Morgunblaðið - 16.06.1981, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1981
39
Minning:
Ólafur Guðmunds-
son birgðavörður
Fæddur 27. mars 1923.
Dáinn 6. júní 1981.
I dag er kvaddur hinstu kveðju
Ólafur Guðmundsson, Laugateigi
12, hér í borg, en hann varð
bráðkvaddur 6. þ.m. aðeins 58 ára
að aldri.
Ólafur var fæddur í Reykjavík
27. mars 1923, sonur hjónanna
Jónu Ólafsdóttur og Guðmundar
Jónssonar, sjómanns, bæði ættuð
úr Kjós. Hún frá Vindási og hann
frá Þrándarstöðum, en þau eru
bæði látin.
Ólafur var elstur fjögurra sona
þeirra hjóna, Jónu og Guðmundar,
en Guðmundur átti tvær dætur af
fyrra hjónabandi, sem báðar eru á
lífi. Bræður hans eru: Jón, húsa-
smiður, kvæntur Ágústu Þor-
steinsdóttur, búsettur í Kópavogi,
Helgi, verkstjóri, kvæntur Katr-
ínu Gunnarsdóttur, búsettur í
Reykjavík, og Ellert, kennari, bú-
settur í Reykjavík. Hálfsystur
Ólafs eru Ásta, gift Ólafi Guð-
mundssyni, og Dagný, ekkja eftir
Elof Wessmann, sem lést á sl. ári.
Ólafur kvæntist systur minni,
Björgu Magnúsdóttur, frá Ný-
lendu í Miðneshreppi, þann 27.
mars 1945, en hún lést 10. júlí á sl.
ári, einnig 58 ára að aldri, og eru
því aðeins um 11 mánuðir milli
fráfalls þeirra hjóna. Þau Björg og
Ólafur eignuðust 7 börn, en þau
eru: Gunnar Steingrímur, bygg-
ingaverkfræðingur, kvæntur Ingu
Dagnýu Malmberg, bankam., Elín
Jóna, gift Magnúsi R. Magnússyni,
verzlunarmanni, Þórdís Hrefna,
jarðfræðingur, Magnús Hákon,
arkitekt, Ragnhildur, gift Bjarna
0. Guðmundssyni, véltækni, Örn,
stoðtækjatæknir, og Sólveig,
menntaskólanemi, sem ein var
eftir í föðurhúsum. Barnabörnin
eru 9 talsins.
Ólafur og Björg bjuggu allan
sinn búskap í Reykjavík, lengst af
að Laugateigi 12.
Eins og áður segir fæddist
Ólafur og ólst upp hér í Reykjavík,
lengst af með móður sinni og
bræðrum, en foreldrar hans slitu
samvistum þegar þeir bræður
voru ungir að árum. Ólafur byrj-
aði snemma að vinna og vann
fyrstu árin sem vélamaður og
bifreiðarstjóri allt þar til hann
réðist til Strætisvagna Reykjavík-
ur, en þar vann hann um 3ja
áratuga skeið, allt til dánardæg-
urs. Ég mun ekki rekja starfsferil
hans þar, en það munu aðrir gera
sem kunnugri eru á þeim vett-
vangi.
Ólafur var greindur vel og
mikill mannkostamaður. Á hans
uppvaxtarárum gáfust almennt
ekki tækifæri til langskólanáms
fyrir þá sem bjuggu við takmörk-
uð efni. Hinsvegar var öllum ljóst,
sem þekktu Ólaf heitinn náið, að
hann hafði mikla hæfileika á þeim
sviðum sem snertu hans starfs-
svið, sem voru fyrst og fremst allt
sem að bifreiðum laut. Einn var sá
eðliskostur sem Ólafur átti í
ríkum mæli, að hann var tölu-
glöggur með afbrigðum og kom
það sér oft vel í hans starfi.
Þau hjónin Björg og Ólafur voru
samhent í því að koma sínum
stóra barnahópi til mennta og
lögðu sig öll fram til þess að svo
gæti orðið, enda hafa börnin sýnt
það að þau voru traustsins verð.
Það er skammt stórra högga á
milli þegar báðir foreldrar falla
frá á einu ári, og láta eftir sig
stóran barnahóp, enda þótt mörg
þeirra séu uppkomin og hafi
stofnað sín eigin heimili.
I gömlum orðskviðum segir:
— Þá skal manninn marka er
mest liggur á —. Hjálpsemi Ólafs
heitins var við brugðið. Fyrir utan
skyldurækni á vinnustað, sem var
einstök, var hann ætíð reiðubúinn
til þess að leysa hvers manns
vanda, væri það honum nokkur
kostur. Þeir munu verða margir í
dag, sem hugsa til þess með
djúpum trega að sjá á bak slíkum
manni sem Ólafur Guðmundsson
var.
Við sem höfum átt því láni að
fagna að hafa átt samfylgd með
mínum kæra mági, um langt
árabil, þökkum honum af heilum
huga tryggð hans og ræktarsemi,
sem var ríkur þáttur í fari Ólafs.
Blessuð sé minning hans.
Börnum hans, tengdabörnum,
barnabörnum, systkinum og öðru
venslafólki vottum ég og fjöl-
skylda mín dýpstu samúð.
Gunnar R. Magnússon
Gamall vinur og samstarfsmað-
ur er horfinn sjónum okkar. Ólaf-
ur Guðmundsson, birgðavörður
hjá Strætisvögnum Reykjavíkur,
lést með sviplegum hætti laugar-
daginn 6. þ.m.
Ölafur hóf störf hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur á árinu 1949,
fyrst sem birgðabókari og aðstoð-
armaður birgðavarðar en síðan
sem birgðavörður í aldarfjórðung.
Störf birgðavarðar í þessari
borgarstofnun eru í senn viðamik-
il og vandasöm. Ýmsa erfiðleika
þurfti að yfirstíga varðandi að-
búnað og aðdrætti. Það voru ekki
tölvur eða tæki, sem sáu um að
nauðsynlegir hlutir væru til og á
sínum stað. I öllu sýndi Ólafur
útsjónarsemi og hagsýni og færði
allt til betri vegar, enda sparaði
hann sér aldrei ómak við að gera
sem hagkvæmust innkaup og var
öll ráðstöfun hans á opinberum
fjármunum til mikillar fyrir-
myndar. Gefur því auga leið, að
slík vinnubrögð spönnuðu bæði
spor og fjármuni.
Allt fram til ársins 1971, að
flutt var í ný húsakynni fyrir
verkstæði og birgðastöð, voru að-
staða og aðbúnaður í lágmarki.
Við þær aðstæður vann Ólafur
lengst af. Sýndi hann þá svo ekki
var um villst þá meðfæddu eigin-
leika að laga sig að aðstæðum eins
og þær voru hverju sinni án þess
að kvarta. Árið 1970 brann birgða-
stöð stofnunarinnar ásamt aðal-
viðgerðarverkstæði. Þar brunnu
varahlutir og efnisbirgðir ásamt
spjaldskrá og öðrum gögnum.
Við þessar aðstæður ríkti neyð-
arástand. Þá sem oftar lagði
Ólafur dag við nótt við skjóta
útvegun nauðsynlegustu hluta til
viðhalds vagnaflotanum. Mikið
var í húfi svo ekki ræki nauðir til
að skerða þjónustu við farþega.
Með einstakri eljusemi, glögg-
skyggni og skipulagningu tókst
Ólafi að leysa vandann svo vel að
unnt reyndist að halda uppi
óskertri þjónustu við farþega.
Þetta afrek hans líður okkur
nánustu samstarfsmönnum hans
seint úr minni.
í fáum orðum sagt var Ólafur
vakinn og sofinn yfir starfi sínu,
bar virðingu fyrir því og var
reiðubúinn að sinna því hvenær
sem var þótt utan reglubundins
vinnutíma væri.
Starfsdagur Ólafs hjá SVR var
orðinn lángur, eða 33 ár. Ekki fer
hjá því, að í löngu samstarfi
bindist sérstök vináttubönd. Fé-
lagslyndi hans, hjálpsemi og létt
en einörð skaphöfn, voru meðal
þeirra eðlisþátta hans sem reynd-
ust hornsteinar að löngu og
ánægjulegu samstarfi.
Við minnumst Ólafs með virð-
ingu og hlýhug þegar hann nú
hverfur okkur sjónum að sinni.
Þökkum honum samferðina og
biðjum honum blessunar á Guðs
vegum.
Börnunum sjö, tengdabörnum
og barnabörnum vottum við sam-
úð okkar á sorgarstund.
Eirikur Ásgeirsson
Ilaraldur Þórðarson
Ég undirritaður get ekki látið
hjá líða að minnast Ólafs Guð-
mundssonar birgðavarðar SVR
með nokkrum orðum, svo mikið
fékk það á mig er mér var tilkynnt
um hið sviplega fráfall hans. Við
Óli kynntumst fyrir um tuttugu
árum, ég að hefja störf hjá SVK,
hann gamalreyndur í varahluta-
útvegun hjá SVR.
Það fer ekki hjá því að í rekstri
slíkra fyrirtækja er bæði gagnlegt
og nauðsynlegt að hafa samvinnu
á sem flestum sviðum.
I strætisvagnarekstri er nóg af
vandræðum, varahlutaleysi og
þess háttar og þarf þá gjarnan að
hafa ráð undir rifi hverju við
útvegun þeirra, fáir vissu þetta
betur en hann Óli hjá Strætó. Við
hjá SVK áttum því láni að fagna
að geta leitað til hans hvort sem
var nótt eða dag og var hann
boðinn og búinn að hjálpa okkur
og höfum við átt mjög gott
samstarf við hann og hans sam-
starfsmenn á sviði gagnkvæmra
varahlutaskipta gegnum árin. Að
mínu áliti var Ólafur réttur mað-
ur á réttum stað, hann átti
einstaklega gott með að muna
númer og nöfn á varahlutum og er
það ekki lítið atriði í uppbyggingu
og rekstri á stórum varahlutalag-
er, eins og er hjá SVR.
Um leið og ég þakka Ólafi fyrir
greiðvikni og góðvild í okkar
samstarfi votta ég börnum hans
og öðrum aðstandendum dýpstu
samúð. Lengi lifi minning góðs
manns.
Karl Árnason
Boðsbréf
Hinn 30. júní n.k. veröur biskup Islands, herra
Sigurbjörn Einarsson, sjötugur. í tilefni þess hefur
Prestafélag íslands haft forgöngu um útgáfu bókar sem
geymir úrval af ræöum hans og ritgeröum.
Áskriftarkjör
Bókin mun aöeins fást í áskrift og veröur verö hennar
meö söluskatti kr. 296.40. Meöfylgjandi er áskriftarmiöi
sem væntanlegir kaupendur eru beönir aö fylla út og
senda til Prestafélagsins fyrir 1. júlí n.k. í pósthólf nr.
1208, Reykjavík.
TABULA GRATULAT0RIA
Nöfn áskrifenda veröa skráö fremst í bókina.
Áskriftarmiði:
Ég undirrit. . . óska hér meö eftir að fá senda í póstkröfu, samkvæmt tilboöi
Prestafélags íslands, bók þá er félagiö hefur forgöngu um aö gefa út í tilefni
sjötugsafmælis herra Sigurbjörns Einarssonar biskups:
(NAFN)
(HEIMILISFANG OG PÓSTNÚMER)
EINTAK/EINTÖK
Ef þér óskiö eftir fleiru en einu eintaki, þá vinsamlegast
setjiö viöeigandi töluofan viö oröin EINTAK/EINTÖK.
F.h. Prestafélags íslands
Guömundur Óskar Ólafsson form.
Sigfinnur Þorleifsson ritari.
+
Útför sonar okkar og bróöur,
JÓHANNS KRISTJANS BRIEM,
Gyöufelli 6, Reykjavík,
sem lést af slysförum 27. maí sl. fer fram frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 18. júní kl. 16.30. Þeir, sem vilja minnast hins látna
láti björgunarsveitir njóta þess.
Sigríöur Sigtryggsdóttir Briem,
Steindór Briem,
og systkini.