Morgunblaðið - 09.08.1981, Síða 21

Morgunblaðið - 09.08.1981, Síða 21
argáfu og tókst vel að gera frásögn sína lifandi og skemmti- lega svo gaman var á að hlýða. Hann söng með kirkjukórnum á Húsavík í mörg ár og þótti hafa söngrödd hina bestu. Hann var bókelskur og hafði unun af því að lesa sjálfum sér til ánægju og fróðleiks, og voru það hans bestu stundir er hann fór höndum um nýja bók. Afi minn var trúhneigður og trúrækinn maður og var því vel undir það búinn að mæta skapara sínum. Nú á kveðjustund er svo margt sem kemur upp í hugann en tilfinningunum er oft erfitt að lýsa með orðum. Mér verður hugs- að til þess er ég lítil telpa dvaldi í lengri og skemmri tíma hjá afa mínum og ömmu í sveitinni. Fyrir þær stundir er ég þakklát og verða þær mér ógleymanlegar svo langt sem ég man. Ég minnist þess er lítil telpa stakk stakk hendi sinni í lófa afa og þau gengu yfir holt og hæðir. Hann virtist hafa enda- lausa þolinmæði fyrir litla telpu sem svon margs þurfti að spyrja og margt vildi vita. Ekki brást það þegar afi minn kom úr kaupstað að hann hefði munað eftir þeirri litlu og dró þá ævinlega eitthvert góðgæti upp úr vasa sínum. Já þau voru ófá skiptin sem lítil telpa hljóp á móti afa sínum til að fagna honum er hann nálgaðist hlaðið, og aldrei fór hún svo að sofa fyrr en hún hafði gengið að rúmi afa og þau beðið guð að geyma hvort annað. Hann afi minn var góðmenni sem bjó yfir mikilli hjartahlýju. Hann hafði einstakt lag á því að hæna að sér börn og var oft nefndur afi að þeim óskyldum. En erfiðast var að kveðja afa og ömmu hverju sinni þegar haldið var heim, svo miklu ástfóstri sem ég hafði við þau tekið og frá því að ég varð læs og skrifandi var skipst á bréfum og eru þau ófá bréfin frá honum afa minum sem ég geymi. Afi minn var lánsamur maður, hann átti góð og mannvænleg börn og yndislega konu sem stóð við hlið hans sem styrkasta stoð uns yfir lauk. Af henni var hann líka stoltur og það gat hann örugglega verið svo góð sem hún er, ég bið guð að blessa hana og leiða um ókomin æfiár. Hjartans þakkir færi ég mínum ástkæra afa fyrir all það sem hann var mér og mínum, blessuð sé hans minning. Far þú í íriúi. íriAur Guðs þi)C blossi. haíAu þokk íyrir allt u|f allt; Kckkst þú með Guði. Guð þór nú íylKÍ- hans dýrúar hnoss þú hljóta skalt. (sálmur) IM sUÍnorhf s.: 85742 og 85055. Loksins er komin út kraftmikil íslensk þungarokkplata. Hljómsveitin Tívolí leikur þrjú frumsamin lög á plötunni „Þrumuvagninn“. Þaö syngur og hvín í græjunum þegar tónarnir frá „Þrumuvagninum" þjóta í gegnum leiöslurnar og út í hátalarana. Þetta er tónlist sem skrúfa á í botn. Hátt og silfurtært r: I VERÐ: FISHER hátalararfrá BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SlMI 27099 SJÓNVARPSBÚÐIN MS-137 35 RMS WÖTT VERÐ: 950,- ST-430 50 RMS WÖTT VERÐ: 1.750,- ST-440 75 RMS WÖTT VERÐ: 2.150,- ST-450 100 RMS WÖTT VERÐ: 2.700,- ST-460 130 RMS WÖTT VERÐ: - 3.100.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.