Morgunblaðið - 09.08.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.08.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 Þaö er bara svona myndarlegt, innifaliö i veröi, sem er kr. 23.800.- Fortjald, 2 innri tjöld, gardínur, gaskútur, þrýstijafnari, raftengi fyrir bílinn og fleira. Aö öllu samanlögöu höldum viö aö þetta sé STERKASTI, BEZT BÚNI OG ÓDÝRASTI vagninn á markaönum í dag. Jafnframt góð fjárfestíng, sérstaklega fyrir 1. sept. Gisli Jonsson & Co. Hf. Sundaborg 41. Sími 86644. • Svefnpláss fyrir 7—8 manns. • Eldhúskrókur með eldavél og fleiru. • Traustir, hlýir og mikið pláss. Látum okkur nu sjá, já ■ / m f / 2200 Sterkur undirvagn segja þeir hjá Gísla. Já, byggöur a stalramma Þverfjööur, demparar og stór dekk, 13“ felga og nærri rykþéttur. Fljótlegt aö reisa vagninn, stangir fastar inni i tjaldinu. VANTAR ÞIG VINNU (n) VANTAR ÞIG FÓLK l Þl AVGI.ÝSIR l'M U.I.T LAND ÞEGAR ÞV Al'G- LYSIR í MORGVNRLADINV KYNNING Á GRAFISKRI ) V \ KVIKMYNDALIST1 A ' DAGANA 8.-23. ágúst verða haldnir á Kjarvals- stöðum, í Tjarnabæ og Handíða- og myndlistarskólan- um, Grafískir kvikmyndadagar á vegum íslensk-amer- íska félagsins. Er hér um að ræða kynningu á grafískum kvikmyndum og námskeið í grafískri kvikmyndagerð. Kvikmyndadagar þessir eru í beinu framhaldi af amerísku kvikmyndavikunni sem haldin var hér á landi síðastliðið sumar á vegum Íslensk-ameríska félagsins, þar sem kynntar voru amerískar heimildakvikmyndir. Þótti sú vika takast ágætlega og var aðsókn góð, enda um áhuga- verð fyrirbæri að ræða, sem fólki gefst ekki kostur á að kynna sér á hverjum degi. Fyrsta kvikmyndakynningin fyrir almenning á Grafísku kvik- myndadögunum verður haldin mánudaginn 12. ágúst kl. 20 að Kjarvalsstöðum. Verður þar fjall- að um sögulegan bakgrunn graf- ískra kvikmynda og sýndar eldri og yngri myndir. Umræður verða á eftir. Aðgangur er ókeypis á öllum sýningum og allir velkomn- ir. Eftirfarandi myndir verða sýndar á mánudaginn: Gertie the Dinosaur: Gömul am- erísk teiknimynd sem ruddi braut- ina fvrir hinar vinsælu amerísku grínteiknimyndir. — Fjölmargar pappírsteikningar skapa mynd- raðir nauðsynlegar til að ná fram áhrifum lifandi myndar. Rythm 23: Óhlutbundin mynd sem glímir við eðli og form kvikmynd- arinnar. Film Study 11: Óhlutstætt mál- verk er tengt tónverki í frumlegri tilraun til persónulegrar tjáningr í grafískri mynd. Defense D'affiche: Tilraun til endurskipulagningar raunveru- leikans þar sem óhlutbundnar „lifandi myndir" eru uppspretta hugmyndanna. Roll ’em Lola: Áhrif og umbreyt- ing eldra kvikmyndaforms eru augljós í þessari hefðbundnu teiknimynd sem þó ristir mun dýpra en fyrirmyndirnar. Engu að síður hefur myndin til að bera hinn grípandi frásagnarmáta sí- gildu teiknimyndanna. Ón the Location of a Circle Near Two Intersecting Lines: Háspeki- leg tilraun og könnun á grafíska rúminu sem eins og svo mörg önnur slík verk byggir á gömlum Þorlákshöfn: Mikil vinna og góð veiði iNirlákshofn. 7. ágúst. GÓÐ VINNA hefur verið hér í frystihúsinu í sumar. Togar- arnir hafa fiskað vel en þar er afli þeirra unninn að mestu. Frystihúsinu var lok- að frá 27. til 10. ágúst vegna sumarleyfa og lagfæringa. I dag er verið að landa úr Jóni Vídalín um 150 tonnum. Uppi- staðan í afla hans er karfi. Einnig er verið að landa úr Bjarna Herjólfssyni en afli hans er unninn á Stokkseyri og Eyrar- bakka og er honum ekið þangað. Tölur lágu ekki fyrir um afla en talið er að hann hafi verið mjög góður. Togarinn Þorlákur hefur verið í slipp en er nú kominn aftur. Góð humarveiði hefur verið eins og kunnugt er og mikið af honum landað. Hann er ekki tekinn til vinnslu í frystihúsinu en allur fluttur burtu og hefur svo verið mörg undanfarin ár. Mikil vinna hefur verið í salt- verkunarstöðvum öllum, við að ganga frá afla vetrarins, saltfiski og skreið. Að sögn Ásgeirs Bene- diktssonar verkstjóra hjá Meitl inum hf. er engin skreið farin á markað ennþá en saltfiskur farið aftur á móti svo til eftir hendinni fram eftir sumri, en þá kemur hik á að þeir taki fiskinn vegna hitanna úti. Ásgeir sagði ennfremur að frá vertíðarlokum væri búið að salta og hengja upp í skreið á fimmta hundrað tonn hjá þeim en þeir taka á móti fiski af togurum ef frystihúsið annar ekki að vinna hann og svo á meðan lokað er þar. Nokkrir bátar ætla innan skamms að byrja á netaveiðum. Hjá Glettingi hf. hefur verið mikil vinna. Búið er að pakka 15 hundruð tonnum af skreið en ekkert af henni er farið á markað en saltfiskur fór liðlega, fram á mitt sumar að sögn Ingvars Þorkelssonar hjá Glettingi hf. Fiskur fór til Spánar og Portúgal. Hann sagði varla von á næstu útskipun fyrr en í september. Utgerðarfélagið er meðfram mik- illi vinnu við verkun vetraraflans að byggja stórt fiskverkunarhús og skreiðarskemmu. Svo mikið er að gera þar á bæ enda ört vaxandi útgerðarfélag. í fyrra byggði Glettingur mjög myndarlegt verbúðarhús svo nú er fyrsta flokks aðstaða fyrir aðkomufólk sem vinnur hjá út- gerðarfélaginu en langflest starfsfólk þess er heimafólk og stefnt er að því að það verði sem flest, sagði Ingvi. Aðspurður sagði Ingvi engan fót vera fyrir því að Glettingur væri að kaupa nýjan bát. Ekki að sinrii. Ragnheiður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.