Morgunblaðið - 11.10.1981, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981
33
Virðuleg skóla-
setning að Hólum
Breyttir tímar frá bví fyrir 40 árum er jafnvel sjö
nemendur sváfu í óupphituðu herbergi, segir Björn í Bæ
Ba*. Höfðastrðnd. 9. október.
ÞAÐ VAR ekki tekið út
með sældinni að komast
heim að Hólum til þess að
vera við skólasetningu
þar, því að jarðlaust er að
mestu í Viðvíkursveit og
Hjaltadal, en vegir höfðu
þó verið mokaðir. Þó var
mjög hált á vegum. Fjöl-
menni kom eigi að síður að
Ilólum í gær, þar á meðal
landbúnaðarráðherra,
Pálmi Jónsson. ráðuneytis-
stjóri, Sveinbjörn Dag-
finnsson, Guðmundur
Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri á Hvanneyri,
skólanefnd, fjölmargir
nemendur og fjöldi ann-
arra gesta.
Helgistund fór fram í Hóla-
dómkirkju og sá Sighvatur Em-
ilsson dómkirkjuprestur um
hana, en flestir viðstaddir sungu.
í dómkirkjunni flutti skólastjóri,
Jón Bjarnason, ágæta skólasetn-
ingarræður þar sem hann skýrði
frá tilhögun og væntanlegu starfi
skólans í vetur, en skólinn verður
100 ára á næsta ári. Hann sagði,
að gamla skólahúsið væri með
elztu skólahúsum landsins og
hefði þá verið með veglegustu
húsum og nú eftir gagngerar
breytingar og uppbyggingu væri
það aftur komið í tölu hins bezta
sem þekktist.
Samkvæmt nýrri skólalöggjöf
bændaskólanna verður kennt í
tveimur deildum, tveggja ára
deild þar sem nú verða 15 nem-
endur og eins árs deild, þeirra
sem einkum hafa fengið betri
undirbúning, til dæmis stúd-
entspróf, en þar verða 14 nem-
endur, sem ekki byrja nám fyrr
en 1. nóvember. Fleiri umsóknir
hafa borizt, en ekki var hægt að
taka fleiri nemendur nú þar sem
ekki er búið að endurbyggja öll
herbergi heimavistarinnar. Sex
stúlkur verða í tveggja vetra
deild og þrjár í eins vetrar deild,
en nemarnir eru víða að af land-
inu. Til dæmis sex Skagfirðingar,
fimm Eyfirðingar, fjórir Þingey-
ingar og jafnvel nemi úr
A-Skaftafellssýslu.
Athyglisverð þóttu mér síð-
ustu orð skólastjóra, sem hann
mælti til nemenda: „Hugsið um
framtíð ykkar og framtíð skól-
ans. Ósk okkar hjónanna er að
allir eigi að starfa á staðnum,
sem ein fjölskylda."
Landbúnaðarráðherra talaði
næst til viðstaddra, skýrði frá
því, sem gert hefur verið á Hól-
um á þessu ári og fyrirhugað er
að gert verði. Óskaði hann skóla-
stjórahjónunum, öllum nemend-
um og kennurum blessunar í
starfi.
Eftir skólasetningu í dóm-
kirkjunni var öllum viðstöddum
boðið í kaffidrykkju heim á
staðnum. Þótti okkur tveimur,
sem þarna mættum og vorum á
Hólum veturinn 1920, þetta há-
tíðisdagur og munum tvenna
tímana í gamla timburhúsinu, er
við vorum 6 og 7 í óupphituðum
herbergjum, sem ekki voru
stærri en eins manns íbúð er nú.
Þá fraus oft vatn í vatnskönnum
í íbúðarherbergjunum. Tveir
sváfu alls staðar saman og jafn-
vel í flatsæng á gólfi. Nú hugsa
allir unnendur Hólaskóla með
hlýhug til væntanlegrar upp-
byggingar staðarins.
— Björn.
Mynd Mbl. Ól.K.M.
Gufumökkinn lagði upp frá hitaveituæðinni og skapaðist umferð-
aröngþveiti.
Hitaveituæð
fór í sundur
HITAVEITUÆÐ í Skothús-
vegi skammt íyrir austan
Fríkirkjuveg fór í sundur
um hádegisbilið í fyrradag.
Hitaveituæðin liggur yfir
Tjarnarbrú og Suðurgötu
og kemur saman við æð í
Ilringbraut. Talsvert um-
stang varð vegna þessa,
enda lagðist gufumökkur
yfir Tjarnargötuna og skap-
aðist umferðaöngþveiti.
„Hér er um gamla æð að
ræða, sem lengi hefur staðið
til að gera við. En vegna ör-
lætis ríkisstjórnarinnar hef-
ur það ekki verið hægt,“
sagði Jóhannes Zoéga, hita-
veitustjóri í Reykjavík í sam-
tali við Mbl. í gær. Viðgerð á
æðinni lauk í gærkvöldi.
Suður i Fossvogshverfi efndu þessar vinkonur til hlutaveltu til
ágóða fyrir Styrktarfél. Þær söfnuðu rúmlega 300 krónum til
féiagsins. — Þær heita Berglind Kristinsdóttir, Hlín Gyifadóttir
og Elinóra Kristinsdóttir.
Þessar telpur hafa fyrir nokkru afhent íþróttafél. fatlaðra hér í
Rvík 120 krónur sem komu inn á hlutaveltu, sem þær efndu til. —
Þær heita Elísabet Garðarsdóttir, Berta K. Óskarsdóttir, Harpa
S. Jónsdóttir og Ásdis B. Einarsdóttir.
Þessar stöllur efndu til hiutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél.
vangefinna og söfnuðu rúmlega 100 krónum. Telpurnar heita
Guðný Linda Óladóttir, Maria Lovisa Árnadóttir og Særún Sam-
úelsdóttir.
Þessir ungu menn efndu fyrir nokkru til hiutaveltu að Melabraut
41 á Seitjarnarnesi, tii ágóða fyrir Kirkjubyggingarsjóð Seltjarn-
arness. Þeir söfnuðu rúmlega 300 krónum, drengirnir, sem heita:
Sigurður F. Meyvantsson, Kristinn Guðmundsson, Ragnar Vals-
son og Guðlaugur B. Þórðarson.
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF 80 23
...auðvitað
ORUIIDIG
LaugavegilO, sími 27788