Morgunblaðið - 09.08.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981
15
Konungsríki í
Evrópu standa
traustum fótum
í byrjun þessarar aldar voru í Evrópu þrjú keisaradæmi, tylft
konungsríkja og aðeins örfá lýðveldi. Nú eru konungar í Evrópu aöeins
fjórir, drottningar tvær, einn stórhertogi • Lúxemborg og tveir prinsar, í
Mónakó og Liechtenstein. Fjölgun lýðvelda hófst í Portúgal 1910 og
síðast bættist lýðveldi í hópinn árið 1973 þegar konungsdæmið í
Grikklandi var lagt niður. Taliö er að þau konungsríki sem enn eru við
lýði í álfunni standi nokkuð traustum fótum.
Svo vill til aö lýöræöið í þeim
löndum, sem enn hafa konunga,
dafnar betur en í flestum löndum
þar sem völdin eru í höndum
forseta. En þau konungsríki, sem
enn halda velli, hafa látiö völdin
ganga til þingsins og hafa ekki
streist á móti þróuninni.
Það var ekki fyrr en 1848 aö
konungseinræöi vék í fyrsta sinn
fyrir þingbundinni konungsstjórn.
Þaö var í Danmörku, en þar ríkir nú
elsta konungsætt í Evrópu.
VINSÆLDIR
Hver konungsætt hefur sína sér-
stööu. Sænska konungsríkiö hélt
velli vegna þess aö áriö 1810 vék sú
ætt sem þá var viö völd fyrir
Bernadotte, frönskum hershöfö-
ingja úr her Napóleons, sem gerður
var að konungi. Svíum tókst aö gera
þessa ætt jafn sænska og Björn
Borg.
Belgar geröu þýskan aöalsmann
aö konungi árið 1830. Konungs-
dæmi var endurreist bæöi í Noregi
1905 og á Spáni 1975 og það kynni
að gefa konungssinnum þá von aö
lýöræöisskeiöiö á þessari öld hafi
aöeins veriö timabundiö frávik.
Hver er skýringin á þeim miklu
vinsældum, sem konungar okkar
daga virðast njóta um þessar mund-
ir? Jóhann Karl, Spánarkonungur, á
meiri vinsældum aö fagna meðal
þjóöarinnar en nokkur annar mað-
ur. Skoöanakönnun, sem gerö var í
Svíþjóð fyrir nokkrum vikum sýndi
aö Karl Gústaf XVI nýtur mun meiri
vinsælda en nokkur stjórnmálamaö-
ur í landinu. Vinsældir belgísku,
dönsku og hollensku konungsætt-
anna hafa aukist verulega á þessari
öld.
AÐLÖGUN
Konungar álfunnar hafa haft vit á
því aö temja sér hófsamri lífsstíl en
einkenndi forvera þeirra og þeim
hefur tekist aö laga sig aö breyttum
tímum aö þessu leyti. En hnökralaus
samskipti viö almenning er ekki
nóg. Ein höfuö ástæöan fyrir því aö
konungdæmi eru enn viö lýöi er sú
aö almúginn li'tur á konunginn sem
tákn fyrir einingu og samhug þjóö-
arinnar.
Árið 1905 ákváöu Norðmenn aö
segja sig úr lögum viö sænsku
krúnuna og völdu danskan prins
fyrir kóng. En þrátt fyrir mikla
eljusemi tókst honum ekki aö vinna
hug þjóðarinnar fyrr en í síðari
heimsstyrjöldinni aö hann varö tákn
þess hugrekkis og þrautsegju, sem
þjóöin þurfti á aö halda til þess aö
komast í gegnum þrengingar fimm
ára hersetu. Konungsfjölskyldum
Hollands, Danmerkur og Luxem-
borgar tókst einnig aö standa undir
þeim kröfum sem gerðar voru til
þeirra aö þessu leyti og treystust
þær í sessi fyrir bragðið.
Leopold III, Belgíukonungur, stóö
sig ekki vel aö þessu leyti og hann
varö aö afsala sér konungdómi
skömmu eftir stríöið og viö honum
tók Baldvin, sonur hans, núverandi
konungur. Harðar deilur voru uppi
meðal Belga um hvort landiö skyldi
áfram verða konungdæmi en því má
þakka starfi Baldvins aö þetta er
ekki lengur hitamál í Belgíu.
Valdaafsal Júlíönu Hollands-
drottningar á síöasta ári gat talist
skynsamleg ákvöröun, en drottning-
in var þá orðin 71 árs gömul.
Beatrix dóttir hennar tók viö af
henni en hleypa þurfti nýju blóöi í
konungdæmiö eftir aö upp komst
um Lockheed-hneyksliö 1976 og
tengsl prinsins við þaö.
Eitt af síöustu hlutverkum Júlíönu
var aö taka á móti Jóhanni Karli,
Spánarkonungi, þegar hann heim-
sótti Holland. Þetta var í fyrsta
skiþti sem þjóðhöfðingar þessara
landa hittust síðan 1549. Nú virðist
Jóhann Karl helsta von spænsku
þjóöarinnar um bjarta framtíö.
Þaö kom berlega í Ijós í febrúar
Hljóölausar loftpressur
Hentugar fyrir bólstrara, trésmiði og smærri
verkstæöi.
Iðnvélar hf.
Smiöjuvegi 30, Kópavogi,
sími 76444.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Beatrix
hefur
ennþá
ýmis
verk að
vinna.
síðastliönum þegar herinn geröi
tilraun til valdaráns í landinu aö
Spánn hefur þörf fyrir traustan
þjóöhöföingja, en Jóhanni Karli er
aö mestu leyti þakkað það að sú
tilraun rann út í sandinn.
Spánarkonungur er nú eini kon-
ungborni þjóöhöföinginn í Evrópu
sem gegnir virku hlutverki í stjórn-
málum. Afskipti annarra þjóðhöfö-
ingja einskorðast við frumkvæði um
stjórnarmyndun þegar erfiölega
gengur að koma saman stjórn.
Beatrix drottning var reyndar aö
sinna slíkum störfum þegar hún
þurfti aö fara í brúðkaup Karls og
Diönu.
Svíakonungur hefur nú veriö
leystur undan síðustu skyldum sín-
um á stjórnmálasviöinu og hefur
forseti sænska þingsins þaö verk-
efni meö höndum aö leysa stjórn-
arkreppur. Þannig hefur verið kom-
ið í veg fyrir þann möguleika aö
konungurinn geröi eitthvaö í and-
stöðu við vilja þjóöarinnar og þar
meö virðist ekkert því til fyrirstööu
aö konungsríkin standi um ókomna
framtíð.
Thc Economist
1 S/ippfélagið íReykjavík hf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og33414
um
Nýju litakortin okkar hitta alveg í mark.
Á þeim finnurþú þinn draumalit.
AFfíW
VITRETEX Sandmálning er hæfilega gróf til að
regn nái að þrífa vegginn og litirnir njóta sín í áraraðir,
hreinir og skínandi.
mm
Góð ending VITRETEX Sandmálningar er viðurkend
staðreynd. Reynslan hefur þegar sannað hana,
sem og ítarlegar veðrunarþolstilraunir.
VCRÐ
Hlutfall verðs og gæða VITRETEX Sandmálningar
teljum við vera hið hagstæðasta sem býðst á markaðnum
og er það liklegasta skýringin á sífeldri
aukningu sölunnar,-auk þess auðvitað hve litirnir eru fallegir.
Ný litakort á fimm sölustöðum í Reykjavík
og fjölda sölustaða út um land allt.
CNDINGIN VCXMC9 VIUUTéX
CIN UMFCR9 PCKUR
önnur eykur endinguna.