Morgunblaðið - 11.09.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981
Hrauneyjafossvirkjun
1 DAG leggur forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hornsteininn í nýja
stöðvarhúsið við Hrauneyjafossvirkjun við hátíðlega athöfn og dr. Jóhannes
Nordal. stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar-
ráðherra. flytja ávörp. Fyrsta vél verður svo gangsett 1. nóvember og sendir þá
rafmagn inn á iínuna gegn um Sigölduvirkjun. A þessari ioftmynd, sem ljósm.
blaðsins, Kristján, tók, sést hvar Tungnaá er stífluð og veitt í skurð hálfum öðrum
kílómetra ofan við Ilrauneyjafoss og vatnið leitt i kílómetralöngum aðskurði að
steyptu inntaksvirki. Þaðan liggja 3 stálpípur niður hlíðina að stöðvarhúsi, en
fallhæð er 88 m. Fráskurðurinn, sem vatnið rennur um frá hverflunum sést neðst,
en hann endar í Sporðöldukvísl og rennur áfram í Tungnaá.
Leituðu í 3 tíma
að vinnuvélunum
sínum í kófinu
Á FERÐ við Hrauneyjafossvirkj-
un í sl. viku hittum við Aðalstein
Hallgrímsson, verkfræðing hjá
verktakanum Hraunvirki hf., sem
hefur á hendi jarðvinnu, stíflur
og vatnsvegi á staðnum. Um 140
manns voru þar í vikunni við
vinnu hjá verktakanum, hafa
farið í 200. Hann sagði að verkin
hefðu gengið vel, aðeins tafist í
vor vegna þess að seinkun varð á
að veita Tungnaá framhjá. Frá-
rennslisskurðinn grófu Hraun-
virkismenn í vetur, sem hefur
sína kosti, að því er Aðalsteinn
sagði, því í frosti er friður fyrir
vatninu.
Vinna að vetri á hálendinu er
samt ekkert grín. Veður oft erfið.
Einn daginn lögðu Hraunvirkis-
menn af Stað úr mötuneyti sínu
kl. 7 að morgni, og fundu fyrstu
vinnuvéiina sína í hríðarkófinu
kl. 10. Þeir voru á jeppum að
þvælast um og leita í hríðinni.
Aðalsteinn viðurkenndi að
glæfralegt gæti verið að vinna úti
við slíkar aðstæður. I frosthörku
færi venjulega einhver á undan
til að setja vélarnar í gang, og svo
væri þeim haldið í gangi í matar-
og kaffitímum. En sumarið á
Islandi er stutt, aðeins hægt að
vinna við stíflufyllingar í 4 mán-
ihéi t"
I I .iHMf lA
Aðalsteinn Hallgrímsson
uði á hálendinu, þegar komið er
fram á haust verður að rífa upp
uppfyllingarefnið og þýða það. —
En erfiðara verður það við Aust-
urlandsvirkjun, sagði hann. Hún
er 200 metrum hærra í fjöllum og
upp undir jökli.
Við hittum Aðalstein í mötu-
neyti þeirra Hraunvirkismanna,
þar sem menn voru að ljúka
kaffitíma. Hann sagði að þarna
væri viss kjarni manna, sem
hefur unnið við virkjanir og
sækir á fjöllin. Sjálfur hafði hann
verið staðarverkfræðingur við
Mjólkárvirkjun og unnið við
framkvæmdir í Búrfelli og við
Valafell. Hvað dregur? — Ætli
Hjúkrunarkonur á hálendinu
Þessar stúlkur hittu fréttamenn Mbl. uppi á hálendinu við
Hrauneyjafossvirkjun. Þær heita Jórunn Sigurjónsdóttir og María
Ásgeirsdóttir og eru hjúkrunarkonur. Þarna upp frá vinna 550
manns og ýmislegt bjátar á. Engin stórslys þó, sem betur fer, þótt
oft hefði getað farið verr, sögðu þær. Þær hafa viðtalstíma. En í júní
leituðu menn til þeirra 227 sinnum, svo nóg er að gera. Önnur er
alltaf á vakt, ef eitthvað kemur fyrir. Og sjúkrabíll er til taks
staðnum, ef flytja þarf menn til læknis. Þá fara þær méð
sjúklingnum.
það sé ekki frekar þéttbýlið sem
hrindir frá, svaraði Aðalsteinn.
Maður verður þreyttur á að sitja
á rassinum í bænum, og vill
komst í verkefni, sem er dálítið
ögrandi. Virkjanir eru spennandi
verkefni. Og svo sér maður mikið
eftir sig. Nú og svo losnar maður
frá þessu — og það er líka gaman.
Þarna er unnið nótt og dag.
Næturvaktafólkið er þarna farið
að spila billiard i skálanum, og
þar eru fullkomin upptökutæki,
svo hægt er að taka sjónvarpsefn-
ið upp á myndsegulband að kvöld-
inu og sýna næturvaktinni á
daginn. Og einnig myndir meðan
sjónvarp er í fríi. E.Pá.
Hér myndast
góður
íélagsskapur
Örn Björnsson, járnsmiður, var
að vinna í stöðvarhúsinu við
frágang á aflvélunum, þegar
fréttamenn Mbl. komu að Hraun-
eyjafossi. Hann er hjá Rafafl,
sem er undirverktaki frá ASEA.
Örn er einn af þeim mönnum,
sem mikið hafa unnið við virkj-
unarframkvæmdir á hálendinu,
var í 4 ár við Sigöldu og einnig
eitt sumar við Búrfellsvirkjun.
— Hér er þægilegt að vera,
sagði hann. Það er vel búið að
manni. Sami mannskapur vinnur
gjarnan á þessum stöðum. Menn
kynnast og myndast góður félags-
skapur. Aðbúnaður starfsfólks
lagast með hverri virkjunar-
framkvæmd. Hvað við gerum
eftir vinnu? Sjónvarp sést vel,
maður spilar og kvikmyndir eru
sýndar tvisvar sinnum í viku.