Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.09.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 29 13 ?? VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10—11 FRÁ MÁNUDEGI ^ flf (UAjnr\~aa'v R Friðarsókn Rússa og sigur Mitterrand: „ Að koma í veg fyrir efl- ingu landvama á Vesturlöndum Mitterrand ekki róttækari en Benedikt Gröndal44 torum í Sturlungu ilkurbúi Flóamanna Velvakandi góður: I. Eins og kunnugt er, hafa Rússar nú hafið svonefnda friðarsókn, ásamt fylgiliði sínu. Hérlendis eru það auðvitað kommarnir, sem þar eru á ferð, í slagtogi við Sovétið. Friðarsóknin felst í því að reyna að koma í veg fyrir eflingu landvarna á Vesturlöndum. Hins vegar mega Rússar auðvitað fram- leiða vopn í erg og gríð, og gera innrásir, þar sem þeir telja sér henta. Fyrrnefnd friðarsókn tekur stundum á sig kynlegar myndir, eins og þegar rauðleitur frétta- maður útvarps tók að þráspyrja nýkjörinn biskup um afstöðu hans til friðarins, rétt eins og íslenzka kirkjan hefði staðið fyrir eilífðar ófriði? Þá tók og rauðleitur frétta- maður sjónvarps að spyrja Ólaf Jóhannesson utanríkisráðherra nú fyrir helgina um afstöðu hans til friðarins. Gaf ráðherrann þá glöggt til kynna, að friðarsókn Rússa væri sú ein, að Brésnéff hefði í blaðaviðtali látið nokkur orð falla um friðinn! „Aðþrengd- ur“, eins og ráðherrann komst að orði??? — Var þá sem stungið hefði verið á loftbelg hjá spyrj- anda, og var allur vindur úr honum samstundis. Ekki þurfti nú meira á þann fylgisvein Rússa á því kvöldi. II. Um áratuga skeið hafa kommar glaðzt mjög yfir því, ef fylgi krata hefur minnkað í kosningum í einhverju landi, og hafa jafnan talið þá fylgisrýrnun stafa af „svikum við Marxismann". í maí- mán. sl. gerðist það hins vegar, að franskir jafnaðarmenn unnu stór- sigur í kosningum. Þá brá Svavar Gestsson við og sendi Mitterrand heillaóskaskeyti. Fróðir menn staðhæfa raunar, að Frakkar hafi alls ekkert kannast við Svavar þennan, er skeytið barst. (Innan sviga má geta þess, að ósennilegt er mjög, að Mitterrand mundi nokkurn tímann hafa gert Svavar að „Húsamats“-ráðherra þar í landi) En Adam var ekki lengi í Paradís: Fljótt kom í ljós, að Mitterrand var harður fylgismað- ur vestrænnar samvinnu og mjög andstæður Rússum. Enda eru honum nú ekki vandaðar kveðj- urnar í þjóðviljanum, sbr. grein, er þar birtist um síðustu helgi, en í henni segir m.a., að Mitterrand sé ekki miklu róttækari en „Bene- dikt Gröndal og það fólk“, og nú er allt i einu farið að tala um „Sigur kratanna" (Ekki sósíalista)???? Þetta ber líklega að skilja svo, að Svavar hafi endurmetið afstöðu sína til Mitterrands, — e.t.v. án matskostnaðar frá hendi fyrrver- andi vinnuveitanda Gervasonis hins franska. Virðingarfyllst, með þökkum fyrir birtingu. Guðm. Guðmundsson Þessir hringdu . . . Hversvegna hafa öryrkjar ekki sömu fríðindi i ferðamálum og aldraðir? 1039—2438 hringdi. „Mig lang- ar til að vita hvers vegna öryrkjar hafa ekki sömu fríðindi í ferða- málum og ellilífeyrisþegar," sagði hún. „Mér finnst það dálítið skrít- ið að nú er langt liðið á þetta öryrkjaár, en þó hefur þessi spurning aldrei komið fram svo ég viti. Ég veit að ellilífeyrisþegar fá afslátt bæði í innanlandsflugi og með skipum, a.m.k. með Akra- borginni, og einnig með áætlana- bílum og strætisvögnum. Þá hafa nokkrar ferðaskrifstofur oft gefið gömlu fólki kost á ríflegum af- slætti t.d. á sólarlandaferðum. Hinsvegar hef ég aldrei heyrt um að öryrkjar fengju afslátt hjá þessum fyrirtækjum sem eru svona almennileg við gamla fólkið. Mér fyndist að nú á ári fatlaðra ætti að athuga hvort ekki væri rétt að slík fríðindi næði til þeirra líka. Ekki fæ ég séð að fatlaðir þurfi síður á slíkum afslætti að halda en ellilífeyrisþegar og finnst þessvegna að afslátturinn ætti að ná til fatlaðra líka.“ Hvenær verður Reykjanesbraut opnuð aftur? Kópavogsbúi hringdi og spurð- ist fyrir um hvenær gamli Hafn- arfjíirðarvegurinn (Reykjanes- braut) myndi komast í gagnið aftur. „Þessi vegur hefur nú verið lokaður um nokkurt skeið vegna einhverra framkvæmda og mynd- ast stundum ofboðslegt umferðar- öngþveiti þess vegna, það getur tekið á annan klukkutíma að komast í Kópavoginn á annatím- um,“ sagði hún. „Þess vegna lang- ar mig til að vita hvenær þessu verður komið í lag aftur.“ G3P SIG6A V/öGÁ í ^/LVt^AKl vtjp Góður matur — Gott verð £ Okkar Skráö verö verö Ávaxtasalat 100 gr. 6,00 Síldarsalat 100 gr. 5,30 Rækjusalat 100 gr. 6,50 ítalskt salat 100 gr. 6,50 - ítalskt salat 100 gr. 3,40 Lauksalat 100 gr. 3,40 Skinkusalat 100 gr. 6,80 Hrásalat kr. per kg. 3,20 Ódýra kindahakkið 29,90 41,40 Svínahakk 49,00 73,50 Nautahakk 55,50 81,35 Lambahakk 39,00 57,50 Saltkjötshakk 39,00 57,50 Úrvals saltkjöt 39,50 Nýreykt hangikjötslæri 59,40 Úrbeinuð hangikjötslæri 88,00 109,15 Úrvals hangikjötsframpartar 36,40 77,70 Úrbeinaðir hangikjötsframpartar 69,00 77,70 Frosin ýsuflök (sérvalin) kr. kg. 25,00 Nautagrillsteikur 39,50 51,50 Nauta Roast Beef 97,50 122,40 Nautaschnitzel 107,50 155,55 Nautagullasch 88,50 119,65 Nautainnanlæri 113,00 155,55 Nautahamborgari 4,70 7,00 T-Bonesteik 64,00 84,10 Nýr frosinn lax 80,00 (ath.: góður smálax, sneiddur) 65,80 Ódýra lambalifrin (Ath.: þetta er á hálfvirði.) 18,50 37,15 Svínaschnitzel, það bezta 89,00 121,00 Svínakótelettur 107,50 134,75

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.