Morgunblaðið - 16.06.1981, Síða 48
Síminn á afgreiösiunni er
83033
jM$r0tn#Int>it>
Simi á rítstjóm og skrífstofu:
10100
'N
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1981
.FjárfestinKarfélaK Íslands hf.
hefur í samstarfi við ofluKan erlend-
an aðila. Wyerhaeuser Co. i Seattle 1
Kandarikjunum. sýnt áhuKa á þvi að
hefja hafheit á laxi i stórum stíl frá
Straumsvík." saKði ÁKÚst FlyKenr-
inK framkvæmdastjóri á ráðstefnu
um atvinnumál á hOfuðhurKarsvæð-
inu. sem haldin var á lauKardaK-
Sagði Ágúst, að að áliti innlendra
og erlendra aðila byði svæðið við
Straumsvík upp á þau skilyrði sem
fyrir hendi þyrftu að vera, í ríkum
mæli, ef fara ætti út í hafbeit í
stórrekstrarformi eins og þekkist á
Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku.
„Nægilegt er af fersku, ómenguðu,
köldu vatni undir hrauninu austur af
Straumsvík, skammt er í aöalæðar á
heitu vatni Hitaveitu Reykjavíkur,
sem myndi sjá hafbeitarstöð fyrir
nægu heitu vatni,“ sagði Ágúst. Þá
sagði hann, að stutt væri í afskipun-
arsvæði, þar sem hinn slátraði fisk-
ur yrði frystur í hraðfrystihúsum í
Sláttur hófst
í gærmorgun
SLÁTTUR hófst í gærmorgun á
hænum Fit í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi i Rangárvallasýslu og
voru slegnir 3—4 hektarar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á Fit í gær var
hér um nýrækt að ræða og hafði
orðið að slá hana vegna þess að
grasið hafði lagst af roki. Hins
vegar væri sláttur ekki almennt
hafinn, en væntanlega myndi
hann hefjast eftir um það bil
hálfan mánuð.
Lítið sem ekkert kal er í túnum
á Fit og ástandið almennt gott þar
í kring og sprettan sæmileg.
Ástæðan fyrir slætti svo snemma
er sú að á nýræktina var borið
óvenju snemma og hún því hæf til
sláttar fyrr en ella.
Búist við 1500—2000 tonna afla á ári
Hafnarfirði eða fluttur isaöur á
■narkað í Evrópu eða Norður-Amer-
íku. Fjárfestingarfélagið hefði
tryggt sér land við Straumsvík, allt
annað en það sem Hafnarfjörður réði
yfir, en leitað hefði verið eftir því við
bæjaryfirvöld að fá leigt svæði og
stæði aðeins á svari af hálfu bæjar-
yfirvalda til þess að Fjárfestingarfé-
lagið og hinn erlendi aðili gætu
gengið frá formlegri stofnun sam-
eiginlegs framkvæmdafélags og þar
með hafið nauðsynlegt uppbygg-
ingarstarf.
Kvað Ágúst, að samkvæmt hug-
myndum sem fyrir lægju um fjár-
festingar- og seiðafjöida sem sleppt
yrði, að fenginni jákvæðri reynslu,
yrði um stórrekstur að ræða sem
valda myndi straumhvörfum á þessu
sviði. Um væri að ræða tugi milljóna
fjárfestingu í uppeldisstöðvum og
seiðum. I áætlun væri m.a. gert ráð
fyrir, að þegar uppbyggingin hefði
Samningar tókust milli Bayern og Standard:
Bayern keypti Ásgeir
á 4,6 milljónir króna
Metupphæð í belgísku knattspyrnunni
VESTUR-bÝZKA meistaraiiðið
Bayern Miinchen samþykkti i
Kirrmorgun að greiða það verð,
sem Standard Liege hafði sett
upp fyrir Ásgeir Sigurvinsson.
bar með lauk margra daga samn-
ingaþofi fclaganna. sem sett
hafði félaKaskiptin i hættu. Um-
samið verð er 1,5 milljónir
þýzkra marka. jafnvirði 4,6 millj-
óna íslenzkra króna eða nær
hálfur milljarður gamalla króna.
Er þetta hæsta verð, sem greitt
hefur verið fyrir knattspyrnu-
mann í Belgfu og eitt ha-sta verð,
sem vestur-þýzkt knattspyrnulið
hcfur þurft að greiða fyrir leik-
fnann.
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með þessi úrslit mála og hlakka
mikið tii að leika með Bayern
Múnchen," sagði Ásgeir í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, en hann kom
til íslands í gær ásamt unnustu
sinni, Ástu Guðmundsdóttur. Ekki
verður viðdvölin hér löng, þau
halda til Þýzkalands á fimmtu-
daginn þar sem þau munu dvelja á
hóteli í Ölpunum og mun Ásgeir
verða þar undir eftirliti færustu
lækna vegna meiðslanna, sem
hann hlaut nýlega. Æfingar hjá
Bayern hefjast 6. júlí.
Eins og fyrr segir hafa samn-
ingaviðræður gengið skrykkjótt,
einkum vegna óbilgirni Petit,
framkvæmdastjóra Standard.
Hann hefur haidið Ásgeiri í mjög
háu verði og oft hækkað verðið.
Síðast hækkaði hann verðið á
Ásgeiri sama daginn og hann
meiddist! En hinn ungi fram-
kvæmdastjóri Bayern, Hoeness,
vildi alls ekki sleppa Ásgeiri og
eftir að stjórn Bayern hafði haldið
fund um málið á sunnudaginn
féllst hann á að greiða það verð,
sem Petit setti upp. Bayern greiðir
1,2 milljónir marka í peningum og
íslendingur
stunginn
til bana í
Svíþjóð
ÍSLENZKUR maður, Ingvar
borgeirsson, var stunginn til
bana með hnífi í íbúð í Orgryte-
hverfinu í miðborg Gautaborg-
ar í Svíþjóð sl. miðvikudag.
Tildrögin voru þau, að Ingvar
hitti tvær konur í grasgarði í
miðborg Gautaborgar. Haldið
var í íbúð annarrar þeirra þar
sem vín var haft um hönd og
hófust þar fljótlega deilur milli
kvennanna um veskið, sem önnur
þeirra missti.
Hugðist Ingvar ganga milli
kvennanna og róa þær niður, en
það skipti engum togum, að hann
fékk hnífsstungu og lézt sam-
stundis.
Báðar konurnar eru í gæzlu-
varðhaldi og hafa verið ákærðar
fyrir morð.
Ingvar Þorgeirsson var 30 ára
að aldri.
Noregur:
Islendinga
leitað vegna
peningasvindls
NORSKA lógreglan leitar nú
tveggja íslendinga, sem íjár-
magnað hafa ferðaíög sín um
Noreg að undanförnu með því
að skipta gömlum islenzkum
seðlum á hótelum vítt og
breitt.
Mennirnir hafa komið á
hótelin eftir að venjulegir
bankar hafa lokað og borið því
við að þeir væru peningalitlir.
Þeir hafa síðan fengið jafn-
virði nýkróna fyrir gömlu
seðlana.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar eru mennirnir
liðlega 30 ára gamlir og tala
mjög góða ensku.
„Lopapeysulambu
Lambið i lopaskrúða, peysu og lambhúshettu, i fjárhúsunum að
Ilrossaholti. Móðirin, Mótbotna, sem er i eigu Herdisar Jónsdóttur
húsfreyju, stendur hjá afkvæmi sínu. Mbi. RAX.
Ásgeir og Ásta Guðmundsdóttir, unnusta hans, á heimili foreldra
hennar. Ljósm. Mbt: Kristján
leikur auk þess þrjá leiki í Liege,
einn í haust og tvo næsta vor.
Ásgeir sagði að hann hefði orðið
fyrir miklum vonbrigðum með
framkomu framkvæmdastjóra
Standard. „Ég hef veitt félaginu
átta ára dygga þjónustu, leikið 400
leiki og skorað 130—140 mörk. Ég
taldi að ég hefði átt betra skilið,"
sagði Ásgeir.
Til að gefa lesendum hugmynd
um í hve miklu áliti Ásgeir er sem
knattspyrnumaður má gera sam-
anburð á kaupverði hans og
tveggja félaga hans, sem seldir
voru frá Standard Liege nýlega.
Belgíski landsliðsmaðurinn
Renquin var seldur til Anderlecht
fyrir 15 milljónir belgískra franka
og sænski landsliðsmaðurinn
Edström til Monaco fyrir 5—6
milljónir franka. Kaupverð Ás-
geirs er hinsvegar jafnvirði 26
milljóna belgískra franka. Bayern
Múnchen, sem Ásgeir gengur til
liðs við, er eitt frægasta knatt-
spyrnufélag heimsins, margfaldur
Evrópumeistari og sömuleiðis
margfaldur Þýzkalandsmeistari,
m.a. tvö síðustu árin.
Hugmyndir um hafbeit í stórum stil frá Straumsvik:
„Trúlega hefur lambið fengið
hita. en það er þekkt fyrirbrigði,
að nýborin lömb felli ullarhárin
fái þau hita. og fullorðnar ær
gera slíkt hið sama. Kalt var I
veðri nóttina eftir lamhsburðinn,
og króknaði til dæmis eitt úr
kulda." sagði llerdís Jónsdóttir,
húsfreyja á llrossholti 1 Eyja-
hreppi í Hnappadalssýslu. cn þar
á ha' er lamhhrútur, sem felldi
alla ull skommu eftir burð.
Lambið er þó hið sprækasta, og
eru vonir bundnar við að ullar-
hárið vaxi á ný eftir nokkrar
vikur. Herdís sagði, að kæmu
hárin aftur, yrðu þau slétt, eins og
á fullorðinni á. Lambið hefur
verið haft í húsi, og verður svo
fyrst um sinn, einnig móðirin,
Móbotna, en til þess að hún
þekkist lambið verður að klæða
það í sérstakar iopaflíkur, sem
húsfreyjan hefur útbúið. Skipt er
um lopaflíkurnar á nokkurra daga
fresti.
Smári ólafsson, sonur ólafs i Hrossholti, heldur hér á „lopapeysu-
lamhinu", sem fært hefur verið úr skjólklæðunum. Eins og sjá má
eru engin ullarhár á búk lambsins, og skinnið er mjög hrukkótt.
10 milljón laxaseiðum sleppt ár-
lega, - tugir milljóna í fjárfestingu
náð ákveðnu stigi, yrði árlega sleppt
um 10 milljónum laxaseiða og miðað
við 5—7% skil á þeim úr sjó, yrði um
500—700.000 laxa að ræða sem
kæmu til slátrunar. Miöað við 3 kg
meðalþunga laxsins væri um 1500—
2000 tonna afla að ræða.
Ágúst sagði, að bandaríska fyrir-
tækið Wyerhaeuser Co. hefði yfir
þekkingu og reynslu að ráða á þessu
sviði og væri það mjög fjársterkt og
ef hugmyndir þessar kæmust í
framkvæmd, yrði um nýjan stefnu-
markandi stórrekstur að ræða.