Morgunblaðið - 12.12.1981, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.12.1981, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 Bændaskógar Eftir Hákon Bjamason Það er víðar en á íslandi, sem landbúnaður á { vök að verjast. Sakir vélvaeðingar, óhóflegrar notkunar á tilbúnum áburði og margs fleira hefur orðið bylting í öflun matvæla með þeim afleiðingum, að kjör smábænda fara æ versnandi. Hvarvetna, þar sem ekki er um nýja atvinnumöguleika að ræða, hljóta búferlaflutninar úr sveit til þorpa og borga að halda áfram eða jafnvel að aukast. Þetta á sér stað um nær allan hinn vestræna heim. Við höfum ekki farið varhluta af þessu, og flutningar fólks úr sveitum halda áfram þrátt fyrir styrki og niðurgreiðslur, ef ekki verður að gert. Slíkt er erfitt mál og að mestu óleyst hér á landi, en margar hugmyndir hafa skotið upp kolli til að leysa vandann svo sem refa- og minkarækt, laxa- og silungarækt ásamt fleiru. Allra síðast kom fram hugmynd um aukna ræktun byggs í veðursælum sveitum. En allt eru þetta gömul úrræði, sem hafa verið reynd áður með misjöfnum árangri. Fyrsta grisjun í Víðivallaskógi í ágúst 1981. Tólf árum eftir plöntun. (Ljósm.: Halldór Sigurðsson.) Vandamál Fáir hafa látið til sín heyra um þann þáttinn, sem er traustastur allra til að halda við byggð í sveit- um, sem hafa sæmileg náttúru- skilyrði. Hann er sá, að koma upp skógi á jörðum bænda með svipuð- um hætti og gert hefur verið í Fljótsdal undanfarin 12 sumur. Áður en að þessu er vikið skal sagt frá grein, sem mér barst í hendur fyrir fáum dögum, um atvinnu- hætti tii sveita í Skotlandi eftir J.P. Newton. Hún nefnist Employ- ment in the Hills and Uplands. Atvinnuhættir í hálöndum Skot- lands eru víða ekki ósvipaðir því, sem hér gerist. Þar er mikil sauðfjárrækt, miklu meiri en hér, en hvorki bændur né húsmenn geta lengur lifað af þeirri atvinnu- grein nema með ríkisstyrkjum, sem geta auðvitað ekki staðið til eilífðarnóns. Höfundur greinar- innar bendir á ýmsa möguleika til smáiðnaðar í nokkrum héruðum, en víðast er engra kosta völ nema eins, og hann er sá að auka skóg- rækt í hálöndunum af fremst megni. Hér á landi eru náttúruskilyrði til allra ræktunar allmiklu erfið- ari en í Skotlandi, þótt ýmsum stöðum í hálöndunum svipi til syðstu sveita landsins að því er veðurfar snertir. Traust undirstaða Fyrir 83 árum var hafist handa í skógrækt á íslandi, og er því komin löng reynsla af ræktun ým- issa trjátegunda. Síðar bættust fleiri í hópinn fyrir 40—50 árum. Hér hafa einkum verið 12 tegundir barrtrjáa og 5 tegundir erlendra lauftrjáa í stöðugri ræktun, sem allar hafa borið þroskuð fræ und- anfarin 15—20 ár. Margar þeirra hafa fundist sjálfsánar í grennd skógarteiga, og má því telja þær nýja og nýta borgara í íslensku gróðurríki. Því verður ekki á móti mælt, að við höfum traustan grunn til að byggja á, þegar horfið verður að skógrækt í auknum mæli. Fyrir 12 árum var hafin ræktun bændaskóga í miklu stærri mæli en áður var gert. Gerð var áætlun um skógrækt á jörðum bænda í Fljótsdal í Suður-Múlasýslu þar sem boðnir voru fram styrkir við fyrstu gerð svo sem girðingar og plöntur, en síðar á hluti af þeim að endurgreiðast að nokkru með af- urðum. Þegar hér er komið sögu hafa 224 ha lands verið girtir og er búið að planta í þriðjung þess. I sumar var meðalhæð elsta lerki- teigsins, sem plantað var í á Víði- völlum vorið 1970, 3,5 metrar en hæstu trén nálægt 5 metrum. Héðan af líða ekki meira en 7—10 ár uns bændur geta aflað sér ágætra girðingastaura við grisjun, en úr því mun eftirtekja aukast jafnt og þétt. Þegar þétt er plant- að, um 6.000 plöntum á ha lands, er hæfilegt að grisja þriðja hvert ár, og þegar skógur hefur náð full- um þroska standa oft ekki nema 300—400 tré á ha. Það verða því mörg tré, sem falla við grisjun og öll má nýta til einhvers. Það er víðar en í Fljótsdal, sem gerðir hafa verið samningar við bændur og landeigendur um plöntun til skóga. A Ystafelli í Kinn var gerður samningur við bændur um skógrækt, en með nokkuð öðrum hætti. Þar hafa bændurnir haft drjúgar tekjur um nokkur ár með því að selja jólatré, og eru þeir hæstánægðir með ár- angur. Svipaður samningur hefur einnig verið gerður við landeig- endur í Skorradal, og þar er sama upp á teningnum. Skógrækt Á Suðurlandi horfir þetta öðru- vísi við. Þar er Tunguskógur, rösklega 10 ha að flatarmáli, sem Fljótshlíðarhreppur á. En hann er þannig til kominn, að Klemens Kristjánsson á Sámsstöðum gaf hreppnum girðingarefni og Oddgeir Guðjónsson, bóndi í Tungu lét af hendi land undir væntanlega plöntun án endur- gjalds. í land þetta hefur verið plantað sitkagreni ásamt nokkr- um öðrum tegundum, einkum stafafuru. Nú er kominn þéttur barrskógur um nær allt landið og hefur skógurinn þegar gefið nokkrar tekjur af sér, enda hefur vöxtur hans verið með ágætum. Á öðrum stað í Rangárvalla- sýslu hefur verið plantað allmiklu í land í einkaeign. Upphaflega var plantað í holur á venjulegan hátt, en síöan í plógstrengi á skóglausu landi. Hvorttveggja hefur tekist vel, en það, sem plantað var og sáð í plógstrengina, ber mjög af hinu í vexti og þroska. Árangur af plönt- un í plógstrengi, bæði hér, í Haukadal og við Hallormsstaö, sýnir glöggt að unnt er að koma upp skógi á berangri á sama hátt og gert er í Skotlandi, en þaðan kom hugmyndin um að reyna þessa aðferð hér á landi. Mælingar á vexti skóga Til lítils væri að ráðast í mikla skógplöntun án þess að hafa hugmynd um eftirtekjuna. Mæl- ingar á vexti skóga eru þó nokkrar til, en þær elstu hófust 1952. Lerkiteigur á Hallormsstað hefur verið mældur á þriggja ára fresti í nær 30 ár og þær sýna að viðar- vöxturinn á ha hefur numið yfir 7 teningsmetrum viðar að meðaltali ár hvert. Af öðrum og yngri mæl- ingum má ráða að sitkagreniskóg- ur muni geta vaxið með 4—6 ten- ingsmetra viðarauka á ári á hekt- ara lands og jafnvel náð lerkinu er trén eldast. Svipað gildir um stafafuru, en hún er öll yngri en grenið og ná mælingar því ekki eins langt aftur. Til þess að ræktun skóga borgi sig þarf viðarvöxtur á ha lands að vera milli 2 og 3 tengingsmetrar á ha á ári, en með því að viðarverð stígur ört þarf tæplega að ætla meiri vöxt en um eða rétt innan við 2 tengingsmetra. Ræktun á okkar eigin birki er hinsvegar tvísýn, þar sem vöxtur þess nær tæplega 1 tenlngsmetra á ári á ha iands þar sem skilyrði eru hvað best. Að vísu bætir það jarðveg og gefur skjól, en með slíku er sjaldan reiknað. Hvar eru skilyrði til skógræktar Öllum má vera ljóst, að það er ekki unnt að rækta skóg um allt land. Til að hafa sem mestan hagnað verður að hasla skógum völl í veðursælum sveitum. En af reynslu okkar má benda á ýmsa staði og héruð. Fyrst má nefna efri hluta Fljótsdals, en þar er reynslan lengst, allt frá 1903. Enda hefur árangur af Fljótdalsáætluninni ekki látið á sér standa. í Eyjafirði eru víða mjög góð skilyrði til skógræktar, og má ráða það af þrifum ýmissa trjátegunda í reit- um víðsvegar í firðinum. Land- þrengsli hafa valdið því, að menn hafa ekki hafist handa fyrir löngu. Fyrsta gródursetningin samkv. „Fljótsdalsáætluninni" við Víðivelli í Fljóts- dal 23. júní 1970. Plantað var síberisku lerki. (LJó.sm.: Halldór Sigurdsson.) Vanhugsuð ákvörðun sjávarútvegsráðherra Eftir Hrólf S. Gunnarsson skipstjóra Sjávarútvegsráðherra ákvað að loðnuveiðum skyldi hætt. Ástæð- an er sögð vera sú, að loðnustofn- inn sé of lítill og hætta á útrým- ingu hans. Ráðherra byggir ákvörðun sína á niðurstöðum stofnstærðarrannsókna Haf- rannsóknarstofnunar, en þær voru framkvæmdar í október og aftur í nóvember. Ástæðan fyrir þessari grein minni er tvíþætt: Annars vegar sú, að ég dreg stórlega í efa, að niður- stöður Hafrannsóknar séu réttar og þá skoðun byggi ég á reynslu minni sem loðnuskipstjóri í 17 ár. Hins vegar tel ég, að sjávarút- vegsráðherra hafi brugðist við of seint, liggi verndunarsjónarmið til grundvallar, og niðurstaðan verð- ur sú, að sjómenn og útgerðar- menn verða margir hverjir, ekki allir, fyrir miklu fjártapi, því þótt sumir hafi nú þegar lokið veiðum, þá hafa margir rétt byrjað þær og aðrir eru hálfnaðir. Ef ráðherra hefði brugðist fyrr við, hefði stöðvunin haft friðunargildi og hún hefði ekki mismunað mönnum eins og nú. Þrátt fyrir staðhæfingar loðnu- sjómanna hafa fiskifræðingar staðhæft ár eftir ár, að loðnu; stofninn væri nærri uppveiddur. 1 október sl. kom út skýrsla frá Hafrannsókn og segir í henni að stofnstærð loðnunnar sé komin niður í 140.000 tonn. Þarna kom til álita að hætta loðnuveiðum, en fyrir orð sjómanna og útvegs- manna, sem sjávarútvegsráðherra laði trúnað á, er leyft að halda áfram veiðum. Miðað við þau handarbaksvinnubrögð sem á eftir komu, hefði verið réttast að hætta veiðum á þessum tíma. Þá hefði stöðvunin komið jafnt niður á öll- um og fleiri tonn af loðnu hefðu verið friðuð en nú. í byrjun desember kemur út önnur skýrsla frá Hafrannsókn sem er niðurstaða úr annarri mælingaferð stofnunarinnar. í kjölfar skýrslunnar eru loðnuveið- ar stöðvaðar. Þá eru 12 skip búin að veiða kvóta sinn, nokkur í þann veginn að klára en fjölmörg eru rétt byrjuð eða hafa aðeins náð helmingi síns afla. Þessi skip eru Hrólfur S. Gunnarsson stöðvuð, en þó er þeim skipum, sem ekki hafa veitt helming síns afla, leyft að ná því marki. Leyfi- legur afli íslendinga á þessu ári er „Ég tel að sjávarút- vegsráðherra hafi gjör samlega brugðist skyldu sinni, bæði hvað varðar loðnuveiðar Norð- manna og einnig hvað varðar sjómenn og Haf- rannsókn.“ 618.000 tonn og Norðmenn hafa leyfi til að veiða 82.000 tonn. Þeg- ar loðnuveiðar eru stöðvaðar eru aðeins 170.000 tonn eftir af kvóta ísiendinga og þegar öll kurl koma til grafar munu rétt um 100.000 tonn verða eftir. Norðmenn hafa veitt sinn kvóta og rúmlega það. Á þeirra vegum hafa 160.000 tonn verið veidd, þ.e.a.s. 80.000 tonnum meira en þeir höfðu leyfi til. Af 700.000 tonna leyfilegs loðnuafla er verið að friða um

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.