Morgunblaðið - 11.09.1981, Síða 30

Morgunblaðið - 11.09.1981, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981 • Júdómaðurinn snjalli Bjarni Friðriksson stóð sig mjög vel á heimsmeistaramótinu i Holiandi og vakti verðuga athygli fyrir frammistöðu sina. • Liði Teits bórðarsonar, Lens, hefur gengið afar illa i frönsku deildarkeppninni í knattspyrnu. Er liðið í neðsta sætinu með aðeins 3 stig. Hér má sjá Teit, þriðja frá vinstri, veifa til áhorfenda. Ljósm. Mbl. Skapti HallKrimKNon. - Lens, iið Teits Þórðarsonar í neðsta sæti HEIMSMEISTARAMÓTINU í júdó lauk um siðustu helgi í Maastricht í Hollandi. en það fór fram dagana 3.-6. þ.m. Fimm islenskir júdómenn tóku þátt i mótinu, og voru þeir i eldlinunni alla daga keppninnar. Bestum árangri íslensku kepp- endanna náði Bjarni Friðriksson, en hann keppti bæði í -95 kg. þyngdarflokki og í opnum flokki og stóð sig frábærlega vel á báðum stöðum. I -95 kg.-flokknum keppti hann fyrst við ólympíumeistarann van de Walle frá Belgíu og tapaði að vonum, en í næstu umferð vann hann keppanda frá Kýpur á ippon (10 stig) eftir örstutta viðureign. Þar næst keppti Bjarni við Evr- ópumeistarann Vachon frá Frakk- landi. Það var jöfn viðureign sem Frakkinn vann með aðeins 3ja stiga mun og hann náði síðan þriðja sæti í keppninni. Van de Walle varð að láta sér nægja silfurverðlaunin vegna refsistiga sem hann hlaut í úrslitakeppninni við Rússann Khubuluri, en Belgíu- maðurinn var tvímælalaust besti maðurinn í þessum þyngdarflokki. Arangur Bjarna nægði til sjöunda sætis í þessum þyngdarflokki, og verður það að teljast mjög góður árangur. Bjarni keppti líka í opna flokkn- um. í fyrstu umferð sigraði hann italska þungavigtaranna Beccases mjög glæsilega á wasari (7 stig) eftir kraftmikla sókn. í annarri umferð tapaði hann svo fyrir Hollendingnum Wilhelm, fyrst og fremst vegna óvarkárni því að Hollendingurinn virtist ekki nærri eins sterkur og ítalinn. Óhætt er að fullyrða að frammi- staða Bjarna og framganga öll vakti veröuga athygli á Islandi og íslenskum íþróttum á þessu heimsmeistaramóti. Kolbeinn Gíslason keppti í Þungavigt og mætti í fyrstu um- ferð sjálfum heimsmeistaranum Yamashita frá Japan og þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Kolbeinn komst aftur inn í keppn- ina um þriðja sætið eins og Bjarni, þar sem hann hafði tapað fyrir úrslitamanni. Þá keppti hann við Salonen frá Finnlandi. Finninn vann með 3 stigum eftir jafna viðureign, og náði síðan í brons- verðlaunin, fyrstur Norðurlanda- manna á slíku móti. Viðar Guðjohnsen keppti í -86 kg.-flokki og tapaði með 5 stigum fyrir Carcia frá Spáni. Viðar hefði átt að geta unnið þessa viðureign, en hann hafði orðið að létta sig mikið fyrir keppnina og virtist ekki búa yfir venjulegum krafti sínum. Níels Hermannsson barðist rösklega við Júsóslavann Fabíjan og tapaði með 7 stigum í -78 kg. fl. Halldór Guðbjörnsson vann Kouyalis frá Kýpur í fyrstu um- ferð á ippon eftir stutta viðureign, en tapaði fyrir Tambour frá Belgíu í annarri umferð. A mótinu voru keppendur frá 57 löndum og dreifðust verðlaunun nokkuð meira en oft áður, a.m.k. ekki eingöngu til Japana, Rússa og Austur-Þjóðverja eins og síðast. Miðað við aðrar smærri þjóðir Heimsmeistaramótiö í júdó: BORDEAUX, andstæðingar Vík- ings í UEFA-keppninni, eru nú í efsta sæti í 1. deild í Frakklandi eftir 12 umferðir en Lens, liðið hans Teits Þórðarsonar er i neðsta sæti. Laval, lið Karls Þórðarsonar hefur komið mjög á óvart og er í fimmta sæti. í síðasta leik sinum lék Bordeaux við Lille i Bordeaux og jafntefli varð. 1 — 1. Lille lék mikinn varnarleik í Bordeaux, hafði að- eins einn framherja, fjóra á miðjunni og fimm i öftustu vörn. Bordeaux gekk illa að ráða við þennan mikla varnarvegg en fór jafnframt illa með tækifæri sin. Júgóslavneski landsliðsmark- vörðurinn Dragan Pantelic fór illa að ráði sínu þegar hann misnotaði vítaspyrnu í síðari hálfleik því skömmu síðar náði Lille skyndi- sókn og skoraði. En Rene Girard jafnaði metin með þrumuskoti af 25 metra færi. Aðeins einn leikmaður Bor- deaux lék með franska landsliðinu í Brússel gegn Belgum, Alain Giresse, fyrirliði Bordeaux. Þeir Tresor, Tigana, skærasta stjarnan í frönskum fótbolta nú, Soler og Lacombe eiga allir við meiðsli að stríða en fastlega er reiknað með að þeir hafi náð sér þegar Bor- deaux leikur við Bastia á Korsíku um helgina. Staðan í 1. deild í Frakklandi er nú: Bordeaux 8 4 4 0 14-7 12 Lyon 8 6 0 2 12-6 12 Souxhaux 8 4 3 1 11-8 11 Lille 8 4 2 2 13-10 10 Laval 8 4 2 2 12-10 10 Mónakó 8 4 1 3 19-13 9 Nancy 8 3 3 2 11-10 9 St. Germain 8 3 3 2 12-11 9 Bastia 8 3 3 2 13-13 9 Nantes 8 3 2 3 10-19 8 Valencie. 8 3 1 4 11-9 7 - Bjarni Friðriksson vakti verðuga athygli megi íslendingar vel una við frammistöðu sinna manna. Af Norðurlandaþjóðunum náðu að- eins Finnar betri árangri. Úrslit í einstökum flokkum urðu sem hér segir: +95 kg. 1. Yamashita, Japan 2. Veritchev, Sovét 3. Kocman, Tékkósl. Salonen, Finnl. -95 kg. 1 Khubuluri, Sovét 2. V.d. Walle, Belgíu 3. Kocman, Tékkósl. Salonen, Finnl. -86 kg. 1. Tchoulloyan, Frakkl. 2. Nose, Japan 3. Ultsch, A-Þýskal. Bodaveli, Sovétr. -78 kg. 1. Adams, Bretlandi 2. Kase, Japan 3. Petrof, Búlgaríu Doherty, Kanada -71 kg. 1. Park, Kóreu 2. Dyot, Frakkl. 3. Vujevic, Júgósl. Lehmann, A-Þýskal. -65 kg. 1. Kashiwasaki, Japan 2. Nicolae, Rúmeníu 3. Ponomarev, Sovét Hwang, Kóreu -60 kg. 1. Moriwaki, Japan 2. Petrikov, Tékkósl. 3. Mariani, Ítalíu Kimces, Ungv. Opinn flokkur 1. Yamashita, Japan 2. Reszko, Póllandi 3. Van de Walle, Belgíu Ozsvar, Ungv. Brest 7 1 5 1 9-10 7 Strassbourg 8 3 14 8-10 7 Tours 8 3 14 8-10 7 St. Etienne 6 2 2 2 8-6 6 Metz 8 0 6 2 4-7 6 Montpellier 8 13 4 6-9 5 Auxerre 7 13 3 7-13 5 Nice 8 12 5 6-14 4 Lens 8 116 6-14 3 Kæru IA hafnað DÓMSTÓLL Knattspyrnu- ráðs Reykjavikur hafnaði kæru ÍA vegna leiks KR og ÍA í íslandsmótinu I knattspyrnu. Skagamenn töldu að lið KR hefði leikið með ólöglegan leikmann. • Rene Girard skoraði jöfnun- armark Bordeaux gegn Lille. iirnHiwiirvjKi iiirmiira Bordeaux efst í Frakklandi íslensku judómennirnir stóðu sig mjög vel I.jÓHm. Mbl. Þórarinn R.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.