Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 5 KI. 21.30 hefst í sjónvarpinu nýr bandariskur myndaflokk- ur, Myndsjá (Moviola), og fjallar hann um frægar kvikmynda- leikkonur, Gretu Garbo og Marilyn Monroe, og baráttuna um hlutverk Scarlett O’Hara í stórmyndinni frægu, „Gone With the Wind“. Fyrsta myndin heitir böglu elskendurnir og fjallar um Gretu Garbo og ástarævintýri hennar og John Gilberts, einnar þekktustu stjörnu þöglu kvikmyndanna, sem hvarf af sjónarsviðinu þegar talmyndirnar komu til sögunnar. Á myndinni hér fyrir ofan eru þau Kristina Wayborn í hlutverki Gretu Garbo og Barry Bostwich í hlutverki John Gilberts. Líf og saga kl. 13.40: „Snorri á Húsafelli“ Á dagskrá hljóðvarps kl. 13.40 er framhaldsflokkurinn _Líf <>k saga“. Fluttur verður 8. þáttur, _Snorri á Húsafelli“. Ilandrit gerði Bððvar Guð- mundsson, en stjórnandi upp- töku er Raldvin Ilalldórsson. í hlutverki Snorra er Hjalti RöKnvaldsson. en meðal flytj- enda má nefna Gunnar Eyj- ólfsson, Rúrik Ilaraldsson. iH'iru Friðriksdóttur og Böðvar Guðmundsson. bátturinn tek- ur um 75 mínútur i flutnintíi. Tæknimenn: Ilörður Jónsson ok Hreinn Valdimarsson. Snorri Björnsson á Húsafelli, prestur, skáld, kraftajötunn og galdramaður með meiru, er ein þekktasta persóna íslandssög- unnar á 18. öld. Til eru af hon- um margar sögur, misjafnlega sannar, því fáar heimildir eru um ævi hans sem hægt er að reiða sig á. Snorri var Borgfirðingur að ætt og uppruna, fæddur árið 1710. Átján ára gamall fór hann í Skálholtsskóla og skrifaði þar m.a. kómedíuna „Sperðil", fyrsta íslenska leikritið sem nefna má því nafni. Síðar var Snorri prestur á Stað í Aðalvík á Hornströndum vestur, en hrökklaðist þaðan vegna ofsókna galdramanna, að því er sagan segir. Fluttist hann þá að Húsafelli og er löngum kenndur við þann stað. Snorri varð fjörgamall, komst yfir nírætt, og ef trúa má sögunum af hon- um hélt hann ótrúlegum þrótti og kröftum fram á elliár. Garðar Cortes er „tónlistarmaður mánaðarins“ hjá sjónvarpinu Á sunnudagskvöld kl. 20.50 kynnir Egill Friöleifsson Garðar og ræðir við hann. Sjónvarp á mánudagskvöld kl. 21.10: „Suez“ Breskt sjónvarps- leikrit um Suez- deiluna 1956 Á mánudagskvöld kl. 21.10 er sjónvarpsleikrit frá BBC, „Suez“ og fjallar það um Súez-deiluna 1956 og atburði sem tengdust henni. Þýðandi er Jón O. Edwald. Höfundur leikritsins, Ian Curteis, leitast við í þessu verki að svara ýmsum spurn- ingum um það sem var að gerast að tjaldabaki á þess- um tíma, um innrás Breta, Frakka og ísraela í Egypta- land og viðbrögð annarra ríkja. Michael Gough í hlutverki Sir Anthony Edcns, forsæt- isráðherra Breta, í sjón- varpsleikritinu „Suez“, sem er á dagskrá á mánudags- kvöld kl. 21.10. fiirun dagar í 26.oktober Enn efnum viö til helgarferöartil hóteli. Viö minnum á aö írska pundið írlands og bjóöum aö þessu sinni hefur sjaldan verið hagstæöara og aö fimm daga ferð til Dublin meö sjálfsögöu eru vetrar- og skóla- gistingu á hinu frábæra Burlington flíkurnar í öllum verslunum. Skelltu þér með í snaggaralega Irlandsferð Verð firá kr. 3.090 Innifalið í verði: Flug, gisting meö morgunveröi, akstur til og frá flug- velli erlendis og íslensk fararstjórn. Fimm dagar í París 30. október beint leiguflug tryggir lága verðiö! Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.