Morgunblaðið - 11.09.1981, Síða 1
32 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
201. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ræðast
við af
hreinskilni
FRANCOIS MITTERRAND Frakklandsforseti kom til Lundúna í
gær til tveggja daga viðræðna við Margaret Thatcher forsætisráð-
herra. Þetta er fjórði fundur þeirra síðan Mitterrand kom til valda í
kosningunum 10. maí. Mitterrand sagði í viðtali við The Times í gær:
„Kosturinn við frú Thatcher, sem ég mundi berjast gegn ef ég væri
Breti, er sá að hún segir það sem henni býr í brjósti. Ég hef ákveðið
að gera það líka. Við munum því eiga auðvelt með að segja já eða nei
við hvort annað. Það er engin tvöfeldni okkar í milli.“
• •
Onnur sókn
gegn Kúrdum
Bcirút. 10. scptcmbcr. AP.
ÍRANIR sögðu í dag að þeir
hefðu hrakið uppreisnarmenn
Kúrda úr sex þorpum í norðvest-
urhluta írans og tugir uppreisn-
armanna hefðu fallið í bardög-
um.
Þorpin eru við Bijar-Dehgolan-
veginn til Sanandaj, höfuðborgar
Kúrdistans. Iranska fréttastofan
segir að uppreisnarmenn Kúrda
hafi einnig verið hraktir frá hern-
aðarlega mikilvægum hæðum í
norðvesturhéraðinu Azerbaijan.
Fyrir tveimur dögum sögðust Ir-
anir hafa náð öðrum hæðum í
Azerbaijan.
Fréttirnar benda til þess að
meiriháttar sókn sé hafin gegn
Kúrdum og enn ein tilraun hafin
til að bæla niður uppreisn þeirra.
Kúrdar hafa mikinn hluta sveit-
anna í Azerbaijan og Kúrdistan á
valdi sínu. Stjórnvöld hafa oft
sagt að Kúrdar hafi fengið hern-
aðaraðstoð frá írak síðan styrjöld
íraka og írana hófst fyrir einu ári.
Kúrdar eru í bandalagi með
skæruliðum marxistasamtakanna
Mujahedeen Khalq sem berjast
gegn Khomeini-stjórninni í nær
öllum öðrum hlutum írans. Stúlk-
ur úr samtökunum efndu þrívegis
til mótmælaaðgerða gegn stjórn-
inni í Teheran í gær.
Samstaða hvetur til
friálsra kosninga
Gdansk. 10. soplomlHT. AI’.
EINSTÆÐU þingi Samstöðu iauk í
dag með tillögu, sem jafngildir
kröfu um _ frjálsar kosningar i
Póllandi. Áður en þinginu lauk
veittist Tass að þinginu fyrir „hull-
andi andsósialisma og andsovét-
isma" og sakaði Samstöðu um að
heyja „beina baráttu“ gegn pólska
kommúnistaflokknum og ríkis-
stjórninni.
Pólska fréttastofan sagði að Stan-
islaw Kania flokksleiðtogi hefði í
dag rætt við sendiherra Rússa,
Boris Aristov. Vestrænn fulltrúi í
Moskvu sagði um árás Tass að hún
hefði verið „býsna hörð, ein sú
harðorðasta í langan tíma“.
Samkvæmt vestrænum leyniþjón-
ustuheimildum er æfingafloti Rússa
á suðurleið til að æfa landgöngu
innan við 80 km frá Gdansk þar sem
Tveir Rússar
féllu í Angola
Lissabon. 10. scptcmbcr. AP.
SKÆRULIÐAR Þjóðfrelsisfylk
ingar Angola (FNLA), sem
berjast gegn rikisstjórn lands-
ins, héldu þvi fram í dag að þeir
hefðu skotið niður angólska
þyrlu í siðustu viku og fellt tvo
sovézka verkfræðinga í korta-
gerðarleiðangri.
Talsmaður FNLA í Lissabon
sagði að atburðurinn hefði gerzt
nálægt Negage, 330 km fyrir
norðan höfuðborgina Luanda.
Hann kvað þyrluárásina dæmi-
gerða fyrir aðgerðir FNLA og
sagði að þeim yrði haldið áfram.
þing Samstöðu fór fram, en menn á
þingi Samstöðu virtust ekki vita um
æfingarnar.
I Washington ítrekaði bandaríska
utanríkisráðuneytið gagnrýni á her-
æfingarnar og kvað Rússa virðast
vilja minna bandamenn sína og
einkum Pólverja á „hernaðarmátt
sinn“. Þótt greinilega eigi að hræða
Pólverja með æfingunum bendir
ekkert til þess að þær séu undanfari
sovézkrar hernaðaríhlutunar í Pól-
landi, sagði talsmaður ráðuneytis-
ins. Hann sagði að æfingarnar
„gerðu ekkert til að draga úr spennu
í Póllandi og við fylgjumst náið með
þeim og af ugg“, sagði hann.
Þing Samstöðu samþykkti nokkr-
ar harðar ályktanir sem jafngilda
stefnuskrá og nánast tryggðu endur-
kosningu Lech Walesa. „Við verðum
að byggja upp það Pólland sem
feður okkar gátu ekki,“ sagði Wal-
esa. „Við skulum leggja persónu-
legan metnað á hilluna."
Hann skoraði á þingfulltrúa að
hefja umræður við óbreytta félags-
menn um lækningu á meinsemdum
Póllands. Þingið kemur aftur saman
26. september að ræða lokastefnu-
skrá og kjósa nýja leiðtoga.
Samstaða hafði hótað að hundsa
fyrirhuguð lög um umbætur á
vinnustöðum og sent stuðnings-
mönnum frjálsra verkalýðsfélaga í
öðrum kommúnistaríkjum heilla-
óskir, en forðaðist í dag aðra deilu
með því að leggja á hilluna fyrirætl-
anir um umræður um forystuhlut-
verk kommúnistaflokksins. Sam-
staða hefur sætt nýrri og harðri
gagnrýni fjölmiðla, flokks og stjórn-
ar og talsmaður stjórnarinnar,
Jerzy Urban, sagði að „pólitísk
barátta stæði yfir“.
í stálverksmiðjunni Huta í Kato-
wice lýstu verkamenn yfir van-
trausti í dag á framkvæmdastjór-
ann, Stanislaw Bednarczyk, sem
lokaði prentsmiðju stálversins
þar sem þar var prentað „andsov-
ézkt efni . j,etta gr ta|jj (jæmj um
sjálfstjórn verkamanna. Verka-
menn hyggjast ekkert gera í málinu
að sinni og bíða fyrirmæla æðstu
leiðtoga Samstöðu.
Alls samþykktu
8.800 verkamenn af 12.309 van-
traustið, en það er ekki meirihluti,
þar sem alls vinna 18.588 manns í
verksmiðjunni.
BANDARÍKIN og ísrael hafa
ákveðið að gera sameiginlegar
hernaðarráðstafanir til varnar
Miðausturlóndum gegn Sovét-
ríkjunum og annarri „utanað-
komandi ógnun" sagði Alexander
Haig utanríkisráðherra i dag.
Hann sagði að unnið væri að
greinargerð um nýja samvinnu
landanna er Ronald Reagan for-
seti og Menachem Begin forsætis-
ráðherra hefðu orðið ásáttir um á
tveggja daga fundum. Rætt væri
um sameiginlegar áætlanir, rann-
sóknir og aðgerðir, sameiginlegar
flotaæfingar kæmu til greina og
Begin mundi ræða við William
Casey, yfirmann CIA, um aðgang
að upplýsingum frá gervihnöttum.
Haig sagði að Bandaríkjamenn
kynnu að koma fyrir lyfjum,
vistum og búnaði í Israel til nota
handa bandarískum hermönnum
ef neyðarástand skapaðist. En
Haig og Begin lögðu áherzlu á að
bandarískum hersveitum yrði ekki
beitt til varnar Israel. Begin sagði
að nýtt tímabil „herfræðilegs
samstarfs" Bandaríkjanna og
ísraels mundi loka dyrunum fyrir
ásælni Sovétríkjanna í Miðaustur-
löndum.
En hann harðneitaði því að ný
öryggismálasamvinna við Banda-
ríkin mundi á nokkurn hátt draga
Begin
úr andstöðu Israelsmanna gegn
sölu bandarískra hergagna til
Saudi-Arabíu og sagði: „Við sögð-
um bandarískum vinum okkar að
þetta væri hættuiegt þjóðaröryggi
okkar.“ Begin spáði því að nýjar
viðræður um framtíð vesturbakk-
ans og Gaza-svæðisins mundu
bera árangur, vonandi fyrir ára-
mót.
Reagan sagði fréttamönnum að
honum og Begin hefði miðað
áfram í þeirri viðleitni að marka
stefnuna í tilraununum til að
koma á friði í Miðausturlöndum.
Begin sagði, að á fundunum með
Reagan hefði enginn gefið í skyn
að aukin og ný hernaðarsamvinna
mundi á einhvern hátt bæta ísra-
elsmönnum upp hergagnasöluna
til Saudi-Arabíu.
British Airways
segir upp 9.000
London. 10. scptcmbcr. AP.
BREZKA flugfélagið British
Airways (BA) mun fækka starfs-
mönnum um 9.000 á næstu niu
mánuðum og hætta vöruflutn-
ingum vegna siaukins rekstrar-
halla og til að gera félaginu
kleift að halda áfram starfsemi.
Starfsmönnunum verður sagt
upp ef þeir samþykkja ekki að
hætta störfum af fúsum vilja, að
sögn framkvæmdastjóra BA, Roy
Watts. Hann sagði að BA ætti
British
airways
ekki annarra kosta völ og tíminn
væri naumur. Ef ekki kæmi til
tafarlaus og róttækur niður-
skurður væri hætta á því að
félagið legði upp laupana. Tap BA
í fyrra var 141 milljón pund.
Alls láta af störfum 18% 51.000
starfsmanna félagsins, án tillits
til þess í hvaða deild þeir starfa,
en þeir fá skaðabætur eftir
starfsaldri. Dregið verður úr far-
þegaflugi í vetur um 5% og flugi
hætt á 16 millilandaleiðum.
Samkvæmt könnun Financial
Times er BA í neðsta sæti lista
um vestræn flugfélög sem eru
rekin með tapi. Truflanir af
völdum verkfalls flugumferðar-
stjóra mun kosta félagið um 60
milljónir punda að sögn blaðsins.
Hernaðarsamstarf
við Israel stóref lt