Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981
35
Nýr veitingastaður
í Torfunni opnar
VEITINGAHÚSIÐ Lækjar-
brekka, Bankastræti 2, verður
opnuð almenningi í dag klukk-
an 18. Þar verða á boðstólum
íjölbreyttar veitingar frá
klukkan 8.30 á morgnana til
23.30 alia daga. Sérstakur
morgunverðarseðill verður til
klukkan 11 á morgnana. í há-
hefur Þorsteinn Bergsson, for-
maður Torfusamtakanna, haft.
A þessu húsi, sem upphaflega
var byggt 1834 hafa farið fram
umfangsmiklar endurbætur, en
upprunalegt útlit þess verið haft
að leiðarljósi. Sérstaklega hefur
verið vandað til verksins og
margir lagt lið við samræmingu
Eigendur og starfsfólk
fegurðar- og verndunarsjónar-
miða.
Teikningar af húsi og innrétt-
ingum hefur Knútur Jeppesen,
arkitekt, annazt og bygginga-
meistari var Halldór Backman.
Raflögn annaðist Ljósvakinn sf.,
pípulagnir Geir Hansen og
málningu Sigurður Pálsson.
Skreytingar, svo sem hönnun á
matseðli, skilti og fleira teiknaði
Sigurður Valur Sigurðsson,
myndlistarmaður, og búninga á
starfsfólk teiknaði Sigrún Guð-
mundsdóttir, fatahönnuður.
Eigendur Lækjarbrekku eru
Kolbrún Jóhannesdóttir og fjöl-
skylda og mun Kolbrún annast
veitingareksturinn með börnum
sínum, Lindu Ingvarsdóttur og
Guðmundi V. Ingvarssyni. Yfir-
matreiðslumaður hefur verið
ráðinn Walter Ketel.
degi og á kvöldin verða réttir
dagsins, jafnframt því sem
matur af vönduðum sérrétta-
seðli hússins verður á boðstól-
um meðan opið er. Áherzla
verður lögð á góðar kaffiveit-
ingar, en þær verða þó ekki
framreiddar á matartimum.
Vínveitingar verða á staðnum,
en aðeins í tengslum við máltíð-
ir. Ilúsið tekur um 90 manns i
sæti og verður þjónað til borðs
á tveimur hæðum.
Bankastræti 2 er sem kunnugt
er eitt þeirra húsa, sem Torfu-
samtökin tóku á leigu hjá ríkinu
til endurbyggingar og varð-
veizlu, en hafa nú framleigt það
til veitingarekstrar. Heildar-
umsjón með framkvæmdum
Þrjár sölur
ÞRJÚ fiskiskip lönduðu afla
sínum erlendis á föstudag.
Arney seldi 45,8 lestir í
Grimsby fyrir 395,8 þúsund
krónur, meðalverð á kíló 8,63
krónur. Júní seldi 124,2 lestir í
Bremerhaven fyrir 794,9 þús-
und krónur, meðalverð á kíló
6,40. Þá seldi Erlingur 105,6
lestir í Cuxhaven fyrir 733,8
þúsund krónur, meðalverð á
kíló 6,94 krónur. í næstu viku
selja eitt eða fleiri íslenzk skip
í Bretlandi eða V-Þýzkalandi
dag hvern.
Færeyingar
búnir að veiða
það sem þeir
mega af þorski
FÆREYINGAR fylltu í vik-
unni upp í kvóta þann, sem
þeir fengu til þorskveiða hér
við land í ár, en samið var um
sex þúsund tonn.
Hins vegar eiga þeir eftir að
veiða um 500 lestir af öðrum
fisktegundum, en samtals
mega Færeyingar veiða 17
þúsund lestir hér við land.
Fjögur færeysk skip eru nú á
línuveiðum hér við land og þar
af er eitt þeirra nýkomið á
miðin.
Auk Færeyinganna eru
tveir belgískir togarar að veið-
um við landið.
London er...b
sembýður
þér næstum því allt í^rir sáralítið
Allt sem þú hefúr heyrt um London er satt.
Tveggja hæða, rauðir strætisvagnar lulla
niður götur fullar af heimsfrægum verslun-
um. Verðir drottningarinnar skipta um vakt
á vélrænan hátt framan við Buckingham
höllina og á hverju homi virðist vera eitthvað
sem allir kannast við. Westminster Abbey er
rétt hjá Big Ben, sem er aðeins steinsnar frá
styttunni af Nelson og hinum megin við
homið er PiccadiUy Circus..þú röltir bara
ámilli.
Og London er ennþá aðal verslunarmið-
stöð Evrópu, uppfull af alls konar tilboð-
um. Þú færð t.d. gallabuxur í skemmunni
hjá Dickie Dirts í Fulham fyrir 130 krónur
og hljómplötur á spottprís í plötubúð-
unum við King’s Road.
London er.... full af
ókeypis fjársjóóum
í London eru yfir 400 söfn og listasalir og
að þeim er yfirleitt ókeypis aðgangur. Ef
þú kaupir farmiða, sem heitir London
Transport Red Rover, getur þú ferðast um
borgina í heilan dag og skoðað London af
efri hæðinni á stórum rauðum strætó.
Miðinn kostar aðeins um 33 krónur.
London er... ódýr,
vinalegur pub
Þegar þú verður svangur skaltu gera eins
og Bretar gera, bregða þér inn á næsta
pub. Þótt þeir séu ólíkir, segja þeir hver
Iiondon
=1=
Ef þú ert hrifinn af knattspyrnu mætti
minna á að í London eru 3 fyrstudeildar
lið. Þú kemst á leik fyrir30 krónur.
Það er fallegt að virða London fyrir sér frá
ánni. Þess vegna er upplagt að sigla frá
Westminster Pier til Greenwich, - en þar
er National Maritime safnið. Þeim 30
krónunum er vel varið - og svo er ókeypis
inn á safnið.
London er .... hótel við
þitt hæfí
London er full af hótelum. Þar em lítil
hótel þar sem þú færð herbergi fyrir 180
krónur og enskan morgunverð fyrir 25
krónur, stærri hótel á meðalverði og luxus
hótel í hæsta gæðaflokki.
London er alltof stór í eina auglýsingu.
Það er því gott að geta gengið að bækling-
um og bókum BTA hjá bókaverslun Snæ-
bjamar. En það er ekki nóg. Þú verður að
sjá London sjálfa. Þú kemur aftur hlaðinn
ómetanlegum minningum og líklegast með
afgang af gjaldeyrinum.
um sig heilmikið um breskan lífsmáta. Glas af
b jór og k jötkaka með salati kostar ekki nema svo
sem 25 krónur og vingjamlegt andrúmsloftið
kostar hreint ekki neitt.
London er.... full af íjöri
Það er alveg sama á hverju þú hefur áhuga -
leiklist eða tónlist, þú finnur það í London. Þar
eru yfir 50 leikhús, 3 ópemhús, 5 sinfóníuhljóm-
sveitir, og engin poppstjama hefur „meikaða”
almennilega fyrr en hún hefur spilað í London.
Nú er líka hægt að kaupa leikhúsmiða á sýningar
samdægurs í miðasölunni á Leicester Square fyrir
hálfvirði.
FLUGLEIDIR
lækka ferðakostnadinn
Þú getur notfært þér ódým sérfargjöldin
og hagstæða samninga Flugleiða við
Grand Metropolitan hótelkeðjuna og
keypt flugfar og gistingu á einu bretti!
Einnig hafa ferðaskrifstofumar á boðstól-
um stuttar helgarferðir með flugferð, gist-
ingu og morgunverði inniföldum í verðinu.
Athugaðu málið, - úrvalið er gott.
BRITISH TOURIST AUTHORITY
veitír okevpis upplýsingar
Ef þú hefur samband við söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn þeirra eða ferða-
skrifstofurnar, getur þú fengið sendan
bækling frá British Tourist Authority með
nánari upplýsingum um London, ásamt
verðskrá og ferðaáætlun Flugleiða. t
Komdu sem fyrst
í heimsókn!
nóg að sjá, nóg að gera!