Morgunblaðið - 19.09.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981
33
fclk f
fréttum
Burt Ijúslifandi á stra'tum OslóborKar.
Ég er engin fígúra
- segir maðurinn sem leikur Burt
Ronald Reagan gerist nú
öldurmannlegur í útliti, en
enginn bilbugur er þó á
kalli. Þarna makkar hann
við þingmenn gegnum
síma úr Hvíta húsinu,
skömmu áður en atkvæða-
greiðslan um skattalækk-
anir hans fór fram í sumar
er leið.
Dreifði flugmið-
um ofan af Frelsis-
styttunni
+ LögreKlumönnum í New York brá í
brún einn morguninn sem þeir skim-
uðu til veðurs. Rigndi þá niður
fluumiðum, skrifuðum í nafni bor«-
arstjórans með ókennilegum yfirlýs-
innum. Kom líka á daginn að bornar-
stjóri þeirra hafði ekki látið dreifa
neinum fluKmiðum, né yfirleitt haft
þ_að í hyKKju. Reyndust fluKmiðarnir
komnir frá þrjóti einum uppi á haus
sjálfrar frelsisstyttunnar. Arthur
Allen hét þrjóturinn ok neitaði hann
aö Kefa skýrinKar á atferli sínu,
loksins þe^ar löKreKlumenn höfðu
hendur í hári hans. Ok nú fær Arthur
kallinn að dúsa í fanRelsi, ok bíður
dóms fyrir ótaldar sakir.
+ Richard Mulligan á erfiða
daga. Hann fer með hlutverk
Burts, karlaumingjans í Löðri.
Burt er nú ekkert gáfnaljós, eins
og sjónvarpsáhorfendur vita, þó
hann leyni á sér, og það er það
sem fer fyrir brjóstið á Richard
Mulligan, að menn eru hættir að
greina milli hans og Burts. — En
ég er enginn fígúra, segir hann,
ég er leikari og reyni að standa
mig í stykkinu. Og nú er hann
hættur að leika Burt.
Hann var nýlega á ferð í Osló
og hinn fúlasti þar við blaða-
menn. — Ég er enginn trúður
sagði hann, þegar ljósmyndarar
báðu hann að þurrka af sér
fýlusvipinn fyrir myndatökuna.
Hann segist vera þreyttur.
— Þessa stundina er ég ekk-
ert sérstaklega áfjáður í nýtt
hlutverk. Ég ætla að hvílast með
konu minni í Los Angeles, þar
sem við eigum heimili. Þar
eigum við hund og kött og gott
bókasafn. Það væsir ekki um
mann þar.
Mulligan ber á móti þvi að
hann vilji taka upp merki Peters
Sellers sem Klúsó lögreglufor-
ingi í Bleika pardusnum. — Ég á
ekkert með það, að vera borinn
saman við Peter Sellers, segir
hann. Til þess ber ég of mikla
virðingu fyrir honum.
En hvað var maðurinn svona
skapi farinn að gera í Osló. Jú
kynna nýjustu kvikmynd sína
„S.O.B.", þar sem Julie Andrews
flettir sig m.a. klæðum. En hann
ætlar ekki að stoppa lengi. —
Fyrst verð ég að þjóta til Kali-
forníu að þakka fyrir Emmy-
verðlaunin sem mér áskotnuðust
i fyrra, og svo fer ég heim. Ég á
gott heimili.
Álfakroppur-
inn Lólíta
+ Ekki eru allar stúlkur álfakroppar, skrifaði
Nabokov í Lólítu — eða eitthvað í þá veru. Víst er
það að ekki eru allar stúlkur Lólítur. Edward
Albee, leikritaskáldið kunna, fékk að kenna á því.
Hann mátti sitja sveittur dögum saman reynandi
að finna hina einu réttu í uppfærslu sína á Lólítu.
Loksins datt hann niður á Blanche Baker. Hún er
24ra ára gömul og fær þarna að spreyta sig á móti
Donald Sutherland, sem fer með hlutverk Hum-
berts. Sumum finnst hún helst til fullorðin til að
fara með hlutverk ellefu ára gamallar stelpu, þó
Lólíta sé, en Blanche hefur svar á reiðum höndum:
„Ég held að mjög ung stúlka fái ekki skilið hina
duldu kynhvöt Lólítu." Þar höfum við það.
Söngfólk
Kór Dómkirkjunnar getur núna bætt viö söngfólki.
Æft veröur á miðvikudagskvöldum og laugardögum
um hádegi.
Upplýsingar veitir stjórnandi Kórsins Marteinn H.
Friöriksson í síma 44548, einnig má hringja í
Dómkirkjuna, sími 12113.
Vatnshreinsunartæki
Vatnshreinsunartæki sem gerilsneiðir vatn, hreinsar loft
og vatn, drepur sýkla og gerla. Nauösynlegt tæki í
matvælaiönaöi, efnaiönaði, fiskirækt og margt, margt
fleira.
ísvélar sem framleiða ís úr sjó fyrir öll skip.
Hringdu og kannaðu möguleikana.
Jón Maríasson,
sími 91-73711, box 859, R.