Morgunblaðið - 11.09.1981, Page 12

Morgunblaðið - 11.09.1981, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 Dýralæknafélag Islands: Jón Guðbrandsson endm*kjörinn formaður DAGANA 21. og 22. ágúst var haldinn á Sauðárkróki aðalíund- ur Dýralæknafélags íslands. Fyrri daginn sátu dýralæknar á skúlabekk og hélt prófessor Sönnichsen frá Kaupmannahafn- arháskóla fyrirlestur um helti i hestum og sýndi bæði með mynd- Loðnuveiðin: Tveir á leið með afla TVÖ loðnuskip eru nú á leið til landsins með afla. Þau eru Helga Guðmundsdóttir með 650 tonn og Harpa með 600 tonn. Á miðvikudag fór Haf- rún af loðnumiðunum við Jan Mayen með 200 tonn, en hún hélt til Bolungarvíkur vegna bilunar. samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk hjá loðnunefnd í gær. Nú eru sex bátar á leið á loðnumiðin, en það eru Pétur Jónsson, Helga II, Örn, Gísli Árni, Keflvíkingur og Sæ- björg. Veiðin hefur gengið heldur treglega á miðunum við Jan Mayen að undanförnu, en nú eru þrjú skip þar við veiðar. Loðnuafli íslensku skipanna á þessari vertíð er nú um 40 þúsund tonn. um og verklega hvernig finna mætti út með staðdeyfingum og öðrum aðferðum hvar heltin ætti upptök sin. Seinni daginn var svo auk venjulegra aðalfundarstarfa hald- ið fræðsluerindi um svokallaða rafmagnsmeyrnun á kjöti, sem Sigurður Örn Hansson dýralæknir hélt, en hann starfar við kjötiðn- aðarstöð Sambandsins. Þessi aðferð hefur mjög víða verið tekin í notkun í helstu kjötframleiðslulöndum heims, svo sem Nýja Sjálandi og Ástralíu. I Svíþjóð er kjöt sem hefur fengið þessa meðferð selt með ábyrgð á að það sé meyrt. Gerð verður tilraun með þessa aðferð hér á landi á nokkrum stöðum í slátur- tíðinni í haust. Á fundinum var gerð grein fyrir könnun sem Hagvangur hf. hefur gert á kjörum dýralækna og kom þar fram að meðaltímakaup er svipað og hjá sveinum í húsgagna- smíði, og vinnuálag er mjög mikið í sumum héruðum auk mikils álags vegna stöðugra bakvakta. Þrír nýir dýralæknar bættust í félagið á fundinum og eru þá dýralæknar á íslandi orðnir 40, en auk þess eru 6 starfandi erlendis. Stjórn félagsins var endurkosin en hana skipa: Jón Guðbrandsson, Selfossi, formaður, Sigurður Örn Hansson Reykjavík, gjaldkeri, Halldór Runólfsson Kirkjub. klaustri, ritari. (Fréttatilkynninir.) Skólagerði 42 og 44, en eigendum þessara húsa var veitt viðurkenning fyrir fallegt og snyrtilegt umhverfi við sambýlishús. Fegrunarnefnd Kópavogs: Yeitt verðlaun og viðurkenningar FEGRUNARNEFND Kópavogs veitti verðlaun og viðurkenn- ingar fyrir fagra og snyrtilega garða i Kópavogi þ. 29. ágúst sl. Reynihvammur 40 var að þessu sinni valinn sem fegursti garðurinn í Kópavogi 1981. Eigendur hans eru hjónin Guð- rún Guðmundsdóttir og Kol- beinn Kolbeinsson. Fegrunarnefnd Kópavogs hef- ur á síðastliðnum árum veitt viðurkenningu fyrir fallegt og snyrtilegt umhverfi við sambýl- ishús. I ár varð fyrir valinu parhús að Skólagerði 42 og 44. Eigendur þess eru hjónin Alda Guðmundsdóttir og Jón Óskar Magnússon, Skólagerði 42 og hjónin Margrét Karlsdóttir og Magnús Magnússon, Skólagerði 44. Að venju hefur fegrunarnefnd Kópavogs veitt fyrirtæki eða stofnun viðurkenningu fyrir snyrtilegan frágang utanhúss. Þá viðurkenningu hlaut Rann- sóknarlögregla ríkisins, Auð- brekku 61. Athöfnin fór fram í Félags- heimili Kópavogs. / ÁRBÆJAR mw / + MARKAÐURINN Hittumst öll í Árbæjarmarkaðnum Heimsendingaþjónusta. Sími 71200. Nýkomið Einstakt rúm — 3 breiddir 90 cm — 105 cm — 120 cm. Úrvalið aldrei meira Hagstætt verð Opiö föstudag til kl. 8. Opiö laugardag kl. 9—12. Vörumarkaðurinn hf. sími 86112.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.