Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 ÞaA var aldeilis uppistand á Borginni þeuar Mississippi Delta Blues Band lék þar á fimmtudagskvöldiA lsta októ- ber. Húsið yfirfylltist á ör- skömmum tima og en«inn varð fyrir vonbrigðum með leik hljómsveitarinnar. Reyndar mál manna að sjaldan hefðu þeir lif að skemmtilegra kvöld á Borg- inni. Allir sammála um það, hvort sem þeir flokkast sem hálfpönkarar. lopapeysurad- ikalar. heildsalar eða Jón Múli. Bandið, þo sérstaklega hinn hálfblindi Sam Myers, bræddi haustköld hjörtu áheyrenda og lagði þá að fótum sér. Varla að áheyrendur vildu sleppa Sam af sviðinu þegar hann hætti leik sínum. Sjálfur hafði hann lýst því yfir að ekki stæði á hljómsveitinni að spila svo lengi sem aðdáendur lysti. En skemmt- unin mátti bara standa fram til eitt að nóttu og því urðu þeir að hætta klukkan eitt, svo öllum reglum væri nú hlýtt, öllum til sárra leiðinda nema reglugerð- armönnunum, hvar sem þeir nú annars halda sig. Til þess að kynnast ögn meir þessum svarta töframanni lagði Pokahornið leið sína á Hótel Loftleiðir. Það var auðsótt mál að fá við hann viðtal. Gilti einu þótt Sam Myers væri nývaknaður og heldur þreytulegur að sjá, þar sem hann hallaði sér aftur í stól- inn upp við gluggann í herbergi 404 með útsýn yfir flugvöllinn, og bar hendurnar iðulega fyrir aug- un eins og birtan væri honum óþægileg. Dæsir full mæðulega þegar hann er spurður um aldur og uppruna. Ég fæddist í borginni Laurel, um það bil 80 mílur suður af Jackson, Mississippi, á föstu- dagskvöldi þann 19. febrúar 1936. Þann dag snjóaði í Mississippi. Röddin er djúp og þó nokkuð rám, manni dettur i hug að séra Bjarni hefði þess vegna getað lagt fyrir sig blúsinn. Vel á minnst Sam, byrja ekki allir blússöngvarar f kirkjukór- um þarna “down home“? Jú, ég var í kirkjukór eins og flestir sem seinna leggjast í blús- inn. Munnhörpuna fékk ég svo um tólf ára aldurinn. En hvaðan er hlúsinn kom- inn? A hann eitthvað skylt við Afríku? Sam Myers ranghvolfir augun- um undir hnausþykkum gleraug- unum, og segir síðan letilega: Nei, blús er alls óskyldur afríkanskri tónlist þótt oft sé hann kallaður þjóðlagatónlist svartra. Ætli Memphis Tennessee megi ekki eiga mest.an heiðurinn af blúsin- um. Þaðan koma margir bestu lagasmiðirnir eins og hann W.C. Handy sem samdi fallegan blús. Ef þið eigið leið um Memphis get- ið þið séð styttu af honum við enda Beale-strætis, reist til minningar um hann. En öll gömlu húsin í götunni hafa verið rifin niður. Það er synd. Þessi hús hefðu verið besta minnismerkið um W.C. Handy, því mörg hans bestu laga urðu til þarna í stræt- unum. Já, blúsinn er kannski þannig tónlist sem fæðist í augnablik- inu, til dæmis meðan beðið er eftir of seinum strætó? Bæði já og nei. Sam hugsar sig um, færir gleraugun upp á nefið með tvílitum vísifingri. Þetta fæðist í höfðinu, jú víst, humm. En svo er að setja niður nóturnar. Raða niður, kannski kemur blús- inn úr höfðinu, ha? En er hlúsinn ekki tónlist þeirra svörtu? býðir nokkuð fyrir aðra að reyna sig við hann? Það fer ekkert eftir litarhætti; þetta er aðeins háð þeirri menn- ingu sem tónlistin á rætur í. En samt má nú deila um það. Johnny Winter, þú þekkir hann, hann getur leikið blús eins og svartasta svart, þótt hann sé hvítasta hvítt. Annars vegar sá sem nú er sex- tugur, fæddur og uppalinn á bú- garði í Mississippi, hann spilar blúsinn eins og hann tíðkaðist á hans heimaslóðum. Værir þú fæddur og uppalinn við sömu skilyrði myndirðu spila eins. A þriðja áratug var uppi frægur hvítur náungi sem hét Jimmy Rogers og hann hljómaði alveg eins og hinir, skipti engu máli lit- araftið. Nú gerir Sam málhvíld og horf- ir á, eða réttara sagt, heyrir eftir Hjörtun slá svipað í Jackson og Reykjavík þegar Fokker Flugleiða hefur sig á loft með drynjandi látum. Þegar allt kemur til alls, held- ur hann síðan áfram, ef einhver hefur blúsinn „í sér“, þá getur hann spilað. Því blúsinn er miðl- un ákveðinnar reynslu. Þessi til- finning hver þú ert og hvað þú ert. Segjum þú sért blankur, at- vinnulaus og búir í Ameríku, þá kemur blúsinn upp í þér. Huh, huh, hlær Sam Meyers. Svo kreppan mikla hefur kannski orðið blúsinum til fram- dráttar? Jú, jú, það gerði hún víst, en hvort það sé jákvætt í sjálfu sér, ansar Sam og þagnar við. Geispar síðan mæðulega, greinilega ekk- ert í mun að halda lengra inn á þessar brautir. Jæja. Sam, hversu lengi hefur þú haldið út þessari hljómsveit? Það eru orðin níu ár. En auð- vitað með breytingum, bæði hljómlistarlegum og á manna- skipan. Til dæmis rændum við Big Bob Deance frá Bobby Blue Band og sjáum svo sannarlega ekki eftir því, he, he. En þetta band sem þú heidur úti núna er á sinni þriðju ferð til Evrópu. Hvers vegna þessi þreytandi ferðalög? Lítið að gera heima i Jackson? Það er ómögulegt að vera að spila alltaf í Richards Playhouse, þarna í Jackson. Fólk fær á manni leiða. Ferðalögin eru þess utan orðin hluti af lífinu hjá mér. Get varla án þeirra verið, já, þau eru alveg nauðsýn, alger nauðsyn. Og finnst þér viðtökurnar sem þú færð vera mismunandi eftir þjóðum? Held nú það. Annars er það undarlegt að hugsa til þess að við skulum vera fyrsta blúsbandið sem hingað kemur. Eiginlega al- veg hlessa á því. En viðtökurnar hafa verið góðar, hlýlegir áheyr- endur. Klöppuðu ákaft fyrir okkur í gær um leið og við birt- umst. Samt höfðu þeir ekki einu sinni heyrt í okkur en létu eins og við værum að koma fram í tutt- ugasta og fjórða skiptið. Þetta er nokkuð sem ég á eftir að minnast, geyma með mér. Já, áheyrend- urnir, þeir voru góðir. Líklega var áfengið þeirra álíka gott, skýtur framkvæmda- stjórinn, hann Tom Boyd, út úr sér, og leynir ekki húmorísku glottinu á vörum sér. Tom er ný- kominn inn í herbergið og hefur lítið látið fyrir sér fara fram að þessu. Hallað sér upp að skápn- um og fylgst með samtalinu. Já, samþykkir Sam Myers. Lík- lega hafið þið ekki bara gott fer, lapgar mig að spyrja þig eins. Áttu þér einhvern uppá- halds tónlistarmann? Jú, víst. Hann Elmore James, sem ég spilaði með í gamla daga. Hann var einstakur í sinni röð, hann Elmore. Rétt eins og B.B. King. Þessir menn höfðu sinn eig- in stíl, sitt handbragð á öllu. Sama til dæmis hvað Elmore James spilaði, alltaf hægt að þekkja hann, eitthvað svo upp- runalegur. En hvað með þinar plötur, ein- hver annarri betri? Nei, varla get ég sagt það. Þær eru allar jafnar í mínum augum. En, flýtir Sam sér að bæta við, ég nema diskó. Það er bara taktur, alltaf sá sami með tilheyrandi skarkala og látum. Það er heldur varla músik, þetta diskó. Og þetta verða lokaorð Sam Myers. Ég kveð svo hann fái frið, en samt ákveðinn í að sjá hann og heyra um kvöldið í Félagsstofnun stúdenta (NEFS). En heldur brá mér í brún þegar ég kom þangað um áttaleytið. Röðin sem þyrsti að komast inn náði út á Hringbraut, ekki séð það verra síðan á brunaútsölunni á haftaárunum. En fyrir klíku- skap komst ég inn, kaghýddur af augnaráði þeirra ráðvöndu sem ekki áttu kost á því sama. Margt manna var þegar inn- andyra og þreföld kös á barnum og stelpurnar á góðri leið að fá sinaskeiðabólgu af öllum skrúf- ganginum. Fagnaðarlætin urðu meiri en kvöldið áður, þegar hljómsveitin skreiddist upp úr kjallaranum og vopnaðist hljóðfærunum á svið- inu. Stemmningin var rafmögnuð allt frá byrjun, klappað, húrrað og bravóað. Sumir þegar á fleygi- ferð í taumlausum dansi hvar sem pláss var til þess í þéttskip- uðum salnum. Eins og íþrótta- fréttamenn hefðu sagt: Þeir áttu salinn eins og hann lagði sig. Going down slow, eftir St. Louis, Funny things that I used to do, eftir Guitar Slim, sungið af öryggi, þetta var ekta blús. Líka Fanny Mae. Og þannig gekk fram að hlé. Róleg lög innan um hröð. Þannig verður að hafa það, hafði Sam Myers sagt. Blúsinn er merkilegur hlutur, má ekki vera of hægur, þá er hætt við einhverj- um leiðist eða fyllist af ástarsorg. En of fjörugur blús getur tryllt fólkið og hálfbrjálað það. Þetta sagði Sam Myers, en í NEFS leiddist sýnilega engum, frekar að liðið snarbrjálaðist. Sjálfsagt hafa margir farið heim með brennda lófa, því annað eins klapp hefur aldrei heyrst. Eftir hlé kom hvert lagið öðru hveravatn í þessu landi. Þið eigið jafn gott eldvatn, hann kímir. Og þó, heldur Tom Boyd áfram eins og til að draga broddinn úr brandaranum: Áheyrendur nutu tónlistarinnar af því að blúsinn er alþjóðlegur enda þótt hann sé eiginlega þjóðlagamúsik þeirra svörtu í USÁ. Blúsinn nær inn til hjartans hvar svo sem þau slá á jörðinni. Ætli Kínverjar hefðu brugðist mikið öðruvísi við? Sam Myers hefur ekkert við þessum orðum Tom að segja. Tek- ur ofan gleraugun og nuddar aug- un, kæfir svo geispa ofan í kreppta lúkuna. Okei, Sam, það er ekki vert að trufla þig lengur. En áður en ég er ekki þar með að halda því fram að þær séu allar góðar. En fyrir utan blúsinn, hvaða tónlist metur þú mest? Jazz, for sure. Nýbylgjan? Ekki lagt mig eftir henni. Samt kann ég vel að meta rokkið. Eig- inlega líkar mér öll tónlist. Lát- um okkur segja að ef hljómlistin er góð, þá er hún góð. Sam Myers nýr saman höndun- um, blikkar augunum, sleikir var- irnar. Og þó, ef ég á að vera alveg heiðarlegur, verð ég að viður- kenna að mér líkar alls ekki þessi diskómúsik. Nei, mér líkar allt betra; Worried life blues, eftir Big Macco, Off the wall, eftir Little Walter. Jimmy Reed átti þarna perluna, Honest I do, lag sem allir ættu að þekkja og geta tárast yfir. B.B. King og Elmore James áttu sinn skammt að ógleymdum Sam Myers sjálfum. Og fyrr en varði var allt búið, alltof fljótt að sjálfsögðu, fannst flestum. En uppklappið var ekki sparað frekar en fyrri daginn og með þeim árangri að The Mississ- ippi Delta Blues Band lék tvö Jimmy Reed lög í sárabætur fyrir trylltan lýðinn. Titill seinasta lagsins var vel við hæfi: You don’t have to go, sem því miður var ekki satt hvað þessum góðu bandarísku gestum viðkom. Þeir áttu fyrir höndum reisu til Lux- emborgar strax í býti laugar- dagsins og því ekki til setunnar boðið. En heimsóknin mun lengi í minnum höfð og til vorkunnar öllum þeim sem frá urðu að hverfa á föstudagskvöldið fyrir viku, getur meira en verið að Jazzvakning geti sannfært þá um að vera stop-over á bakaleiðinni. Það yrði þá í kringum mánaða- mótin nóv./des., ef af verður. — Endir. UMSJÓN BJÖRN VALDIMARSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.