Morgunblaðið - 12.12.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981
35
Nýr bátur til
Stykkishólms
StykkÍNhólmi, 30. dót.
UM HELGINA kom hingað 17
lesta vélbátur sem keyptur hefir
verið í bæinn af þeim Ásgeiri
Árnasyni og Eggert Björnssyni, og
hyggjast þeir halda honum út til
veiða frá Stykkishólmi. Verður
Eggert skipstjóri en Ásgeir vél-
stjóri. Báturinn hét áður Haftind-
ur með heimilisfestu í Hafnarfirði
en breytir nú um nafn og heitir
Gísli Gunnarsson II. Manheim-vél
er í bátnum. Reyndust bátur og
vél ágætlega á heimleið þrátt fyrir
að veður var vont.
Fréttaritari
Óheimilt að
bjóða kaupbæti
Morgunblaðinu hefur borist eftir
farandi frá Verðlagsstofnun.
„í tilefni af því að nú fer í hönd
mesti annatími hjá verslunum vill
Verðlagsstofnun hér með benda
seljendum og neytendum á að
samkvæmt lögum um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti er óheimilt við
framboð á vörum að bjóða neyt-
endum kaupbæti. Einnig er
óheimilt í því skyni að örva sölu,
að úthluta vinningum með hlut-
kesti í formi verðlaunasamkeppni
eða á annan hliðstæðan hátt.
Fyrir jól í fyrra bar nokkuð á
því að seljendur virtu ekki þessi
ákvæði laganna sem skyldi. Marg-
ir lögðu sig fram við að finna snið-
ugar hugmyndir til þess að örva
jólasöluna hjá sér.
Ef þær vörur sem seljendur
bjóða eru eftirsóknarverðar ætti
ekki að þurfa að beita slíkum að-
ferðum. Þær torvelda neytendum
innkaupastörfin sem fólgin eru í
því að velja þær vörur sem eru
hagstæðastar og samsvara sem
best raunverulegum óskum og
þörfum hvers og eins.
Ef samkeppni á markaðnum fer
að verða fólgin í því að bjóða neyt-
endum þátttöku i skemmtilegum
getraunum eða spennandi happ-
drættum er hún komin út í ógöng-
ur. Ekki er unnt fyrir neytendur
að bera saman raunverulegt vöru-
verð ef alls konar gjafir fylgja
kaupunum. Slíkar söluaðferðir eru
því óhæfilegar, enda verður vart
hjá því komist, að kostnaðurinn af
slíku bætist við vöruverðið fyrr
eða síðar.
Samkeppni söluaðila gagnvart
neytendum á að vera fólgin í því
að bjóða sem hagstæðast verð,
sem mest gæði og sem besta þjón-
ustu. Það tryggir best hag neyt-
enda. í þeim tilgangi voru laga-
ákvæðin um óréttmæta viðskipta-
hætti og neytendavernd sett á sín-
um tírna."
wœm&m
HEKIAHF
Cotefptkr, Cot. 09 O cru ikióiett vwumerlc,^^^
Loogavegi 170-172,— Sími 21240
NYKOMNIR
RAFGEYMARNIR
Gísli Kristjánsson: SEXTÁN KONUR
Hér er rakinn ferill og framtak sextán
kvenna í nútímahlutverkum. Starfsvett-
vangur kvenna er alltaf að stækka. Á æ
fleiri sviöum, sem áöur voru talin sér-
sviö karla, hafa konur haslaö sér völl.
Hér segja frá menntun sinni og störfum:
Veöurfræöingur, rithöfundur, læknir,
loftskeytamaöur, deildarstjóri í ráöu-
neyti, safnvöröur, alþingismaöur, fiski-
fræöingur, Ijósmóöir, jaröfræöingur,
íþróttakennari, oddviti, garöyrkjukandi-
dat, félagsráögjafi og arkitekt. Frásagn-
ir þeirra geisla af starfsáhuga og lífs-
gleöi og fjölbreytni efnis er einstök.
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SE
Benedikt Gröndal: RIT I
3.
Sígilt og skemmtilegt
safnrit.
Benedikt Gröndal er meöal afkasta-
mestu rithöfunda íslenskra aö fomu og
nýju og einna fjölhæfastur og fyndnast-
ur þeirra allra. Þetta fyrsta bindi rita
hans hefur aö geyma kvæöi, leikrit og
sögur, m.a. er hér .Sagan af Heljarslóö-
arorrustu“ og .Þóröar saga Geirmunds-
sonar“, báöar bráöfyndnar og stór-
skemmtilegar. í síöari bindum þessa
safns veróa blaóagreinar hans og rit-
gerðir og sjálfsævisagan Dægradvöl.
SKUGGSJÁ
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OUVERS STEINS SE