Morgunblaðið - 29.08.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.08.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 15 Útgerð og hjólaskautar á Borgarfjarðarbrúnni Ganga í tvö ár á Foringjaskóla Hjálpræðishersins í Noregi Systkinin Erlingur Nielsson og Rannveig María Nielsdóttir, sem nú hafa innritast i Foringjaskóla Hjálpræðishersins i Osló. Myndin er tekin á fimmtudaginn, daginn áður en þau héldu utan. Hús Hjálpræðishersins i Reykjavík i baksýn. Borjíarfjarðarbrúin nýja er til margra hluta nytsam- leg. Meginhlutverk hennar er að sjálfsögðu að koma bílum og vegfarendum heilu og höldnu yfir fjörðinn, og stytta þannig leiðina vestur og norður í land. En þar má gera ýmislegt fleira, en aka yfir í einum rykk, eins og þessar myndir Ilelga Bjarnasonar í Borgarnesi sýna glögglega. Annars vegar sést til hvers Guðrún Daníelsdóttir úr Borgarnesi notar brúna, rennislétta og nýmalbikaða. „Það er frábært að skauta yfir fjörðinn á malbikinu," sagði hún um leið og hún stansaði örstutt til mynda- tökunnar. Hin myndin sýnir svo hvar Jón Eggertsson kaupmaður í Borgarnesi er að gá að trillu sinni, þar sem hún liggur í lægi við brúna. Það er ekki ónýt brú, sem kemur upp aðstöðu fyrir útgerðarmenn svona í „forbifarten“ eins Danskurinn myndi segja. „í vissu þess að við munum fá kraft og styrk frá Guði til að standa undir þeim kröfum er til okkar verða gerðar, þá höfum við tekið þessa ákvörðun um að svara kalli Guðs og fara til náms í Foringjaskóla Hjálp- ræðishersins í Osló,“ sagði Rannveig Níelsdóttir í samtali við Morgunblaðið í íyrradag. En hún hélt í gær utan til Noregs ásamt bróður sínum. Erlingi Nielssyni, og munu þau verða við nám í Foringjaskól- anum þar til um mitt sumar 1983. eða í tæp tvö ár. Rann- veig er 22ja ára, en Erlingur bróðir hennar 19. þau eru bæði frá Akureyri, þar sem þau kynntust starfi lljáipræðis- hersins. — Rannveig hefur annars starfað sem blaðamað- ur við Morgunblaðið undanfar- in ár. Erlingur sagði skóla af þessu tagi vera víða um heim, þar af væru tveir á Norðurlöndum, í Osló og Stokkhólmi. Þá væri alþjóðlegur foringjaskóli í Bretlandi, þar sem Hjálpræðis- herinn er upprunninn. Sterkast- an kvað Rannveig Herinn á hinn bóginn vera í Noregi, Bandaríkj- unum, Hollandi og Ástralíu. Liðssöfnunin hefur hins vegar orðið mest í Suður-Kóreu. Starf flokksforingja í Hernum sögðu þau systkinin vera mjög fjöl- breytilegt, svo sem undirbúning og stjórnun samkoma og við trúboð, „í rauninni er starf flokksforingjanna að boða fagn- aðarerindið í orði og verki," sagði Rannveig, „og það er það starf sem við erum nú að fara að búa okkur undir. ísland, Fær- eyjar og Noreg sögðu þau vera eitt svæði innan Hersins, sem svo aftur skiptist í deildir. ísland og Færeyjar eru ein deild, en í Noregi eru fimm deildir. Hjálpræðisherinn á ís- landi er undir yfirstjórn Hers- ins í Noregi, Osló nánar tiltekið. Hjálpræðisherinn á íslandi sögðu þau ekki vera sértrúar- söfnuð, heldur væri hann sér- stakt trúfélag innan þjóðkirkj- unnar. Að takast á herðar for- ingjastarf innan Hersins sögðu þau vera nánast „æviráðningu", sem þó væri hægt að komast úr ef þess væri óskað. „Þetta er ævilöng herþjónusta en ekki herskylda," sagði Rannveig, „og við gerum ráð fyrir að vera í þessu starfi alla ævi.“ „Senni- legast munum við starfa á íslandi, Noregi og Færeyjum, en gætum þó einnig farið víðar. Sennilegast verðum við tvö til þrjú ár á hverjum stað,“ sagði Erlingur, „en þó gæti það einnig orðið lengra. Það fer kannski enginn í þetta af því að hann langi beinlínis til þess, en þetta er köllun, þetta er kall frá Guði sem verður að svara. Enginn fer þó út í þetta án þess að hugsa sig mjög vandlega um áður.“ - AII. Hópurinn kominn saman fyrir framan Torfuna á Bernhöftstorfunni, en alls komu sextán af tuttugu og fimm nemendum til þessa fundar. Þeir sem ekki gátu komið voru ýmist að vinna, eða þá staddir úti á landi vegna sumarvinnu sinnar. Eigendur Torfunnar veittu fúslega leyfi fyrir þessum fundi nemenda úr Álftamýrar- skóla með kennara sinum og Jóni Ársæli Þórðarsyni starfsmanni Sálfræðideildar, þar sem farið var yfir hvernig gengi með könnun er nemendurnir samþykktu að vinna að á vinnustöðum sínum i sumar. hugann við þetta verkefni, veldur því að þau taka mun betur eftir á vinnustað sínum en ella, þau hugsa um hluti sem ekki er algengt að unglingar í sumarvinnu velti fyrir sér, og þau læra mun meira á þessu en annars hefði orðið. — Hætt er til dæmis við að fáir krakkar velti fyrir sér trúnað- armannakerfi á vinnustöðum, eða þá aðstöðu fyrir fatlaða, óreglu og slysahættu, svo fá dæmi séu tekin. Verkefni þetta gerir það hins vegar að verkum að þau þurfa að spyrjast fyrir um þessi atriði, og kynna sér þau sérstaklega." t nc l.ris t&i .i Mikill munur á launum Þeir Marteinn og Jón Ársæll sögðu, að allir krakkarnir í bekkn- um hefðu fengið vinnu í sumar, og gæfi það meiri vonir um árangur af tilrauninni. „Við höfðum óttast að þau yrði flest í mjög svipaðri vinnu, til dæmis að þorri þeirra yrði í Vinnuskólanum, en það varð ekki. Þau fengu vinnu á hinum fjölbreytilegustu stöðum, við mjög ólík störf. Könnunin mun því ná til fjölmargra vinnustaða, og enn fremur til margvíslegra atvinnu- greina," sagði Jón. „Af viðtölunum i iijgi i. i Jt« 11 > t .itm i við krakkana á Torfunni um daginn höfum við þegar lært ýmislegt um sumarvinnuna sem fólk hugsar ef til vill ekki alltaf útí. Það kemur til dæmis í ljós að þau vinna flest mjög langan vinnudag, talsvert lengri en 40 stunda vinnuviku. Það er að vísu ekki óalgengt hér á landi, en við vissum þó ekki að þetta væri svona algengt með unglinga í sumarvinnu. Þá kom einnig í ljós að kaup það er þau fá, er mjög mismunandi. Allt að sexfaldur munur er á því mánaðarkaupi, sem hæst er, og því sem lægst er. . j ( > H81: r 11 i!/ V' ni.ni aðeins í þessari einu bekkjardeild Álftamýrarskóla. — Þetta og ann- að sem fram kemur í þessari tilraun munum við svo fjalla um í vetur." — Á hvern hátt verður unnið úr könnuninni? „Hún verður notuð sem hluti námsefnis í samfélagsfræði í ni- unda bekk í vetur," sagði Mart- einn. „Ég hef áður kennt bekknum þessa grein að hluta, en geri það að vísu ekki í vetur. Kennari í samfélagsfræði verður nú Stein- unn Ármannsdóttir, og hún hefur i,- i iil t lýst áhuga sínum á að vinna verkefnið áfram." „Reynslan verður svo að skera úr um hvort þessi tilraun þyki bera þann árangur, að æskilegt sé að halda áfram á sömu braut. Við höfum að minnsta kosti í hyggju að segja kennurum og öðrum frá hvernig þetta hefur gengið, og vonumst til að aðrir geti haft einhver not af þessari fyrstu tilraun, sem okkur sýnist ætla að takast mjög vel,“ sagði Jón Ársæll að lokum. - AH. t í:i t v (i i-e/It í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.