Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 15

Morgunblaðið - 13.09.1981, Page 15
Víkingur 15 Helgi Helgason: UNDANFARIN ár hefur verið Kott samhand milli Víkinxs og Völsungs á Iiúsavík. Ungt fólk frá Ilúsavík. sem sótt hefur nám hingað til Reykjavíkur hefur gjarnan fylkt sér undir merki Víkings með góðum árangri. Bræðurnir Helgi og Hafþór Helgasynir frá Grafarbakka á Húsavík eru í þessum hópi, báðir meistaraflokksmenn i knatt- spyrnu eins og flestir vita. Og suður til Reykjavíkur og komst að hjá Sláturfélagi Suðurlands. Það var ekki erfitt fyrir mig að velja Víking, ég þekkti nokkra stráka í liðinu og einn mjög vel, Arnór Guðjohnsen, en hann er líka frá Húsavík. Hvernig hefur þér líkað dvölin? — Mjög vel, ég hef verið mjög ánægður hjá félaginu. Það er sérlega góður andi ríkjandi innan þriðji bróðirinn, Aðalsteinn, hef- ur unnið mjög mikið og gott starf innan knattspyrnudeiidarinnar. Foreldrar þeirra bræðra eru Jó- hanna Aðalsteinsdóttir og Helgi Bjarnason, gagnmerk hjón. Mik- ill íþróttaáhugi hefur alla tið verið á heimilinu og foreldrarnir eru tryggir fylgjendur Víkings. Þess má geta i leiðinni, að unnusta Ilelga, Anna Garðars- dóttir, sem einnig er frá Húsavik, keppir i hlakinu hjá Vikingi og varð íslandsmeistari sl. vetur, en uppistaðan i blakliði Vikings eru einmitt stúlkur úr Völsungi. — Eg gekk í Víking í ársbyrjun 1978 og spilaði mína fyrstu leiki með meistaraflokki þá um sumar- ið, sagði Helgi í stuttu spjalli. Ég var ákveðinn í því að verða kjötiðnaðarmaður og þess vegna kom ég suður. Reyndar gat ég lært iðnina heima á Húsavík en mig langaði til að breyta til. Því fór ég meistaraflokksins og rússnesku þjálfararnir tveir, Youri Ilitschev og Youri Sedov, hafa verið frábær- ir. Nú ert þú í nýrri stöðu í liðinu, miðvarðarstöðunni, eru viðbrigðin ekki mikil? — Jú þau eru að sjálfsögðu mjög mikil. Ég hef alltaf spilað stöðu tengiliðs, ef undan er skilið hálft ár með Völsungi, en þá var ég líka miðvörður. I vor kom upp vandamál hjá okkur, það vantaði skyndilega miðvörð og Youri bað mig að fara í stöðuna, sem ég gerði. Mesti munurinn er sá að í miðvarðarstöðunni eru minni hlaup en meira stress, maður getur ekki tekið jafn mikla áhættu og maður gerði stundum áður. Nú, svo má ekki gleyma því að maður fær sárasjaldan að fara upp i vitateig andstæðinganna og það þykir mér slæmt því mér finnst gaman að skora mörk. Það er allt í lagi að spila í vörninni en tengilið- arstaðan finnst mér þó meira spennandi. Hefur ekki álagið verið mikið á liðinu í sumar? — Jú, alveg gríðarlegt, við er- um búnir að vera í toppbaráttunni frá upphafi mótsins og það hefur tekið mikið á taugarnar. Við höfum fengið mörg tækifæri til að tryggja okkur sigur en taugarnar hafa brostið of oft. Þarna spilar reynsluleysi inní að mínu mati. Nú er Evrópuleikur framundan, sá fyrsti sem þú spilar. Hvernig líst þér á? — Það verður mjög spennandi að spreyta sig í Evrópukeppninni, sérstaklega vegna þess að við mætum svo sterku liði. En við erum ákveðnir í að standa okkur vel. Það þarf líka að afsanna þá kenningu að 1. deildin hjá okkur sé miklu lélegri núna en hún hefur verið undanfarin ár. Hún er að mínu mati síst lakari, aðeins jafnari og bilið milli 1. og 2. Bræðurnir Hafþór (tv.) og Helgi Helgasynir. deildar hefur minnkað. Það sést á leikjunum í bikarkeppninni í sumar, þegar 2. deildarliðin komu hvað eftir annað á óvart og unnu lið úr 1. deild. Og að lokum Helgi, nú ert þú að ljúka kjötiðnaðarnáminu. Hvað tekur nú við? — Ég hef fullan hug á því að starfa áfram í Reykjavík og spila riieð Víkingi. Ég kann vel við mig hjá félaginu og tel að ég geti náð enn lengra sem knattspyrnumað- ur undir stjórn Youri Sedov. Það er því engin ástæða til að breyta til núna. 'S7 # Kjötbúð Vesturbæjar, Bræðraborgarstíg 43, sími 14879. RAFMOTORAR frá 0.18 kW .. 315 kW. STRENGIR OG VÍR . . Skipsstrengir f mikiu úrvali. ROFABUNAÐUR t. d. allar stærdir af spólurofum. IÐNAÐARKLÆR OG TENGLAR RAFMAGNSMÆLAR fjölbreytt úrval. Umboðsaðilar: •^Í/*KiNG HF. m Sundaborg Síml: 84000 - nay<i|aWk „í lagi að spila í vörn en tengiliðarstaðan er meira spennandi“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.