Morgunblaðið - 11.10.1981, Side 29

Morgunblaðið - 11.10.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 29 verkfallshótanir, verkfallsviðbún- aður og viðvörunarverkföll", segir Kalabinski. Verkamenn hafa kom- izt að raun um að „þótt yfirvöld reyndu að sýnast ósveigjanleg var hægt að beita þau þrýstingi til að fallast á tilslakanir" og raunar sjá verkamennirnir að „stjórnin er aðeins reiðubúin til samkomulags þegar hún er undir þrýstingi — og því meiri þrýstingur, því betra samkomulag". Pólsk öfgastefna „Þannig hafa þær hörkulegu að- ferðir, sem áttu að hækka ríkis- stjórnina í áliti, í raun valdið henni enn meiri álitshnekki," seg- ir Kalabinski. „Meðan ríkisstjórn- in er önnum kafin við að verja ímynd valds síns hefur hún lítinn eða engan tíma til að fást við raunveruleg vandamál Póllands. Þetta hefur síðan gert þjóðina ennþá sannfærðari um það en áð- ur, að ríkisstjórnin geri ekkert og flokkurinn hamli aðeins gegn endurnýjunarþróuninni. Þar sem báðir aðilar hafa snúið sér að öfgafyllri bardagaaðferðum eru óbreyttir félagsmenn Samstöðu að verða róttækari en leiðtogarnir í æðstu forystunni og úti á lands- byggðinni, jafnvel róttækari en fyrrverandi andófsmenn, sem nú eru virkir í hreyfingunni." Mikilvægasta uppgötvun Sam- stöðu var að sögulegt þing komm- únistaflokksins í júli breytti litlu þrátt fyrir lýðræðislegustu kosn- ingar í sögu kommúnistaflokka Austur-Evrópu. Nýir, óþekktir og óreyndir menn úr röðum óbreyttra flokksmanna tóku sæti í æðstu stjórn flokksins, en vanda- málin, sem flokkurinn stendur andspænis, lömuðu þá og þeir þögnuðu. Þrímenningarnir Stan- islaw Kania, flokksleiðtogi, for- sætisráðherrann, Jaruzelski, hers- höfðingi, og Stefan Olszowski, sem stjórnar fjölmiðlunum, hafa hvorki mætt mótstöðu né fengið stuðning hjá nýju mönnunum. Kannski sýnir þetta mönnunum í Moskvu hve kommúnistastjórnum stafar lítil hætta frá flokkslýð- ræði, segir brezka blaðið Observ- er, en fyrir Pólland hefur það ver- ið hörmulegt að æðstu leiðtogarn- ir hafa ekki getað starfað af krafti með Samstöðu. „Flokksþingið efldi aðeins þá menn í flokknum sem vilja brjóta Samstöðu á bak aftur og völd þeirra voru staðfest í lýðræðisleg- um kosningum," segir Kalabinski. „Auk þess eru hinir nýkjörnu verkamenn í miðstjórninni aðal- lega frá meðalstórum verksmiðj- um lítilla bæja og þeim hættir því við að vera stjórnmálalega barna- legir og auðveld bráð atvinnu- stjórnmálamanna, sem fylgja harðlínumönnum að málum. Nú eru báðir aðilar í pólitískri spenni- treyju. Ríkisstjórnin telur að verkalýðsfélögin vilji taka völdin. Hvor aðili um sig sakar hinn um að magna hina harðnandi stjórn- málakreppu og efnahagserfiðleik- ana og spennuna sem af henni hljótast." Ríkisstjórnin er sannfærð um að almenningur hafi misst trúna á Samstöðu og Kalabinski segir að hún vonist til að geta gert álit og pólitísk völd hreyfingarinnar að engu með því að neyða hana til þess að boða til allsherjarverkfalls við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja, að bera fram kröfur sem flestir Pólverjar muni ekki styðja, að boða til verkfalls þegar kallinu verður ekki hlýtt. En stjórnin metur stöðuna rangt. Þótt völdum Lech Walesa hafi verið ógnað inn- an Samstöðu, nú síðast eftir hækkanir á verði vindlinga, hefur honum jafnan tekizt að snúa sér út úr þeim 'erfiðleikum, sem hann hefur komizt í, með mælsku sinni og fortöluhæfileikum og sú virðist vera raunin nú eins og alltaf áður. Að vísu virðist valdið innan Sam- stöðu hafa færzt til landshluta- samtaka hreyfingarinnar, en trú verkamanna og fjölskyldna þeirra á Samstöðu er eins mikil og áður, þrátt fyrir ugg þeirra um að hreyfingin muni gera of margar tilslakanir. „Samstaða reynir þó að minnsta kosti að gera eitt- hvað,“ segja venjulegir Pólverjar. Breytt mannlíf Það er ríkisstjórnin, sem Pól- verjar saka um að bera ábyrgð á ástandinu og þeirri eymd sem þeir búa við vegna margra ára lélegrar skipulagningar í efnahagsmálum, og þeir skeyta skapi sínu á stjórn- inni, því að þeir eru orðnir óþol- inmóðir. Tilraun opinberra fjöl- miðla til að kenna Samstöðu um efnahagserfiðleikana virðist hafa haft lítil áhrif og unga fólkið fylg- ir Lech Walesa að málum. Breytingarnar í Póllandi felast ekki aðeins í auknu tjáningar- frelsi, auknum áhrifum kaþólsku kirkjunnar, auknum völdum Sam- stöðu og auknum efnahagserfið- leikum — mannlífið hefur líka breytzt. Mikið af þeirri tillitssemi, nærgætni, kímni og því skemmt- analífi, sem áður létti mönnum lífsbyrðina, hefur gufað upp, segir fréttaritari AP í Varsjá. Kven- fólki er stjakað tii hliðar í biðröð- um við verzlanir í stað þess að vera hleypt fram fyrir eins og áð- ur og þunguðum konum með barnavagna er ekki vísað fremst í biðraðirnar eins og áður. Kvik- myndahús geta ekki lengur sýnt vestrænar myndir vegna skorts á gjaldeyri, vodka hefur verið skammtað og bjór er nánast ófáanlegur, þannig að barir og frægir jazz-klúbbar hafa tæmzt. Það sem Pólverjar gæddu sér á við morgunverðarborðið fyrir rúmu ári — kaffi með sykri, skinku eða bjúgum og sætum, smurðum bollum með marmelaði — hefur verið skammtað. Vegna aukinnar eftirspurnar er óvíst hvort skammtaðar vörutegundir fást í verzlunum, hvort heldur sykur, vodka eða vindlingar, og vöruskiptaverzlun hefur verið tek- in upp. Fólk losar sig við peninga til að kaupa hluti, sem það hefur ekki þörf fyrir, svo að nú er jafn- vel skortur á gluggatjöldum, skrúfum og bollum. Fólk hefur meiri fjárráð en áður eftir launahækkanirnar í sumar og ein leiðin til að sigrast á mat- vælaskortinum var að snæða á hótelum, en nú hefur verið tekið fyrir það. Hreinlæti hefur jafnvel farið aftur, þar sem skortur er á hárþvottalegi, tannkremi, sápu og salernispappír. Orðrómur er um að föt verði skömmtuð og því hafa myndazt biðraðir við fataverzlanir þar sem fölk hefur staðið í marga klukkutíma. Pólverjar veita reiði sinni útrás með því að senda bréf til nýs sjónvarpsþáttar, sem fjall- ar sérstaklega um kvartanir um efnahagsmálin og nýtur mikilla vinsælda. „Lífið hefur breytzt hjá okkur, en ég veit ekki hvort það hefur breytzt til hins betra," sagði Pólverji nokkur í viðtali við AP. „Fólk brosti áður hvert til annars í strætisvögnum, en nú talar það ekki. Þetta er ekki gott andrúms- loft.“ Ilætturnar aukast Ástandið er uggvænlegt, því að ríkisstjórnin og Samstaða hafa ekki ræðzt við síðan í ágúst, hvor aðili um sig hefur farið sína leið og bilið milli þeirra hefur breikk- að stöðugt. í allri Austur-Evrópu er fylgzt með því, hvort aðlögun- arhæfni Pólverja er nógu mikil til þess að frjáls verkalýðsfélög geti þrifizt eða hvort gjaldið, sem verð- ur að greiða, verður glundroði, hungur og loks sovézk íhlutun. Brezka blaðið Observer segir: „Sú lausn að reyna að gera komm- únistaflokkinn að lýðræðislegum samstarfsaðila í „endurnýjunar- áætlun" virðist hafa mistekizt. Samstaða reynir nú með varfærni að sniðganga opinber yfirvöld og gera það sem þau ættu að gera — koma á laggirnar skynsamlegu efnahagskerfi, byggðu á atvinnu- lýðræði og raunverulegum þörf- um. I sjálfu sér getur þetta ekki fyllt valdatómið í Póllandi. Að lokum verður að vera til staðar sterk, miðstýrð ríkisstjórn til að stýra bæði umbótunum og efna- hagsbatanum. Samstaða stefnir ekki að því að stjórna, en hreyf- ingunni finnst hún verði að hefj- ast handa, þjóðarinnar vegna." Og pólski höfundurinn Kalab- inski skrifar: „Kjarni vandamáls- ins er sá, að ríkisstjórnin er ekki fær um að skilja að harðhent stjórn hefur alltaf hert Pólverja, sem eru þrjózkir að eðlisfari, í stað þess að gera þá viðráðanlegri. Enginn getur farið með sigur af hólmi í slíku uppgjöri, svo að það verður að forðast slíka árekstra, ekki aðeins í þágu Póllands, held- ur í þágu nágranna þeirra einnig."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.