Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
Borgarf jörður eystri:
Þokkalegur heyfengur
þrátt fyrir kalt sumar
BorgarfirAi eystra. 28. ágúst.
SENN liður á sumariA og haustið
tilkynnir kumu sína. harti á
daKatali ok meA styttri dags-
hirtu. Hér austan lands Keta
eftirmæli líðandi sumars tæpast
orðið Kóð. Raunverulexa kom
vorið alls ekki hingað til okkar
ok sumarið hyrjaði seint ok var
fremur kuldaleKt. Að visu hafa
komið hér heitir sólardaKar. en
allt of fáir. Alltaf loftkuldi ok
nepja ef ský hefur dreKÍð fyrir
sólu. Oft hefur austanáttin saKt
til sín með reKni ok sudda. en
austan- ok norðaustanátt eru
okkar erkióvinir hér austan-
lands.
Grasvöxtur var sæmilegur og
bændur eru að Ijúka heyskap og
hafa þeir heyjað sæmilega vel og
fengið allgóð hey. Hér hefur
fiskast vel þegar gefið hefur á sjó
svo að vantað hefur fólk í frysti-
húsið. Hins vegar hefur berja-
vöxtur verið með allra minnsta
móti. Hér eru þrjú hús í smíðum
og mun eiga að byggja fleiri í
náinni framtíð. Senn fer skóli að
byrja og mun kennaralið verða
hið sama og síðastliðinn vetur.
Skólastjóri Auðunn Bragi
Sveinsson og kennari Erlingur E.
Halldórsson. Hreindýraveiðar eru
nú að hefjast og úthlutað hefur
verið veiðileyfum í Borgarfjarðar-
hreppi og má nú fella 45 dýr.
Umsjónarmaður með því að sett-
um reglum verði framfylgt er Páll
Sveinsson, Hvannstóði. Fremur
slæmt útlit er með vöxt garð-
ávaxta, eina nóttina var frost hér
og féll gras þá talsvert í görðum.
Dilkar virðast í tæpu meðallagi,
Höfðaströnd:
en þeir geta nú bætt við sig ef
haust verður gott.
Mikiii ferðamannastraumur
hefur verið hér í sumar, bæði
erlendir og innlendir ferðamenn,
bæði á bílum og gangandi með
búslóðina á bakinu. Svefnpoka-
pláss hefur verið til reiðu í
félagsheimilinu Fjarðarborg og
öll hitunaraðstaða. Héðan úr
Borgarfirði liggja þægilegar
gönguleiðir um Víkur, Húsavík og
Loðmundarfjörð og til Héraðs um
Sandaskarð.
Hérna eru hrafnar heldur
óvinsælar skepnur og þá líklega
helzt vegna þess, að þeir eru
dæmdir til að veiða sér til matar
eins og við mennirnir sjálfir og
verða því gjarnan til að kála því,
sem bændur ætla að drepa sjálfir.
Hér uppi í Bakkagili, sem er
skammt ofan við þorpið áttu til
dæmis hrafnahjón sér hreiður,
sem þau hafa gert um árabil án
þess að vera áreitt eða ofsótt, en í
þetta skipti var gerður út skot-
glaður veiðimaður, sem myrti alla
fjölskylduna og hefur það vafa-
laust veitt honum mikla ánægju.
Það hvarflar því stundum að
manni að sumir séu þannig gerðir,
að þeir hafi ekki samúð með
nokkurri skepnu nema þeirri, sem
þeir sjálfir hafa persónulegan
hagnað af. Þegar ég frétti þetta,
datt mér í hug vísan hans Árnar
um refinn, sem vel á við um
hrafninn:
Hann er meðbiðill manna
til matarins það er nóg
og svo er hann ekki ætur
sem útyfir tekur þó.
Fréttaritari
Sumarið það erfið-
asta til heyskap-
ar sem menn muna
llofAastrnnd. 28. áKÚst.
LÍKLEGAST má þetta sumar
teljast eitt hið erfiðasta til hey-
skapar sem núlifandi menn
muna. og ef ekki hefði verið
vélakostur og tæki til heyafla.
væri ekki mikið af heyjum komið
í hlöður. En sumir bændur eru þó
að mestu búnir að heyja og mjog
margir u.þ.b. hálfnaðir með
heyskap. Einn bónda hitti ég
nýlega sem sagðist vera búinn að
fá 2 þús. hagKa i hlöðu. en á sama
tíma i fyrra 8 þús. hagga. En nú
eru mjöK marKÍr bændur sem
vélbinda hey ok miða heyskapinn
við bagga.
Það hefur semsagt rignt eitt-
hvað næstum hvern einasta dag.
Síðastliðinn sólarhring var sunn-
Mývatnssveit:
an blástur og þá náðist mikið upp,
en í nótt rigndi geypi mikið. Það er
mikil spretta þar sem grasrótin
skemmdist ekki vegna kals í vor,
en sýnilega verður þó víðast hvar
minni heyfengur en síðastliðíð ár.
Kartöfluspretta verður líklega í
meðallagi ef ekki koma frost, en
grös standa ennþá ófallin í flest-
um görðum. Berjaspretta er talin
lítil, enda eru gæsir í stórum
hópum í berjalöndum og í ný-
ræktum.
Laxveiði er talin lítil í héraðinu,
en silungsveiði misjöfn í vötnum,
sumstaðar þó dágóð. Togarar, sem
eru að veiðum, hafa aflað vel og
hjá smærri bátum hefur verið
sæmilegur afli í net inni á Skaga-
firði. Björn I Bæ.
Lítur vel út
með berjasprettu
Mývatnsnvrlt. 28. ágúst.
NÚ ER heyskap að mestu lokið í
Mývatnssveit. sumir voru jafnvel
búnir fyrir miðjan ágúst. Hey-
fengur er víðast mikill og verkun
gt’tð. Að vísu spratt seint vegna
vorkulda en úr þessu rættist er á
sumarið leið. þannig að grasvöxt-
ur varð ágætur. Ekki er þó hægt
að segja að tíðin hafi leikið við þá
sem staðið hafa í heyskap, enda
oft tafsamt vegna þurrkleysis ok
skúra. hins veKar komu nokkrir
dagar sem nýttust vel ásamt þeim
tækjahúnaði sem mcnn hafa yfir
að ráða með heyöflun.
Ekki er vitað hvernig kartöflu-
uppskeran verður hér — eitthvað
er þó farið að taka upp og lofar
það frekar góðu. Aðfaranótt 20.
ágúst gerði hér frost. Sá þá
töluvert á kartöflugrasi, þó það
félli að visu ekki. Síðustu daga
hefur verið hér afbragðsveður og
hitinn komist yfir 20 stig.
Ekki virðist líta vel út með
berjasprettu í byrjun ágúst. Nú
hefur hins vegar brugðið svo við
að ber hafa náð fullum þroska í
hitanum undanfarna daga. Lítur
því vel út með berjasprettu. Ýmsir
hafa lagt leið sína í berjalöndin
með góðum árangri.
Síðustu daga hefur verið ein-
hver órói á Kröflusvæðinu og
gliðnun á sprungum. Ekki er
fullljóst hvort þar dregur til
stórtíðinda á næstunni. Kristján.
»._____
Við setningu Uppeldisþings Kennarasamtaka íslands i gær að Hótei Esju.
Uppeldisþing Kennarasamtaka Islands:
„Skóli fyrir öll börn“
KENNARASAMTÖK Íslands
standa fyrir uppeldismálaþingi á
Hótel Esju og var þingið sett i
gær. föstudaginn 28. ágúst og
lýkur þvi i kvöld.
Yfirskrift þingsins er „Skóli fyrir
öll börn“. í samtali við Kristínu
Tryggvadóttur, formann skólamála-
ráðs KÍ, kom fram, að í yfirskrift
þingsins fælist sú ósk kennara, að
fötluð börn hefðu aðgang að almenn-
um skólum, þá í þvi formi að þau
tækju þátt i almennum kennslu-
stundum en nytu siðan sérkennslu á
þeim sviðum, sem þau þyrftu með.
Sagði Kristín ennfremur, að þing-
ið myndi fjalla um það hvernig
grunnskólalögunum hefði verið
framfylgt í skólum. Þá yrði rætt um
þá ósk kennara að aftur verði tekin
upp röðun nemenda í bekki eftir
getu, en það fyrirkomulag var ríkj-
andi áður en grunnskólalögin voru
sett. Eftir gildistöku laganna hefur
sá háttur verið hafður á, að nemend-
um er blandað í bekki óháð náms-
getu og sagði Kristín, að miðað við
þann fjölda, sem væri í hverjum
bekk, gætu kennarar ekki sinnt
hverjum nemanda fyrir sig nógu vel.
Því yrði einnig rætt um það, hvort
ekki sé æskilegt að hafa fleiri
kennarastundir en nemendastundir.
Aðal fyrirlesari uppeldisþingsins
verður prófessor Andri Isaksson,
sem starfað hefur hjá UNESCO í
París að undanförnu en hann mun
fjalla um skipulag námshópa.
I gær flutti Sigurður Helgason
deildarstjóri í Menntamálaráðu-
neytinu erindi þar sem hann fjallaði
um framkvæmd grunnskólalaganna.
Rósa Þorbjarnardóttir endurmennt-
unarstjóri hjá Kennaraháskóla ís-
lands fjallaði um endurmenntun
kennara með tilliti til samskipunar í
bekki. Ingvar Sigurgeirsson náms-
stjóri kynnti bók sína „Skólastofan
— umhverfi til mannlegs þroska“.
Á laugardeginum, það er að segja í
dag, verða flutt stutt erindi, en þau
flytja ýmsir aðilar, sem tengjast
skólanum og starfinu þar, þar á
meðal kennarar, skólastjórar, sér-
kennarar, sálfræðingar og foreldrar.
Eftir erindin verða síðan hring-
borðsumræður og verða ákveðnir
hópar, sem vinna spurningar til
hringborðsins. I hringborðsumræð-
unum mun einnig taka þátt Wolf-
gang Edelstein, sem er sérfræðilegur
ráðunautur Menntamálaráðuneytis-
ins í skólamálum, en hann veitir
forstöðu deild í Max Planch vísinda-
stofnuninni í Berlín.
Uppeldisþingið var auglýst fyrir
alla kennara og sækja það 200—300
kennarar. Þá var deildarstjórum í
Menntamálaráðuneytinu, þar með
töldum fræðslustjórum og fulltrúa
frá Kennaraháskóla Islands, boðið á
þingið.
„Bakkarínnu kom
til Reykjavikur í gær:
Hef ur líklega
sett heimsmet
nALLGRÍMUR Marinósson,
„Bakkarinn“, kom til Reykjavikur
klukkan fimm í gær og talsverður
rnannfjoldi var til að taka á móti
honum við Shell-bensinstöðina á
Laugavegi. Hallgrímur hafði þá
ekið afturáhak 15.30 kilómetra leið
umhverfis landið, sem liklega er
heimsmct. og sá ekki á honum.
Ferðin tók ellefu da«a. Um helgina
munu sölubörn á vegum iþróttafé-
laga selja merki til minningar um
þetta afrek og rennur allur ágóði
til Þroskahjálpar. UnKmennaféíóg-
in úti á landi seldu merki meðan á
ferðinni st<ið og munu gera það
áfram. Jöfur hf. lánaði hílinn til
ferðarinnar. Skoda 120 L. ok Kerði
nauðsynlegar breytingar á honum
<>K Sam-útgáfan skipulaKði ferðina
endurgjaldslaust. Bensin. olia <>k
fleira borgaði Skcljungur.
„Nei, ég er ekki með hálsríg, en
þetta var erfiðara en ég hafði gert
mér grein fyrir í upphafi," sagði
Hallgrímur. Ég lenti í mikilli rign-
ingu á leiðinni og varð þá blautur
niður að mitti. Á einum stað lenti ég
út af veginum, en komst þó upp aftur
að lokum og hélt áfram. En þetta
gekk án meiriháttar áfalla. Ég veit
ekki hvort ég legg upp í svona ferð
aftur, en maður er ævintýramaður í
eðli sínu, svo það er aldrei að vita.“
— Hver voru viðbrögð fólks þegar
það sá þig?
„Ég giska á að 7—8 þúsund manns
hafi lagst á gluggann hjá mér og
kíkt inn. Fólk var annars lítið að
amast við þessu og mér var allstaðar
vel tekið. Éinstaka bílstjórar létu þó
óþolinmæði í ljós, sérstaklega menn
sem voru að flýta sér í bæinn.
Meðalhraðinn hjá mér hefur verið
um 20 kílómetrar á klukkustund.
Alltaf í bakkgír."
— Hefur þú ekki sett heimsmet
með þessu?
„Nú er að athuga það. Ég veit til
þess, að Ástralíubúi hafi ekið 300
mílur (480 km) afturábak. Ég veit
ekki hvað Guinness segir."
— Hver var erfiðasti kaflinn?
„Það var tvímælalaust erfiðast að
aka milli Kirkjubæjarklausturs og
Hafnar í Hornafirði, og það var líka
lengsta leiðin. Annars voru vegirnir
mjög lélegir í Álfta-, Hamars- og
Berufirði og því ekki auðvelt að aka
þar. Þarna eru ekkert nema hólar og
hæðir og s-beygjur.“
Bíllinn verður nú til sýnis í
sýningarsal Jöfurs hf. í nokkra daga
en verður síðan seldur. Hallgrími
var farið að þykja vænt um Skodann
sinn og sagðist jafnvel hafa áhuga á
að kaupa hann.
Meginmarkmið Þroskahjálpar eru
þau að koma upp sumardvalarheim-
ili með fullkominni þjónustu fyrir
þroskahefta og sagðist Eggert Jó-
hannesson, formaður Þroskahjálpar,
vonast til þess að það söfnuðust um
tvö hundruð þúsund krónur með
merkjasölunni. Merkið kostar 20
krónur og fjórðungurinn rennur til
söluaðila, íþrótta- og ungmennafé-
laga.
. I!
Ilallgrímur Marinósson tekur hér á móti bikar sem Sam-útgáfan afhenti
honum við komuna til Reykjavíkur i gær. Einnig þótti við hæfi að gefa
honum baksýnisspegil af þessu tilefni, sem vinur hans lét útbúa handa
honum.
---------. - -. « .mugoi nlM i