Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 21

Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 21 Daily News Tonight hættir New York, 28. áKÚst. AP. SÍÐASTA eintak The Daily News Tonight sá dansins ljós í dag, aðeins ári eítir að hlaðinu var hleypt af stokkunum, en það var stofnað til höfuðs New York Post, biaði Rupert Murdochs. Morgunútgáfa Daily News selst daglega í 1,3 milljónum eintaka, en síðdegisútgáfan seldist aldrei í 200.000 eintökum, eins og takmark útgefendanna var. Morgunútgáfan heldur áfram að koma út. New York Post hóf útgáfu morgunblaðs þegar Daily News hratt síðdegisútgáfu sinni af stokkunum, og kemur Post út í tæplega 700 þúsund eintökum daglega. Egyptar: Áf ram góð sambúð Tel Aviv. 28. ágúst. AP. KAMAL Hassan AIi, aðstoðarfor- sætisráðherra og utanrikisráð- herra Egyptalands segir i blaða- viðtali i dag. að samskipti Egypta og ísraela myndu trúlega styrkj- ast og verða vinsamlegri eftir 1982 eða eftir að ísraelar hafa afhent Egyptum Sinai-skagann að fullu. Fjölmargir ísraelar óttast, að vinskapur ísraela og Egypta minnki eftir að Sinai-skaganum hefur verið skilað að fullu, en það verður í apríl næstkomandi. Hassan Ali sagði, að ísraelskir ferðamenn gætu óáreittir heim- sótt baðstrendur Rauða hafsins og ferðast um Sinai-skagann. Embættismenn í Israel hafa undan því kvartað hversu hægt hefur gengið að koma á eðlilegu sambandi ríkjanna á sviði ferða- mála, menningarmála og við- skipta eftir Camp David sam- komulagið 1979. Israelsk sendi- nefnd er kom frá Alexandríu í gær, sagði, að verið væri að vinna að auknum samskiptum á þessum sviðum. Meðal annars yrði sjálf- virku símasambandi milli land- anna komið á. Shimon Peres Yitzak Rabin Ra'anan Na'im ísrael Erlend fréttaskýring V erkamannaflokkur- inn logar af illdeilum VERKAMANNAFLOKKURINN í ísrael er enn í sárum eftir það áfall að ná ekki nægilegu fylgi í kosningunum þar i sumar til að mynda ríkisstjórn, en ekki nóg með það: flokkurinn heinlinis logar af illdeilum, ágrciningi um forystu, kynþátta- mál eru komin upp á yfirborðið og munu verða örðug viðfangs og svo mætti lengi teija. Einna alvarlegust eru þó sem stendur forystumál flokksins. Shimon Peres, formaður flokksins hefur verið hvattur til að segja af sér og leyfa öðrum að komast að sem gæti rcynt að lappa upp á fylgi flokksins og imynd hans út á við sem inn á við. Og ekki nóg með að mehn viíji að Peres fari, krafizt hefur verið afsagnar Ilaim Bar Levs ritara flokksins, sem er dyggur stuðningsmaður formannsins. I»á hefur verið sett fram mjög afdráttaríaus krafa af þingmönnum flokksins sem eru af norður-afrísku bergi brotnir, að þeir fái meira vald í ýmsum nefndum flokksins og mikilvægum þingnefndum. I útvarpsviðtali í Tel Aviv fyrir fáeinum dögum var Peres spurður hvaða augum hann liti þessar áskoranir um að hann segði af sér. Hann svaraði því til að kæmi fram rökstudd og mál- efnaleg tillaga þess efnis myndi hann hvergi smeykur að láta kjósa upp á nýtt um formann og væri hann ekki í vafa um, að hann myndi vinna með miklum meirihluta. Hann hafði nokkru áður sagt stjórnmálanefnd Verkamannaflokksins, að hon- um dytti ekki í hug að sitja í formannssætinu bara af þver- móðsku, hver og einn gæti tekið við ef hann héldi sig til þess hæfan. En síðan hefur hann tekið annan pól í hæðina og hann hefur bent á að hann hafi verið kjörinn formaður flokksins á löglegan hátt á sl. vetri og hann líti svo á að sér beri að axla þá ábyrgð. Peres hefur tekið gagnrýni samflokksmanna sinna afárllla og hann réðst harkalega á dög- unum á Haim Ramon og Yisef Sarid, sem báðir eru ungir ménn, sá síðarnefndi þingmaður, fyrir að hafa sett fram þá kröfu að bæði Peres og Rabin segi af sér. Ramon sagði að Peres og Rabin myndu gera Verkamannaflokkn- um mestan greiða með því að fara báðir. Það yrði ekki unnt að lægja öldurnar í flokknum og safna liði upp á nýtt fyrr en þeir hefðu báðir sagt af sér, enda hefðu þeir sýnt að þeir létu hagsmuni flokksins lönd og leið og hugsuðu aðeins um persónu- legan metnað hvor fyrir sig. Væri tímabært að Verkamanna- flokkurinn reyndi að draga lær- dóm af hrakförum sínum með því að fara að dæmi annarra verkamannaflokka í heiminum — að skipta um forystu og það hið fyrsta. En Peres hefur sem sagt ekki hugsað sér að fara og talsmaður Rabins sagði nýlega að það væri alveg fráleitt af formanninum að telja sig sjálfskipaðan til að sitja áfram eftir að Peres hefði mistekizt að vinna sigur í þing- kosningunum. Þetta þykir ótvi- rætt merki þess, að Rabin sé öldungis ekki á því að setjast í helgan stein og geti á hverri stundu tekið upp baráttuna um formannssætið við Peres. Þær sögulegu sættir sem urðu með þeim nokkrum dögum fyrir kosningarnar og mjög var hamp- að hafa ekki rist sérlega djúpt. En það er fleira en deilur um forystuna sem hrjáir Verka- mannaflokkinn og þá ber fyrst og fremst að nefna þann mikla og sára „ky nþáttaágrei n i ng“ sem gerði vart við sig í kosningabar- áttunni og hefur síðan blossað upp fyrir alvöru. Þarna er á ferðinni ágreiningur milli Evr- ópu-gyðinga annars vegar (Áshkenazi) og Austurlanda- gyðinga (Sephardi) hins vegar. Innan flokksins þykir vera gríðarieg stéttaskipting og Evrópu-gyðingarnir séu þar alls- ráðandi og Austurlanda-gyð- ingarnir séu niðurlægðir og reynt að halda þeim í skefjum á allan hátt. Á fundi þingmanna Verkamannaflokksins nú á dög- unum tók einn Austurlanda- gyðingurinn Ra’anan Na’im, ættaður frá Norður-Afríku, meira upp í sig hvað snertir „stéttaskiptingu" gyðinga en áð- ur hefur heyrzt. Hann sagði augljóst að Austurlanda-gyð- ingar yrðu að mynda sína eigin hreyfingu, því að innan Verka- mannaflokksins yrði þeim ekki ágengt. „Verkamannaflokkurinn er ekki aðeins daufur og and- trúarlega sinnaður, heldur for- réttindaflokkur Evrópu-gyðinga. Til þess að komast áfram í Verkamannaflokknum verður maður að velja sér sinn fáeð- ingarstað. Þessi flokkur er upp- fullur af filmstjörnum, sam- yrkjubúagreifum og alls konar hefðarköttum. Eg get ekki unað þessu ástandi lengur og lýsi ábyrgð á hendur þeim sem stefn- una marka." Fleiri munu hafa tekið til máls og rætt um þessa miklu mismunun sem menn búi við eftir því hvaðan þeir séu komnir til ísraels. Abba Eban, fyrrv. utanríkisráðherra, sagði eftir fundinn að hann hefði aldrei setið jafn erfiðan fund og hat- ramman. Eftir þetta mun forystusveit Verkamannaflokksins þó eitt- hvað hafa farið að íhuga málið, enda ljóst að fylgi Austurlanda- gyðinga fór að megninu til yfir á Likud í kosningunum nú. Verka- mannaflokkurinn þarf fylgi þessa fólks og kannski verður reynt að gera eitthvað í því máli. En meðan forystan er jafn veik og raun ber vitni um verður varla um afgerandi aðgerðir að ræða. (Heimildir: Jerusalem Post o.fl.) Jóhanna Kristjónsdóttir. Morðingi Adams- son dæmdur Nyeri, Kenya 28. ágúat. AP. FYRRVERANDi starfsmaður hins fræga ljónavinar og náttúru- verndarfrömuðar Joy Adamson var í dag fundinn sekur um morðið á vmnuveitanda sinum. Hi dæmdur i fangelsi og var það lagt hversu löng vistin skyldi vera. Ekki er nákvæmlega vitað um aldur hins seka, en hann er alténd það ungur, að lögum samkvæmt má ekki dæma hann til lífláts. Tekið er fram að Ekai hafi engin geðbrigði sýnt þegar dómsorð var lesið yfir honum. Joy Adamson var stungin til bana þann 3. janúar 1980, en í fyrstu var haldið að ljón hefði orðið henni að bana og sagði dómarinn að þær grunsemdir hefðu tafið rannsókn málsins. Síðan var Ekai handtekinn og játaði hann á sig morðið að sögn AP. Dómarinn sagði að stað- hæfingar sakbornings um að hann hefði verið pyntaður til að l-. . ....... _____________ seki, Paul Nakwale Ekai, var í vald forseta Kenya, að ákveða játa ættu ekki við nein rök að styðjast. í játningu sinni sagði Ekai á sínum tíma, að hann hefði drepið Joy Adamson vegna þess að hún hefði ekki borgað honum hálfs mánaðar laun fyrir vinnu, sem hann hefði innt af hendi fyrir hana. Joy Adamson var austurrísk að uppruna. Hún kom til Kenya árið 1937 og bjó þar síðan. Hún gat sér mikið orð fyrir rann- sóknir sínar á plöntum og síðan sneri hún sér að því að kanna hegðun ljóna og voru gerðar kvikmyndir um það. íranir vilja flytjast til Bandaríkjanna Karachi. 28. áxúst. AP. ÍKANAR hafa í auknum mæli sótt um leyfi til að fá að flytjast tii Bandaríkjanna. að sögn handarískra diplómata í Karachi. Hefur mikil aukning orðið á umsóknum í handar- íska sendiráðinu i Islamahad og í ræðismannsskrif- stofunum í Karachi og La- hore. Að sögn sömu heimilda hef- ur írönunum verið leyft að flytjast til Bandaríkjanna af mannúðarástæðum. Væri ekki litið á þá sem flóttamenn, þótt margir þeirra hefðu flúið heimaland sitt af pólitískum ástæðum. Margir þeirra, er sótt hafa um og fengið leyfi til að flytjast til Bandaríkjanna, til- heyra sértrúarhópum sem sætt hafa ofsóknum af hálfu núver- andi valdhafa, svo sem gyð- ingar eða bahaijar. inu i u> I I J 1.UH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.