Morgunblaðið - 18.09.1981, Page 19

Morgunblaðið - 18.09.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 19 Blóðhefnd í Nýja bíói í NÝJA bíói verður í dag frum- sýnd myndin Naked Fist eða i íslenskri þýðingu Blóðhefnd. Er hér um að ræða nýja bandariska karate-mynd og er leikstjóri hennar Cirio Santiago. framleið- andi Syed Kechik, en með aðal- hlutverk fara Jillian Kessner, I)arby Hinton ok Ken Metcalfe. Myndin fjallar um systur tvær og er önnur ósigrandi karate- meistari en hin hefur valið sér rólegra starf, nefnilega frétta- mennsku. Sú systirin týnist ein- hversstaðar í Asíu og hin fer að leita hennar. í Asíu lendir Su- sanna, en það er nafnið á karate- meistaranum, í hinum mestu mannraunum sem óþarft er að lýsa nánar hér, nema hvað hún finnur út að systir hennar er látin og það ekki af eðlilegum orsökum. Hún afræður að finna morðingj- ann og útrýma honum. w \\ 1» *< * Bandítarnir í Laugarásbíói LAUGARÁSBÍÓ hefur í dag sýn- ingar á handarisku biómyndinni The Bandits eða Banditarnir eins og hún heitir á ísiensku. Leik- stjórar eru tveir, Robert Conrad og Alfredo Zacharias. Með aðai- hlutverk fara Robert Conrad. Jan Michael Vincent og Roy Jensen. Myndin gerist árið 1867 rétt þegar Þrælastríðið í Bandaríkjun- um er á enda. Alls kyns afbrota- menn og glæpamenn vaða uppi með hrópum og látum og herja á bæjarbúa í vestrinu. Bæjarbúar koma sér upp vökusveitum til varnar fyrir óaldalýðnum og vill þá oft til að teknir eru menn sem eru saklausir. Þannig er um bá félaga Chris, Boy og Jósúa og er hengingarólin komin um háls þeim, þegar þeim er bjargað af Juan Valdez og félögum. Þeir slást í hópinn með þeim og halda yfir í Mexíkó að klekkja þar á Sanchez kapteini. Ekki er rétt að segja meira um það. Purrkur Pillnikk með tónleika PURRKUR Pillnikk og Q4U verða með tónleika á föstudaginn, (í kvöld) í Félagsstofnun stúdenta og hefjast þeir klukkan 21 og er aðgangseyrir kr. 50. Húsið verður opnað kl. 20.00. atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Starfsfólk óskast Óskum eftir aö ráöa starfsfólk til starfa í verksmiðju okkar aö Barónsstíg 2. Nánari uppl. gefur verksmiðjustjóri. Nói, Síríus hf., Barónsstíg 2. Stýrimaður — Beitingamaður Stýrimaður og beitingamaður óskast á MB Ólaf Inga KE, sem fer á útilegu með línu. Uppl. í síma 92-2814 og 92-1589, Keflavík. Kennarar Kennara vantar að héraðsskólanum Reykj- um. Kennslugreinar: stæröfræöi og íþróttir pilta. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 95-1001 eða 95-1000. Verkamenn — trésmiðir Viljum bæta viö okkur nokkrum trésmiöum og verkamönnum í vetur, í innivinnu. Nánari uppl. í síma 83895. Byggingafélagið Ármannsfell hf. Funahöfða 19. Óskum eftir aö ráöa starfskrafta til starfa viö bifreiöa- setningu og fleiri starfa. Uppl. veitir framkvæmdastjóri bifreiöadeildar. Ravirkjar Óskum aö ráða rafvirkja vanan skipa- og frystihúsalögnum. Upplýsingar gefur Jón Frímannsson í síma 93-1811. Haraldur Böðvarsson og Co., Akranési. IhIHEKLAHF J LAUGAVEGI 170-172 • 105 REYKJAVlK - SÍMI 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.