Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 15 „Guernica“, sem er 7 metrar á lengd og 3 metrar á hæð var pakkað inn i trékassa sem vóg tonn á leiðini frá New York til Madrid. Á myndinni sést þegar verið var að taka myndina úr flugvélinni á flugvellinum i Madrid. „Guernica66 komin heim Með Bogart uppá arminn London. 10. soptember. AP. KENNY Whymark hefur fundið leið til að græða á útlitinu. Hann líkist mjög kvikmyndaleikaranum Humphrey Bogart og fylgir nú konum í brúðarskarti til kirkjunn- ar fyrir 200 pund í svörtum Buick frá 1938, hvítum regnfrakka og með slútandi hatt. Rafmagns- laust á Manhattan Ncw York. 10. scptcmbcr. AP. SPRENGING varð og eldur braust út í rafmagnsstöð i New York á miðvikudagseftirmiðdag. Rafmagn fór af öllum neðri hluta Manhattan í fjóra tima. Fólk sat fast i lyftum, mikið umferðaröngþveiti varð, pen- ingamarkaðir lokuðu og neðanjarð- arlestir snigluðust áfram. Ekki er vitað hvað olli sprenging- unni í Con Ed-spennistöðinni. Slökkviliðsmenn unnu bug á eldinum á tveimur og hálfum tíma. Edward Koch, borgarstjóri New York, sagði á blaðamannafundi að starfslið borgarinnar stæði sig vel og allt væri með kyrrum kjörum. Rafmagnslaust varð á stóru svæði í norðausturhluta Bandaríkjanna nóttina 9. nóvember 1965. Raf- magnslaust var í New York í 25 tíma 13. júlí 1977 en þá notuðu margir tækifærið og brutust inn í verslanir og höfðu verðmæta hluti á brott með sér. Kardináli grunaður um fjársvik Chicago. 10. scptcmbcr. AP. ALRÍKISDÓMSTÓLL i Bandarikj unum er að kanna hvort John P. Cody, kardínáli. hafi útvegað gam- alli vinkonu sinni allt upp i eina milljón dollara úr skattfrjálsum kirkjusjóðum samkvæmt frétt Chic- ago Sun Times. í fréttinni segir, að dómstóllinn hafi farið fram á að fá allar fjárhagsskýrslur erkibiskupsdæmis- ins í Chicago, kardinálans og 74 ára gamallar vinkonu hans, Helen Dolan Wilsons, frá St. Louis í Missouri afhentar. Erkibiskupsdæmið neitaði að sjóð- ir þess hefðu verið notaðir ólöglega. Cody vildi ekkert um málið segja og ekki var hægt að ná í Wilson. Fréttin hermir, að grunur leiki á að Cody hafi lánað Wilson 90.000 dollara 1969 og 1970 þegar hún var að byggja í Boca Raton í Florida skömmu eftir að hún hætti störfum sem skrif- stofustjóri í St. Louis og fluttist til Chicago. Jörðuðu of fljótt ('aracas. 10. scptcmbcr. AP. 26 ÁRA læknir í Venezuela lifði flugslys í Amazon-frumskógunum af og var við bestu heilsu í tjaldbúðum indíána þegar ætt- ingjar hennar sóttu jarðarför hennar í Caracas. Fjórir voru með vélinni. Þrír létust en ættingjarn- ir héldu að leifar læknisins væru meðal þeirra sem fundust. Glæpir í Bandarikjimum WaKhington, 10. scptcmbcr. AP. MORÐ var framið á 23ja mínútna fresti og rán framið á hverri mínútu í Bandaríkjunum á síðasta ári samkvæmt heimildum alríkis- lögreglunnar, FBI. Glæpum fjölg- aði um 9% á árinu. Madrid, 10. Ncptembor. AP. „GUERNICÁ“, málverk Pablo Picassos, var flutt til Madrid frá New York á fimmtudag. Mikill öryggisvörður var á flugvellinum við komu myndarinnar og lög- reglulið fylgdi henni i Cason del Buen Retiro. sem er bak við Waldheim fer fram SÞ. 10. september. AP. KURT Waldheim, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði á blaðamannafundi i dag að hann myndi gegna starfi framkvæmdastióra eitt kjör- tímabil til ef Oryggisráð SÞ og Allsherjarþingið óskuðu eftir því. Öðru fimm ára kjörtímahili Waldheims lýkur 31. desember nk. Waldheim er fyrrverandi utan- ríkisráðherra Austurríkis. Hann er 62 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna gefur kost á sér í þriðja sinn. París, 10. scptcmbcr. AP. BERNADETTE Devlin McAliskey var vísað frá Spáni á fimmtudag og flaug til Parísar til að leita stuðnings Frakka við írska fanga í Maze-fangelsinu sem eru í mót- mælasvelti. „Við förum þess á leit við frönsk verkalýðsfélög að þau neiti að afgreiða breskar vörur sem fara um franskar hafnir," sagði Devlin á blaðamannafundi, sem hún hélt Pradosafnið, en myndin mun verða þar i framtiðinni. Picasso málaði myndina fyrir spönsku stjórnina til að hafa á heimssýningunni í París 1937. Hún er af sprengiárás flugvéla Hitlers undir forystu Francisco Franco hershöfðingja á bæinn Guernica í Baskahéraði. Picasso, sem var í útlegð í Frakklandi eftir að Franco kom til valda, þvertók fyrir að myndin yrði flutt til Spánar á meðan einræðisstjórnin var við völd. Hann lést árið 1973, tveimur árum á eftir Franco. Inigo Cavero, menningarmála- ráðherra Spánar, var um borð í vélinni, sem flutti myndina frá Bandaríkjunum eftir 42 ár. Muse- um of Modern Art í New York tilkynnti á miðvikudag að myndin yrði afhent Spánverjum. Hún er metin á um 40 milljónir dollara og þykir með bestu myndum lista- mannsins. Snjókoma í S-Afríku JóhannesarborK. 10. scptembcr. AP. ALDREI þessu vant snjóaði i Suð- ur-Afríku á fimmtudag. Færðin varð slæm, fóik fylgdist með snjó- komunni út um glugga og margir hrugðu ó leik og köstuðu snjóbolt- um. „Þetta er fyrsta verulega snjókom- an síðan 1964,“ sagði talsmaður veðurstofunnar. „Og hún getur enn aukist.“ Snjókomunni fylgdu 20 vindstig og meiri kuldi en íbúar Suður-Áfríku eiga að venjast. í húsnæði Félags byltingarsinn- aðra kommúnista. Hún var handtekin á flugvellin- um í Barcelona við komuna frá London á miðvikudagskvöld. Hún ætlaði að dveljast þar í fimm daga og tala máli írsku fanganna. Bernadettu Devlin hefur verið meinuð vist á Spáni síðan 1980 fyrir að hafa háð kosningabaráttu fyrir vinstrisinnaða frambjóðend- ur í kosningunum 1979. Borgaryfirvöld í Guernica lýstu yfir óánægju með að myndin yrði send til Madrid en ekki Guernica. Þau sögðu það sýna Böskum mikla vanvirðingu. Myndin verður sýnd almenningi 25. október á 100 ára afmæli Picassos. Hún er í svörtum og hvítum lit, en næstum hver einasti Spánverji kannast við hana þó fáir þeirra hafi nokkurn tíma séð hana. íþróttamenn í framboð? Osló. 10. september. AP. EINN framboðslistinn til norsku þingkosninganna er þéttsetinn þekktum íþróttamönnum. Tom A. Schanke, fótboltamaður og pylsu- og hamhorgarasali. stofnaði flokk- inn til að mótmæla hversu lítið íþróttahreyfingin, lamaðir og fatl- aði og ellilifeyrisþegar fá úr norska rikiskassanum. Flokkurinn er kallaöur „idretts- partiet" eða íþróttaflokkurinn. Sig- urmöguleikar flokksins þykja litlir en hann hefur þó þegar hugmynd um skipun „skuggaríkisstjórnar". Schanke sjálfur yrði forsætisráð- herra, Unni Holmen, besta fimleika- kona Norðmanna, utanríkisráðherra og Erik Haaker, skíðakappi, fjár- málaráðherra. Ný stjórn Ilaajc. 10. september. AP. NÝ rikisstjórn mun taka við stjórn- artaumum i Hollandi i dag. For- menn Kristilegra demókrata. Verkamannaflokksins og Demó- krata 66 komu sér saman um samsteypustjórn á fimmtudag cftir að samningaviðræður höfðu staðið i þrjá og hálfan mánuð. Andries Van Agt. formaður Kristilegra demó- krata. verður áfram forsætisráð- herra. Samsteypustjórn Kristilegra demókrata og Frjálslynda flokks- ins missti meirihluta i þingkosning- um 26. mai sl. Samkomulag náðist seint um efnahagsstefnu stjórnarinnar. Óein- ing ríkir einnig milli flokkanna um staðsetningu bandarískra eldflauga í Hollandi. I stefnu stjórnarinnar var aðeins sagt að hún myndi taka afstöðu til málsins einhvern tíma á kjörtímabilinu. Bemadetta Devlin rekin frá Spáni AMERIKA PORTSMOUTH Junior Lotte 16. sept. Bakkafoss 28 sept. Junior Lotte 7. okt. Bakkafoss 19. okt. NEW YORK Bakkafoss 29. sept. Ðakkafoss 21. okt. HALIFAX Hofsjökull 9. okt. BRETLAND/ MEGINLAND Eyrarfoss 14. sept. Álafoss 21. sept. Eyrarfoss 28. sept. Álafoss 5. okt. ANTWERPEN Eyrarfoss 15. sept. Álafoss 22. sept. Eyrarfoss 29. sept. Álafoss 6. okt. FELIXSTOWE Eyrarfoss 16. sept. Álafoss 23. sept. Eyrarfoss 30. sept. Álafoss 7. okt. HAMBORG Eyrarfoss 17. sept. Álafoss 24. sept. Eyrarfoss 1. okt. Álafoss 8. okt. WESTON POINT Urriöafoss 16. sept. Urriöafoss 30. sept. Urriöafoss 14. okt. Urriöafoss 28. okt. NORDURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 21. sept.. Dettifoss 5. okt. . Dettifoss 19. okt. KRISTIANSAND Mánafoss 14. sept. Mánafoss 28. sept. Mánafoss 12. okt. MOSS Mánafoss 15. sept. Dettifoss 22 sept. Mánafoss 29. sept. Dettifoss 6. okt. TRONDHEIM Selfoss 15. sept. GAUTABORG Mánafoss 16. sept. Dettifoss 23. sept. Mánafoss 30. sept. Dettifoss 7. okt. KAUPMANNAHÓFN Mánafoss 17. sept. Dettifoss 24. sept. Mánafoss 1. okt. Dettifoss 8. okt. HELSINGBORG Mánafoss 18. sept. Dettifoss 25. sept. Mánafoss 2. okt. Dettifoss 9. okt. HELSINKI írafoss 17 sept. Múlafoss 30. sept. írafoss 12. okt. RIGA írafoss 21. sept. Múlafoss 3. okt. írafoss 14. okt. GDYNIA írafoss 22. sept. Múlafoss 5. okt. irafoss 15. okt. THORSHAVN Mánafoss 8. okt. VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -framog til baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ISAFIROI alla þriöjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP SÍMI 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.