Morgunblaðið - 12.12.1981, Síða 17

Morgunblaðið - 12.12.1981, Síða 17
I Edinborgarháskóla. Var þar við tölfræðideild háskólans í 2 ár og vann þar við að semja doktors- ritgerð um erfðir á sauðalitun- um. Og það er rétt að þær kenn- ingar, sem ég setti fram, er al- mennt viðurkenndar í heimin- um. Allar upplýsingar, sem ég hafði hér heima, sem voru mikl- ar að vöxtum, var ég búinn að setja á gataspjöld. Tók spjöldin með mér út. Mun hafa verð sá fyrsti til að gera tölvugögn í landbúnaði hér á landi. Það þótti fáránlegt þegar byrjað var á því á þeim árum að gera gögn tölvu- tæk á Islandi. • Þáttur sauðkindarinnar — Við getum ekki hætt að tala um sauðkindina án þess að drepa á hana, og ásakanir um að hún eyði landi. Þú fjallar um það í bók þinni? — Já, það hefur verið mikið deilt á fjárbúskap, bæði á umliðnum öldum og ekki síður þann sem nú er í landinu, því haldið fram að sauðfé fari illa með land. Ég reyni að gera þess- um þætti eins öfgalaus skil og ég treysti mér til. Það liggur ljóst fyrir að við fjárbeit hverfa ákveðnar plöntur algerlega úr gróðurlendi. Til dæmis er engin von til að sjá hvönn á landi, þar sem sauðfé er beitt. Og hafi skógi verið eytt, nær hann sér aldrei upp meðan beitt er. Víðir lætur mjög mikið á sjá, enda er hann eftirsóttur og líkt er farið með margar blómjurtir. Það er ekki satt að öll beit sé af hinu illa. I mörgun tilvikum gerist það eitt að víðir og blómplöntur hverfa eða verða minna áberandi í gróðrinum og gras kemur í staðinn. Þetta má sjá alls staðar þer sem er nægilega raklent og gróskumikið til að þar spretti vel gras. Allt láglendi í Skagafirði er dæmigert fyrir þessa breyt- ingu, svo dæmi sé tekið. — En svo kemur spurningin, heldur Stefán áfram, hve mikinn þátt hefur kindin átt í því að eyða gróðri á viðkvæmum svæð- um, svo að uppblástur hlytist af? Um það er allt óljósara að mín- um dómi og þar hafa margir fleiri þættir komið til. Ég tek fyrir marga þá þætti í bókinni, til að skapa umræðugrundvöll. — Mér finnst þörf á því fyrir þessa þjóð að til sé sæmilega rétt lýsing á fjárbúskap, eins og hann var frá upphafi vega hér á landi og langt fram á þessa öld, lýsingar á því hvernig menn nýttu hvert einasta líffæri af kindinni til matar eða annars, hvernig þeir nýttu ullina og skinnin til skjóls og hvernig þeir fóru að því að láta féð lifa af landinu og lifðu sjálfir af fénu, sagði Stefán að lokum um til- ganginn með útgáfu bókarinnar um íslenzku sauðkindina. - E.Pá. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 49 Jose Luis Borges í viðtali við brezkan blaðamann: „Sú hefð hefur skapazt að ég ekki Nóbelsverðlaunin“ „Ég er gamall, blindur og afskaplega latur maður sem er að dreyma mig burt frá lífinu,“ sagði Jorge Luis Borges, frægasti og merkasti rithöfundur Suður Ameríku, nýlega í viðtali við brezkan blaðamann, Douglas Grant Mine, og birtist viðtalið hér í lauslegri þýðingu. Borges segist hlakka til þegar algleymið taki við, en bætir við: „Þrátt fyrir það líður ekki sá dagur, aö ég gleðjist ekki um stund, kannski aöeins fáein andartök." Veggírnir á heimili hans eru þaktir bókum, en hann sér þær ekki lengur, þó gat hann brosað er hann ræddi um verk sín, lífið almennt og Nóbelsverðlaunin, sem í átján ár hafa smogið úr greipum hans. Jose Luis Borges á íslandi 1971. Hann hefur haft áhuga á hug- vísindum, frá Búddatrúar kenn- ingum til norrænna mála og goöafræði frá unga aldri. Hann rifjaöi upp Ijóölínu um dauöann úr ensku miöaldakvæöi: „Hurö- arlaust er þetta hús og dimmt er þaö inni“. „Ég hugsa um dauö- ann sem mikla von,“ sagöi hann. „Ég vonast til aö þurrkast út, gleymast algerlega, hverfa í al- gleymiö." Og hvaö um þær bókmenntir sem hann lætur eftir sig — þrjátíu og fimm bindi sagna og Ijóöa sem hafa verið þýddar á meira en tuttugu tungu- mál? „Fáeinar fingraæfingar, sem munu falla í gleymsku og dá.“ Hann er nú aö vinna aö ritgerö um Dante meö hjálp einkaritara sins, þýöingu á verki dulspek- ingsins þýzka Angelus Sileseus yfir á spönsku og safni smásagna sem hann hugsar sér aö nefna „Til minningar um Shakespeare." Borges hefur verið tilnefndur til Bókmenntaverölauna Nóbels síöan 1963, en sagöist hafa gefiö upp alla von um aö fá þau. „Sú hefö hefur skapazt, aö ég fái ekki verölaunin og heföir skulu virtar,“ sagöi hann. „Þaö hefur orðiö mér til góös aö fá þau ekki. Ég hef fengið önnur bókmenntaverölaun í Frakklandi, Ítalíu og á Spáni — kannski vegna þess að ég hef ekki fengiö Nóbelsverölaunin." Hann hefur veriö kallaöur orösins snillingur, en sjálfur er hann hógvær þegar hann íhugar gildi eigin verka. „Kannski mér hafi tekizt aö setja saman fáein orö — ekki heila bók, en kannski nokkrar blaösíöur sem munu ekki gleymast. En mér finnst ég ekki veröur verölauna sem hafa veriö veitt Rudyard Kipling, George Bernard Shaw og Willi- am Faulkner,“ segir hann. Borges lýsir sér sem anarkista og kveöst ekki hafa áhuga á stjórnmálum. Um hershöföingj- ana sem hafa stjórnaö landi hans síöan í byltingunni 1976 segir hann. „Ég held aö þeir séu ekki sérlega hæfir menn, en þeir vilja vel, aö mínum dómi.“ Hann segir aö jafnvel áður en hann missti sjón 1956 hafi hann ekki lesiö blöö, en hann hefur þó fylgst meö veröbólgu í Argentínu og vaxandi atvinnuleysi. „Þaö er afleitt ástand í þessu landi og enginn veit ástæöuna. Kannski orsökin sé siöfræöilegs eölis. Kannski viö séum á lágu siöferöisstigi, ofbeidi, mútur, lygimál. En ég hef ekki upp á neinar lausnir aö bjóöa. Kosn- ingar myndu vera hrapalleg mis- tök.“ Borges segist vera sammála skozka heimspekingnum Thom- as Carlyle varöandi lýöræöi; þaö sé öngþveiti sem búiö sé til í kjörklefunum. „Lýðræöi er af hinu illa" segir hann. „Því þurfa allir aö skipta sér af pólitík?" Hann á beizkar minningar um stjórn Perons en áriö 1946 var Borges sviptur starfi sinu sem bókavöröur borgarbókasafns Buenos Aires og settur í að vera eftirlitsmaöur meö kjúklingum á kjötmörkuðum borgarinnar. Borges sagöi aö eftirlit her- stjórnarinnar meö því, hvaö borgararnir mættu lesa og sjá þyrfti ekki aö vera alveg nei- kvætt. „Ritskoðun er skárri en skefjalaust frjálsræöi," sagöi hann og benti á pornóiö máli sínu til stuönings, sem væri vaö- andi uppi í frjálsum þjóðfélögum. Hann talar stoltur um forfeöur sína, sem böröust í sjálfstæö- isstríöi Argentinu gegn Spáni, svo og styrjöldum sem voru háö- ar gegn frumbyggjum eftir aö landiö var opnaö Evrópskum landnemum. „en nú er ég friöar- sinni" segir hann. „Ég geri ráö fyrir að réttlæta megi sumar styrjaldir, en ef viö viöurkennum aö hægt sé aö réttlæta stríö get- ur heimurinn fundiö átyllu til aö réttlæta öll stríö." Hann hélt áfram. „Það er hörmulegt aö heiminum skuli skipt í mismun- andi lönd. Þannig veröur til jarö- vegur fyrir ófriö, óreiöu og hatur. Ég hugsa um sjálfan mig á sama hátt og Stóumenn geröu, ég er heimsborgari í víöasta skilningi þess orös. Ég hugsa um Austin í Texas á sama hátt og Buenos Aires eöa Montevideo, Genf eöa Edinborg. Ég er borgari í heim- inum.“ Borges hefur haft yndi af ferðalögum allt sitt líf. Hann seg- ist hafa verið uppnuminn af Jap- an, þegar hann var þar á ferö fyrir skömmu og hann langar aö fara til Indlands og Kína, áöur en hann hverfur inn í dimma hurð- arlausa húsiö í enska miöalda- kvæöinu. „Ég óttast ekki viti og el ekki með mér von um himnaríki.-segir hann og kveöst vera efasemdar- maöur í trúmálum. Borges kvæntist sextugur aö aldri, en skildi viö konu sína tíu árum síðar. Hann kveöst ekki trega aö skilja ekki eftir sig af- komendur, en velti fyrir sér hvaö óbornir synir hans heföu fariö á mis viö. „Lífið getur veriö voöalegt. En þaö getur veriö unaöslegt. Því í ósköpunum ætti aö kveöa niöur lífiö sem er svo litríkt þótt það sé á stundum mjög sárt.“ SKUGGSJA Kvaran: UNDUR ÓFRESKRA Síðan sögur hófust hafa lifaö frásagnir um fólk, sem öðlaöist þekkingu án að- stoöar skynfæranna. Þessi óvenjulega bók hefur að geyma fjölda sagna af slíku fólki, dularfullar furðusögur, sem allar eru hver annarrí ótrúlegri, en einnig allar vottfestar og sannar. Enginn islendingur hefur kynnt sér þessi mál jafn itarlega og Ævar R. Kvar- an. Þessar óvenjulegu sögur bera því glöggt vitni hve víöa hann hefur leitað fanga og hve þekking hans á þessum málum er yfirgripsmikil. BÓKABÚD OUVERS STEINS SE Ruth Montgomery: ÓVÆNTIR GESTIR ÁJÖRÐU Ruth Montgomery er vel kunn hér á landi af fyrri bókum sínum: „Framsýni og forspár", ,i leit að sannleikanum* og .Lifið eftir dauðann“. Þessi bók hennar er óvenjulegust þeirra allra. Megin hluti hennar fjallar um það, sem höfundur- inn kýs aö kalla ,skiptisálir“ og hlutverk þeirra. Tugþúsundir skiptisálna eru meðal okkar, háþróaöar verur, sem hafa tileinkað sér Ijósa vitund um tilgang lífs- ins. Flestar þeirra starfa í kyrrþei mitt á meðal okkar og leitast við að hjálpa okkur. Þetta fólk leitast við að þroska meö okkur lífsskoðun, sem stuðlar aö kjarki og góðleika. SKUGGSJA BÓKABÚD OUVERS STEINS SE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.