri- manna, á alla Frakka, sem and- stæðir væru skoðunum sósíalista og kommúnista, að láta til sín taka í seinni umferðinni og sam- einast um að koma í veg fyrir sigur vinstrimanna. Georges Marchais, leiðtogi kommúnista, lagði eftir fyrri um- ferðina áherslu á ósigur hægri- manna og huggaði sig við, að flokkur hans hefði nú fengið einum af hundraði atkvæða meira en í forsetakosningunum. Enn- fremur endurtók hann fyrri kröf- Ölögleg vopnasala WashinKton, 15. júní. AP. VÆNTANLEGUR sendiherra Ronald Reagans forseta i Austurríki, Theodore E. Cummings, sagði f dag á fundi utanríkisnefndar öldunga- deildarinnar, að Bandarikju- stjórn fylgdist með fram- leiðslu i Austurríki á bandu- rískum hergagnategundum vegna frétta um að rifflar hefðu verið sendir þaðan i fyrra til Pakistan og ef til vill til hryðjuverkahópa i Mið- austurlöndum. Samkvæmt blaðafréttum fóru sumir rifflarnir til Frels- issamtaka Palestínu (PLO), en það hefur ekki fengizt staðfest í rannsókn bandaríska utan- ríkisráðuneytisins á málinu. Austurríkismenn framleiða að- eins riffla og önnur lítil her- gögn og litla herbíla sam- kvæmt bandarískum leyfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.