Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 12

Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 Hvað hefur skeð í ís- lenskum laxveiðiám? eftir Arna Isaksson Nú hagar þannig til með veiði Færeyinga, að mestöllum laxi er landað á tiltölulega fáum stöðum. Ætti því að vera auðvelt og ekki fram úr hófi dýrt að semja við Færey- inga um það, að ís- lenskir eftirlitsmenn fengju að skoða veidd- an lax ... Tilefni þessa greinarkorns eru skrif Jakobs V. Hafstein í Vísi þann 10. ágúst og Björns Jóhann- essonar í Morgunblaðinu þann 13. ágúst, vegna ummæla sem höfð voru eftir undirrituðum í Vísi þann 7. ágúst sl. Greinar beggja fyrrnefndra manna byggjast að hluta til á hártogunum vegna orðalags, sem blaðamaður leggur ur.d:rrituðum ranglega í munn. Svo dæmi sé tekið hefur blaðamaður eftir að seiði hafi króknað, en þau orð lét undirritaður sér aldrei um munn fara. Einnig eru veiðitölur frá Vestur-Grænlandi fluttar yfir á veiðar Færeyinga. Með leiðrétt- ingu á þessu mishermi er veru- legum hluta greina þeirra félaga svarað. Að öðru leyti hefur blaðamaður rétt eftir þá skoðun undirritaðs, að meginorsök stórlaxas.iortsins á þessu sumri sé óeðlileg afföll í seiðum vorið 1979. Stangast sú skoðun á engan hátt við þá staðreynd að vissulega hafa bæði Færeyingar og aðrar þjóðir veitt íslenzkan lax í mörg ár, hugsan- lega jafnvel í enn meira mæli en gert er í dag (Tafla 1). Að sjálfsögðu er undirritaður ákveð- inn andstæðingur laxveiða í sjó, hver sem þær stundar, enda haft Árni ísaksson það verkefni með höndum um árabil að byggja upp hafbeitar- búskap sem atvinnugrein. í áðurnefndu viðtali í Vísi var ég að gefa fræðilegt álit á því, hvað ylli hinum lélegu stórlaxa- göngur í mörgum ám hér á landi á þessu sumri, en þær mátti raunar sjá fyrir á síðasta ári, er smálax- inn vantaði. Seiðadauðinn 1979 I grein Jakobs Hafstein kemur fram, að hann telur það hreina fásinnu, að seiði hafi drepist í Laxá í Þingeyjarsýslu vorið 1979.1 því sambandi má benda honum á ummæli Vigfúsar Jónssonar á Laxamýri í blaðinu Islendingi nýlega, en Vigfús hefur búið á bökkum Laxár alla sína tíð. Hann kemst svo að orði um skort á stórum laxi í Laxá í Þing. á þessu sumri. „Þetta er bara hlutur sem ég átti fullkomlega von á. Við þótt- umst sjá fyrir náttúrusveiflu niður á við. Hún hefur komið fram, ekki bara hér heldur víðast hvar um iandið. I leysingunum 1979 urðu svo mikil flóð og vatnavextir, að maður hefur aldrei séð annað eins. Þá skoluðust náttúrulegu seiðin úr farvegi ár- innar og þegar flóðin sjötnuðu sátu þau eftir í pollum hingað og þangað og drápust, þannig að við misstum að meira eða minna leyti úr tveim árgöngum." Vigfús sagði ennfremur í sam- tali við undirritaðan nýlega, að hann álíti að gönguseiði hafi lítt eða ekki gengið til sjávar vorið 1979 vegna kulda. Áhrif þessa á laxagöngur 1980 og 1981 eru aug- ljós og samsvara í raun því, að árgangur sjógönguseiða frá 1979 hafi að miklu leyti tapast á vissum svæðum. Björn Jóhannesson ræðir í grein sinni um sleppitilraunir í Lóni í Kelduhverfi og kennir veiðum Færeyinga um litlar heimtur í þeim tilraunum. Má í því sam- bandi benda Birni á þokkalegar smálaxagöngur i Laxá í Aðaldal á þessu sumri hinum megin við Tjörnesið og jafnframt fullyrða, að Laxeldisstöð ríkisins í Kolla- firði hefur aldrei skotið sér á bak við úthafsveiðar, þótt í móti hafi blásið hvað varðar heimtur. Þó hefði slíkt verið auðvelt meðan ríflega 2.000 tonn af laxi voru Orsakir og afleiðingar veidd við Vestur-Grænland. Ekki þarf að efa að hafbeitartilraunir í Lóni munu skila góðum árangri þegar fram í sækir og leyst hafa verið tæknileg atriði í sambandi við seiðagæði og sleppingar. Ég vil sterklega taka undir það með Birni Jóhannessyni, að veiðar Færeyinga á laxi í úthafinu séu óhæfa, sem stöðva þurfi, en jafn- framt benda á það, að órökstuddar vangaveltur duga skammt, þegar gengið er að samningaborði. ís- lendingar verða að sanna eignar- rétt sinn á viðkomandi laxi og slíkt má auðveldlega gera eftir leiðum, sem síðar verður vikið að. ekki eins návæmar og þær sem byggjast á veiðiskýrslum, en gefa engu að síður góða hugmynd um ríkjandi ástand. Árin 1978 og 1979 eru höfð með til að sýna hvernig hlutfall milli smálax og stórlax er í hverri á þegar ástandið er eðlilegt. Slæmur íyrirboði Sumarið 1980 kom fljótlega í ljós, að ástandið var mjög óeðli- legt. Göngur smálaxa á Vestur- landi voru ekki svipur hjá sjón og í sumum ám þar var tveggja ára lax orðinn í meirihluta (Laxá í Kjós, Norðurá), sem á Norður- landi væri. Stangveiðimenn undu þessu margir mjög vel og virtust ekki átta sig á því, að hin mikla meðalþyngd veiddra laxa boðaði ekki gott fyrir framtíðina. Ástandið á Norður- og Norðaust- urlandi var þó mun verra eins og fram kemur á myndinni. Þar var nær algert hrun á smálaxi, miðað við fyrri ár. Hin stórfellda rýrnun á smá- laxagöngum um land allt sumarið 1980 ætti ekki að koma neinum á óvart sem man eftir hinu kalda tíðarfari vorið 1979, en þá voru ár kaldar langt fram á sumar. Þau gögn sem fyrir liggja sýna ótví- rætt, að stórfelld afföll hafa orðið á laxaseiðum þetta vor en ekkert er vitað í smáatriðum um það sem gerst hefur. Undir venjulegum kringumstæðum hefði verið erfitt að gera sér grein fyrir því hvort Ilafbeitarstöðin i Botni i Súgandafirði. Veiðar á laxi i nokkrum islenskum ám á Vestur-, Norður- og Austurlandi brotnar niður eftir aldri í sjó. Allur lax i Kollafirði og Lárósi er framleiddur með sleppingum gönguseiða en annarsstaðar er um náttúrulega framieiðslu að ræða. örvarnar á myndinni sýna þá aldurshópa sem tiiheyra sama árgangi gönguseiða. ELLIOA- AR KOLLA- FJÖRÐUR LAX A /' KJÓS NORDURÁI LANGÁ LÁfíbS SHÆFELLSH. MIÐ - fjardar- > LAXA i ÁSLJM LAXA 1 blNG HOFSÁ VOPNAF. FJÓLDI LAXA 2000 1978 »00 soo — - n 1 1 m nn ,Jí n • n n n n nf n n FJÖLDI LAXA 2000 ’979 m 500 \ \ i „\ H \ g-9 n\ n\ \ n f \ n n FJÖLDI LAXA 2000 1980 »00 500 i \]\ nninn \ J \ n n \ r n \ \ FJÖLDI LAXA 2000 ’9'» ,000 (I5.ápú3t)500 nL i I i n\i l ^n\. 10% hetmtur gorguse*ia n \ ,\ ! 1 <■*« \ \ * AUUR LAX FRAMLEIDDUR MED SLEPRINGU GONGUSEIDA □ = EINS ARS LAX ÚR SJÓ. (< 7pd) □ = TVEGGJA ARA OG ELDRI 0R SJÓ (7pd<) liHxaskorturinn 1980—1981 Fyrir þá, sem áhuga hafa á þessum málum mun ég hér á eftir gera grein fyrir ástæðum þeim, er ég tel hafa valdið margræddum laxaskorti í íslenzkum ám í ár og á síðastliðnu ári. I byrjun er ekki úr vegi að rifja upp grundvallaratriði í sambandi við lífsferil laxins. Hann gengur að jafnaði aðeins einu sinni í hrygningarána, ýmist eftir 1, 2 eða 3 ár í sjó. Á íslandi er aðallega um tvo fyrrnefndu hópana að ræða. Hér á Iandi er aldurshópur- inn, sem skilar sér eftir 1 ár í sjó, ríkjandi á Suður- og Vesturlandi, en á Norður- og Austurlandi er laxinn að jafnaði lengur í sjó og í sumum ám þar, er 2ja ára aldurs- hópurinn í meirihluta. Á mynd 1 er sýnd veiði eins og tveggja ára lax úr sjó í nokkrum laxveiðiám og hafbeitarstöðvum í mismunandi landshlutum 1978 til 1981. Örvarnar á myndinni sýna þá aldurshópa, sem tilheyra sama árgangi gönguseiða. Vart leynir sér ef litið er á myndina, að góð veiði á smálaxi eftir eitt ár í sjó gefur að jafnaði góða veiði á stærri laxi árið á eftir og öfugt. Á myndinni eru tölur fyrir 1981, fram til 15. ágúst, fengnar úr veiðiskýrslum fyrir Kollafjörð, Elliðaár, Laxá í Kjós og Norðurá. Aðrar tölur eru byggðar á upplýs- ingum kunnugra manna og því i i ! í i 11 a n n) 4 n i' 3) i j i i i < I j; r r s i 111 j < s 111 ? 3, >.. i • i r ii i afföllin hefðu átt sér stað í fersku vatni eða í sjó. Sé hins vegar litið á það að yfir 2.200 smálaxar gengu í Kollafjörð sumarið 1980, sem teljast meðalheimtur, má leiða líkur að því að verulegur hluti seiðadauðans hafi orðið í fersku vatni. Hinar litlu smálaxagöngur á vissum svæðum sumarið 1981 styðja þessar tilgátur. Athyglis- vert er, að sleppingar í hafbeit- arstöðvum geta þannig gefið ákjósanlegan samanburð til að sjá hvar skórinn kreppir í náttúru- legum laxagöngum. Sumarið 1981 birtist önnur mynd heldur en 1980. Eins og búast mátti við, er tilfinnanlegur skortur á stórum laxi um allt land, einkum á Norðurlandi. Þó eru nokkrar ár undanteknar t.d. Laxá á Ásum, sem er með bezta inóti. Eins og fram kemur á mynd 1 er Kollafjörður með miklar heimtur á stórum laxi í samræmi við góða smálaxagöngu 1980. Smálax er nú aftur í miklu magni í norðlenzkum ám og bendir það til þess að seiðaárgangurinn sem gekk í sjó 1980 sé sterkur. Góðar heimtur Smálax hefur nokkuð brugðist í laxveiðiám í Borgarfirði í sumar, sem er í einkennilegri mótsögn við góða smálaxagöngu í Laxeldis- stöðinni í Kollafirði og metheimt-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.