Morgunblaðið - 18.09.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.09.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 25 Stallone vill ekki berjast við Ali + Sylvester Stallone, sem þekktur er íyrir leik sinn í kvikmyndunum Rocky I og II, þar sem hann leikur boxara, hefur fengið tilboð um að keppa við Muhamed Ali fyrrverandi heimsmeistara i þunxavÍRt eða núverandi heimsmeistara, Larry Holmes, og fyrir viðvikið hafa honum verið boðnar 5,7 milljónir íslenskra króna. Hér er ekki um nema þrjár iotur að ræða. Hinn 35 ára gamli Stallone sem er um þessar mundir staddur í London til að vera viðstaddur frumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni „Victory" er sagður hafa verið við það að slá til og taka boðinu. Hann sagði þar í viðtali nýlega, vegna þessa tilboðs: „Það eru margir, sem halda að ég 3é raunverulegur boxari, en það er svo langt frá því að svo sé. Ef ég tæki þátt í þessari keppni gæti ég átt það á hættu að verða sleginn til bana.“ Barbara Walters hæst launaði kvenmaður veraldar + Hinn þekkti bandaríski frétta- maður ABC-sjónvarpsstöðvar- innar Barbara Walters endur- nýjaði nýlega samning sinn við sjónvarpsstöðina. Sagt er að hinn nýi samningur hafi fært henni sem nemur rúmlega fimm og hálfri milljón íslenskra króna í árslaun, engin smáupphæð það, enda er hún nú sögð einn hæst launaði kvenmaður veraldar. Mick Jagger ekki hræddur um líf sitt + Mick Jagger, sem segja má að sé „súperstjarna“ rokksins verður nú að horfast í augu við hin 38 ár, sem hann á þegar að baki. Þeir, sem fylgst hafa með Mick Jagger á hljómleikum, hafa séð að hann er aldrei kyrr á sviðinu heldur hreyfir sig stöð- ugt. Um þessar mundir eru Rollingarnir á ferðalagi um Bandaríkin og er áætlað að þeir skemmti í 40 borgum og bæjum. Jagger hefur þegar komist að því, að hann hefur alls ekki sama úthald og hann hafði áður á hljómleikum. Hann sagði í við- tali nýlega: „Ég get haldið áfram að syngja og spila allt mitt líf en ég get ekki haldið áfram að hoppa og hreyfa mig svona á sviðinu eins og ég geri núna. Eftir nokkur ár mun ég ekki hafa líkamlegt þrek til þess arna. Sagt er að Mick Jagger hafi hlaupið fimm kílómetra á hverj- um degi til að halda sér við líkamlega og til þess að undirbúa sig undir hljómleikaferðina. Hvað framtíðinni viðvíkur þá má gera ráð fyrir að Mick Jagger leiki í nokkrum kvikmyndum. Meðal verkefna þá má búast við því að hann og David Bowie muni vinna að kvikmynd í sam- einingu. Eftir morðið á John Lennon þá eru margar af stórstjörnum tón- listarlífsins hræddar um líf sitt og hafa því ákveðið að hætta að koma fram á tónleikum, en Mick Jagger er ekki hræddur við þetta. Hann sagði í þessu sam- bandi: „Það er ekki hægt að eyðileggja líf sitt með því að vera taugaveiklaður út af svona hlutum. Það eru og hafa alltaf verið til brjálæðingar og auðvit- að verður maður að passa sig á þeim. Ef það situr einhver slíkur meðal áhorfendanna og beinir að þér byssu, þá er ekki mikið hægt að gera til að fyrirbyggja það þrátt fyrir það að gerðar séu allar tilhlýðilegar ráðstafanir. Journey er vinsælasta rokkhljómsveit Bandaríkjanna um þessar mundir. Platan Escape er á toppnum um þessar mundir vestra og er þaö allnokkur árangur, en ekki lætur Journey þar viö sitja. Lagiö Who’s Crying Now er á meöal þeirra mest spiluöu í bandarískum útvarpsstöövum og gistir nú topp Heildsöludreifing 10-listann vestanhafs. *t«ÍAorhí Símar 85742 og 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.