Morgunblaðið - 12.12.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981
55
fclk í
fréttum
Apology? Pass, say BBC
Master-
mind
vekur
deilur
+ Spurningaþáttur Magnúsar
Magnússonar í BBC-sjónvarpinu,
„Mastermind“, nýtur mikilla vin-
sælda, svo sem sjá má af meðfylgj-
andi úrklippu úr Daily Mail, sem
birtist á annarri síðu blaðsins, þar
sem jafnan eru ekki nema stór-
fréttir.
Af frásögn fréttarinnar má
ráða að einn þáttur í þessari
spurningakeppni, er að spyrja
menn útúr á tilteknu sviði sem
þeir velja sér fyrirfram og geta
þannig undirbúið sig undir
spurningarnar. Skoti nokkur
sem tók þátt í keppninni hafði
búið sig sérstaklega vel undir
þáttinn og einmitt á því sviði
sem átti að spyrja hann útúr,
mannkynssögu frá 421—404
fyrir Krist. En Magnús fór óvart
aðeins aftar í tímatalinu og
spurði manninn um stríð Aþen-
inga og Spartverja árið 431 f. Kr.
og þar var Skotinn ekki nógu vel
heima og sagði því „Pass“ og
spurningin fór því til næsta
keppanda. í frásögninni í Daily
Mail eru reglur þessa spurninga-
þáttar ekki útskýrðar enda
sjálfsagt reiknað með að allir
lesendur blaðsins séu þættinum
nákunnugir. En þessvegna verð-
ur það semsé ekki útskýrt hvaða
afleiðingar það hafði fyrir Skot-
ann að geta ekki svarað um-
ræddri spurningu, nema eftir út-
sendingu þáttarins krafðist
hann afsökunar frá BBC fyrir að
gera sig að jólasveini frammi
fyrir alþjóð. En BBC hefur alls
ekkert í hyggju að afsaka eitt
eða neitt. BBC-menn sögðu, að ef
Skotinn hef$i viljað gera at-
hugasemdir hefði hann átt að
stöðva upptöku þáttarins, svo
það hefði mátt bæta úr þessu en
ekki krefjast leiðréttingar eftirá.
Og þar við situr ...
Mitterrand
+ Hér á síðunni var ný-
lega greint frá vangavelt-
um dagblaða í Frakklandi
um slæma heilsu forset-
ans þar í landi, Francois
Mitterrand, en engar
frekari fregnir hafa borist
í þeim efnum. En svona
sjá bandarískir teiknarar
forsetann fyrir sér, og það
eru engin veiklumerki á
þeim manni...
BOKMENNTAKYNNING
HJÁ EYMUNDSSON
Klukkan 2 til 4 í dag mun
JÓN SIGURBJÖRNSSON
leikari lesa úr eftirtöldum
bókum:
Meðal gamalla granna
eftir
BRAGA SIGURJÓNSSON,
bankastjóra
Lífsjátning
GUDMUNDU
ELÍASDÓTTUR,
söngkonu
| Sjómannsævi eftir
'jj KARVEL
| ÖGMUNDSSON,
skipstjóra
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
VI (.LVSIM.A
SI.MINN KR:
22480
lUÍAQfhf
FÁLKINN