Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 • Nýkomið Barnarim arum Efni: Brenni — lakkaö — bæsað brúnt — hvítlakkað. Verð kr. 624.- Dýnusett: Dýna — klæðning — púði. Verð kr. 473.- Norskar þvottekta ungbarnasængur og koddar: Verð sæng kr. 149.- verð koddi kr. 48.- Sendum um land allt. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1 A. Sími: 86117. Opið föstudaga til kl. 8 Opið laugardaga kl. 9—12 Ný LP plata Splunkuný LP plata meö EINARI VILBERG Utgefandi Tony Permo t.d., Dreifing FÁLKINN Sími 84670. EF ÞAÐERFRÉTT- 9) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í Vmorgunblaðinu Úrslitin talin ráðin í norsku kosningunum Ekkert nema óvænt umskipti í norskum stjórnmál- um geta komiö í veg fyrir, aö leiötogi Hægriflokksins, Káre Willoch, verði forsætisráöherra eftir stórþings- kosningarnar, sem fram fara nk. mánudag, 14. september. Heita má ómögulegt fyrir Gro Harlem Brundtland að auka svo ffylgi sitt og Verkamanna- flokksins, að það hrökkvi til aö tryggja stjórnarsetu áfram, en til þess þarf hvorki meira né minna en 150.000 atkvæði. Þaö eina, sem nú virðist vera á huldu, er hvort viö taki borgaraleg þriggja flokka stjórn eöa Hægriflokkurinn myndi einn minnihluta- stjórn. Kosningabaráttan í Noregi hefur aö þessu sinni verið óvenjulega daufleg og hreint alveg laus viö pólitískar uppákomur. Flokkarnir hafa haldið kyrru fyrir í sínum pólitísku skotgröfum og svarað þaðan hrinum andstæöinganna, en um meiriháttar sóknartilburöi hefur ekki verið að ræða. Á gunnfána ríkisstjórnarinnar stend- ur „Atvinna fyrir alla" og kemur fáum á óvart, því að þetta er í annað sinn, sem hún notast við þetta slagorö í kosningum. Forysta Verkamannaflokksins hyggur enda á litlar breytingar en leggur þeim mun meiri áherslu á aö fylgja eftir þeim pólitísku ráöstöfunum, sem gert hafa Norömen aö ríkri þjóð. Hægriflokkurinn hefur einrrig farið troönar slóðir í kosninga- baráttunni og fitjaö upp á fáu nýju, nema ef vera skyldi aö hann hóf slaginn meö því að lofa skatta- lækkunum upp á sjö milljarða nkr. og duglegum niöurskuröi á opin- berum útgjöldum. Ríkisstjórnin hetur ráöist harkalega á þessa fyrirhuguðu skattalækkun og nú síðustu dagana hefur Hægriflokk- urinn heldur verið aö draga í land með hana, enda er það nú mál manna í Noregi, að Hægriflokkur- inn sé ekki lengur meö kosn- ingarnar nk. mánudag í huga, heldur kosningarnar 1985. Þessar kosningar séu nefnilega þegar unnar og nú ríöi á aö lofa ekki svo upp í ermina á sér, að það geti komiö honum í koll eftir fjögur ár. í augum margra Norömanna hefur kosningabaráttan fyrst og fremst einkennst af stóryrðum og oröbragöi, sem fólki þykir Ijótt (aö vísu sannkölluöu guösbarnamáli ef frónbúinn ætti í hlut) og er Gro Harlem Brundtland, forsætisráö- herra, kennt um aö hafa hafið þann Ijóta leik meö því aö fullyröa í upphafi kosningabaráttunnar, aö ef borgaraflokkarnir tækju viö stjórn væri úti um norsku velferð- ina. Leiötogar borgaraflokkanna brugðust ókvæöa við og svöruöu Gro fullum hálsi, sögöu aö hún færi meö „slúöur" og „dulbúin ósannindi" og aö „hún talaöi gegn betri vitund". Á þessu þykir síöan hafa gengiö en minna farið fyrir raunverulegri, pólitískri umræöu. Skoöanakannanir, sem geröar hafa verið meðal kjósenda, leiða í Ijós, að flestum finnst lítiö til kosningabaráttunnar koma. Fólki finnst sem stjórnmálamennirnir tali bara hver upp í annann en sleppi alveg umræöum um það hvernig landsstjórninni veröi best hagað, og höföu margir á oröi, aö illa væri fariö með þaö fé, sem til kosn- ingabaráttunnar færi. Gro Harlem Brundtland, forsæt- isráöherra, og leiötogi Hægri- flokksins, Káre Willoch, hafa fjór- um sinnum leitt saman hesta sína i opinberri umræöu og þykir Brundtland, eða bara Gro eins og hún heitir í munni fólks, einkum hafa fariö illa út úr sjónvarpsein- víginu. Hún greip stööugt fram í fyrir Willoch og var svo ágeng, aö því var líkast aö hún heföi engan hemil á sér, og vitnaöi auk þess í tölur, sem bornar voru til baka daginn eftir af opinberri hálfu. Þetta einvígi fór reyndar fram snemma á forsætisráöherraferli Gro en síöan hefur framkoma hennar tekiö stakkaskiptum til hins betra. Hún stóö sig vel í sjónvarpinu fyrir skemmstu þegar hún varöi stefnu stjórnarinnar, var róleg og skýrmælt og kryddaöi ekki mál sitt meö óþörfum auka- setningum eins og hún var vön. Nú kemur hún fram sem sá myndar- kvenmaöur sem hún er, vel klædd og hugguleg og miklu rökvísari en fyrr. Þrátt fyrir það þarf meira til aö hinn nýbakaöi forsætisráöherra haldi völdunum. Nú í lok kosn- ingabaráttunnar er Verkamanna- flokknum spáö 33—34% atkvæöa en hann þarf a.m.k. 40—43% til aö geta áfram myndaö minnihluta- Tíminn er að renna út fyrir Gro og Verkamannaflokkinn. Samkv. skoö- anakönnunum standa Verkamanna- flokkurinn og Hægriflokkurinn nokk- urn veginn jafnt aö vígi skömmu fyrir kosningar. Gro Harlem Brundtland, forsætisráöherra Verkamannaflokksins, og Káre Willoch, leiötogi Hægri flokksins, hafa marga hildi háö aö undanförnu enda kosningabaráttan verið eins konar einvígi milli þessara tveggja stærstu flokka í norskum stjórnmálum. Fyrirsagnir í norsku blöðunum. Sigurvegari kosninganna veröur Hægri flokkurinn að allra dómi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.