Morgunblaðið - 18.09.1981, Page 17

Morgunblaðið - 18.09.1981, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 17 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 5 kr. eintakiö. Skattar, bílar og vegir Forráðamenn Bílgreinasambandsins gripu til athyglisverðrar aðferð- ar á miðvikudaginn til að vekja athygli manna á því, hve ríkishítin seilist djúpt í vasa bifreiðaeigenda og þeirra, sem kaupa bifreiðar. 56% af því verði, sem menn greiða fyrir nýjan bíl, renna í ríkishítina. 56,06% af verði hvers bensínlítra renna í ríkishítina. Þessi þunga skattbyrði var í upphafi réttlætt með því, að fjármunirnir myndu renna til endurbóta á vegakerfinu. Nú er svo komið, að af 73.559 milljónum króna, sem ríkishítin hirðir af bifreiðaeigendum í einni eða annarri mynd renna 25.242 milljónir króna til vegamála, eða 34,3% af tekjunum. Þegar litið er á skattbyrðina annars vegar og ömurlegt vegakerfi landsins hins vegar, hljóta menn að spyrja: Hvers vegna taka þingmenn ekki á sig rögg og láta af stórhug tii skarar skríða í vegamálum? Er rúmlega 65% rýrnun á bifreiðatekjum ríkissjóðs dæmigerð um meðferð fjármuna, þegar þeir renna inn og út úr ríkishítinni? Eða er markvisst verið að innheimta bifreiðatekjurnar á fölskum forsendum? Framfarir í vegamálum eru óskadraumur manna í öllum byggðum landsins. Þær eru í raun skynsamlegasti þáttur byggðastefnu, sem allir sameinast um. í kosningaslagnum og á milli kosninga er lagt að stjórnmálamönnum að gera umtalsvert átak í vegamálum, nota bifreiðatekjurnar í þágu nútíma vegagerðar en lækka þær ella. Sjálfstæðismenn hafa á Alþingi lagt fram áætlun um að leggja varanlegt slitlag á alla helstu vegi landsins á nokkrum árum. Slíkt átak er ekki meira á landsvísu, en þegar ráðist var í að malbika götur í Reykjavík á sjöunda áratugnum. Eins og Þórir Jónsson formaður Bílgreinasambandsins benti á, þá yrði ekki amast við hárri skattheimtu á bifreiðar, ef þess sæjust skýr merki, að fjármununum væri varið til framkvæmda við vega- og umferðarmál. Við erum vanþróuð þjóð í vegamálum, raunar sýnast sumir þingmenn líta á útgjöld til vegamála sem einskonar þróunaraðstoð við kjördæmi sitt eða byggðarlag. Þessi hugsunarháttur verður að breytast. Nú í haust lýkur framkvæmdum við Hrauneyjafossvirkjun, ráðleysi stjórnvalda í orkumálum hefur leitt til þess, að þá missa hundruð vinnufúsra manna, jafnt verkamenn sem verkfræðingar, atvinnuna við þau störf, sem þeir hafa fyllilega á valdi sínu. Þá verður stórvirkustu vinnuvélum landsmanna ef til vill lagt og steypustöð lokað. Hvernig væri að veita þessu prýðilega vinnuafli tækifæri til að takast á við vegagerð, þar til ráðist verður í næstu stórvirkjun? Aðstoðarmenn og smápeningar Næsta einkennilegar yfirlýsingar hafa verið gefnar undanfarna daga af aðstoðarmönnum forsætisráðherra og fjármálaráðherra um efni fjárlagafrumvarps næsta árs. Jón Ormur Haíldórsson aðstoðarmaður forsætisráðherra reið á vaðið hér í blaðinu á þriðjudag og sagði að fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1982 gerði ráð fyrir skattalækkunum í tengslum við komandi kjarasamninga, ákveðin upphæð yrði sett til hliðar í frumvarpinu til að lækka skatta. Hann vildi engar fjárhæðir nefna og talaði rósamál. Húskarl fjármálaráðherra, Þröstur Olafsson, sem sumir segja raunar, að fari með stjórnina yfir ríkiskassanum, staðfestir að ríkisstjórnin hyggist hafa fjárhæð í frumvarpi sínu til fjárlaga til að stunda efnahagskúnstir svo sem eins og niðurgreiðslur eða eitthvað annað. „Það er ekki búið að ákveða neitt nema að eiga þarna smápening til að geta brugðist við, ef þarf, þegar þar að kemur," sagði Þröstur Ólafsson. Jafnt ráðherrar og opinberir starfsmenn hafa verið taldir bundnir þagnareiði um efni væntanlegs fjárlagafrumvarps, sé þessi eiður rofinn, hlýtur það að teljast til hinna mestu tíðinda. Hvers vegna eru aðstoðarmenn forsætisráðherra og fjármálaráðherra tilbúnir að ræða í blöðum um „smápeninga" til skattalækkana í tengslum við komandi kjarasamninga, áður en fjárlagafrumvarpið hefur verið prentað? Stafar þetta af klaufaskap og reynsluleysi eða af viðleitni til að skapa ríkisstjórninni vinsemd innan verkalýðshreyfingarinnar? Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands segist ekkert vita um þetta mál nema það, sem hann hafi séð í blöðum. Hins vegar er forseti ASÍ eins og áður tilbúinn til að rétta ríkisstjórninni hjálparhönd. Hann segir: „Ég tek það þannig, að það eigi að verja því (smápeningunum innsk. Mbl.) í samráði við verkalýðssamtökin." Þetta skyldu þó ekki vera 30 smápeningar? Endar Austur- bergs þrengdir? „UMFERÐARRÁÐ hefur lagt til við borgarráð að upphækk- aðar gangbrautir og þreng- ingar svipaðar þeim og eru við enda Vesturbergs verði komið fyrir við báða enda Austur- bergs,“ sagði Guttormur Þormar verkfræðingur hjá umferðardeild Reykjavíkur- borgar þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Að undanfornu hefur verið nokk- ur kurr i íbúum við Austur- berg sokum hins mikla hraða sem ökumenn aka á eftir Austurbergi, sérstaklcga á þetta við um morgnana en þá kemur fjöldi unglinga akandi til náms í Fjölhrautaskólan- um. á sama tíma og börn við Austurberg þurfa að komast yfir götuna á leið til síns skóla. og tvö börn hafa með skömmu millihili lent fyrir bílum á Austurbergi. Engar gangstéttir eru enn sem komið er við Austurberg, en að sögn Ólafs Guðmunds- sonar hjá gatnamálastjóra þá á gangstéttin að koma að vestan- verðu við götuna. Var beðið eftir því að lokið yrði við að malbika bílastæði við Fjöl- brautaskólann og er því nýlok- ið. Kvað Ólafur að næst yrði hafist handa við að steypa kanta við götuna og ef vélar og bílar fengjust, þá ætti að ljúka við sjálfa gangstéttina í haust. Guttormur Þormar sagði að auk þess sem Umferðarráð hefði lagt til að komið yrði fyrir þrengingum og upphækk- uðum gangbrautum við götuna, bessir ungu drengir, sem allir eiga heima við Austurberg, hafa enga gangstétt til að ganga á. Búið var að leggja gangbraut austanmegin við götuna en af einhverjum ástæðum var tyrft en ekki malbikaö yfir, þannig að það er erfitt yfirferðar með hjól og vagna. Eins og sjá má er engin gangstétt komin vestan við götuna. Ljósm. Mbl. RAX. þá væri einnig lagt til að Austurberg fengi aðalbrautar- rétt gagnvart Hraunbergi og því væri enn meir áríðandi að koma fyrir þrengingum á þess- ari miklu umferðargötu. Ágúst Pétursson oddviti á Patreksfirði: Töluvert alvarlegt ástand framundan í atvinnumálum Hugur í fólki að rekstri Skjaldar verði haldið áfram „Það er óhætt að segja að eins og málin standa i dag þá er töluvert alvarlegt ástand fram- undan vegna atvinnumála al- mennt. Það hlýtur að hafa áhrif þegar eitt stærsta atvinnufyrir- tæki staðarins hættir starfsemi sinni. Við fjöllum um þetta i sveitarstjórn i dag, en ég reikna með að þar verði lítið annað hægt að gera á þessu stigi en kjósa fulltrúa sveitarstjórnar i sér- staka nefnd sem starfsfólk Skjaldar og Verkalýðsfélagið á staðnum hafa staðið fyrir að skipa, en sú nefnd og sveitar- stjórn munu siðan fjalla áfram um þetta alvarlega mál,“ sagði Ágúst Pétursson oddviti á Pat- reksfirði og skrifstofustjóri llraðfrystihússins Skjaldar. Skjöldur hefur þegar sagt upp öllu starfsfólki sinu og verður fyrirtækinu lokað fljótlega. ef Bréf Jafnréttisráðs til útvarpsstjóra: Auglýsing innheimtudeild- ar verði ekki sýnd framar JAFNRÉTTISRÁÐ hefur ritað útvarpsstjóra bréf, þar sem m.a. er farið fram á, að hætt verði sýningu auglýsingar um vangreidd afnotagjöld ríkisútvarpsins, sem ráðið telur brjóta í bága við jafnréttislög. í bréfi sínu segir Jafnréttisráð reyna að vera karlmaður.' m.a.: „Auglýsingar þessar hafa vakið athygli fyrir fádæma ósmekklega framsetningu, þar sem ekkert samræmi virðist vera milli myndar og texta. I umrædd- um auglýsingum er karlmaðurinn sýndur, eins og hönnuður auglýs- ingarinnar kemst að orði í blaða- viðtali: .. .„sem nokkurs konar fulltrúi stofnunar, fastur og stöð- ugur, virðulegur, eins og stofnun- in.“ Um konurnar segir hönnuður- inn: „Stúlkurnar sveigja sig og beygja til að mýkja formið og réttlæta þennan stirða texta." Ennfremur segir hún: „Konan á að þora að vera kona. Eg tala um karlmann sem stólpa, aðalaflið í þjóðfélaginu og konan er vafn- ingsviðurinn, hún á að standa honum við hlið. Hún á ekki að Það er því augljóst, að hér er verið að túlka úreltar hugmyndir um stöðu karla og kvenna í þjóðfélaginu." Þá segir: „Stjórnvöldum og opinberum stofnunum ber því skylda til að stuðla að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla og er athyglisvert, að ástæða þótti til að setja sérstakt ákvæði sem bannar mismunun kynjanna í auglýsing- um. Jafnréttisráð telur að í marg- nefndum auglýsingum hafi ákvæða jafnréttislaganna ekki verið gætt. Ráðið fer því þess á leit við Ríkisútvarpið, að það hætti sýningum á umræddum auglýs- ingum og taki ekki til sýningar þær auglýsingar frá innheimtu- deild Ríkisútvarpsins, sem eru svipaðrar gerðar." Spi urt t & svara< s Geir HaUgrímsson svarar spurningum lesenda um stjórnmálaviðhorfið Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstunni svara spurningum lesenda Morgunblaðsins um stjórnmálaviðhorfið. Þeir sem óska að bera fram spurningar við Geir Hallgrimsson eru beðnir um að hringja i sima 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og verða þá spurningar teknar niður. Einnig er hægt að senda þær skriflega til ritstjórnar Morgunblaðsins. óskaö er eftir að spurningar séu bornar fram undir fullu nafni. Magnús Erlendsson 6253 - 2017: , í Morgunblaðinu 12. sept. skrifar einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins grein, þar sem hann segir meðal annars, að á flokksráðsfundi í Sjálfsta'ðis- flokknum eftir að Gunnar Thor- oddsen myndaði núverandi vinstristjórn, hafi sami Gunnar réttlætt gerðir sínar með cftir- farandi ummælum: „meirihluti þingflokks er bundinn af sam- þykktum flokksráðs en minni- hlutinn ekki“. Hver er skoðun Geirs llall- grimssonar á þessum furðulegu ummælum lagaprófcssorsins Gunnars Thorddsens? SVAR: í skipulagsreglum Sjálfstæðis- flokksins segir svo í 10. gr.: „Flokksráð markar stjórn- málastefnu flokksins, ef ekki liggja fyrir ákvarðanir lands- fundar. Ekki má taka ákvörðun um afstoðu flokksins til annarra stjórnmálaflokka nema með samþykki flokksráðs.“ Ofangreindu ákvæði hefur ávallt verið fylgt með þeim hætti, að skylt er að leita samþykkis flokksráðs þegar Sjálfstæðis- menn hafa tekið þátt í myndun ríkisstjórnar með öðrum stjórn- málaflokkum. Það er ljóst, að allir þingmenn flokksins eru bundnir af ofan- greindu ákvæði. Ef einstakir þingmenn eða minnihluti þing- flokks fellir sig ekki við ákvörðun meirihluta þingflokks, þá er unnt að skjóta þeirri ákvörðun meiri- hlutans til úrskurðar flokksráðs. En bæði minnihluti og meirihluti þingflokks eru auðvitað skuld- bundnir að hlíta þeim úrskurði og heimild flokksráðs er skilyrði fyrir því að gengið sé til sam- starfs við aðra flokka. Flokksráðsfundur Sjálfstæðis- flokksins haldinn 10. febrúar 1980 lýsti, eins og kunnugt er, andstöðu við ríkisstjórnina og málefnasamning hennar. Það fer því ekki milli mála að þeir Sjálfstæðismenn, sem taka þátt í og styðja núverandi ríkis- stjórn hafa gengið í berhögg við skipulagsreglur Sjálfstæðis- flokksins. Sveinn Guðmundsson, Iláteigsvegi 2: Hvaða álytkanir geta sjálf- sta'ðismenn dregið af úrslitum norsku Stórþingskosninganna og sigri Ilægri flokksins? SVAR: Ég tel einkum þrennt eiga þátt í sigri Hægri flokksins. 1. Norðmönnum ofbjóða aukin ríkisumsvif, skriffinnska og skattaálögur. Hægri flokkur- inn hét því að létta skattaálög- ur og draga úr ríkisumsvifum og skrifræðinu. Þessi stefna er í samræmi við baráttumál Sjálfstæðisflokksins og á sér- stakt erindi til íslendinga, þegar skattbyrði hefur aukist um 60—70 milljarða g.kr. á síðustu 3 árum vinstri stjrna og beinir skattar, fasteigna- skattar, tekju- og einkaskattar og útsvör hafa hækkað um 30—40% frá því sem var á árinu 1977. Ennfremur eru óteljandi þau laga- og reglu- gerðarákvæði sem á síðustu árum auka umsvif hins opin- bera og takmarka athafnasvið einstaklinga. Sjálfstæðisflokk- urinn á verk að vinna, að snúa þessari þróun við. 2. Norðmenn hafa orðið fyrir vonbrigðum, að olíugróðinn hefur ekki nýzt þeim eins og vonir þeirra stoðu til og kenna stjórn Verkamannaflokksins um. Við höfum engan olíu- gróða, þvert á móti orðið að þola olíuverðhækkanir. En við höfum orðið aðnjótandi gróða af auknum þorskafla eftir út- færslu efnahagslögsögunnar í 200 mílur 1975. A síðustu 5 árum hefur þorskaflinn nær tvöfaldast, en aukning þjóðar- framleiðslu og þjóðartekna er að staðna og kaupmáttur launa rýrnar. Það er hlutverk Sjálfstæðisflokksins að nýta auðlindir landsmanna til nýrr- ar sóknar til að auka fram- leiðslu, framleiðni og fjöl- breytni atvinnuvega og bæta lífskjör fólksins. 3. Hægri flokkurinn gerði það að ekkert verður að gert. Aðeins örfáir einstaklingar hafa starfað þar undanfarið við pökkun á skrrið. en þegar allt var i góðum gangi störfuðu þar frá 120—150 manns, að meðtöldum sjómönn- um, að sögn Ágústar. Aðspurður um hvað valdið hafi þessum gífurlegu erfiðleikum Skjaldar, sagði Ágúst: „Ég býst við að það hafi verið margs konar erfiðleikar í sambandi við útgerð- ina. Skjöldur á gamlan togara sem liggur bilaður og á honum stendur 12 ára klössun. Þá á það einnig gamalt skip, Maríu Júlíu, sem skortir líka vitjun. Þá eru fjár- hagslegir erfiðleikar og eigendur hafa látið í það skína, að þeir vildu hætta rekstri og margt fleira mætti nefna." Þá sagði Ágúst: „Það hefur verið kosin sérstök nefnd af hálfu starfsfólks Skjaldar og eru í henni þrír fulltrúar þeirra og einn frá Verkalýðsíélaginu. Á þessum fundi okkar í sveitarstjórn í dag verður tekin ákvörðun um einn mann af hendi sveitarstjórnar í nefndina. Það er auðvitað skylda sveitarfélagsins að líta eftir at- vinnumálum staðarins. Hvað þessi nefnd kann að gera veit ég ekki, en það liggur svona í loftinu að það er hugur í fólki að þetta atvinnufyr- irtæki leggist ekki niður." Ágúst sagði einnig, að Sam- bandsfrystihúsið á staðnum hefði átt við ákveðna erfiðleika að stríða. Þar hefði komið til hráefn- isskortur o.fl., en til stæði að þeir fengju togara frá Siglufirði fljót- lega og vonandi breytti það ein- hverju. „Þetta verkar náttúrulega á allt atvinnulíf. Fólksfjöldi hér aðeins rúmlega eitt þúsund manns og auðvitað virkar það á allt atvinnu- lífið þegar eitt stærsta atvinnu- fyrirtækið hættir starfsemi sinni. Þessa dagana er aðeins verið að vinna við að pakka skreið og örfáir einstaklingar sem hafa vinnu við það.“ Borgarstjórn: Umræðiir um um- sókn SAÁ um lóð undir sjúkrastöð Á BORGARSTJÓRNARFUNDI i gær urðu umræður um umsókn SÁÁ um lóð undir sjúkrastöð. Talaði Markús örn Antonsson fyrir málinu og hvatti einnig til þess að borgarstjórn veitti fé til lagfæringar á vegi að Silungapolli þar sem SÁÁ hefur nú sjúkrahús aðstöðu sína. Benti hann á, að verulegur kostnaður stafaði af snjómokstri yfir vetrarmánuðina sökum þess hvernig vegurinn væri en, sjúklingar byggju engu að síður við mikið öryggisleysi. Sigurjón Pétursson taldi tor- skiptavina söluturnsins og benti á höfuðstefnumáli að treysta ör- yggi og varnir landsins og aðild Noregs að Atlantshafs- bandalaginu, en Verkamanna- flokkurinn sem hingað til hef- ur verið sama sinnis, lét bilbug á sér finna. Enginn vafi er á því að Sovétríkin reyna nú að kljúfa Norðurlöndin, Noreg, Danmörk og Island frá varn- arsamtökum vestrænna lýð- ræðisríkja. Það er því sérstakt fagnaðarefni, að Norðmenn létu ekki undan þrýstingi að austan. Við íslendingar erum undir þessum sama þrýstingi og það er hlutverk Sjálfstæðis- flokksins að tryggja sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt þjóð- arinnar með þátttöku í At- lantshafsbandalaginu og varn- arsamningnum við Bandarík- in. Þetta verkefni er því mik- ilvægara, þegar völd og áhrif Alþýðubandalagsins fara vax- andi í landinu og þeir veifa leynisamningi og bera fyrir sig neitunarvald, einkum þegar um er að ræða framkvæmdir til að skapa varnar- og eftir- litsstöðinni á Keflavíkurflug- velli skilyrði til að gegna hlutverki sínu. Ég hef hér rakið þrjú megin- mál, sem eiga þátt í sigri Hægri flokksins og geta verið okkur Sjálfstæðismönnum til íhugunar og fyrirmyndar. merki á að SÁÁ gæti fengið lóð í Ártúnsholti, þar sem samtökin hefðu sótt um lóð á svæði sem \æri óskipulagt ennþá. Davíð Oddsson benti á að Sigurjón hefði nýverið í borgarráði samþykkt lóðarumsókn frá banka um lóð á óskipulögðu svæði vestan Glæsi- bæjar, en hér væri um brýnni þörf að ræða þar sem SÁÁ hefði aðeins bráðabirgðahúsnæði fyrir hina þýðingarmiklu starfsemi sína. Var málinu vísað til borgarráðs. Þá var tekin fyrir umsókn frá eiganda söluturns í biðskýli við Sogaveg, um leyfi til að bæta þar aðstöðu. Sigurður G. Tómasson lagðist gegn þessu og minnti á að íbúar í hverfinu hefðu kvartað undan slæmri umgengni við- að mikið ónæði yrði í hverfinu ef þarna yrði sett upp aðstaða til að afgreiða beint í bíla eins og eigandinn fyrirhugar. Lagði hann fram viðaukatillögu þess efnis að ekki yrði leyft að reisa þarna söluturn með þessu sniði. Var umsókn verzlunarmeigandans samþykkti um 10 atkvæðum gegn 5 en viðaukatillagan með 12 sam- hljóða atkvæðum. Þá urðu nokkrar umræður um tillögu Kristjáns Benediktssonar um skráningu sögu Reykjavíkur, og var m.a. bent á að hún væri áður fram komin þó í annarri mynd væri. Var tillögunni vísað til borgarráðs og síðan borgarstjórn- arfundar 15. okt. með 15 sam- hljóða atkvæðum. Mikið að gera í síldinni á Eskifirði ÞOKKALEG síldveiði hefur verið hjá reknetahátum á Norðfjarðar- flóa og í Mjóafirði siðustu nætur. Flestir hafa bátarnir landað á Eskifirði og þar lönduðu 6 bátar í fyrradag og 9 í ga'r. Ævar Auðbjörnsson fréttaritari Morgunblaðsins á Eskifirði sagði í gær, að í fyrradag hefðu verið saltaðar 500 tunnur á tveimur söltunarstöðvum og í gær 759 tunnur á þrem stöðum þ.e. hjá Auðbjörgu, Sæbergi og Friðþjófi. Síldin þykir nú góð til söltunar og nú er svo komið að á Eskifirði vantar fólk í flestöll störf. Kvað Ævar að rætt hefði verið um að láta togarana landa í einhverjum mæli annarsstaðar á meðan síld- arhrotan stæði yfir. Nú er fjöldi aðkomufólks kominn til starfa á Eskifirði. Runólfur á Bjarna Ólafssyni. Isinn tor- veldaði veiðina Bjarni ólafsson kominn af rækju- veiðum við miðlín- una milli íslands og Grænlands BJARNI Ólafsson, loðnu- skipið af Akranesi, er nú komið af ra'kjuveiðum við miðlínuna milli íslands og Grænlands, og er að búast til loðnuveiða. Rækjuveið- arnar gengu bærilega fram- an af, en eftir skelskiptin á rækjunni, gerði ís þeim erfitt fyrir á Bjarna. — Við vorum við miðlín- una milli íslands og Græn- lands, sagði Runólfur Hall- freðsson, skipstjóri í spjalli við Mbl., og bara eitt skipa á stóru svæði, svo það er kannski erfitt fyrir mig að segja til um hvort þarna hafi verið nóg rækjan — en okkur gekk bærilega fyrri part úthaldsins. Við hættum um 20. júlí, því þá byrja skelskiptin á rækjunni og standa svona tvær til þrjár vikur. Seinna úthaldið byrj- uðum við svo 10. ágúst, og þá gekk illa. Það var svo mikill ís á miðunum. Menn telja nú það sé óvanalegt, að það sé svo mikill ís á þessum slóð um um þetta leyti árs og þetta var langtum meiri ís heldur en var í fyrra, og meiri heldur en maður þekkti þarna í gamla daga. Jú, ég reikna með að halda áfram næsta sumar á þess- um veiðum, það er vel hægt að stunda þær, held ég, og það ætti að borga sig ef eitthvað fæst. Verðið er gott. Runólfur kvaðst eindregið vonast eftir því að gengið yrði til samninga um miðlín una milli Grænlands og ís- lands og veiðar við hana, því þar hefðu Islendingar tölu verðra hagsmuna að gæta, sem væri rækjan, en rækju veiðarnar eru miklar í græn lenskri lögsögu við miðlín una í mars, apríl og maí. Og nú ertu að búa þig á loðnuna? Já, ætli ég fari ekki út eftir helgi. Mér líst vel á vertíðina. Nú fer hún að verða góð loðnan og í nóv- ember er styst að ná í hana Það hefur gengið tregt, já en bátar hafa heldur ekki stundað þetta að marki, og svo er erfitt að ná loðnunn svona langt. *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.