Morgunblaðið - 12.12.1981, Side 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981
Odýrir
gólfdreglar
á ganga og forstofur
Grensásvegi 13, Reykjavík, sími 83577 — 83430
Tryggvabraut 22, Akureyri, sími 96-25055.
llótelid í Stykkishólmi
Nýting herbergja vaxandi
hjá hótelinu f Stykkishólmi
Stykkishólmi, 3. desember I98I.
NÝLEGA fóru fram hótelstjóraskipti
vid hótelið í Stykkishólmi. Guðrún
Þorsteinsdóttir sem undanfarin ár
hefir stýrt hótelinu hverfur nú frá
því en við tekur Sigurður Skúli Bárð-
arson.
Ég átti tal við Sigurð þegar
hann var nýtekinn við. Hann hef-
ur mikinn hug á að reka hótelið
með rausn. Hótelið er á einum feg-
ursta stað í bænum og hefir yfir
að ráða tækjum og búnaði öllum
sem veitir ferðamanninum
ánægjuleg viðskipti.
Hann sagði mér að á þessu ári
hefði herbergjanýting verið með
mesta móti og vaxandi með hverju
ári sem líður. Sýnir það að fólk
metur aö verðleikum þjónustuna
og kemur aftur og aftur. Fyrir
næsta sumar er vel bókað og vax-
andi aðsókn. Hótelstjórinn bendir
á að með þeim samgöngum sem nú
‘ eru hér um slóðir, geti Snæfell-
ingar keypt allan veislumat hjá
hóteiinu og þar með stuðlað að
uppbyggingu góðs fyrirtækis í
sinni heimabyggð.
Þá vill hótelstjórinn benda höf-
uðborgarbúum á að þessi staður er
tilvalinn fyrir félög, klúbba og
starfshópa að halda hér árshátíðir
eða aðra fagnaði, enda ekki langt
að fara og skemmtileg leið, og er
það veruleg tilbreyting í skamm-
deginu, alveg eins og þegar lands-
byggðarmenn fara til Reykjavíkur
í leikhúsferð o.s.frv.
Þá er hugmyndin strax upp úr
áramótum að brydda á nýjungum
í rekstri með því að halda byggða-
kvöid Snæfellinga og i því sam-
bandi að fá skemmtikrafta úr við-
komandi byggðarlögum. — Verði
á veitingum yrði þá stillt í hóf og
eins á gistingu, miðað við aðsókn.
Þegar vorar mun hótelið taka á
móti ferðahópum, leiðbeina þeim
og útvega þeim farkosti um fjörð-
inn. Þegar fuglalífið er í blóma eru
slíkar ferðir dýrlegar.
Aðstaða öll er tilvalin fyrir
ráðstefnur minni og stærri hópa,
Hér hafa verið haldnar nokkrar
slíkar og aðilar mjög ánægðir með
allan viðurgerning.
Þriggja manna stjórn er fyrir
hótelinu og er Gissur Tryggvason
formaður hennar. FrétUriUri
Kodak
Ektralite400
myndavél sem
vekurathygli
Falleg og stílhrein myndavél með linsu f/6.8
— Ijósopi 24 mm. — Innbyggðu flassi —
Föstum fókus frá 1,2m til óendanlegt.
I fallegri gjafaöskju. Verð kr.:
HANS PfTERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER Umboðsmenn
S: 20313 S: 82590 S: 36161 um allt land
UOLA-
GJAFIR
Nú getum við boðið AEG smátæki á sérstaklega hagkvæmu verði
vegna lækkunar erlendis. Notið tækifærið og kaupið jólagjöfina strax.
BRÆÐURNIR ORMSSON HÁ
IAGMULA 9 SIMI 38820