Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 40
5 krónur 5 krónur eintakið IffflilplIPIP eintakið SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 LjÓ8m: Ólafur K. Majfnússon. Alþingi var sett í gær, eftir að þingmenn höfðu sótt guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Myndin sýnir alþingismenn og ráðherra ganga til kirkju, ásamt biskupi íslands og forseta, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Sjávarafurðadeild SIS: Samdráttur í út- flutningi um 9% ÍITFLUTNINGUR Sjávarafurða doildar Samhands íslenzkra sam- vinnufélaga hefur minnkað um tæplega 9% fyrstu átta mánudi ársins. miðað við sama tímahil ári<Y 1980. að sosn Si^urðar Markússonar. framkvæmda- stjóra Sjávarafurðadeildarinnar. Á fyrstu átta mánuðum ársins flutti Sjávarafurðadeildin alls út 20.570 tonn, en á sama tíma í fyrra voru flutt út 22.550 tonn. Samdrátturinn í frystingunni fyrstu níu mánuði ársins í ár var um 7,4% að sögn Sigurðar Mark- ússonar. Hann sagði að fram- leiðsluminnkunina hér innanlands vera meginástæðuna fyrir minnk- andi útflutningi, eins og tölurnar bæru með sér. 25 hreindýr fundust dauð Talið að þau hafi hrapað niður foss í Sauðá HREINDÝRAVEIÐUM er nýlega lokið og voru 345 dýr felld á veiðitimanum. en heimilt var að veiða 655 dýr. samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk hjá Runólfi Þórarinssyni í menntamálaráðuneytinu. Runólfur sagði ennfremur, að 40 dýr hefðu verið felld í febrúar og maí, en það var gert í rannsókn- arskyni vegna fyrirhugaðrar Austurlandsvirkjunar. Samtals hafa því 385 dýr verið felld á ár- inu. Þá kom það fram hjá Runólfi að 25 dýr hefðu fundist dauð á eyri á milli Sauðár og Jökulsár á Dal og teldi hreindýraeftirlitsmaður- inn á svæðinu greinilegt, að dýrin hefðu hrapað niður foss í Sauðá. Sagði Runólfur, að líklega hefðu dýrin ætlað að synda yfir Sauðá, en straumurinn hrifið þau með sér og þau hrapað niður fossinn. í ár var hreindýraveiði heimiluð í 31 hreppi í Norður-Þingeyjar- sýslu, Múlasýslum og Austur- Skaftafellssýslu og sagði Runólfur að ekkert dýr hefði verið fellt í 11 hreppum, enda hefði veðurfar ver- ið óhagstætt á veiðitímanum. í fyrra voru 560 dýr felld, en þá var heimilað að veiða rúmlega 1000 dýr. Janúar — júní: V iðskiptakjör in bötnuðu um 1,3% Um 7% hækkun innflutningsverðs á föstu meðalgengi VIÐSKII’TAKJÖR hafa lítils- háttar hatnað á þessu ári, en i skýrslu Þjóðhagsstofnunar um framvindu efnahagsmála timabil- ið janúar til ágúst sl., segir m.a., að á fyrri helmingi þessa árs hafi viðskiptakjör verið 1,3% betri en á sama tíma í íyrra. Séu álvið- skiptin hins vegar frátalin er viðskiptakjarabatinn 4,4%. —■ Viðskiptakjarabatinn á þessu ári stafar af hækkun á gengi dollars gagnvart Evrópumyntum og verðhækkun á mikilvægum sjávarafurðum í dollurum. Sé út- flutningsverðhækkunin frá árs- meðaltali til fyrri árshelmings metin í dollurum reynist hún í heild aðeins 1,8% eða rétt um fjórðungur þess, sem hún mældist miðað við breytingu meðalgengis. Án áls er útflutningsverð á fyrri helmingi ársins 4,3% hærra í doll- urum en að meðaltali árið 1980. Breytingar útflutningsverðs eru mjög mismunandi. í heild hafa sjávarafurðir hækkað rösklega um 5% í dollurum, en þeirri hækkun er mjög misskipt. Veruleg hækkun er á saltfiski og einnig nokkur á skreið, mjöli og lýsi, en meðalverð frystiafurða helzt tæplega óbreytt. Þá hefur orðið mikil lækkun á verði áls, kísilgúrs og kísiljárns svo og á verði ýmissa iðnaðarvara. Tölurnar fyrir fyrri helming þessa árs sýna um 39% verðhækk- un innflutnings í krónum frá með- altali ársins 1980, sem svarar til um 7% verðhækkunar á föstu meðalgengi. Á hinn bóginn sýna útreikningar fyrir 2. ársfjórðung 12% hækkun innflutningsverðs á föstu meðalgengi frá meðaltali 1980. Þetta gefur vísbendingu um örari hækkun innflutningsverðs en gert hefur verið ráð fyrir í spám þessa árs, sem m.a. voru reistar á spám ýmissa alþjóða- Skip leigt til vöruflutn- inga milli Þórshafnar og Seyðisf jarðar - LEIGT hefur verið skip. Elsa F., til að annast vöruflutninga milli Seyðisfjarðar og Þórshafnar 1 Færeyjum. Samkvæmt fréttum í Dimma- lætting kemur skipið til Seyðisfjarðar á tveggja vikna fresti, fer frá Þórshöfn á miðvikudögum og heldur í fyrstu ferðina næstkomandi miðvikudag, en fer frá Seyðisfirði á laugardögum. Tómas Arabo, sem er einn af stjórnarmönnunum í færeysk-íslenzka hlutafélaginu Skiparekstur, segir í viðtali við blaðið að fyrirhugað sé að halda uppi siglingum allan ársins hring. Hann segir, að Elsa F. hafi ekki verið leigð til langs tíma og kunni því annað skip að verða leigt til þessa verkefnis. Arabo segir ennfremur að ekki sé fyrirhugað að byggja skip vegna þessara vöruflutninga. stofnana. Þó þarf að hafa í huga, að ýmis atriði, svo sem breytingar á samsetningu innflutnings og út- flutnings, geta valdið óeðlilegum sveiflum í ársfjórðungstölum, sem koma síður fram í hálfsárs- og heilsárstölum. 2200 lesta skip dregið 200 mílur til Reykjavíkur FLUTNINGASKIPIÐ Svendborg var dregið til hafnar í Reykjavik í fyrrinótt, en alvarleg vélarbilun varð í skipinu um siðustu helgi. Þá var skipið statt rösklega 200 mílur fyrir suðvestan ísland á leið til Umanak i Grænlandi. Iceport, sem einnig er eign Kon- unglegu grænlenzku verzlunarinn- ar, var nærstatt og tók Svendborg í tog eftir að skipverjar höfðu árang- urslaust reynt að gera við vélarbil- unina. Það tók fimm daga að draga þetta rúmlega 2200 lesta skip til Reykjavíkur en á móti 5—8 vind- stigum var að sækja allan tímann. Reynt verður að gera við vélar Svendborg í Reykjavík. Iceport tek- ur vörur úr Svendborg og fer með til Umanak, en saltfarmur Iceport verður skilinn eftir í Reykjavík. Á mánudag er flutningaskipið Grön- land væntanlegt til Reykjavíkur til að taka saltið og fjórða skip útgerð- arinnar tekur síðar afganginn af stykkjavörunum, sem voru um borð í Svendborg. Flutningaskipið Elsa F. við bryggju i Færeyjum. Banaslysí Svínahrauni BANASLYS varð í fyrrinótt er bifreið var ekið út af veginum skammt fyrir neðan skíðaskál- ann í Ilveradölum og lézt far- þegi i hifreiðinni samstundis að því er talið er, en ökumaðurinn liggur lífshættulega slasaður á gjörga-zludeild Borgarspítal- ans. Það var klukkan 2.57 að lög- reglunni á Selfossi var tilkynnt um að bifreið af gerðinni Volvo Amazon, árgerð 1966, hefði farið út af veginum fyrir neðan Hveradali. Gerðist þetta í neðri Hveradalsbrekkunni. Bifreiðin fór þar út úr beygjunni, yfir af- leggjarann að Kolviðarhóli, endastakkst og fór nokkrar velt- ur áður en hún nam staðar í hrauninu. Ökumaður og farþegi köstuðust út úr bifreiðinni. Bifreiðastjóri á langferðabíl var vitni að slysinu og tilkynnti um það. Er að var komið var annar maðurinn látinn og er tal- ið að hann hafi látizt samstund- is. Hann var 27 ára gamall Reykvíkingur, kvæntur, og átti 5 ára dreng. Ökumaðurinn liggur þungt haldinn og í lífshættu á Borgarspítalanum, hann er 21 árs gamall Kópavogsbúi. Þeir voru að koma af samkomu í skíðaskálanum í Hveradölum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.