Morgunblaðið - 29.08.1981, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 29.08.1981, Qupperneq 44
Síminn á afgreiðslunni er 83033 LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 Herþotur skutu að Flugleiðavél Neyddu flugstjórann til að lenda á herflugvelli í Líbýu I»KJÁR herþotur frá Lfbýu skutu nokkrum aðvörunarskotum að Fokker-flujívél Fluxleiöa o« neyddu hana til að lenda á herflujfvelli í Libýu fyrir nokkr- um vikum, en vélin var þá i farþegaflugi innan Líbýu á vegum Libyan Arab Airways (LLA) und- ir stjórn Karls Karlssonar ÍIuk- stjóra. Aðdragandi þessarar aðgerðar Líbýuhers var sá að Fokkerinn var kominn út af leyfðri flugleið innan Líbýu þegar herinn kom til skjal- anna. Mun herinn hafa haft sam- band við flugstjórn sem tilkynnti að á þessari flugleið ætti aðeins að vera flugvél frá LLA, en hins vegar er Fokkerinn merktur Icelandair og könnuðu menn hersins málið ekki nánar heldcr skutu að íslenzka Fokkernum og neyddu hann til lendingar. Þegar vélin var lent á herflugvell- inum var flugstjórinn yfirheyrður en að lokinni útskýringu hans var honum og farþegum boðið í mat áður en aftur var haldið í loftið. Síðan þetta átti sér stað hefur Karl Karlsson komið heim, en er nú við störf í Líbýu. Hugsanleg íslandsför Fischers úr sögunni „ÞAÐ ER óhætt að bóka, að þeirri kröfu hans. Þá krefst Kor- ekkert verður af því, að Bobby chnoi þess, að tefla á bak við Fischer. fyrrum heimsmeistari I skák, tefli hér á landi. Ef sá möguleiki var fyrir hendi, þá hvarf hann eins og dögg fyrir sólu er fjölmiðlar birtu fréttir af hugsanlegri íslandsferð hans,“ sagði Friðrik ólafsson, forseti FIDE, alþjóðaskáksambandsins, þegar Mbi. bar undir hann frétt- ir um hugsanlega Íslandsreisu heimsmeistarans fyrrverandi. AP-fréttastofan skýrir frá því, að deilur séu í Meranó á Ítalíu milli Sovétmanna og Viktor Kor- chnois. Að sögn fréttastofunnar, krefst Korchnoi að tefla undir fána Sviss, en Sovétmenn hafna skothelt gler og að dávöldum verði haldið frá einvígissalnum. Fréttastofan segir, að þessi mál muni koma til þinna kasta. Hefur þú haft afskipti af þessum deil- um? „Ég get ekkert sagt um þessar deilur. Fyrst þarf ég að kynna mér, hvort rétt sé með farið og síðan mun ég taka afstöðu til deilna þessara í framhaldi af því. Það er nú oft þannig, að fréttir eru stórlega ýktar og því vara- samt að vera með yfirlýsingar. Ég fer til Meranó vegna einvígisins þann 20. september næstkom- andi,“ sagði Friðrik Ólafsson. Minkur á Miklubraut MINKUR er sjaldséður í Reykjavík, en einn varð þó á vegi blaöamanns Morgunblaðsins er hann var á heimleið eftir vinnu í úrhellisrign- ingu á fimmtudagskvöld. Sáu blaðamaður og samferðar- maður hans einhvern ferfætling skjótast í myrkrinu yfir syðri akrein Miklubrautar, rétt austan gatnaljós- anna á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Skaust dýrið upp á graseyna á milli akreinanna og kom þá í ljós að þar var á ferðinni minkur. Virtist hann hálf ringlaður þar sem bifreið- ar þutu framhjá í báðar áttir, skaust fram og til baka á eynni í tæpa hálfa mínútu, en hraðaði sér síðan yfir götuna þegar færi gafst. Það síðasta sem sást til hans var að hann var á spretti í átt að fjölbýlishúsunum við Alftamýri. Framkvæmd- ir við Hraun- eyjafoss á lokastigi Framkvæmdir við Hrauneyja- fossvirkjun eru nú komnar á lokastig og ef allt gengur að óskum verður virkjunin kom- in í gang eftir tvo mánuði. Um næstu helgi mun forseti ís- lands leggja hornstein að stöðvarhúsinu. Stálsmiðjan hf. hefur nú lokið smíði á rörum í þrýstipíp- ur virkjunarinnar og hefur verið unnið við þetta verk í um tvö ár. Alls smíðaði fyrirtækið 90 rör og vega þau samtals um 1800 tonn eða sem nemur 20 tonnum hvert stykki. I dag verður síðasta rörið flutt að Hrauneyjafossvirkjun þar sem Stálsmiðjan sér einnig um að sjóða rörin saman. Það er GG-flutningafyrirtækið, sem annast hefur flutningana aust- ur. (Ljósm. RAX) Bankamenn fara fram á 14,5% hækkun launa Gerðardómur hefur hækkað laun í efstu flokkum „SAMNINGAR RENNA út nú á þriðjudaginn og eru þá lausir,“ sagði Vilhelm G. Kristinsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra bankamanna, í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvað liði samningamálum bankamanna. „Við höfum alllengi reynt að fá viðræður um okkar kjaramál, en það hefur ekki borið mikinn árangur. Aðeins hafa verið haldnir tveir fundir, og þar gerðist í rauninni lítið annað en það að við fórum yfir og útskýrðum kröfur okkar, en fátt hefir orðið um svör enn sem komið er að minnsta kosti.“ Vilhelm sagði að í kröfum banka- manna væri farið fram á að náð yrði upp meðaltalskaupmætti ár- anna 1978 og 1979, en það reiknað- ist bankamönnum til að næmi um 14,5% kauphækkun. Auk þess væri svo að ræða ýmis atriði önnur, félagsleg og fagleg, sem bankamenn vildu ná fram ýmsum breytingum á. „Ef ekkert gerist á næstunni munum við biðja sáttasemjara að reyna að koma mönnum til við- ræðna," sagði Vilhelm, „og við munum síðan meta aðstæður mjög fljótlega eftir að viðræður eru hafnar, geri ég ráð fyrir. í því er í sjálfu sér ekkert óhugsandi, verk- föll eða annað. Síðast vorum við með lausa samninga í eitt ár og þrjá mánuði, og ég veit að fólk kærir sig ekki um að sú saga endurtaki sig. Fólk vill fá samn- inga, og það vill að nýr samningur gildi frá því að síðasti samningur Skýlaus réttur fólks að ráðstafa eigin húsnæði — segir Davíð Oddsson um tillögur Sigurjóns Péturssonar „ÞETTA sýnir glögglega í hvert öngþveiti málefni Reykjavíkur- borgar eru nú komin, að aöal- talsmenn borgarstjórnarmeiri- hlutans skuli láta sér detta i hug að bera annað eins á borð fyrir fólk,“ sagði Davið Oddsson oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna i samtali við Morgunblaðið í gær. En Davíð var spurður álits á þeim ummad- um Sigurjóns Péturssonar, for- seta borgarstjórnar Reykjavíkur og leiðtoga Álþýðubandalagsins i borgarstjórn, að hið opinhera eigi að hafa forgöngu um að koma því húsnæði i notkun, sem talið er af hálfu yfirvalda að sé of stórt fyrir eigendur þess eða þá er þar búa. „Þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur að koma fram með svona tillögur," sagði Davíð ennfremur, „og greinilegt dæmi um þá örvæntingu, sem nú er að grípa borgarstjórnarmeirihlut- ann, er forystumenn hans sjá í hvert óefni þeir hafa komið mik- ilvægustu málefnum borgarinnar, eins og húsnæðismálunum og raunar öðrum mikilvægum mála- flokkum. Þessi hugmynd er fár- ánleg og kemur að sjálfsögðu ekki til greina. Það hlýtur að vera skýlaus réttur fólks að fá að búa í og ráðstafa að eigin vild því húsnæði er það hefur komið sér upp með ærnum tilkostnaði og mikilli vinnu. Dugnaður og for- sjálni þessa fólks á ekki að vera refsiverð, og þetta fólk á ekki að bera ábyrgð á afglöpum vinstri manna í borgarstjórninni. Þessi stefna er Sigurjón viðrar þarna er forkastanleg og fordæmanleg." Davíð sagði rétt að minna á í þessu sambandi nú, að vinstri menn hafi áður komið fram með svipaðar hugmyndir. „Það var árið 1958,“ sagði Davíð, „er hug- myndir í þessa átt komu fram í Gulu bókinni, sem svo var kölluð. Það varð meðal annars til þess að sjálfstæðismenn fengu 10 af 15 borgarfulltrúum kjörna. Ég er ekki að segja.að það sama gerist nú, en ekki þarf að taka fram að Davíð Oddsson sjálfstæðismenn munu berjast gegn þessum hugmyndum af öll- um mætti,“ sagði Davíð að lokum. rann út. Ég býst við að það álit muni marka stefnu stjórnarinnar í þessu máli.“ Samband íslenskra bankamanna er samningsaðili fyrir alla starfs- menn banka og sparisjóði á land- inu, um 2300 manns. Þar eru allir starfsmenn stofnananna, aðrir en bankastjórar ög aðstoðarbanka- stjórar. Vilhelm var einnig inntur eftir nýgerðum gerðardómi, um kjara- mál bankamanna. „Þetta á eigin- lega upptök sín í lögum um kjara- samninga starfsmanna bankanna," sagði Vilhelm. „Þar er kveðið svo á, að það megi endurskoða launalið samninganna einu sinni á samningstímanum, að gefnu sér- stöku tilefni. í febrúar, þegar ljóst varð að láglaunastefna ríkisstjórn- arinnar hafði endanlega gefið upp andann, fórum við fram á endur- skoðun launaiiðarins að gefnu þessu ákveðna tilefni. Við höfum áður farið mjög hægt og samið í ljósi þeirrar pressu, sem var á alla samningsgerð vegna láglaunastefn- unnar; meiri hækkun átti að koma á lægri laun og minni á hærri. — Viðræðna var krafist við bankana um þetta mál, og þegar því var hafnað, var farið með málið til gerðardóms. Það er farið bil beggja, og við erum ánægðir með þá málamiðlun eftir atvikum, tekið var tillit til varakröfu okkar í málinu. En nú er aðalmálið eftir, það að ná fram samningum." I gerðardómi voru fjórir efstu flokkarnir hækk- aðir, niundi til tólfti flokkur. Hækkuðu laun í þeim flokkum um tvö til tvö og hálft prósent, og gildir hækkunin aftur fyrir sig til ára- móta. Frá og með 1. september kostar mánaðaráskrift Morgunblaðsins kr. 85 og i lausasölu kr. 5. Grunnverð auglýsinga er kr. 51 pr. dálksentimetra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.