Morgunblaðið - 11.09.1981, Page 32
Valur
Aston Villa
eftir 19 daga
5 krónur
eintakið
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981
Noróanáttin mun halda áfram að gera landsmönnum lífið leitt i dag. Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk hjá Braga Jónssyni, veðurfræðingi, verður norðanátt um allt land, þó svolítið
austanstæð austanlands. Rigning verður á Norður- oe Austurlandi. skýjað með köflum á Suður- og
Vesturlandi og hætt við rigningu, en heldur mun hitastig hækka. Það sem þessu veidur er djúp lægð
sem nálgast nú landið suðaustanvert. Ljósmynd Mbi. Ól.K.M.
HORFUR með kartöfluuppskeru á Svaibarðsströnd eru mjög slæmar,
samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Guðmundi
Þórissyni kartöflubónda að Hléskógum. Sagði Guðmundur að sýnt
væri að uppskeran á þessu svæði yrði ekki næg tii að sinna þörfum
kartöfluverksmiðju kaupfélagsins á Svalbarðseyri og eðlilegri neyslu
á svæðinu.
Taldi Guðmundur líklegt að I kartöflur frá Þykkvabæ, eða jafn-
gripið yrði til þess að flytja | vel erlendis frá, til þess að unnt
yrði að sinna hráefnisþörf verk-
smiðjunnar. Sagðist Guðmundur
telja að kartöfluuppskeran yrði
allt að þriðjungi minni í ár en var
í fyrra og aðalástæðan væri
óhagstætt veðurfar. Grös féllu
víða snemma og júlímánuður var
mjög kaldur, en þó sagði Guð-
mundur góða uppskeru á einstaka
stað. Hann sagðist ætla, að upp-
skeran yrði að líkindum þriðjungi
minni en í fyrra, en þá var
heildaruppskera um 2000 tonn.
Lárus til
Fortuna
Diisseldorf
Kartöflur fluttar
úr Þykkvabænum á
Svalbarðsströnd?
Flugleiðir:
Hreinn Gunnlaugsson, verk-
stjóri í kartöfluverksmiðju kaup-
félagsins á Svalbarðseyri, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að ef kartöflur yrðu ekki til á
landinu, gerðu þeir ráð fyrir því að
fá að flytja inn kartöflur.
Forsenda breiðþotukaupa er áfram-
haldandi stuðningur ríkisvaldsins
2,3 millj. kr. gengistap á sl. átta mánuðum
„BREIÐÞOTUMÁLIN voru rædd á stjórnarfundinum
og skýrsla starfsmanna um möguleikana og tillögur þar
að lútandi, en skýrslan verður nú send Steingrími
Hermannssyni samgönguráðherra samkvæmt beiðni
hans til athugunar,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða í samtali við Mbl. í gær en í blaðinu í gær var
greint frá því að Flugleiðamenn teldu hagstæðast fyrir
félagið að hefja breiðþoturekstur með annað hvort
DC-10 eða Boeing 747.
Landsliðsmiðherjinn Lárus
Guðmondsson i Víkingi hefur
fengið boð um að fara til
vestur-þýzka knattspyrnufé-
lagsins Fortuna Dusseldorf,
sem leikur i 1. deild þar í landi.
Lárus mun stunda æfingar hjá
félaginu og eru miklar likur
taldar á þvi að félagið bjé»ði
honum samning til tveggja ára.
Hér á landi er staddur þýzkur
umboðsmaður að nafni Reinke
og hefur hann rætt við Lárus.
Hann var einnig á landsleik
Isiendinga og Dana í Kaup-
mannahöfn á dögunum ásamt
forseta Fortuna Diisseldorf til að
fylgjast með Lárusi.
Lárus sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að hann myndi að
öllum líkindum fara til Diissel-
dorf eftir Evrópuleik Víkings og
Bordeaux í Frakklandi 30. sept-
ember. Lárus vildi lítið ræða
málið frekar á jæssu stigi. Vitað
er að hann er spenntur fyrir
atvinnumennsku í knattspyrnu
og ef þýzka liðið gerir honum
gott tilboð er líklegt að hann slái
til og gerist leikmaður í þýzku
deildarkeppninni.
Aðspurður um ákvörðun
í þessum efnum sagði Sig-
urður augljóst að um halla-
rekstur yrði að ræða áfram
hjá félaginu eins og mál
stæðu," en forsenda þess að
félagið hefji rekstur breið-
þotu er einhvers konar
áframhaldandi stuðningur
ríkisvaldsins við Flugleið-
ir,“ hélt Sigurður áfram,
„og þá fyrst er hægt að
meta það hvaða tegund er
hentugust af þeim tveimur
sem við teljum helzt koma
til greina. Það er mikið
framboð af breiðþotum og
hægt að gera hvers konar
samninga í þeim efnum
með stuttum fyrirvara."
Stefnt er að rekstri breið-
þotu næsta vor.
í frétt frá Flugleiðum
sem birtist á miðopnu í dag
segir, að sá mikli vandi,
LÍFSHLAUP Kjarvals stend-
ur nú almenningi til sýnis á
Kjarvalsstöðum. Guðmundur
sem stærstu útflutningsað-
ilar landsins til Vestur-
Evrópu standa frammi
fyrir, vegna styrkrar stöðu
dollarans, sé einnig mjög
alvarlegur hjá Flugleiðum
og á sl. átta mánuðum hafi
gengistap Flugleiða numið
2,3 millj. kr. (2300 millj.
gkr.), eða 2,9 millj. dollara.
I Axelsson í Klausturhólum,
sem keypti Lífshlaupið á sín-
I um tíma og lét gera við það
og stendur nú fyrir sýning-
unni á Kjarvalsstöðum, segir
það alveg óráðið hvort eða
hverjum það verði selt, og
engir hafi enn falað það til
kaups.
Að sögn Davíðs Oddssonar
hefur borgarstjóra nú verið
falið að ræða óformlega við
Guðmund um verkið og fram-
tíð þess. Innan stjórnar Kjar-
valsstaða mun ekki hafa kom-
ið til umræðu nú að kaupa
verkið, en á sínum tíma þegar
verkið var enn í Austurstræti,
var það rætt nokkuð.
Lifshlaup Kjarvals er nú til sýnis
að Kjarvalsstöðum.
Júlíus Thorarensen formaður Starfsmannafélags SlS-verksmiðja:
Ogeðfelld ummæli ráðherra sýna svo
sannarlega hug sumra stjómmálamanna
„Veit ekki hvað hann meinar, skil ekki hans sjónarmið,“ — segir Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju
„ÉG VARÐ mjög undrandi á
þessum ummælum menntamála-
ráðherra en þau sýna svo sann-
arlega hug sumra stjórnmála-
manna og hvernig þeir bregð-
ast við, þegar fólki finnst nóg
komið og það leyfir sér þau
óskóp að standa upp og and-
mæla. Ef hann ætlar að halda
uppi slikum málflutningi þá
a-tti hann fyrst að leita álits
sinna umbjoðenda. Við höfum
ekki áhuga á slíkum ummælum.
sem hann hafði um fundinn í
Félagsborg. Okkur finnst þau
ógeðfelld.“ sagði Júlíus Thorar-
ensen formaður Starfsmannafé-
lags starfsmanna SÍS-verk-
smiðjanna á Akureyri, i viðtali
við Mbl. í gær í tilefni af
ummælum Ingvars Gislasonar i
landsmálahlaðinu Degi nú i
vikunni. „Ég veit ekki hvað
hann meinar og skil ekki hans
sjónarmið,“ sagði Kristín
Hjálmarsdóttir formaður Iðju á
Akureyri af sama tilefni.
Júlíus sagði einnig: „Ef
menntamálaráðherra telur þetta
eðlilegt ástand fyrir fullfríska
menn og konur, sem hafa um
árabil starfað í þessum greinum
og þar með lagt sitt af mörkum
til eflingar íslenzkum iðnaði, þá
er það hans mál. í tilefni af
ummælura hans um að þessi
fundur hafi verið til þess að
veikja trúna á íslenzkum iðnaði
þá má hann vita það, að við
teljum það ástand sem ríkir í
iðnaði í dag óeðlilegt. Við teljum
að allt sem bendir á minnkandi
atvinnu, — allt sem bendir á
afturför sé óeðlilegt framgangi
og velferð þjóðarinnar. Þess
vegna viljum við að allir viti það
og vekjum athygli á því að við
tókum þátt í þessum fundi vegna
þess að við trúum á íslenzkan
iðnað og ætlum að gera það
áfram. — Hvað svo sem hann
segir.“
Sjá frétt á miðopnu.
Kaupir Reykjavíkurborg
Lífshlaup Kjarvals?