Morgunblaðið - 19.06.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1981
+ Eiginmaður minn og faöir okkar, GUÐNI ÖRVAR STEINDÓRSSON, lézt 17. júní. Fyrir mína hönd og barna hans, Björg Guölaugsdóttir.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, MAGNÚS KRISTJÁN INDRIÐASON, kaupmaöur, Lundahólum 6, Reykjavík, sem fórst meö flugvélinni TF-ROM, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 22. júní nk. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á aö láta björgunarsveitir njóta þess. Er)a L6a jónsdóttir og synir.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, KJARTAN STEINGRÍMSSON, Miklubraut 66, varð bráökvaddur aö kvöldi 16. júnt'. Ingibjörg K. Jónsdóttir, Kristín Kjartansdóttir, Guörún L. Kjartansdóttir, Kjartan Kjartansson.
Móöir okkar, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR fré Hjélmholti, andaöist í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 16. júní. Guöbjörg Þorsteinsdóttir, Þórarinn Þorsteinsson, Þorsteinn Þorsteinsson.
+ Móöir okkar, GUÐMUNDÍNA SIGURBORG GUÐMUNDSDÓTTIR, Garöavegi 7, Hafnarfiröi, veröur jarösett frá Þjóökirkjunni föstudaginn 19. júní kl. 2. Börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUNNAR SÖRENSEN, útvarpsvirkjameistari, Skipholtí 26, lést aö morgni 17. júní. Jaröarförin auglýst síöar. Judith Jónsdóttir og börn.
+ Öllum er sýnt hafa hluttekningu vegna fráfalls móöur minnar, SIGURRÓSAR JÓNSDÓTTUR, Fornhaga 26, sendi ég mínar innilegustu þakkir. Fyrir mína hönd, ættingja og vandamanna, Víöir H. Kristinsson.
+ Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og bróöur, BJARNA GÍSLASONAR fyrrum stöövarstjóra. Guóný Gestsdóttir, Jóhanna Gísladóttír.
+ Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar og tengdamóöur, SIFJAR BJARNADOTTUR Bjarni Ómar Guömundsson, Ragnhildur Ólafsdóttir, Ólafur Ragnarsson.
Minning
Hjörleifur Einars-
son frá Mýnesi
Fæddur 28. nóvember 1955.
Dáinn 27. maí 1981.
Hjörleifur Einarsson var fædd-
ur 28. nóvember 1955, foreldrar
Laufey Guðjónsdóttir og Einar
Örn Björnsson, Mýnesi, Eiða-
hreppi, S. Múlasýslu. Systkini
hans eldri eru Arnljótur, Sigríður
Laufey, Björn, Áskell Gunnar,
Úlfur og Guðjón. Hjörleifur var af
hinni kunnu vefaraætt á Héraði
og ættstofni sem kenndur er við
Flögustaði í Álftafirði í föðurætt,
en í móðurætt af Gunnarsætt sem
kennd er við Skóga í Axarfirði.
Ættstofnar þessir eru sterkir á
Austurlandi en koma víða saman.
Hjörleifur bar heiti forfeðra
sinna, séra Hjörleifs á Undirfelli í
Vatnsdal og séra Hjörleifs frá
Krossi í Landeyjum er var bróðir
Jóns vefara.
Hjörleifur ólst upp hjá foreldr-
um sínum, en 11 ára gamall fór
hann með systur sinni, Sigríði, og
manni hennar, Jóni Snæbjörns-
syni, og börnum þeirra þrem til
Noregs, og stundaði nám í barna-
skóla í einn vetur. Lærði hann þar
norsku og kom heim að vori með
góðan vitnisburð. Hann stundaði
síðan nám í Eiðaskóla í tvo vetur,
en innritaðist í Verzlunarskóla
Islands og lauk verzlunarprófi
vorið 1974. Síðan fór hann til
Englands ásamt Gunnari Vignis-
syni skólabróður sínum til fram-
haldsnáms í ensku og verzlunar-
fræðum í nokkra mánuði og kom
heim rétt fyrir jólin 1974.
Á skólaárunum starfaði Hjör-
leifur í frystihúsum á Austur-
iandi, fór í sjóróðra og var hjá
Rafveitum ríkisins sem flokks-
stjóri við langingu háspennulína
og á skrifstofunni. I ársbyrjun
1975 hóf Hjörleifur störf hjá
Samvinnutryggingum í Reykjavík
og fékk það verkefni að ferðast um
landið í svokölluðu umboðaeftirliti
í tengslum við skrifstofustarf í
aðalstöðvum Samvinnutrygginga.
Á ferðum sínum öðlaðist Hjörleif-
ur mikla reynslu, hafði kynni af
fjöida fólks og reyndi eftir megni
að auka samhug og skilning á gildi
Samvinnutrygginga fyrir fólkið í
landinu. Þessu starfi gegndi
Hjörleifur þar til yfir lauk.
Hann hafði mikinn áhuga á
félagsmálum og allri samhjálp og
þjoðmálum. Honum var falin
formennska í Starfsmannafélagi
Samvinnutrygginga og var virkur
í félagsskap J.C. manna í Reykja-
vík.
Hjörleifur gekk að eiga Höllu
Björk Guðjónsdóttur og voru þau
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju 22. ágúst 1976 af séra
Pétri Sigurgeirssyni vígslubiskup.
Þau stofnuðu heimili í leiguíbúð
að Vesturbergi 10 í Breiðholti, en
1978 keyptu þau hæð í húsinu að
Langholtsvegi 14, Reykjavík og
fluttu þar inn sumarið 1979. Þar
hefur heimili þeirra staðið síðan.
Börn þeirra eru Sigurður Birgir f.
24. júní 1972, sem Hjörleifur
ættleiddi og gekk í föður stað,
Einar f. 22. október 1977 og
Guðjón f. 23. apríl 1979.
Hjörleifs er sárt saknað af
eiginkonu og börnum, foreldrum,
systkinum, systkinabörnum og
öðrum vandamönnum sem nutu
samveru við hann í aldarfjórðung,
en ljúfar endurminningar munu
milda hinn sára harm og eins
vonin um að lífið endurnærist í
þeim sem eftir lifa á hverri tíð.
Ég vil í nafni Hjörleifs og
fjölskyldunnar senda innilegar
þakkir til forstjóra Samvinnu-
trygginga Hallgríms Sigurðssonar
og samstarfsfólks hans fyrir þann
tíma er hann starfaði meðal
þeirra, og veit að vera hans og
störf þar munu bera ríkulegan
ávöxt. Einnig sendum við alúðar-
þakkir til Samvinnutrygginga og
J.C. félaga fyrir þeirra mikla
framlag, svo og til allra annarra
er þátt tóku í leitinni sem var hin
umfangsmesta í sögu flugsins hér
á landi. Slík fórnarlund og sam-
hugur, er háska ber að höndum,
ætti að vera hið leiðandi afl á
öllum sviðum þjóðfélagsins. Það
var raunabót og minnkaði þá
martröð er yfir hvíldi þegar
áhöfnin á TF RÁN fann flugvélar-
flakið og mennina fjóra. Innilegar
samúðarkveðjur til aðstandenda
þeirra þriggja félaga Hjörleifs er
fórust með TF ROM. Við biðjum
þeim blessunar almættisins.
Draumurinn hefur fylgt mann-
kyninu frá upphafi og er svo
máttugur að með þeim hætti er
hægt að ferðast um heima alla, en
verustaðurinn bíður í svefninum
þar til ferðinni er lokið í hvert
sinn. Þess vegna eru líkurnar
sterkar fyrir því að lífið sé
æfinlega viðbúið til brottfarar úr
bústað sínum, mannslíkamanum,
hvernig svo sem dauðann ber að.
Nóttina sem ég frétti af hvarfi
flugvélarinnar fór ég að leita að
Hjörleifi í huganum og festi að-
eins blund um miðja nótt.
Dreymdi mig þá að ég var staddur
á ókunnum stað þar sem hann
birtist með ferðatöskuna í annarri
hendi og lítinn poka í hinni. Ég
spurði hann hvort ég ætti ekki að
halda á töskunni og hvort hann
væri ekki meðal okkar eins og
áður. Hann svaraði að svo væri
ekki, hann væri kominn á hærra
svið. Við þetta vaknaði ég og
fannst mér að hann hefði látið
mig vita af sér og hvernig komið
væri, en missti ekki vonina. Ég
veit að það er vilji sonar míns að
við sýnum þrek og látum ekki
bugast, og því ætla ég að hafa það
að leiðarljósi og bera minn harm í
hljóði.
Jarðarför Hjörleifs fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 19.
júní 1981 klukkan 10.30 f.h.
Einar Örn Björnsson
Mýnesi.
Vinur minn og skólafélagi um
árabil Hjörleifur Einarsson hefur
verið kvaddur brott úr þessum
heimi. Kallið kom fyrirvaralaust
og þegar síst skildi. Hann var
aðeins tuttugu og fimm ára að
aldri og lífið virtist blasa við bjart
og hindrunarlaust framundan.
Það var margt sem átti að gera í
framtíðinni, n þó hafði ótrúlega
miklu þegar verið komið 1 verk.
Hjörleifur var kvæntur Höllu
Björk Guðjónsdóttur frá Akur-
eyri. Synirnir eru orðnir þrír,
Sigurður, Einar og Guðjón. Þau
bjuggu hamingjusöm í sinni eigin
íbúð og allt kapp var lagt á að gera
heimilið sem vistlegast. Hann var
í starfi sem hann kunni vel við sig
í og lagði sig fram um að rækja
vel. Áhugi hans á félagsmálum
var mikill og leið hans lá á
landsþing Junior Chamber félaga
þegar lokastundin rann upp.
Hjörleifur var sonur hjónanna
Einars Björnssonar og Laufeyjar
Guðjónsdóttur í Mýnesi á Héraði
og var yngstur af sjö systkinum.
Kynni mín af Hjörleifi hófust í
Eiðaskóla veturinn 1969—70. Þar
tókst snemma með okkur góður
kunningsskapur og urðum við
samferða í námi það sem eftir var
af skólagöngu okkar. Kunnings-
skapurinn varð að gagnkvæmu
trausti og vináttu sem er mér
mikilvæg og minnisstæð og ég er
þakklátur fyrir að hafa orðið
aðnjótandi.
Hjörleifur var einn þeirra
manna sem ekki deyja ráðalausir
þó á móti blási, hann var eftir-
tektarsamur, fljótur að aðlaga sig
breyttum aðstæðum og átti auð-
velt með að kynnast fólki. Það var
því mikil hjálp í því að eiga slíkan
vin þegar leiðin lá frá Eiðum til
Reykjavíkur í Verzlunarskóla ís-
lands. Eftir stutta dvöl í höfuð-
borginni var engu líkara en að
hann hefði hvergi annarsstaðar
búið um ævina og kunningjahóp-
urinn var strax orðinn stór. Þessir
hæfileikar hans komu þó enn
betur í ljós síðar þegar leiðin lá til
náms í Englandi í skóla þar sem
samankomnir voru nemendur úr
nær öllum heimsálfum. Að því
námi loknu kvaddi skólastjórinn
hann m.a. með þeim orðum að
hann hefði skapað í sínum bekk
óvenjulega jákvætt og frjálslegt
andrúmsloft sem verið hefði mik-
ilvægt bæði fyrir skólann og
nemendur.
Þau þrjú ár sem Hjörleifur
stundaði nám í Verzlunarskólan-
um, en þaðan lauk hann verzlun-
arskólaprófi árið 1974, bjó hann
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
JOHANNESAR E. LEVY,
fyrrv. oddvita,
Hrisakotí. Vatnsnesi, V-Hún.
Jenný J. Levy,
Erla J. Levy, Gunnlaugur Guömundsson,
Agnar J. Levy, Hlíf Siguröardóttir,
Eggert J. Levý, Ingunn Siguröardóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
SIGURDAR GUOMUNDSSONAR,
trésmiös,
Stekkholti 4, Selfossi.
Hanna Jóhannsdóttir,
Guöríður Jónsdóttir,
Lilja Siguröardóttir,
Guörún Siguröardóttir, Valur Þorvaldsson,
Hanna Lilja Valsdóttir, Sigríöur Þóra Valsdóttir,
Geröur H. Jóhannsdóttir, Egill Sigurösson.