Morgunblaðið - 11.10.1981, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981
28
Hættuástandið í
Póllandi eykst
ÓIIÁÐA verkalýðshreyfingin
Samstaða i Póllandi heldur enn
fast við það að hún vilji ekki
stjórna landinu heldur verja
hagsmuni meðlima sinna ok um
leið mannréttindi þeirra, en þol-
inmæði hreyfin»?arinnar er á
þrotum. Þótt frelsi Pólverja hafi
aukizt tii muna á rúmu ári hefur
nánast ekkert verið gert til að
hyxsja upp nýtt þjóðfélaK með
stofnunum til trysKÍnKar hinu
nýja frelsi ok upplausnin i efna-
haKsmálunum hefur haldið
áfram að maKnast án þess að rík-
isstjórnin hafi Kripið til róttækra
ráða.
Rússar hafa hótað svo oft af-
skiptum af pólskum innanríkis-
málum og ríkisstjórnin hefur svo
oft hótað valdbeitingu að Pólverj-
ar hafa orðið róttækari en ekki
hófsamari með tímanum. Heræf-
ingar Rússa urðu til þess eins, að
fyrra þing Samstöðu skoraði á
aðrar þjóðir Austur-Evrópu að
koma á fót frjálsum verkalýðsfé-
lögum og Pólverjar hlusta ekki
lengur þegar ríkisstjórnin hrópar
að allt sé að fara norður og niður.
Viðvaranirnar eru hundsaðar eða
þeim er svarað með hörku eins og
pólskur höfundur, Jacek Kalab-
inski, bendir á. Ekki hefur verið
staðið við hótanirnar og nú er svo
komið að Pólverjar telja að Rúss-
ar og ríkisstjórnin verði að fá að-
lögunartima til að sætta sig við
ástandið, sem sé staðreynd er ekki
verði breytt.
Ein mikilvægasta ákvörðun
Samstöðu til þessa var ákvörðun
hreyfingarinnar á þingi sínu að
biðja þjóðþingið að efna til þjóðar-
atkvæðis um sjálfstjórn verka-
manna í verksmiðjum og skrif-
stofum og lýsa því yfir að ef þingið
neitaði að koma þessu til leiðar
eða samþykkti útþynntar tillögur
frá ríkisstjórninni mundi hreyf-
ingin sjálf efna til þjóðaratkvæðis
um hugmyndina. Nátengd þessari
hugmynd var ályktun með áskor-
un um lýðræðislegar kosningar til
þingsins og bæjar- og sveitar-
stjórna, að sögn fréttamanns
Lech Walesa með blómvönd og póstpoka sem kom við sögu i kosningunni um stöðu leiðtoga Samtöðu á
nýloknu þingi.
Observer, því að Samstaða er
sannfærð um að án traustra póli-
tískra og lýðræðislegra stofnana
séu engir möguleikar fyrir hendi
til að hrinda í framkvæmd þeim
miklu efnahagsumbótum, sem rík-
isstjórnin, verkalýðsfélögin og
þjóðin eru sammála um að verði
að eiga sér stað.
Samsteypustjórn?
Með því að hóta að hundsa
ákvarðanir þingsins um þjóðar-
atkvæðið gefur Samstaða í skyn
að umbótum sé ekki hægt að koma
til leiðar í Póllandi fyrr en landið
lúti ríkisstjórn er njóti meiri
stuðnings meðal þjóðarinnar.
Þetta kom fram þegar leiðtogi
Samstöðu í Varsjá, Zbigniew Buj-
ak, sagði blaðamönnum á Sam-
stöðu-þinginu að þar sem ekki
væri hægt að hrinda efnahags-
umbótunum í framkvæmd „nema
því aðeins að traustverðugt póli-
tískt yfirvald væri til staðar" ætti
kannski „að mynda samsteypu-
stjórn fulltrúa ríkisstjórnarinnar,
Samstöðu og kirkjunnar til að
stjórna landinu í eitt ár“. Hálf-
gerð klerkastjórn í Varsjárbanda-
lagsríki gæti virzt fjarstæða, segir
Observer, en sú pólitíska lausn,
sem verður að finna á ástandinu,
getur orðið undarleg. Hvað sem
því líður getur það vandræða-
ástand sem nú ríkir ekki haldið
áfram öllu lengur.
Lömun stjórnarinnar veldur því
að ekkert mark er tekið á gerðum
hennar. Fyrsta alvarlega skyssa
hennar var að sögn Kalabinski að
endurskoða þær efnahagslegu og
pólitísku tilslakanir, sem verka-
menn fengu með Gdansk-sam-
komulaginu í ágúst 1980. „Yfir-
völdin óttuðust að Varsjárbanda-
lagsríkin gætu ekki sætt sig við
þessar víðtæku breytingar á kerf-
inu og fóru að halda að litið yrði á
hvers konar málamiðlun sem við-
urkenningu um veikleika, skref
aftur á bak af völdum þrýstings.
Þau komust að þeirri niðurstöðu
að ríkisstjórnin yrði því aðeins
talin trúverðug á nýjan leik að
hún sýndi festu og jafnvel
þrjózkufulla ákveðni. Nú er svo
komið að ýmsir leiðtogar vona
jafnvel að verkalýðshreyfingin
verði bæld niður — þeir telja að
verkamenn geti gleymt hinum
nýju kröfum sínum og sætt sig við
ástandið eins og það var áður en
breytingarnar urðu.“
Svar verkalýðsfélaganna við
nýrri hörku ríkisstjórnarinnar
hefur verið „aukin þrjózka, fleiri
Frá miðvikudegi 25. nóv. (Brottför KEF 18.30) tt! sunnudags 29, nóv. (Brottför GLA 18.00). Góö velstaösett
hótel - Dvölin algerlega að yöar óskum - Útvegum bílaleigubila / leikhús- og vallarmiða / skoðunarferöir auk
annars. Verð í tvíbýli f rá kr. 2.600.- - Tækifæri á tækifærisveröi.
URVAL við Austurvöll s 26900