Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 31 Pétur Pétursson sækir að tyrkneska markverðinum. Eins og sjá má. er öllum brögðum beitt, tyrkneski varnarmaðurinn rígheldur í Pétur, en þetta brot fölnaði í samanburði við nokkur önnur brot Tyrkjanna. Ljósm. RAX. ísland hefur hlotið 4 stig i riðlinum og á tvo leiki eftir ÍSLENSKA landsliðið i knatt- spyrnu á nú eftir að leika tvo leiki í sinum riðli i undankeppni heimsmeistarakeppninnar i knattspyrnu. Þann 23. sept. verð- ur leikið gegn Tékkum hér heima og þann 14. okt. gegn Wales á útivelli. Staðan i riðlinum er þessi: Wales 6 4 11 10-2 9 Tékkóslóvakía5 40 1 13—2 8 Rússland 3 21 0 7-1 5 ísland 6 20 4 7-18 4 Tyrkland 6 006 1-13 0 íslenska liðið hefur sigrað Tyrki tvívegis. Úrslit í leikjum íslenska liðsins í keppninni hafa orðið þessi: Isl.—Wales 0—4 ísl.—Rússl. 1—2 Ísl.-Tyrkl. 3-1 ísl.—Rússl. 0—5 Ísl.-Tékk. 1-6 Ísl.—Tyrkl. 2-0 íslensku landsliðsmennirnir voru ánægðir með úrslit leiksins gegn Tyrkjum og höfðu þetta um leikinn að segja: Marteinn Geirsson fyrirliði: — Þetta var ánægjulegur sigur. Það var góð barátta í liði okkar allir leikmenn lögðu sig vel fram. Við getum verið ánægðir þrátt fyrir að knattspyrnan hefði getað verið betri hjá okkur. Veðrið var slæmt og það setti sinn svip á leikinn. Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari: — Þetta var nokkuð grófur leikur. Lið Tyrkja lék mun fastar hér en úti í Tyrklandi. Strákarnir börðust vel í leiknum. Veðurfarið bauð ekki upp á að leikinn yrði góð knattspyrna. Lárus Guðmundsson: — Þetta var skemmtilegur leik- ur. En það setti leiðinlegan svip á leikinn hversu grófir Tyrkirnir voru. Það fór mikið úthald í fyrri hálfleikinn hjá okkur og það bitnaði á síðari hálfleik. Mér fannst tyrknesku leikmennirnir leika vel saman úti á vellinum en skorta síðan festu upp við markið. Dómarinn fannst mér vera slakur. Pétur Pétursson: — Þetta var nú meiri dómar- inn, sá var lélegur. Hann var alveg á þeirra bandi. Leikurinn fannst mér vera erfiður. Mig skortir úthald. Tyrkirnir voru mjög gróf- ir. En leikurinn vannst og það er jú fyrir mestu. Ég fer strax út aftur. Ég fékk að koma inná í síðasta leik með Anderlecht og vonast til að þetta fari allt að koma. Og ég vinni mér fast sæti í liðinu. Atli Eðvaldsson: — Þetta var erfiður leikur. En ánægjulegur sigur. Það er varla hægt að ætlast til þess að sýnd sé góð knattspyrna við jafn slæmar aðstæður og voru í kvöld. Hávaða- rok og kuldi. Mesta furða hvað hægt var að eiga við boltann. Nú er bara að liðið standi sig gegn Tékkum í næsta leik. Ég hef ekki enn fengið tækifæri til að spreyta mig í heilum leik með með Dort- mund í haust en bíð bara rólegur. Tækifærið hlýtur að koma og þá gríp ég gæsina. Branko Zebec er frábær þjálfari og skemmtilegt að æfa undir hans stjórn. Vonandi fæ ég tækifæri á að leika líka undir hans stjórn. Það er nefnilega lærdómsríkt, og ómetanleg reynsla. — ÞR. Hanga Þórsarar í 1. deild? Einn stórmikilvægur leikur fer fram i 1. deild íslandsmótsins i knattspyrnu i kvöld. Þá eigast við á Akureyri lið Vals og Þórs og hefst leikurinn klukkan 18.30. Leikurinn hefur enga sérstaka þýðingu fyrir Vals- menn, sem eru hvorki i baráttu á toppi eða botni. Hins vegar er Þór i sjóðandi fallhættu og verður helst að vinna leikinn. Jafnvel sigur myndi ekki tryggja Þór i sessi, þvi takist KR siðan að ieggja Viking að velli i siðasta leik mótsins, myndi vesturbæjarliðið halda sæti sinu vegna betri markatölu en Þór. Þá fer einnig fram einn leikur í 2. deild í kvöld. Þróttur frá Reykjavík mætir Selfossi á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn einnig klukkan 18.30. Lárus og Pétur í atvinnumennsku? ÍSLENSKU félagsliðin í knatt- spyrnu hefja þátttöku sina í Evrópumótunum i knattspyrnu í næstu viku, en þar keppa Valur, Fram og Vikingur. Jafn- framt leikur íslenska landsliðið tvo landsleiki í undankeppni IIM í haust, gegn Tékkum á Laugardalsvcllinum og gegn Wales ytra. Nú rennur upp sá timi keppnistimahilsins, að er- lend atvinnumannafélög fara á stúfanna og reyna að næla sér i efnilega íslenska knattspyrnu- menn. Meðal áhorfenda á landsleik íslands og Tyrkja var Willy Reinke, vestur þýski umboðs- maðurinn, sem meðal annars kom Atla Eðvaldssyni og Magn- úsi Bergs til Dortmund, Sigurði Grétarssyni og Ragnari Mar- geirssyni til Homburg. Má búast við því að hann og jafnvel fleiri njósnarar verði á komandi leikj- um íslensku félagsliðanna og landsliðsins. Talað hefur verið um Pétur Ormslev og Lárus Guðmundsson sem líklegustu at- vinnumannaefnin þetta keppn- istímabilið. • Pétur FH-ingar sigruðu Danmerkurmeistarana UM NÆSTU helgi hefst hand- knattleiksvertiðin með Reykja- vikurmótinu. Flest liðin i 1. deild hafa undirbúið sig af mikilli kostgæfni undir keppnistimabil- ið sem er að hefjast. Þrjú lið taka þátt i Evrópumótunum í hand- knattlcik í ár. Víkingur, Þróttur og FH. Lið FH er nýkomið heim úr keppnis- og æfingaferð til Dan- merkur þar sem liðið lék sjö leiki jafnframt sem æft var á hverjum degi. Geir Hallsteinsson þjálfari FH-inga var mjög ánægður með keppnisferðina sem hann sagði að tekist hefði framar öllum vonum. FH lék sinn fyrsta leik gegn dönsku meisturunum Helsinger og sigraði þá örugglega 20—16 í góðum leik. Leikið var tvívegis gegn Virum, fyrri leikur vannst 24—19 en síðari leikurinn endaði með jafntefli 17—17. FH gerði jafntefli við MK-31 21—21. Leikið var tvisvar gegn Holte sem varð í öðru sæti í dönsku 1. deildinni í fyrra. Fyrri leiknum lauk með jafntefli 26—26. En síðari leiknum tapaði FH 18—23. Þá tapaði FH fyrir HG-Gladsaxe 21—19. Einn leikmaður í liði FH Kristján Arason atti mjög góða leiki með liði sínu og skoraði yfirleitt 10 til 12 mörk í hverjum leik. Lið Þróttar er nýkomið heim úr æfinga og keppnisferð frá V-Þýskalandi. Gekk liðinu vel í leikjum sínum. Þá fóru Valsmenn í langa og stranga ferð til Rúss- lands. Liðið tók þátt í handknatt- leiksmóti í Moskvu og lék þá gegn bestu liðum landsins og tapaði mjög naumlega öllum leikjum sínum. Þá æfðu leikmenn liðsins af miklum krafti í ferðinni. KR-ingar hafa æft vel að undan- förnu og fór liðiö til V-Þýskalands í keppnisferð. Eins og sjá má leggja liðin mikið á sig til að koma sterk til leiks þegar tímabilið hefst. - ÞR. Víkingur úr Mosfellssveit! NÆSTKOMANDl miðvikudag er fyrsti leikdagur Evrópukeppn- anna þriggja í knattspyrnu. en þá fara fram fyrri leikir fyrstu umferðarinnar. Sem kunnugt er, keppa að venju þrjú islcnsk lið, íslandsmeistarar Vals mæta Ast- on Villa, bikarmeistarar Fram kljást við irska liðið Dundalk og Víkingur. sem hreppti UEFA- sætið, mætir franska liðinu Bor- deaux. í tilefni Evrópukeppninnar, tók breska knattspyrnuritið World Soccer saman viðamikla grein um Englendingar eru úr leik UNDANKEPPNI HM í knatt- Frakkland 5 3 0 2 12-5 6 spyrnu er langt á veg kominn, en Kýpur 7 0 0 7 4-25 0 staðan í riðlunum er þó misjafn- lega skýr, raunar víða óráðin 4. riðill: England 7 3 13 12-8 7 með öllu. Mikilvægir leikir fóru Rúmenía 5 2 2 1 4-3 t; fram í fyrrakvöld eins og greint Noregur 7 2 2 3 11-6 6 var frá, en vegna þrengsla í Ungverjaland 4 2 11 6-6 5 blaðinu hefur ekki verið hægt að Sviss 5 12 2 7-8 4 birta stöðurnar í riðlunum fyrr en nú. Annars staðar á siðunni er 5. riðill: Júgóslavía 5 4 0 1 14-5 8 staðan í 3. riðlinum, sem íslend- Ítalía 5 4 0 1 9-3 8 ingar leika í, en hér að neðan Danmörk 6 3 0 3 10-7 6 kemur staðan i hinum riðiunum Grikkland 5 3 0 2 6-7 6 sem leikið var i á miðvikudags- Luxemborg 6 0 0 6 1-17 0 kvöldið. 6. riðill: Skotland 6 5 10 8-2 10 2. riðill: N.írland 6 2 2 2 5-3 6 Belgía 7 5 11 12-6 11 Svíþjóð 7 2 2 3 5-7 6 írland ,7 3 2 2 14-9 8 Portúgal 5 2 12 4-4 5 Holland 6 3 1 2 8-5 7 ísrael 6 0 3 3 2-8 3 þátttökuliðin þetta árið. Eins og sjá má af meðfylgjandi klausu úr WS, er landafræði Bretanna ekki eins og best verður á kosið. Þarna er talað um „Mosfellssveitar-liðið Víking". Hafa fréttamenn líklega aldrei heyrt Hæðargarðs getið. Margir Evrópu- leikir framundan Nú á næstu dögum eru margir leikir framundan i Evrópukeppnunum í knatt- lciksíþróttum. í næstu viku leika þrjú íslensk lið í Evr- ópukeppninni í knatt- spyrnu. Valsmenn halda til Englands á sunnudag og mæta sjálfum Englands- meisturum Aston Villa næstkomandi miðvikudag á Villa Park í Brimingham. Sá leikur er liður í Evrópu- keppni meistaraliða. Á sama tíma mætir Fram liði Dund- alk á Laugardalsvellinum. Þá leika Víkingar við franska liðið Bordeaux fimmtudaginn 17. sept. kiukkan 17.30 á Laugardals- vellinum. En það er ekki bara í knattspyrnunni sem íslensk lið verða í eldlínunni. Körfu- knattleikslið Vals leikur í 1. umferð Evrópukeppni bikar- hafa og mætir ensku bikar- meisturunum Crystal Palace. Fyrri leikur liðanna fer fram í London 7. okt. en síðari leikurinn í Laugardalshöll- inni 13. okt. Lið FH og Víkings taka þátt í Evrópu- keppnum í handknattleik en þau sitja hjá í 1. umferð. Lið Þróttar leikur hinsvegar í okt gegn norska liðinu Kristjan- sand. Leikdagar eru enn ekki ákveðnir. - ÞR. Einherja- keppnin í golfi um helgina FÉLAGSSKAPUR þeirra kylfinga sem hafa farið Ilolu i Ilöggi nefnist „Ein- herjar“. Þeir halda árlega með sér mikið golfmót og þetta mót þeirra verður nú um nawtu helgi á Grafar- holtsvellinum. Ilefst það á sunnudagsmorguninn kl. 11.00 og verða þá leiknar 12 eða 18 holur allt eítir veðr- um og vindum. Fyrirkomu- lagið er „Stableford með 7/8 forgjöf“ og veitt þrenn verð- laun. Enginn verðlaun verða fyrir að fara Holu í Ilöggi enda allir keppendurnir i mótinu gert það áður. Aftur á móti verða aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu á 17. brautinni en það telja Einherjar að sé verðugri keppni fyrir þá. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.