Morgunblaðið - 09.08.1981, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.08.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 17 Rúnar Maunússon 1. stýrimaður og íslrifur Björnsson á Guðmundi RE. Loðnuvertíðin hefst á miðnætti Jón Ingibcrgsson og Jón Magnússon á Ljósvíkingi. stemmningunni frá því sem hún var. Jón Ingibergsson annar vél- stjóri á Ljósvíkingi frá Reykja- vík, var að setja glussaleiðslu á tjakkinn er blaðamaður hitti hann að máli. Sagðist hann halda að þeir færu út þá um kvöldið, eins og flestir bátar frá Reykja- vík. Hann var ánægðu með að fara út á loðnu og sagði loðnu- veiðar langskemmtilegasta veiði- skapinn. Menn tækju inn mikinn afla á stuttum tíma. „Það er búið að gera allt klárt," sögðu þeir Rúnar Magnússon og Isleifur Björnsson á Guðmundi RE en það er 950 tonna bátur. „Við erum bara að bíða eftir nýju Astac-tæki og lagfæringu á tal- stöðinni og svo brunum við út.“ Sögðu þeir að Guðmundur RE hefði aðeins verið á loðnu í fimm vikur á þessu ári. Árskvótinn 13300 tonn og sögðu þeir að ef þeir næðu kvótanum á tveimur til þremur mánuðum, sem væri mjög líklegt, þá færu þeir ekkert út aftur fyrr en á sama tíma að ári. Guðmar Guðmundsson vélstjóri á Pétri Jónssyni var að skipta um kefli á kraftblökkinni. Matarbirgðir teknar um borð í Ljósviking. LOÐNUVERTlÐIN heíst á mið- nætti í kvöld og þá munu ís- lensku skipin kasta út nótinni á Jan Mayen-miðunum. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Mbl. komu niður á Granda á föstu- daginn voru sjómenn i óða önn að búa skipin sin undir slaginn. Við tókum nokkra þeirra tali og fyrstur varð á vegi okkar Guð- mar Guðmundsson vélstjóri á Pétri Jónssyni. Hann var að skipta um kefli á kraftblokkinni en hún dregur nótina um borð. Sagði Guðmar að þeir færu út klukkan 11 um kvöldið. Sagði hann að þeir hefðu klárað síðasta loðnukvótann seinnipartinn í janúar en nú væru þeir sem sagt að fara út aftur og voru mikið ánægðir með það. Annars sagði Guðmar að stemmningin í kring- um loðnuvertíðina hefði minnkað mikið síðan kvótinn var settur á loðnuna. „Það var geysifjörugt og skemmtilegt hér áður,“ sagði hann. „Þá var rokið inn og rokið út og menn flýttu sér ógurlega. Nú hefur kappið minnkað í þessu að mun.“ Sagðist hann hafa verið á hverri einustu loðnuvertíð frá ’74 og væri mikill munur á Nótin tekin úr geymslu. Ljósmynd Mbl. Guðjón. þessa máls er náttúrlega öivun við akstur, sem virtist all almenn um síðustu helgi. Það er umhugsunar- efni, hvort ekki á að beita harðari viðurlögum gegn ölvun við akstur. Það er auðvitað hrein glæpa- mennska að setjast undir stýri undir áhrifum áfengis enda hafa afleiðingar þess orðið slíkar að ekki verða aftur teknar. Andstæður þessa þáttar í úti- vist fólks um verzlunarmanna- helgina er viðleitni bindind- ismanna til þess að efna til áfengislausra skemmtana um þessa helgi. Þessi viðleitni er virðingarverð og hana ber að meta og ólíkt meira öryggi í því fyrir foreldra að vita af unglingum undir handarjaðri þeirra en ann- ars staðar, þar sem ekki hefur tekizt að uppræta áfengisneyzlu að nokkru marki þrátt fyrir góðan vilja. Úm verzlunarmannahelgina á dögunum lauk landsmóti skáta, sem staðið hafði vikuna áður við Akureyri. Þar mátti sjá stóran hóp ungs fólks, sem stundaði heilbrigt líf og naut hollrar úti- veru. Skátahreyfingin er merki- legur félagskapur, sem getur lagt mikið af mörkum til þess að stuðla að heilbrigðu líferni æskufólks í landinu. Framlag skátahreyf- ingarinnar og íþróttafélaganna er raunar ómetanlegt í þeim efnum. En um leið er nauðsynlegt, að forráðamenn þessara félagsmála- hreyfinga geri sér fulla grein fyrir því hve mikil ábyrgð er á þá lögð. Foreldrar bera traust til þeirra og treysta því og trúa að börn og unglingar séu í góðum höndum í starfi í þessum félögum. Það þarf mikið til að standa undir því trausti og ekki má mikið út af bregða til þess að það tapist. Bæði íþróttafélög og skátafélög þurfa að leggja ríka áherzlu á það við leiðbeinendur og foringja hve áb- yrgð þeirra er mikil og varast að leggja of mikla ábyrgð og ákvarð- anir á herðar of ungs fólks, sem hefur ekki öðlast þá lífsreynslu og þann þroska, sem þarf til að taka réttar ákvarðanir á stundum. Bjart fram- undan, en ... Ekki verður annað sagt, en að í öllum meginefnum sé bjart fram- undan í þjóðlífi okkar. Á örfáum árum hefur þorskafli landsmanna tvöfaldast. Það er árangur út- færslunnar í 200 mílur haustið 1975. Verðlag á afurðum okkar erlendis, hvort sem um er að ræða saltfisk, skreið, frystan fisk eða ullarvörur er hátt og markaðsað- staða okkar sterk. Þróunin á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum hefur verið okkur hagstæð á þessu ári. Útflutningurinn hefur orðið verðmeiri vegna sterkrar stöðu Bandaríkjadals og verðlag á inn- flutningi hagstæðara vegna veikr- ar stööu Evrópugjaldmiðla. Allt hefur þetta átt ríkan þátt í því að staðan í efnahagsmálum okkar hefur batnað. Jafnframt stöndum við nú við upphaf nýrra átaka í atvinnumál- um okkar með nýtingu fallvatn- anna. Nú er ekki lengur ágreining- ur um að hefjast þurfi handa um byggingu þriggja nýrra stórvirkj- ana og ekki er heldur ágreiningur um að því þarf að fylgja nýtt átak í uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Á þessum sviðum má búast við miklum framkvæmdum fram til næstu aldamóta, sem auka munu á velmegun þjóðarinnar. Þess vegna má segja að stefni í rétta átt á flestum sviðum islenzks þjóðlífs. Að einu leyti ber þó skugga á, en það er á vettvangi stjórnmálanna. Þar er ekki jafn bjart framundan og annars staðar. Myndun núver- andi ríkisstjórnar hefur eitrað andrúmsloftið í íslenzkum stjórn- málum. Löngu eftir að þessi ríkis- stjórn hefur farið frá mun áhrifanna af myndun hennar gæta í samskiptum manna í stjórnmál- um. Kjarni málsins í sambandi við ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens er ekki sá hvort eða hvaða árangri hún nær í efnahagsmálum eða á öðrum sviðum þjóðfélagsmála. Kjarni málsins er heldur ekki sá hvort forsætisráðherrann er per- sónulega vinsæll meðal almenn- ings þessa stundina eða ekki. Það sem eftir stendur er einfaldlega það að myndun ríkisstjórnarinnar hefur opnað svo djúpt sár í sterkustu þjóðmálahreyfingu Iandsmanna, Sjálfstæðisflokkn- um, að það mun taka mörg ár að græða þau sár. Stjórnarmyndunin hefur eitrað andrúmsloftið meðal stjórnmálamanna, hún hefur ýtt undir grunsemdir og tortryggni og stuðlað að bræðravígum, tog- streitu og átökum, sem geta ekki haft annað en neikvæð áhrif bæði nú og síðar. Þeir stjórnmálamenn í öðrum flokkum, sem nú standa álengdar og gleðjast yfir þeim átökum, sem standa yfir í Sjálf- stæðisflokknum eiga eftir að kom- ast að raun um það síðar, að vinnubrögð af því tagi, sem beitt var við stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsens eru ekki til farsæld- ar. Stjórnarmyndunin er illkynjað mein í þjóðlífi okkar og svo verður meðan þessi ríkisstjórn situr. Allt andrúm í kringum hana er í mikilli andstöðu við það heil- brigða líferni og þau heilbrigðu lífsviðhorf, sem því fylgir, sem gerð var að umtalsefni í upphafi þessa Reykjavíkurbréfs. Það er vissulega umhugsunarefni að helzta meinið í þjóðlífi okkar skuli vera af völdum þeirra manna, sem tekið hafa að sér forystu um málefni þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.