Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 5 Búnaðarbankinn með útibú í Breiðholti BÚNAÐARBANKI íslands mun á næstunni opna nýtt útibú í Breiðholtshverfi í Reykjavík. að sögn Magnúsar Jónssonar. bankastjóra. Magnús Jónsson sagði, að til- skylin leyfi væru þegar fengin hjá Seðlabanka íslands, en hins vegar væri enn óljóst með staðsetningu, en málið væri í borgarkerfinu, þar sem formlegt leyfi yfirvalda þyrfti varðandi staðsetningu útibúsins. Ekki hefur enn verið ákveðið hver verður útibússtjóri í hinu nýja útibúi, sem er sjötta útibú Búnaðarbankans í Reykjavík. Strokufanginn ófundinn enn FANGI strauk frá fangels- inu að Litla-Hrauni á mánudaginn og hefur ekki náðst enn, samkvæmt upp- lýsingum sem Morgun- blaðið fékk hjá Helga Gunnarssyni yfirfanga- verði í gær. Þó hefur frést af manninum í Reykjavík, þótt ekki hafi tekist að hafa hendur í hári hans. í samtali við Morgun- blaðið sagði Helgi að mað- urinn hefði hreinlega labb- að út um miðjan dag, en hann var við vinnu á steypuplani við fangelsið. Helgi sagði að engin girð- ing væri umhverfis Litla- Hraun og hefði svo verið frá upphafi. Slíkt væri dæmalaust, og því væri gæslan ófullnægjandi og engan veginn samboðin staðnum. „Þetta er eina ríkisfangelsi íslendinga og með endemum að fjárveit- ingavaldið skuli ekki hafa séð ástæðu til að veita fé í girðingu hérna í kring, sem við erum búnir að biðja um í átta ár,“ sagði Helgi. Rauði krosss íslands: t sumar hafa staðið yfir lagfæringar á flugbrautum Keflavikurflugvallar, en þær eru nú á lokastigi. Myndina tók Kristján Einarsson yfir Keflavikurflugvelli i vikunni. og sjást viðgerðarmenn með tæki sin við siðasta blettinn, sem er á brautamótum, og Boeing-727-þota Flugleiða er að klifra eftir flugtak af einni brautanna. Námsstefna um öldnmarmál NÁMSSTEFNA um öldrunarmál verður haldin á vegum Rauða kross tslands að Hótel Heklu i Reykjavik i dag og á morgun, 11. og 12. september. Fjölmargir fyrirlesarar munu flytja þar erindi um ýmsa þætti öldrunarmála. Til námsstefn- unnar munu koma milli 50 til 00 manns frá nær öllum deildum Rauða krossins á tslandi. Fyrr i sumar ákvað stjórn RKÍ að fela deildum að skipa öldrunarnefndir og gera ráðstafanir til að fulltrúar þeirra kæmu til námsstefnunnar. en vonir standa til að þar verði mörkuð framtíðarstefna RKt í mál- um aldraðra og störf deilda sam- ræmd að framkvæmd hennar. Kröpp lífskjör margra aldraðra og síhækkandi hundraðstala þeirra af íbúafjölda flestra landa hafa leitt til þess að Rauði krossinn hefur að undanförnu veitt vandamálum þeirra vaxandi athygli. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa skipulagt aðstoð við aldraða sem veitt hefur verið á fjölmörgum sviðum þar sem þörf var liðveislu. Er nú svo komið að víða erlendis eru öldrunarmál orðin mjög gildur þátt- ur í starfsemi fjölmargra deilda Rauða krossins. Hér á Islandi hafa ýmsar deildir Rauða krossins lagt öldrunarmálum lið, sumpart eingöngu innan vé- banda Rauða krossins, sumpart í góðri samvinnu við opinbera aðila og félög sem hafa menningar- og líkn- armál á stefnuskrám sínum. Þá hefur Rauði kross íslands einnig að undanförnu átt góða samvinnu við norræn samtök um öldrunarmál. Þar sem stjórn RKÍ taldi nauðsyn- legt að samræma störf allra félags- deilda sinna að öldrunarmálum og hafa lokið við að marka heildar- stefnu vegna árs aldraðra, 1982, og annarra ókominna ára þá ákvað hún að skipa á sl. hausti öldrunarmála- nefnd sem falið var að gera tillögur um framtíðarskipan öldrunarmála innan RKI. Snemma á þessu ári lagði nefndin m.a. til að samið yrði leiðbeiningarit um starf RKÍ-deilda að öldrunarmálum og kvödd saman námsstefna þar sem ritið yrði kynnt og heildarstefna mörkuð. Var Ásdís Skúladóttir félagsfræðingur fengin til að rita bæklinginn. Er hann nú fullprentaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.