Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
Hinckley
kveðst
saklaus
W ashinifton. 28. ágúst. AP.
JOIIN W. Hinckley kvaðst í dají
vera saklaus af ákæru um að hafa
skotið á Ronald Reaxan Banda-
ríkjaforseta ok þrjá aðra menn
og verjandi Ilinckleys sagði að
geðlæknar hcfðu komizt að þeirri
niðurstoðu. að Hinckely væri
hæfur til að mæta fyrir rétti.
Hinckley svaraði spurningunni
um sekt eða sakleysi skýrri röddu
eftir að ákæra í þrettán liðum
hafði verið lesin yfir honum.
Verjandi sagði að hann þyrfti að
fá mánuð til viðbótar áður en
málið hæfist, til að fá endanlegan
úrskúrð geðlækna og frekari rann-
sókna þyrfti við, unz það lægi
alveg fyrir hvernig geðheilsu
ákærða væri háttað.
Veöur
víða um heim
Akureyri 97 úrkoma í grennd
Amtterdam 21 bjart
Aþena 28 bjart
Barcelona 26 heiðakírt
Berlín 18 heiðskírt
BrUaael 24 skýjað
Chicago 25 rigning
Denpaaar 30 skýjað
Dublin 18 skýiað
Feneyjar 23. þokumóða
Frankfurt 19 skýjað
Færeyjar 12 skýjað
Genf 25 heiðskírt
Helainki 13 rigning
Hong Kong 30 heíðakírt
Jerúaalem 30 heiðskirt
Jóhanneaarborg 17 akýjað
Kairó 34 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðaklrt
Laa Palmaa vantar
Lissabon 30 heiðskírt
London 29 heiðskírt
Loa Angeles 40 heiðskírt
Madrid 33 heiðskírt
Malaga 25 léttskýjað
Mallorka 27 heiösLírt
Mexicoborg 19 skýjað
Miami 31 skýjað
Moskva 16 heiðskirt
Nýja Dehlí 35 heiðskírt
New York 30 skýjað
Osló 19 heiöskírt
Paría 24 heiöskírt
Perth 14 rigning
Reykjavík 10 skýjað
Ríó de Janeiro 34 bjart
Rómaborg 28 heiðskírt
San Francisco 26 heiðskírt
Stokkhólmur 14 skýjað
Sydney 17 heiðsklrt
Tel Aviv 31 heiðskirt
Tókíó 28skýjað
Vancouver 20 skýjað
Vínarborg 19 skýjað
Ching Ching á von á afkvæmi innan fárra vikna. Chia Chia,
þvottahjörninn, sem var flogið til Washington i vor árangurs-
laust til að frjóvga egg Ling Ling þvottabjarnarins í dýragarðin-
um þar, er faðirinn. Úm gervifrjóvgun er að ræða.
Ching Ching er 8 ára. Edward Heath, fv. forsætisráðherra
Bretlands, fékk hana að gjöf á ferð i Kína 1974. Hún dó mestum
úr magaveiki í fyrra, en er nú við bestu heilsu.
Á meðan dýralæknirinn og breska þjóðin öll beið í ofvæni eftir
niðurstöðu þungunarprófsins, var Ching Ching hin rúlegasta og
nagaði bambusstöng, eins og sést á myndinni.
Peningaskáp bjargað
úr Andreu Doriu
Mont&uk. 28. áKÚNt. AP.
KAFARAR fundu í dag peningaskáp úr ítalska skipinu Andrea
Doria. er sökk við strendur Massachusetts eftir árekstur við
sænska farþegaskipið Stockholm fyrir 25 árum.
Skápurinn verður ekki opnað-
ur fyrr en lokið hefur verið gerð
heimildakvikmyndar um skipið,
sem átti að vera ósökkvanlegt.
Verður skápurinn opnaður í
beinni útsendingu.
Sveit kafara vinnur að björg-
un verðmæta úr Andreu Doriu,
og er áfram leitað að 15 öðrum
peningaskápum, sem eiga að
vera í skipinu. Skápurinn, sem
kominn er upp á yfirborðið, er í
eigu Rómarbanka, og er talið,
að í honum séu peningar og
verðmæti að upphæð frá einni
og upp í fjórar milljónir dollara.
Vonast er til, að leitt verði í
ljos að þessu sinni hvers vegna
Doria sökk eftir áreksturinn.
Þegar er hafin deila um
eignarrétt á þeim verðmætum
er kann að verða bjargað úr
flaki Andreu Doriu. Hallast
flestir að því, að eigendur og
tryggingarfélag skipsins eigi
tilkall til þeirra, en björgun-
armenn vilja hafa sinn fyrir-
vara á þeim málum.
Starfsmenn Caledonian:
Taka á sig
laimalækkun
London, 28. ágúst. AP.
ÞRIÐJUNGUR starfsmanna brezka óháða flugfélagsins British
Caledonian, hafa ákveðið að þiggja ekki umsamdar átta prósenta
launahækkanir, til þess að forða félaginu frá tapi.
Alls starfa sex þúsund manns hjá félaginu, og hefur þriðjungur
þeirra afþakkað launahækkunina af sjálfsdáðum. Hinir fá umsamd-
ar kauphækkanir, að sögn forráðamanna félagsins, sem höfðu
vonast eftir betri þátttöku starfsfólksins.
British Caledonian munu spar-
ast jafnvirði einnrar milljónar
dollara útgjöld vegna launaaf-
þökkunarinnar, og getur það
orðið til þess að félagið sýni
hagnað á rekstrinum. Félagið
hefur hingað til verið rekið með
hagnaði. Caledonian er stærsta
flugfélagið í einkaeign á Bret-
landseyjum. Ríkisrekna flugfé-
lagið, British Airways, hefur
verið rekið með gífurlegum halla
síðustu misseri.
Hluti starfsmanna Pan Amer-
ican í Bretlandi, en þeir eru 1300
að tölu, hafa ákveðið að verða við
óskum félagsins um að taka á sig
10% launalækkun 1. september
nk. til að auðvelda félaginu út úr
þeim fjárhagskröggum sem það
er í. Málið er þó ekki að fullu
útkljáð, því verkalýðsfélög
starfsmannanna hafa gert Pan
Am gagntilboð er gerir ráð fyrir,
að starfsfólkið afsali sér árlegum
bónus í stað launalækkunarinn-
ar, en það samsvarar 8,3% tekju-
lækkun.
Skýrt hefur verið frá því, að
ýmis bandarísk flugfélög hafi
upp á síðkastið tilkynnt upp-
sagnir starfsfólks vegna rekstr-
arörðugleika, sem jukust við
verkfall flugumferðarstjóra.
Trans World Airlines hefur sagt
upp 2.200 manns, þar af 150
flugmönnum, Braniff hefur sagt
upp tæplega 2.000 manns af
12.000 starfsmönnum og í bígerð
er að breyta verulega flugrekstr-
inum á næstu dögum. Þá hefur
Continental skýrt frá því, að á
næstu vikum verði að segja upp
700 af um 11.500 starfsmönnum.
Hinir verða beðnir um að taka á
sig launalækkanir. Alls hefur um
10.000 manns verið sagt upp
störfum hjá flugfélögum í
Bandaríkjunum eftir að verkfall
flugumferðarstjóra hófst.
Þrettán
ára metsölu-
höfundur
Iyondon. 28. áKÚst. AP.
ÞRETTÁN ára piltur, Patrick
Bossert, er orðinn metsöluhöf-
undur þar sem hann hefur
skrifað bók um leyndardóma
töfrakubbsins svonefnda sem
kenndur er við Ungverjann
Rubek.
Bókin, sem Penguin gefur út
og nefnist „Þú getur ráðið kubb-
inn“, hefur selzt í tæplega
tveggja milljóna upplagi, og er
hlutur Patricks orðinn a.m.k.
40.000 sterlingspund.
Engin bók hefur selzt jafn-
hratt frá Penguin síðan D.H.
Lawrence sendi frá sér „Lady
Chatterley’s Lover" á sjötta ára-
tugnum.
Töfrakubbinn ræður Patrick á
innan við einni mínútu. Hann er
sagður seigur við allar stærð-
fræðiþrautir. í bókinni er skýrt
frá því hvernig ráða megi kubb-
inn, en margir hafa tapað sál-
arró sinni við að reyna að ráða
hann.
Hreinsanir
í Albaníu á
næsta leiti
Belgrad. 28. áKÚst. AP.
JÚGÓSLAVNESKA fréttastofan
Tanjug greindi frá þvi i dag. að
miklar hreinsanir innan komm-
únistaflokksins í Alhaníu væru á
næsta leiti. Myndu þær hreinsan-
ir vcrða hinar mestu í sex ár.
Fréttastofan sagöist hafa það
eftir frétt í útvarpi í Albaníu að
til þess að stéttaharáttan fengi að
þróast á eðlilegan hátt yrði að
uppræta alls konar spillingaröfl
innan flokksins.
Síðustu hreinsanir sem vitað er
um í Albaníu voru milli 1973—
1975 og þá voru átta áhrifamenn
látnir víkja, þar á meðal var
varnarmálaráðherra landsins.
Júgóslavía og Albanía hafa deilt
mjög undanfarið vegna óeirða sem
komið hefur til í héraðinu Kosovo
þar sem mikill fjöldi fólks af
albönskum ættum býr.
Satúrnus f ærist alltaf nær og nær
Þessi mynd barst frá Voyager
II 4. ágúst. Þá var geimfarið 13
milljón milur frá Satúrnusi.
Svarti punkturinn á stjörnunni
er skuggi af tunglinu Tethys,
sem er i 652 milna fjarlægð frá
henni.
11. ágúst var Voyager 8,6 milljón milur frá Og 23. ágúst var Voyager ekki nema 1,7 milljón
Satúrnusi. Skugginn af hringnum i kringum mílur frá Satúrnusi. Myndin sýnir vel hringakerf-
stjörnuna er mjög skýr við miðbaug hennar. ið í kringum stjörnuna.