Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 2

Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 Sævar Guðnason og Brynjar Sigurðsson slá tunnurnar til, en Kristin Reynisdóttir kemur þeim i hús. (Ljósm. Ævar). Síldarsöltun undirbúin og loðna brædd á Eskif irði Eskifirði. 28. áirúst. UNNIÐ er hér af kappi þessa dagana á síldarplönunum fjórum við að undirbúa síldarvertíðina, sem reyndar er hafin, en Gissur hvíti frá Hornafirði landaði hér um siðustu heljfi. í fyrra var saltað hér á þremur stöðum, en nú vcrða verkunarstöðvarnar íjórar talsins. Tvö skip komu hingað í dag með fullfermi af loðnu, Helga Guð- mundsdóttir frá Patreksfirði og Gígja. Brætt er á fullu í verk- smiðjunni. Jón Kjartansson fór í dag til kolmunnaveiða, en sæmi- lega hefur veiðst af kolmunna undanfarið. Jón Kjartansson land- aði hér fyrr í vikunni þúsund tonnum af Ioðnu, en síðan var loðnunótin sett í land, en kol- munnatrollið tekið um borð. Gott veður hefur verið hér alla vikuna, sól og sumar. — Ævar. Helga Guðmundsdóttir BA 77 i væntanlegri heimahöfn sinni á Eskifirði. Biskupskjör: 20—30 atkvæði bárust ekki í ábyrgðarpósti í FJÓRÐU grein laga um bisk- upskjör segir að útfyllt kjörgögn í hiskupskjöri skuli senda kjör- stjórn i ábyrgðarpósti, en á milli 20 og 30 atkvæði i siðari umferð biskupskjörs voru ekki send i pósti heldur afhent i dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Morgun- blaðið innti ólaf Walter Stefáns- son formann kjörstjórnar eftir þvi á hvaða grundvelli þessi atkvæði væru talin gild. Ólafur sagði að þegar kjör- gögn eða atkva>ðabréf til kjör- stjórnar hafi farið að berast til ráðuneytisins þegar í fyrri um- ferð hafi sum borist i almennum pósti og önnur verið afhcnt per- sónulega. „Þótti ekki ástæða til þess hvorki í fyrri né seinni umferð- inni,“ sagði Ólafur, „að vísa þess- um atkvæðum frá og voru þau því sett með öðrum atkvæðum í kassa til varðveislu fyrir kjörstjórn. Kjörstjórn taldi ekki ástæðu til að gera greinarmun á atkvæðaum- slögum eftir því hvernig þau bárust, enda báru þau ekki nein merki galla og við það miðað að í umslagi væru tilskilin gögn.“ Morgunblaðið spurði Ólaf hvort kjörstjórn myndi leita eftir því hjá þeim fjórum aðilum sem áttu ógild atkvæði að mati kjörstjórn- ar, hvort þeir hefðu undir höndum gögn sem sönnuðu að þarna hafi verið um þeirra atkvæði að ræða. Ólafur kvaðst telja að menn yrðu að flytja sannanir sínar fyrir ráðherra ef þeir vildu byggja þetta upp á annan hátt en nú væri orðið. Hér fer á eftir 4. grein laga frá Alþingi um biskupskjör: „4. gr. Kjörstjórn sendir þeim, sem kosningarrétt eiga, nauðsyn- leg kjörgögn: auðan kjörseðil, óáritað umslag, eyðublað fyrir yfirlýsingu kjósanda um það, að hann hafi kosið, og umslag með utanáskrift kjörstjórnar. Þá skal fylgja leiðbeining um það, hvernig kosning fari fram. Greina skal glögglega, fyrir hvaða tíma kjör- seðill skuli hafa borist kjörstjórn. Kjósandi ritar á kjörseðil nafn eins biskupsefnis. Eigi skal hann undirrita kjörseðil eða auðkenna hann með öðrum hætti. Setur hann seðilinn síðan í óáritaða umslagið, sbr. 1. málsgr., og lokar því, útfyllir eyðublaðið og leggur gögnin í áritaða umslagið og sendir kjörstjórn það í ábyrgðar- pósti." Stjórnarmyndun varafor- mannsins olli vonbrigðum sagði Jón Magnússon við setningu 26. þings SUS í Hnífsdal _ _ i. i , ■ . i i i l ? i*i u i ? _ l; : i:i L«!Un Vinnn IsafirAi 28. áKÚst. Fri Ólafi Júhannssyni. blaðamanni MorKunblaAsins. 2fi. þing Sambands ungra sjálf- stæðismanna var sett i Hnifsdal i kvöld. Jón Magnússon, formaður SUS, setti þingið. Þingforseti var kosinn Sverrir Bernhöft og Ilelgi Örn Viggósson ritari. f setningar- ræðu sinni ræddi Jón atburði þá, sem átt hafa sér stað frá siðasta SUS-þingi, sem haldið var 1979. Jón Magnússon sagði sjálfstæðismenn hafa orðið fyrir vonbrigðum með úrslit siðustu alþingiskosninga og klofning þann, sem átt hefði sér stað i flokknum. Sagði hann stjórn- armyndun varaformanns Sjálfstæð- isflokksins hafa verið ajálfstæðis- mönnum mikil vonbrigði. Jafn- framt sagði Jón, að landsfundur yrði að fjalla um innanflokksmál Sjálfstæðisflokksins og taka til þcirra afstöðu. Formaður Sjáifstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson, sagði í ræðu sinni að núverandi ríkisstjórn hefði gengið lengra í skattheimtu heldur en vinstristjórn Ólafs Jóhannesson- ar og benti hann á að áhrif kommún- ista í þjóðlífinu hefðu aldrei verið jafnmikil og nú. Sagði Geir, að kommúnistar hefðu lykilaðstöðu í stjórnarráðinu í Reykjavíkurborg og í Alþýðusambandi íslands og þeim hefði verið vísað til sætis af sjálf- stæðismönnum. Geir sagði, að sókn kommúnista yrði ekki hindruð nema að sjálfstæðismenn stæðu sameinað- ir. Geir sagði, að nú væru erfiðleika- og vonbrigðatímar hjá Sjálfstæðis- flokknum, það gætu þó fylgt því kostir að kynnast erfiðleikum, því þeir væru til þess að vinna á þeim bug. í lok ræðu sinnar hét Geir á sjálfstæðismenn að ganga sameinað- ir í baráttunni, brjóta áhrif komm- únista í þjóðfélaginu á bak aftur og leiða hugsjónir Sjálfstæðisflokksins til öndvegis, þjóðinni til heilla. Þá ávarpaði þingið Engilbert Ingvarsson, formaður kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins á Vest- fjörðum, og bauð hann þingfulltrúa velkomna. Einnig talaði Matthías Bjarnason, alþingismaður, og rakti hann sögu ísafjarðar og gerði grein fyrir atvinnulífi staðarins. Á morgun, laugardag, munu nefndir starfa, flutt verður skýrsla stjórnar SUS, lagabreytingar og mál afgreidd og einnig verða almennar umræður. Áhrif gengisfell- ingarinnar: F-vísitalan hækkar um 2 til 3% Gengisfellingin, sem ríkis- stjórnin samþykkti að gerð yrði, mun hafa um 5% hækk- un í för með sér á innfluttum vörum. Samkvæmt upplýsing- um, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, mun hækkun verð- lags innfluttra vara valda um 2—3% hækkun íramfærslu- vísitölu, sem nýlega hefur verið reiknuð út og veitir um næstu mánaðamót 8,92% launahækkun. Þessi gengis- breyting er þó ekki talin þar með, þar sem grundvöllur útreikninga visitölunnar er verðkönnun Ilagstofunnar 1. ágúst. Þessi áhrif gengisfellingar- innar, sem hækka verð erlends gjaldeyris um 5%, munu strax koma fram í vísitölunni, þótt fyrst sé það í smáum stíl. Ahrifin munu síðan aukast og verða svo til öll komin fram að þremur mánuðum liðnum. Tal- ið er, að öll áhrif gengisfeli- ingarinnar verði komin inn í F-vísitölu að liðnum 5 mánuð- um frá ákvörðun Seðlabank- ans. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri SH: Óraunhæft að taka gengis- muninn í verðjöfnunarsióð nÞað getur ckki gengið til lengdar að Verðjöfnunarsjóður sé fjármagnaður með þvi að taka verðhækkanir af fiskselj- endum og ef sú leið verður farin nú að nota gengismuninn í sjóðinn. þýðir það það að nær engin hækkun verður á fiskin- um. Þannig vinnubrögðum hef- ur verið mótmælt og verður ábyggilega aftur, verði þessi leið farin nú,“ sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, er Morgunblaðið spurði hann álits á möguleikanum á því að gengismunurinn rynni í Verð- jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. „Ríkisstjórnin hefur tekið ábyrgð á því að tryggja sjóðn- um það fjármagn, sem skortir fyrir síðasta ár og það sem vantar fyrir vertíðina í vetur, sem eru um 25 milljónir. Steingrímur hefur sagt að menn geti sofið rólegir svo hann hefur greinilega fundið leið til þess að ná í þetta fjármagn, hvort sem það verð- ur með því að hirða gengis- muninn eða ekki. Þessi erfiða staða Verðjöfn- unarsjóðs hefur svo orðið til þess að frystihúsin hafa ekki fengið allt sem þau eiga greitt úr honum og það veldur þeim auðvitað miklum erfiðleikum, sérstaklega þar sem þau þurfa að greiða afurðalánin í dollur- um, en selja talsvert á Evrópu- markað. Lánin hafa hækkað í krónutölu, en það hefur ekkert hækkað verðið, sem húsin fá fyrir fiskinn í Englandi. Þetta hélt maður að væri verið að laga með gengisfellingunni og þau fengju þá eitthvað meira fyrir fiskinn, en ef gengismis- munurinn verður gerður upp- tækur, stöndum við í sömu sporum og áður og fáum reynd- ar minna fyrir fiskinn. Afkom- an leyfir það ekki, frystingin er rekin með tapi og þá er þessi hugmynd algjörlega óraun- hæf,“ sagði Eyjólfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.