Morgunblaðið - 19.09.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981
23
Bara nokkuð góð
„Noise“ - Einar Vilberg
EINAR Vilberg hefur sent frá sér sína
þriöju breiðskífu. Ber hún nafniö
Noise. Á henni eru 10 lög, öll eftir
Einar. Aöstoöarfólk hans á plötunni er
greinilega fyrsta flokks, Ólafur Sig-
urösson leikur á trommur, Jón Ólafs-
son á bassagítar og Þorsteinn
Magnússon á sólógítar. Einar sjálfur
leikur á gítar.
Aöal plötunnar er fyrst og fremst
„gamla sándiö" á gítarnum hans
Einars, en síðan gítarsólóin hjá
Steina. Þetta tvennt lyftir plötunni upp
til þeirra betri, sem gefnar hafa verið
út á árinu. Jonni á bassanum er góöur
aö vanda, þótt ekki beri mikiö á
honum sem er miöur. Ólafur trommu-
leikari kom mér mjög á óvart og er
eitthvaö annaö aö heyra hann spila
hér en meö Kamarorghestunum.
Flest lög plötunnar eru rokkarar af
gamla taginu, eöa eins og þeir
hljómuöu á sjöunda áratugnum. Ekki
spillir fyrir, aö „sándiö“ er því sem
næst sem þá var.
Þótt platan sé pottþétt aö flestu
leyti, þá er eins og einhvers staöar
leki í gegn, og því er hún ekki eins góö
og hún gæti orðiö. Ekki láta blekkjast
af nýbylgjulegu umslagi þó þaö sé
þrumugott. Margir ættu þó aö hafa
mjög gaman af þessari plötu Einars
og vert aö gefa henni gaum. Bestu
lögin eru: „Perfect Charlie“, „MemorÍT
es“, Dr. Can’t You“ og „Boogie“.
F.S.M.
(i<*nosis
CLIFF RICHARD er líka annar gamlingi, þó
síungur sé. Rétt á eftir „Love Songs“ kemur
ný stúdíóplata frá Cliff, „Wired For Sound“,
en textinn viö titillagió er eftir B.A. Robert-
son, en Alan Tarney sá um upptökustjórn
líkt og á „l’m No Hero“.
KARLA DE VITO fylgir í kjölfar platna Jim
Steinman og Meat Loaf innan tíöar meö sína
plötu, „Is This A Cool World Or What?“, en
hefur sungiö meö báöum þessum köppum á
plötum og báöir kapparnir syngja á hennar
plötu í staöinn.
BARRY MANILOW kemur meö nýja í lok
september, „If I Should Love Again“. Og
síöar koma plötur frá Graham Parker,
Manfred Mann og Jerry Garcia fyrir áramót.
POLICE eru á leiöinni meö splunkunýja rétt
bráöum, „The Ghost In The Machine", sem
á aö slá fyrri plötur út.
TOM TOM CLUB er nýtt fyrirbæri sprungiö
út úr Talking Heads Stór plata frá þeim er
væntanleg, en lagiö „Wordy Rappinghood"
er lagiö sem hefur veriö vinsælt.
í lok október er væntanleg safnplata frá
QUEEN, „Greatest Hits“. Á henni veröa 17
vinsælustu lögin þeirra.
OLIVIA NEWTON JOHN OG SHEENA
EASTON eru líka meö nýjar plötur „Physi-
cal“ og „You Could Have Been With Me“, og
munu báöar vera aö sveigjast inn á
rokklínuna.
PAUL MCCARTNEY OG KATE BUSH ættu
líka aö vera á steypirnum meö nýjar.
STARS ON 45 no. 2 er aö koma út í
breiöskífuformi, ef fólk hefur enn áhuga, og
ný breióskífa er á leiöinni frá ADAM & THE
ANTS.
DONNA SUMMER er meö nýja á næsta
leyti, og í nóvember ætti BLONDIE aö vera
meö „Greatest Hits“-plötu.
STRAY CATS koma meö nýja í október og
MONKEES meö nýja safnplötu í Bretlandi
FLESTAR erlendar hljómplötuútgáfur hafa
nú þegar tilkynnt þær útgáfur, sem þær
verða með fram aö áramótum.
Viö höfum af og til tekiö slíkt saman til
fróöleiks hér á síöunum þrátt fyrir þaö aö
slíkar spár reynist oft á tíðum ná nokkuö
lengra fram í tímann, þar sem útgáfum
hættir til aö seinka von úr viti í útlandinu
sem annars staöar.
Nokkrar eru þegar útkomnar erlendis líkt
og „Give The People What They Want“ frá
Kinks, „Willie Nelson's Greatest Hits And
Some That Will Be“, „Dead Set“ frá Grateful
Dead, „Nine Tonight“ ný tvöföld hljómleika-
plata frá Bob Seger, „Private Eyes“ frá HaM
& Oates og „Dance“ frá Gary Numan.
BILLY JOEL er á leiöinni meö einfalda
hljómleikaplötu sem á eru lög sem voru á
„Cold Spring Harbour“, „Piano Man“,
„Streetlife Serenade“ og „Turnstiles“ en
eins og hann heföi viljaö aó þau hefóu verió
upphaflega. Platan heitir „Songs In The
Attic“ og er aö koma út.
MARIANNE FAITHFUL kemur meö nýja
plötu í lok september sem heitir „Dangerous
Acquaintances", en flest laganna eru meö
textum eftir listakonuna.
„You Are What You ls“ er nafniö á næsta
Frank Zappa-stykki. Platan er vitanlega
tvöföld og í þetta sinn stúdíópiata, og binda
útgefendur miklar vonir viö gamla manninn í
þetta sinn.
Hilly Jocl
þar sem sjónvarpsþættir þeirra veröa sýndir
aftur í vetur.
Og svo má ekki gleyma þeim Phil Collins,
Mike Rutherford og Tony Ðanks, ööru nafni
Genesis, en ný plata er á leiöinni frá þeim,
,.Abacab“.
Og í restina þá er breióskífa RINGO
STARR, „Stop And Smell The Roses“ líka
væntanleg bráólega.
Katc llush
Stjörnur á plasti fyrir jól
Lýður Guðmundsson
Fjalli - Kveðjuorð
í dag kveðjum við hinsta sinni
Lýð Guðmundsson bónda frá
Fjalli á Skeiðum.
Kynni okkar Lýðs voru ekki
gömul, þau hófust sumarið 1978
þegar ég réðst til þeirra systkina á
Fjalli í kaupamennsku. Fyrstu
drögin að vináttu okkar urðu til
vegna sameiginlegs áhuga okkar á
hestum og útreiðum. Var Lýður
hestamaður og reið mikið út. Oft á
kvöldin og ef ekkert sérstakt var
að gera á daginn, náðum við í
hestana og brugðum okkur á bak.
Ekki var alltaf farið langt,
kannski á næstu bæi og þeginn
kaffisopi um leið og spjallað var
við kunningjana, því aðalatriðið
var að komast á bak og hreifa
hestana. A þessum ferðum kynnt-
umst við vel, því Lýður var svo
skemmtilega málgefinn og kátur
að ekki var hægt annað en taka
þátt í samræðum og kætast með.
Þegar á sumarið leið og útreiða-
túrunum fjölgaði styrktust vin-
áttuböndin á milli okkar svo, að
veturinn á eftir héldum við sam-
bandi á ýmsa vegu.
Sumarið 1979 var ég aftur í
kaupamennsku að Fjalli, þar sem
mér hafði liðið mjög vel hjá þeim
systkinum sumarið áður. Það var
gott að komast aftur í sveitina og
geta verið á útreiðum og við vinnu
með Lýð, því hans ómetanlega
gleði og létta lund hafði góð
smitandi áhrif á mig. Þetta seinna
sumar leið við ýmiss konar vinnu
og skemmtun.
Veturinn á eftir var haldið
nokkru sambandi, en sumarið 1980
kom ég þar heldur lítið sökum
tímafreks náms míns. Ekki var ég
þó alveg búinn að gleyma vinum
mínum að Fjalli svo að í sumar
kom ég þar all oft, var þá gjarnan
í útreiðum.
Helgina 29.—30. ágúst var
minnst 100 ára afmælis Skeiða-
rétta og ætluðum við Lýður að
fara ríðandi upp í réttir og taka
þátt í hófinu. Þegar ég kem að
Fjalli á föstudeginum 28. ágúst
varð mér illa brugðið. Hafði Lýður
þá verið fluttur til Reykjavíkur á
spítala fyrr um daginn, mikið
veikur. Sjúkdómurinn reyndist
vera heilablóðfall og var útlitið
heldur slæmt. Ég varð mjög
sleginn að þessari frétt, hann
Lýður svona mikið veikur, maður
sem hafði verið svo hraustur og
frískur, að daginn áður hafði hann
gengið lengi um Vörðufeil að gá að
kindum.
En Guð gaf og Guð tók, því
getum við mennirnir ekki stjórn-
að.
Lýður háði stutta baráttu við
sjúkdóm sinn sem endaði á þenn-
an vég.
Ég þakka fyrir þá gæfu að fá að
kynnast Lýði, gangi honum vel í
þessari löngu ferð, en ég veit að
hann Stjarni hans mun koma á
móti honum fullbúinn og spara
honum sporin. Góða ferð.
Sigurjón Þórðarson
Afmœlis- og
minmngargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í séndibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Því ekki að drífa
sig i dansinn?
Dansskóli Heiöars kennir
flesta dansa sem þekkjast
og viö kennum fólki á öllúm
aldri allt frá 4ra ára og eldri.
Þaö finna allir flokk við sitt hæfi
hjá Heiöari.
v Innritun daglega nema sunnudaga
frá kl. 10—12 og 1—7. Símar 39551,
24959, 20345, 74444, 38126.
Kennsla hefst frá og með mánudeg-
inum 5. október.
Kennslustaöir:
Reykjavík:
Brautarholt 4
Tónabær
Drafnarfell 4
Þróttheimar
Ársel
Bústaóir
Seltjarnarnes:
Félagsheimiliö
Kópavogur:
Hamraborg 1
Þinghólsskóli
Garðabær:
Flataskóli
Hafnarfjörður
Góötemplarahúsið